Tíminn - 19.02.1991, Qupperneq 4
4 Tíminn
Þriðjudagur 19. febrúar 1991
Sprengjur á járnbrautarstöðvum í London:
Einn maöur lést og
a.m.k. 38 særöust
Einn maður lést og a.m.k. 38 særðust og sumir mjög alvarlega
þegar sprengjur sprungu á tveimur járnbrautarstöðvum í Lond-
on í gærmorgun. Sú fyrri sprakk í Paddingtonstöðinni en hún
olli engu manntjóni og litlum skemmdum. Sú síðari sprakk í
Viktoríustöðinni á háannatímanum og hafði fyrrgreindar afleið-
ingar í fÖr með sér. Yfirgnæfandi líkur voru taldar fyrir því að
írski lýðveldisherínn (IRA) hefði komið sprengjunum fyrir, en
enginn hafði lýst yfir ábyrgð sinni á sprengjunum þegar blaðið
fór í prentun.
Eftir seinni sprenginguna var
öllum aðaljárnbrautarstöðvunum
í London, fjórtán talsins, lokað og
lögreglan leitaði að fleiri sprengj-
um. Talsmaður Bresku járnbraut-
anna sagði að þetta væri í fyrsta
skipti sem allar aðaljárnbrautar-
stöðvarnar væru lokaðar á sama
tíma. Þetta hefði ekki einu sinni
gerst í seinni heimsstyrjöldinni í
loftárásum Þjóðverja á borgina.
Um hálf milljón manns mun hafa
orðið fyrir truflunum vegna þessa.
Eftir fyrri sprenginguna var
hringt í Umferðarmiðstöð Lúnd-
una og maður, sem sagðist vera í
írska lýðveldishernum (IRA), var-
aði við sprengingum. Haft var um-
svifalaust samband við lögregl-
una, en ekki vannst tími til að
Viðræður milli Sovétmanna, (raka og frana:
Sovétmenn leggja
bregðast við áður en seinni
sprengjan sprakk. Yfirmaður hjá
Scotland Yard sagði að maðurinn
sem hringdi hefði sagt að sprengj-
urnar (fleirtala) mundu springa
eftir 45 mínútur. Hann sagði að
þetta benti til að fyrri sprengjan
hefði sprungið fyrr heldur en hún
átti að gera.
Lögreglan var að leita að sprengj-
um í Viktoríustöðinni þegar
sprengjan sprakk þar. Talsmaður
lögreglunnar sagði að þeir hefðu
ekki ákveðið að loka stöðvunum
eftir viðvörunarsímtalið. Hann
sagði að á þeim þremur klst., sem
liðu frá fyrri sprengingunni þar til
sprengjan sprakk í Viktoríustöð-
inni, hefði sex sinnum verið
hringt til stöðvarinnar og tilkynnt
um að sprengju hefði verið komið
þar fyrir.
Reuter-SÞJ
Skæruliðar á Sri Lanka:
Fella 44
hermenn
Skæruliðasveitir Tamfla veittu
stjómarhermönnum launsátur á
sunnudag og drápu 44 og særðu 8,
samkvæmt upplýsingum frá
stjómarhemum.
Tamílar eru 2.5 milljónir af 16
milljónum íbúum Sri Lanka og
skæruliðar saka stjórnvöld um að
beita þá misrétti. Þeir hafa barist
fyrir sjálfstæðu landi Tamíla á
norðurhluta eyjunnar síðan árið
1983, en þetta er mannskæðasta
árás þeirra til þessa. Vopnahlé var
gert í byrjun ársins 1989 og teknar
upp friðarviðræður, en í júní á sein-
asta ári hófust bardagar aftur og
síðan þá hafa 3.500 manns látið líf-
ið.
Atburðirnir á sunnudag gerðust
með þeim hætti að tvær flokks-
deildir stjórnarhermanna gerðu
árás á skæruliða án árangurs og á
leiðinni til baka sátu um 200
skæruliðar fyrir þeim og stráfelldu
flokksdeildirnar. Einungis þrír her-
menn komust undan.
í síðustu viku bauðst Premadasa,
forseti Sri Lanka, að taka að nýju
upp friðarviðræður við skæruliða
Tamíla, en með því skilyrði að þeir
legðu niður vopn. Skæruliðar segj-
ast reiðubúnir til friðarviðræðna,
en án allra skilyrða.
