Tíminn - 21.02.1991, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 21. febrúar 1991
Tíminn 17
Við í Prentsmiðjunni Eddu
hönnum, setjum og prentum
allar gerðir eyðublaða fyrir tölvuvinnslu.
Við höfum einnig úrval af tölvupappír á Iager.
Reyníð viðskíptin.
Smíðjuvegi 3,
200 Kópavogur.
Sími 45000
AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS:
Bílaleiga nieö úlibú
allt í kringum landiö,
gera þér mtigulcgt aö leigja bil
á einum s«laö
og .skila honunt á iiörum.
Nvjustu
MITSUBISHÍ
bílarnir alltaf til taks
Traustir hlekkir
í sveiganlegri keðju
hringinn í kringutn landið
VETRARHJÓLBARÐAR
Nýir
fólksbílahjólbarðar
HANKOOKfrá Kóreu
Gæðahjólbarðar á mjög
lágu verði frá kr. 3.180,-
Örugg og hröð þjónusta
BARÐINN hf.
Skútuvogi 2, Reykjavík
Símar: 91-30501 og 91-04844
.fsr\
,V.
ÍjGT
Reykjavík: 91-686915
Akurevri: 96-21715
Borgarnes: 93-71618
ísafjóröur: 94-3574
Blöntluós: 95-24350
Sauðárkrókur: 95-35828
Egtlsslaöír: 97-11623
Vopnafjöröur: 97-31145
Höfn í Hornaf.: 97-81303
ÓDÝKIR
HELGARPAKKAR
Sýna þarf sömu
aðgæslu
á fáförnum vegum
sem öörum!
VÍÐA LEYNAST
HÆTTUR!
I UMFERÐAR
PrAð
Robln
Rafstöövar
OG
dælur
FRÁ
BENSÍN EÐA DIESEL
Mjög gottverð
Rafst.: 600-5000 w
Dælur: 130-1800 l/mín
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Simi 91-674000
Hann ber frægt nafn, Gamble
sem er síðari hlutinn af nafni stór-
fyrirtækisins Proctor & Gamble.
Þegar Robert varð 18 ára erfði
hann tvær milljónir dollara eftir
langalangafe sinn.
Fyrst í stað var heljar gaman að
hafa svona mikla peninga milli
handanna og Robert ætlaði sér
aldrei framar að vinna ærlegt
handtak. Smám saman fór þó að
renna upp fyrir honum að eitthvað
var bogið við tilveruna og hann
komst að þeirri niðurstöðu að það
voru peningamir sem íþyngdu
honum. Hann gerði sér ljóst að
hann yrði að hugsa um hvemig
hann ætlaði að verja peningunum,
í hverju hann ætti að fjárfesta til að
peningamir ávöxtuðust. Það fannst
honum óskemmtileg tilhugsun.
Hann var líka hræddur um að
verða latur og framtakslaus ef
hann þyrfti ekkert að hugsa um að
framfleyta sér og sínum.
Robert fór því smám saman að
gefa til góðgerðastofnana og svo fór
á endanum að hann tæmdi banka-
reikninginn sinn 1989. Hvílíkur
léttir, segir hann.
Nú býr Robert, sem er orðinn þrí-
tugur, ásamt konu sinni og eins árs
gömlum syni í Hamilton, Ontario,
Kanada. Hann grípur í starf sem
húsasmiður og kona hans vinnur í
íhlaupum sem hjúkrunarkona.
Árstekjumar eru 35.000 dollarar
og Robert segir að það nægi þeim.
Þau búa í tveggja herbergja leigu-
húsnæði og keyra um á litlum bfl.
Sjónvarpstækið þeirra er
svart/hvítt. Þau taka bæði þátt í
hjálparstarfi kaþólikka og oftast
nær deilir einn eða tveir flótta-
menn frá Mið-Ameríku litlu íbúð-
inni með þeim.
Tilbreytingin, sem þau veita sér, er
ókeypis, s.s. hjólreiðar, sund hjá
KFUM eða skokk. En þau kæra sig
ekki um meira og segjast sjálf hafa
valið þetta líf.
Robert Gamble grípur í tré-
smíðar til að drýgja heimilis-
tekjumar, en hann saknar ekki
tveggja milljóna dollaranna
sem hann gaf. Hann segir pen-
ingana hafa valdið sér vanlíð-
an og hann hafi verið hræddur
um að verða latur!
Fræg sjónvarpsstjarna
í kvennavanda
vitnin að því þegar hann bar upp
bónorðið við Joanna. Það gerðist í
beinni sjónvarpsútsendingu frá
jólaskrúðgöngu í Hollywood
1989.
. Ed McMahon hefur um árabil
verið aðstoðarmaður Johnnys
Carson í einum langlífasta sjón-
varpsþætti Bandaríkjanna, „Ton-
ight Show“. Eins og nærri má
geta hafa tekjurnar hans ekki ver-
ið í lægri kantinum, enda er hann
orðinn 67 ára. Og það em líklega
peningarnir sem hafa steypt hon-
um í þau vandræði sem hann er
staddur í núna.
Ed hefur lengi verið eftirsóttur af
konum. En ekki hafa öll sambönd
hans verið farsæl og þar spila pen-
ingamálin inn í. Um skeið var
hann trúlofaður konu, Joanna
Ford að nafni, og stóð til að brúð-
kaupið stæði 12. janúar. Meðan á
tilhugalífinu stóð kom í Ijós að Jo-
anna varð að ganga undir með-
ferð vegna krabbameins í brjósti
og stendur sú meðferð enn.
Þegar brúðkaupsdagurinn nálg-
aðist fór Joanna að færa sig upp á
skaftið og brýndi hún Ed ákaft að
ganga að konunni sem hann hafði
verið giftur næst áður og heimta
helminginn af öllu innbúi á því
sem verið hafði heimili þeirra. Ed
færðist undan því að vera svona
aðgangsharður við fyrrverandi
eiginkonu, enda þóttist hann hafa
gert vel við heitmeyna, gefið
henni hús, læknismeðferð og
reyndar gull og græna skóga.
Endaði með því að hann komst að
þeirri niðurstöðu að Joanna væri
ekki á höttunum eftir neinu öðm
en peningunum hans og sleit trú-
lofuninni.
En það er ekki að sjá að Ed
McMahon hafi lært af reynslunni
að umgangast konur af varúð.
Hann var ekki fyrr búinn að losa
sig við Joanna en hann var kom-
inn í slagtog með 26 ára gamalli
stúlku. Og hafi Joanna verið reið
áður missti hún nú algerlega
stjórn á skapi sínu. Hún æpir og
öskrar og hótar nú að hefja mál-
sókn á hendur Ed McMahon fyrir
heitrof.
Hann stendur ekki nægilega vel
að vígi, því að nógu mörg eru
Ed McMahon skemmtir sér nú
hiö besta í félagsskap Andreu
Casden, sem er 41 ári yngri
en hann.
Nú eru þeir tímar liðnir þegar hamingjusöm hjónaefni, Joanna
Ford og Ed McMahon, tóku fullan þátt í samkvæmislífi Hollywood.
Joanna hefur nú hótað því að helja málsókn á hendur Ed fýrir heit-
rof