Tíminn - 28.02.1991, Síða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur 28. febrúar 1991
Stjórn Landssamtaka sauðfjárbænda telur að bændur verði að fallast á
meginmarkmið tillagna sjömannanefndar, en búnaðarþing vill gera breytingar:
Niðurskuröurinn standi
til 1992 en ekki 1991
í drögum að ályktun sem liggur fyrír búnaðarþingi er gert ráð fyr-
ir að bændum verði gefið eitt ár í viðbót til að ná fram þeim mark-
miðum um 13% fækkun sauðfjár sem sjömannanefnd gerði ráð fyr-
ir að ná fram strax í haust. í drögunum er einnig hvatt tii þess að
hart verði tekið á bændum sem verða uppvísir að því að selja kinda-
kjöt framhjá opinberu kerfi og að þeir verði sviptir beinum greiðsl-
um tímabundið.
Það er aðalfundur Stéttarsambands
bænda sem kemur til með að sam-
þykkja eða fella álit sjömannanefndar
í formi nýs búvörusamnings. Strangt
til tekið er álit sjömannanefndar ekki
á verksviði búnaðarþings. Landbún-
aðarráðherra hefur hins vegar óskað
eftir því að fá álit búnaðarþings á til-
lögunum. Allt það sem búnaðarþing
kemur til með að álykta um tillög-
urnar verða aðeins í formi tilmæla til
Stéttarsambandsins.
í drögum að ályktun um tillögur
sjömannanefndar sem liggja fyrir
búnaðarþingi er gert ráð fyrir að að-
lögunartíminn verði lengdur, þannig
að á tímabilinu 1. maí 1991 til 31. ág-
úst 1992 kaupi ríkissjóður virkan og
óvirkan fullvirðisrétt, þó að hámarki
3.500 tonn. Miðað er við að verðtil-
boðin sem sjömannanefnd vill að
renni út í haust standi óbreytt fram
til haustsins 1992. Ef ekki verði búið
að ná settum markmiðum um niður-
skurð 1. september 1992 komi til
flatrar skerðingar. í tillögum sjö-
mannanefndar er gert ráð fyrir að
markmiðum um niðurskurð verði
náð í haust og þá strax komi til flatr-
ar skerðingar ef markmiðin náist
ekki. í drögum að ályktun búnaðar-
þings segir að komi til flatrar skerð-
ingar verði þeim sem stunda ein-
göngu sauðfjárbúskap greiddar 600
kr á kg, en aðrir fái 400 kr. á kg.
í drögunum segir ennfremur að sala
á fúllvirðisrétti verði heimiluð milli
einstaklinga 1. september 1992 og að
Framleiðnisjóði verði heimilað að
kaupa allt að 30% af fullvirðisrétti í
hverri sölu. Sjóðurinn selji síðan
þennan rétt til bænda á nánar til-
teknum sauðfjársvæðum.
í drögunum er lagt til að eldri
bændur verði sérstaklega aðstoðaðir
við að minnka eða hætta búskap.
Lagt er til að jarðasjóður fái aukið
fjármagn og honum gert kleift að að-
stoða sveitarfélög við að leysa til sín
jarðir og/eða kaupa þær jarðir, sem
bændur vilja selja og ekki seljast á
frjálsum markaði.
Bent er á að setja þurfi skýr fyrir-
mæli um skattlagningu sölu fullvirð-
isréttar. Gerð er sú krafa að virðis-
aukaskattur verði felldur niður eða
niðurgreiðslur á honum auknar. Þá
segir í drögunum að setja verði
ströng ákvæði til að koma í veg fyrir
framhjásölu á kindakjöti, t.d. að sá
bóndi, sem uppvís verður að slíku,
tapi tímabundið beinum greiðslum.
Stjórn Landssamtaka sauðfjár-
bænda hefur ályktað um tillögur sjö-
mannanefndar. Hún telur sauðfjár-
bændur ekki eiga annarra úrkosta en
fallast á meginmarkmið tillagnanna.
Stjómin vill að beitt verði öllum til-
tækum ráðum til að komast hjá
þvinguðum uppkaupum á fullvirðis-
rétti. Hún telur eðlilegt að inn í nýj-
an búvörusamning komi ákvæði sem
takmarki möguleika á stækkun búa
þar sem lítið beitiland er eða hætta er
á ofbeit. Þá vill stjórnin gera þá kröfu
að sama kostnaðarlækkun verði á öll-
um stigum sauðfjárframleiðslunnar,
vinnslu, dreifingu og sölu en ekki
bara hjá bændum. Stjómin vill ekki
að bændum verði mismunað milli
svæða og telur að stjómvöld verði að
nota annan vettvang en búvöm-
samning til að hafa áhrif á byggða-
þróun. -EÓ
Reykkafari á leið út úr reykjarkófinu í kjallaranum. Timamynd:ÁmiBiana
Eldur í „íbúð“
útigangsmanna
Eldur kviknaði í gömlum kyndi-
klefa í kjallara á Skólavörðustíg 21
í gær. Töluverður eldur var í kjallar-
anum þegar slökkviliðsmenn komu
á staðinn en greiðlega gekk að
slökkva hann. Töluvert var af drasli
í kjallaranum en hann er illa farinn
eftir eldinn. Eins varð íbúð og
verslun á fyrstu hæð fyrir nokkrum
skemmdum vegna reyks.