Reuter-SÞJ
fram tillögur
Tareq Aziz, utanríkisráð-
herra Iraks, átti í gær við-
ræður við Alexander Bessm-
ertnykh, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, og Gorbat-
sjov, forseta Sovétríkjanna í
Moskvu. Þar lögðu Sovét-
menn fram tillögur sínar til
um að binda enda á stríðið,
en hvorugur viðræðuaðila
sögðu í hverju þær fælust.
Sovétmenn sögðu þó að þær
hvikuðu hvergi frá fyrri yfir-
lýsingum þeirra.
Eftir viðræðurnar við sovéska
ráðamenn fór Aziz aftur til Teher-
an, en þar mun hann eiga viðræður
við Rafsanjani, forseta Irans, í dag.
í gær lýsti Rafsanjani yfir bjartsýni
sinni á að endalok stríðsins væru í
nánd. Eftir viðræðurnar við Rafs-
anjani er búist við að Aziz fari til
Bagdad til að kynna Saddam árang-
ur ferðar sinnar.
Miklar vonir eru bundnar við
frumkvæði Sovétmanna. Margir
telja Sovétmenn, sem voru banda-
menn íraka áður en baráttan um
Kúvæt hófst og hafa útvegað þeim
flest þau vopn sem þeir beita nú,
geta haft áhrif á Saddam Hussein.
Margir arabískir stjórnarerindrek-
ar í Moskvu telja að Saddam geti
átt það til að semja við Sovétmenn
og/eða írani til að bjarga sér út úr
þeirri klípu sem hann er í, en
bandarískir hershöfðingjar segjast
hafa eytt um 35% af styrkleika
íraska hersins og sókn landhersins
vofir nú yfir. Þá eru óbreyttir borg-
arar í írak illa haldnir eftir stöðug-
ar loftárásir bandamanna.
Bush Bandaríkjaforseti sagðist
vera ánægður með tilraunir Gor-
batsjovs. „Gorbatsjov forseti gerir
allt sem í hans veldi stendur til að
binda enda á þessi átök,“ sagði
Bush. Sovéska fréttastofan Tass
hafði eftir bandarískum embættis-
mönnum í gær að Gorbatsjov Sov-
étforseti hefði sent Bush Banda-
ríkjaforseta bréf í gær og beðið
Tekst friðarverðlaunahafa Nóbels
að koma á friði við Persaflóa?
hann um að fresta sókn landhers-
ins þangað til hann hefði talað við
Aziz. Þetta fékkst ekki staðfest í
Moskvu. Talsmaður bandaríska
varnarmálaráðuneytisins sagði í
gær að þeir héldu aðgerðunum við
Flóann áfram, þrátt fyrir viðræður
Sovétmanna við íraka. Talsmaður
Hvíta hússins, Marlin Fitzwater,
var varfærinn í svörum sínum um
viðræður Sovétmanna og íraka.
Hann sagði að þeir hefðu ekki
fengið nákvæmar upplýsingar um
gang og niðurstöður viðræðnanna.
Herskip rekast á
tundurdufl
Tvö bandarísk herskip á Persaflóa
rákust á tundurdufl í fyrrinótt, að
sögn bandarískra embættismanna
innan hersins.
Þetta voru skipið Tripoli og beiti-
skipið Princeton, en þau munu
verða í eldlínunni ef flotinn reynir
Iandgöngu. Ekki urðu miklar
skemmdir á skipunum. Áhöfn
þeirra er samtals um eitt þúsund
manns, flestir landgönguliðar.
Þetta er í fyrsta sinn sem herskip
bandamanna rekast á tundurdufl í
Flóanum síðan írakar réðust inn í
Kúvæt þann 2. ágúst. írakar hafa
verið iðnir við að leggja tundurdufl
til að verjast innrás í Kúvæt af sjó.
Þá er einnig mikið um dufl sem
lögð voru í stríðinu milli íraka og
írana. Bandamenn segjast ekki vita
hvort þeir séu enn að leggja dufl en
þeir hafa sökkt eða skemmt flest
tundurduflaskip íraka frá því að
„Eyðimerkurstormurinn" hófst 17.
janúar.
Ef landgönguliðar eiga að sækja
inn í Kúvæt frá sjó virðist nauðsyn-
legt að gera tundurduflin óvirk.
Fimm fullkomnir breskir tund-
urduflaslæðarar, af gerðinni Tup-
perware Taskforce, eru líklegir til
að stjórna slíkri aðgerð, en þeir eru
fullkomnustu slæðararnir sem
bandamenn ráða yfir. Þeir eru nú á
leiðinni til Persaflóa, en áhafnir
skipanna hafa nýlokið margra
mánaða þjálfun.
