Tíminn - 19.02.1991, Page 2
2Tíminrv
Þriðjudagur 19. febrúar 1991
Sunnlendingar stefna að vinnslu á heimalöguðu lopa-
bandi. Hugmyndir Helgu Thoroddsen ráðgjafa eru:
Heimavinnsla á ull-
inni sem stóriðn-
aðurinn tekur ekki
Að undanfómu hafa Búnaðarsamband Suðurlands og Samband
sunnlenskra kvenna staðið fyrir athyglisverðum fundum. Þar
hefur verið fjallað um leiðir á vinnslu ullar með öðrum hætti en
í verksmiðju. Helga Thoroddsen er ráðgjafi í þessu verkefni. Hún
segist binda vonir við að kynna megi þessa ull sem alíslenska
vöru og selja hana meðal annars í listvefnað.
Búið er að halda tvo fjölmenna
fundi á Flúðum og Hvolsvelli.
Helga segir hafa komið þar fram
áhuga fyrir verkefninu og um-
ræður verið líflegar. Hún segir að
eldra fólk hafi sérstaklega sýnt
þessu áhuga. Það muni sjálft eft-
ir ullarvinnu og því hafi sviðið
hver þróunin hafi síðar orðið.
„Mínar hugmyndir eru að fólk
vinni sjálft þá ull sem stóriðnað-
urinn vill síður. Þar á ég við mis-
lita ull og góða hvíta ull. Þannig
læri fólk að meta þetta hráefni og
vinna það sjálft," sagði Helga.
Hún leggur til að fólk vinni band
úr lopanum og þegar það sé kom-
ið megi gera annað og meira.
Markaðurinn fyrir ull af þessu
tagi virðist vera nægur. Helga
segir að á fundi ýmissa aðila sem
þessu tengjast og var haldinn síð-
astliðið haust hafi komið fram að
fólki finnist vanta þetta tæra ís-
lenska band. „Síðan hef ég áhuga
á að koma með sýnishorn af
svona bandi og kynna það fólki
sem hefði áhuga á að vinna úr
því. An þess að gera neina mark-
aðskönnun finnst mér að hér
innanlands sé þörfin fyrir hendi.
Eins í Bandaríkjum, þar sem ég
var við nám, veit ég að er mikil
eftirspurn eftir listvefnaðar-
bandi. Þetta er spurning um
markaðssetningu sem miðar að
því að kynna ísland og það sem
landið hefur upp á að bjóða. Við
hönnunina verðum við síðan að
fá fólk sem hefur smekk, til
dæmis textílhönnuði," sagði
Helga.
Hún segist binda vonir við að
fólk sem vill vinna við þetta
standi saman og stofni sameigin-
leg fyrirtæki. Hefur Helga verið
að leita eftir gömlum spuna og
kembivélum en hefur orðið lítið
ágengt. Því hefur hún borið ví-
urnar í sunnlenska hagleiks-
menn til að smíða slíkar véiar.
Rokka segir hún ekki raunhæft
að ætla sér að nota.
Sem stendur er Helga í hálfu
starfi við þetta verkefni hjá Bún-
aðarsambandi Suðurlands og er í
samstarfi við Framleiðnisjóð,
Byggðastofnun og iðnráðgjafa
Suðurlands. Nýlega hefur
Byggðastofnun samþykkt að ráða
hana í hálfa stöðu og mun hún þá
Sunnlendingar hyggjast nú fara aö vínna ullina heima, elns og áður
tíðkaðist Þó ekki með rokk eins og þessi kona, heldur með tækjum
sem svara kalli tímans.
eingöngu starfa á vegum stofn-
unarinnar. Aðspurð sagðist hún
velta fyrir sér að færa út kvíarnar
og starfa að þessu víðar en á Suð-
urlandi. Á hinn bóginn væri aftur
á móti spurning hve mikið ætti
að dreifa kröftunum.
-sbs.
Kvennalistinn í Reykjavík:
Framboðslisti Kvennalistans í
Reykjavík fyrir komandi alþingiskos-
ingar hefur verið ákveðinn. Sex efstu
sæti listans skipa; 1. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir blaðakona, 2. Kristín
Einarsdóttir þingkona og lífeðlis-
fræðingur, 3. Kristín Ástgeirsdóttir
sagnfræðingur, 4. Guðrún J. Hall-
dórsdóttir þingkona, 5. Guðný Guð-
björnsdóttir uppeldissálfræðingur
og 6. sætið skipar Þórhildur Þorleifs-
dóttir þingkona og leikstjóri.
Myndhöfundasjóður íslands stofnaður:
Ætlað að gæta réttar og
hagsmuna myndhöfunda
Nýlega var haldinn stofnfundur
Myndhöfundasjóðs fslands. Að
honum standa myndhöfundar, þ.e.
myndlistarmenn, teiknarar og
Ijósmyndarar. Er sjóðnum ætlað
að gæta hagsmuna þeirra og höf-
undarréttar félagsmanna vegna
birtingar á verkum til almennings
og vegna annarrar hliðstæðrar
notkunar.