Tilkynnt var um eldinn um hádeg-
isbilið í gær. Gengið er að kjallaran-
um frá Njálsgötu en engu að síður
tilheyrir húsið Skólavörðustíg. Að
sögn Bergsveins Alfonssonar, varð-
stjóra hjá slökkviliðinu, er ekki vitað
um eldsupptök. Rannsóknarlög-
regla ríkisins vinnur að rannsókn á
eldsupptökum. Hugsanlegt er talið
að útigangsmenn, sem dvalið hafa í
kyndiklefanum, beri ábyrgð á eldin-
um en einnig var allt rafmagn þar
orðið lasburða. Reykkafarar sem
fóru inn voru stöðugt að fá raf-
straum í sig þegar þeir voru að
slökkva eldinn, vegna þess hve raf-
magnsleiðslur voru illa farnar.
Sjökkviliðsmenn náðu að slökkva
eídinn áður en hann náði að dreifa
sér en einhverjar eldtungur voru
farnar að teygja sig upp í íbúð á
næstu hæð. lbúð á fyrstu hæð og
innri hluti verslunar sem snýr að
Skólavörðustíg, fylltust af reyk.
Verslunin hefur að undanförnu ver-
ið lokuð vegna veikinda en einn
maður var í íbúðinni á fyrstu hæð.
Hann náði að forða sér út áður en
allt fylltist af reyk.
—SE
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar samþykkt:
Flestum minnihluta-
tillögunum hafnað
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
var samþykkt á fundi borgarstjórnar
á þriðjudag. Flestar tillögur minni-
hlutans voru felldar eða þeim vísað
frá við atkvæðagreiðsluna, en meiri-
hluti þeirra hljóðaði upp á aukna fé-
lagslega þjónustu á kostnað t.d. ráð-
hússins sem í verður veitt um 800
milljónum króna á þessu ári sam-
kvæmt fjárhagsáætluninni. Nokkr-
um tillögum minnihlutans var vísað
til viðkomandi nefnda og ráða borg-
arinnar og aðeins tvær samþykktar.
Ályktunartillögur minnihlutans
voru alls 60 að tölu og var flestum
þeirra hafnað, en nokkrum vísað til
viðkomandi ráða og nefnda. Auk
þeirra flutti miniiihlutinn fjölda
tölulegra breytingatillagna sem var
öllum vísað frá að tillögu sjálfstæð-
ismanna, nema tveim. Önnur hljóð-
aði upp á að veita æskulýðsfélagi
kirkjunnar 100 þúsund krónur og
hin upp á að hækka fjárframlag til
foreldrafélags misþroska barna um
150 þúsund krónur.
Samkvæmt fjárhagsáætluninni er
gert ráð fyrir að tekjur borgarinnar
á árinu verði um 12,1 milljarður
króna og tekjur fyrirtækja borgar-
innar alls um 9,1 milljarður.
—GEÓ
Apple umboðið:
Tímamynd: Ami Bjama
Kynning á nýjum tölvuforritum
Apple umboðið hélt í gær kynningu á
nýjustu útgáfu tveggja teikniforrita fyr-
ir Apple tölvur. Forritin kallast Illustra-
tor og Photoshop. Sigurður Ármanns-
son frá íslensku auglýsingastofunni sá
um kynningu á Illustrator og Jakob Jó-
hannsson frá auglýsingastofunni Hvíta
húsinu sá um kynningu á Photoshop,
en þeir nota báðir þessi forrit.
UPPGANGUR I ATVINNULIFI A
AKRANESI EFTIR MIKLA LÆGÐ
Mikil uppgangur er nú í atvinnulífi
á Akranesi eftir lægð liðinna ára. í
upphafi mánaðarins tóku tvö fyrir-
tæki tii starfa í gamla Hensonhúsinu,
sem er í eigu bæjarins. Þá er nýr tog-
ari á leið til Akraness og 3 stærstu út-
gerðarfyrirtæki staðarins hafa sam-
einast
„Eftir að bærinn eignaðist hús Hen-
sons höfum við reynt að fá þangað fyr-
irtæki. Það hefur nú tekist með því að
tvö fyrirtæki, Akró hf. og Sjóklæða-
gerðin, hafa leigt húsið af bænum.
Þetta er mikil lyftistöng fyrir okkur.
Þarna vinna nú tæplega 20 manns og
stefnt að því að gera þetta að enn
stærri vinnustaður,“ sagði Ingibjörg
Pálmadóttir, forseti bæjarstjórnar
Akraness, í samtali við Tímann.
Akró hf. er nýtt fyrirtæki og sérhæfir
sig í að sauma tískuföt. Forsvarsmað-
ur þess er Kristinn Sigtryggsson sem
áður var framkvæmdastjóri Arnar-
flugs.
Frystihúsið Haförninn, sem bærinn
er aðaleigandi að, hefúr nú nýverið
keypt togarann Þröst frá Bíldudal. Að
sögn Ingibjargar jók Akranessbær
hlutafé sitt í Hafeminum um 50 millj-
ónir kr. til þess að svo mætti verða.
Þá eru þrjú stærstu útgerðarfyrir-
tækin á Akranesi, Haraldur Böðvars-
son og co. hf„ Heimaskagi hf„ og Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðjan á Akra-
nesi hf„ að sameinast í eitt fyrirtæki.
Hjá fyrirtækjunum þremur vinna nú
um 300 manns. Ekki er gert ráð fyrir
að þeim fækki þrátt fyrir sameiningu.
-aá.