Reuter-SÞJ
Fréttayfirlit
MOSKVA - Gorbatsjov Sovét-
forseti kynnti fyrir Tareq Aziz, ut-
anrikisráðherra Iraks, tillögur
Sovétmanna um að binda enda á
Persaflóastríðíð. Talsmaöur Gor-
batsjovs sagöi að viðraeðumar
viö Aziz hefðu verið mjög upplýs-
andi og Aziz ætlaði að kynna til-
lögur Sovétmanna fyrir Saddam.
Aziz fór til Teheran í gær og mun í
dag eiga viðræður við Rafsanjani,
forseta Irans.
NIKÓSÍA - Rafsanjani, forseti Ir-
ans, sagði i gær að likur á að
hægt væri að binda enda á átokin
við Flóann á friðsamlegan máta
hefðu aukist eftir að írakar hefðu
gefiö jákvæð svör við friðartillög-
um hans.
WASHINGTON - Bandaríkja-
menn halda áfram hemaðaraö-
gerðunum við Persaflóa, þrátt fyr-
ir tilraunir Gorbatsjovs til að binda
enda á átökin á friðsamlegan
máta, að sögn bandaríska varn-
armálaráðuneytisins.
LONDON - Sprengjur sprungu í
tveimur aðaljárnbrautarstöðvum í
London I gærmeð þeim afleiðing-
um aö einn maður lét llfiö og
a.m.k. 38 særðust. Innanrfkisráö-
herrann, Kenneth Baker, sagði að
frski lýðveldisherinn (IRA) bæri
líklega ábyrgð á verknaðinum.
DHAHRAN, Saudi-Arabíu -
Fréttamenn eru bálreiðir yfir því
að fá ekki fullnægjandl upplýsing-
ar um gang átakanna við Persa-
flóa og hótuðu þvf að fara til víg-
stöðvanna á eigin vegum. Nokkr-
ar ferðir hafa verið famar með
fréttamenn á vígstöðvamar, en
bandariskir og breskir fréttamenn
hafa næstum eingöngu fengiö
slík tækifæri.
VÍN - Hundruð albanskra stúd-
enta undirbjuggu hungurverkfall I
gær til að mótmæla því að eini
háskóli landsins sé kenndur við
fyrrverandi leiðtoga landsins, En-
ver Hoxha.
MOSKVA - Sovéski herinn tók
með vopnavaldi eina af bæki-
stöðvum óopinbers þjóðvaröliðs í
Georgíu i gær. Leiðtogi þjóðvarð-
liðsins sakaði forseta lýðveldisins
um að eiga aðiid að aðgerðinni.
MANILLA - Þrjátíu og fjórir léf-
ust í bardögum milii skæruliða
kommúnista og stjómarhersins á
Filippseyjum um helgina, að sögn
talsmanns stjómarhersins.
Reuter-SÞJ
Georgía, Sovétríkjunum:
Herinn tekur bæki-
stöövar þjóðvarðliðs
Sovéski herinn réðst á bækistöðv-
ar óopinbers þjóðvarðliðs í Georgíu
í gær. Landgönguliðar, skriðdrekar
og bryndrekar brutu þjóðvarðliða á
bak aftur og hertóku bækistöð
þeirra. Þetta er í fyrsta sinn sem
sovéski herinn leggur til atlögu við
sjálfskipaða þjóðvarðliða í Georgíu,
en þeir tóku upp vopn fyrir tveimur
árum þegar mikil þjóðemisólga
blossaði upp í Iýðveldinu.
Um þrjátíu þjóðvarðliðar voru í
bækistöðinni þegar herinn gerði
árásina, en þrír skriðdrekar og tíu
bryndrekar munu hafa tekið þátt í
árásinni. Leiðtogi þjóðvarðliðsins
sagði í viðtali fyrir nokkrum dögum
að hann gæti fjölgað í liði sínu um 6
þúsund manns á innan við átta klst.
í gær sakaði hann forseta lýðveldis-
ins um að eiga aðild að árás hersins.
Margir þjóðfrelsissinnar í Georgíu
viðurkenna ekki þjóðvarðliðið og
hafa sagt að það lúti stjórninni í
Kreml og fái vopn sín þaðan. Þeir
segja að tilgangur þess sé að valda
vandræðum í lýðveldinu.
Georgíubúar hafa á undanförnum
vikum lýst yfir áhyggjum sínum yfir
mögulegum aðgerðum hersins í Ge-
orgíu. Otti þeirra kom til vegna at-
burðanna í Eystrasaltsríkjunum.
Reuter-SÞJ