Dæmi um hagnýta notkun mynd-
verka sem eru gjaldskyld er birt-
Nefnd sem kanna
á óveðurstjónið
Forsætisráðherra hefur skipað fjög-
urra manna nefnd til að fara yfir
tjónið sem varð af völdum ofsaveð-
ursins sem varð 3. febrúar síðastlið-
inn. Mun nefndin hefja störf bráð-
lega og á endanum skila skýrsiu um
starf sitt.
Hlutverk nefndarinnar verður að
leggja mat á það fjárhagstjón sem
varð og sundurliða þau tjón sem
ekki fást bætt eftir eðli þeirra og
umfangi og athuga hvort unnt hefði
verið að tryggja sig fyrir þeim. Einn-
ig er henni ætlað að setja fram til-
lögur um hvernig megi í framtíð-
inni sem best tryggja að tjón af völd-
um óveðurs og náttúruhamfara fáist
bætt. Skal nefndin meðal annars
meta hvort ástæða sé til aukinna
skyldutrygginga í þessu sambandi.
Formaður nefndarinnar er Kristján
Guðmundsson, fyrrum bæjarstjóri í
Kópavogi.
-sbs.
ing myndverka í sjónvarpi, blöð-
um, tímaritum, auglýsingum og
fleiri prenthlutum. Einnig sýning-
ar á myndverkum í stofnunum og
sýningarsölum. Myndhöfunda-
sjóðurinn mun koma á samvinnu
við hliðstæð samtök á Norður-
löndum. Ennfremur má gera ráð
fyrir hann fái aðild að Fjölís sem
fer með höfundarréttarmál vegna
fjölföldunar efnis í skólum og á
fleiri sviðum.
Á stofnfundinum kom fram að
löngu væri tímabært að taka höf-
unda-og birtingarétt föstum tök-
um. Fimm menn voru kjörnir í
stjórn. Formaður hennar var kjör-
inn Knútur Brunn hrl., fulltrúi
Sambands íslenskra myndlistar-
manna.
-sbs.
Öll börn
leikskóla
Fundur fulltrúa 12 foreldrafé-
laga við leikskóla í Reykjavfk hef-
ur sent frá sér áfyktun þar sem
lýst er furðu á að lagt sé fram á
Álþingi frumvarp um leikskóla
sem sérstakt skólastig án þess að
samhliöa sé tryggöur réttur allra
barna til skólans. Bent er á að í
frumvarpi þessu hafi vcriö
ákvæði sem tryggði öllum bðrn-
um á leikskólastigi rétt Ul hans.
f áfyktuninni er fyst yflr stuðn-
ingi við leikskóla sem forskóla
fyrir öll böm sem heyri einungis
undir ráðuneyti menntamála.
Jafnframt eru studdar tillögur
um ríkisframlag til uppbyggingar
leikskóla og taiið sjálfsagt að riki
og sveitarfélög sameinist um að
tryggja öllum bömum rétt til
leikskóla. -sbs.
Alþjóðlegri kvenna-
ráðstefnu frestað
Akveðið hefur verið að fresta um ár
alþjóðlegri kvennaráðstefnu sem
ráðgert hafði verið að halda hér á
landi í júní næstkomandi. Verður
ráðstefnan haldin í júní 1992. Það
var samdóma álit þeirra sem standa
að undirbúningi hennar að of
skammur tími væri til undirbún-
ings svo viðamikils verkefnis.
Markmið ráðstefnunnar er að ræða
nýja sýn í breyttum heimi og ber
ráðstefnan heitið: Heimsþing
kvenna um framtíðarsýn. Áætlaður
fjöldi þátttakenda er um 1000 og er í
ráði að halda undirbúningsfund sér-
staklega með konum frá Austur-
Evrópu og þróunarlöndunum. Fyr-
irhugað er að bjóða til ráðstefnunn-
ar fyrst og fremst konum en einnig
köríum sem lagt hafa fram skerf til
réttindabaráttu kvenna og nýrra við-
horfa í heiminum. -sbs.
Fyrsta tungu-
málatölvan
sem er með
íslensku
Flugleiðir hafa nú til sölu í flugvélum sínum litla og handhæga
tungumálatölvu. Hún er með 6 tungumála minni, þar með talinni
íslensku. Þetta er fyrsta tungumálatölvan sem er með íslensku
innbyggðri.
Tölvan heitir Hexaglot T-200 og er framleidd af bandaríksu fyrir-
tæki. Með henni er hægt að fá þýðingu af einu tungumáli yfir á
annað á rúmlega 16.700 orðum og á yfir 3000 orðasamböndum.
Flugleiðir munu selja tölvuna á sérstöku kynningarverði til að
byrja með sem er 6.500 krónur en í verslunum í Reykjavík kostar
hún rúmar 10.000 krónur.
-sbs.