Tíminn - 28.02.1991, Side 3
Fimmtudagur 28. febrúar 1991
Tíminn 3
Ósabraut séð í austur að Artúnshöfða. Tölvuteikningar af Ósabraut inn á Ijósmyndir af svæöinu. Myndir:
Borgarverkfræðingur
Osabrautarbrú
tilbúin 1994
Fyrirhugað er að byggja brú yfir Ell-
iðavoginn, á svokallaðri Ósabraut.
Hún mun liggja frá Ártúnshöfða,
vestur yfir Elliðavoginn, framhjá
smábátahöfninni og tengjast þar inn
á Kleppsmýrarveg. Áætlað er að brú-
in muni kosta um 550 milljónir
króna og hefjast framkvæmdir við
hana líklega í lok þessa árs eöa byij-
un árs 1992. Hún verður tekin í
gagnið í tveimur áföngum árið 1993
og 1994.
Stefán Hermannsson hjá borgar-
verkfræðingi segir að ráðist sé í bygg-
ingu Ósabrautar til að létta á þeirri
gífurlegu umferð sem liggur um Ár-
túnsbrekkuna og um Höfðabakka og
Gullinbrú. „Þessari tengingu, sem
nær frá Elliðavogi og yfir á Höfða-
bakka rétt við Gullinbrú, er ætlað að
létta á þessari umferð, og ekki síður
fyrir þá sem búa nyrst í borginni, í
Grafarvogshverfinu, fyrir þá styttir
hún ansi mikið leiðina niður í bæ.
Þetta eru í raun tvær brýr, því að það
er smá fylling á milli og við höftim
valið frekar langar brýr til að gera þær
léttari, en þetta verður gífurlega fal-
legt mannvirki," sagði Stefán einnig.
Heildarkostnaður við Ósabraut er
áætlaður 550 milljónir króna. Áætlað
Svona mun Ósabrautin líta út, séð yfir Elliðavoginn.
er að sá kostnaður liggi að mestu í
hönnun á þessu ári, en framkvæmdir
hefjast síðan í lok þessa árs eða byrjun
þess næsta. Kostnaður á að greiðast
úr vegasjóði samkvæmt vegalögum,
því Ósabrautin flokkast undir þjóðveg
í þéttbýli. „Hún verður líklega tekin í
gagnið í tveimur áföngum, fyrsti hluti
árið 1993 og síðan verður henni lokið
1994,“ sagði Stefán einnig í samtali
við Tímann í gær. —GEÓ
Sinfóníuhljómsveit frumflytur tvö verk eftir
Rachmanínoff í Evrópu:
Sinfoman
frumflytur
Rachmanmoff
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Háskólabíói nk.
iaugardag kl. 14:30 verða frumflutt í Evrópu tvð verka Serges
Rachmaninoff. Þetta eru Píanókonsert nr. 4 í upphaflegrí mynd
og ófuflgerða óperan Monna Vanna, sem ekki hefur veríð áður
flutt í Evrópu vegna höfundarréttarvandamáia.
Hljómsveitarstjóri á tónlelkun-
um verður Igor Buketoff, en
hann var um þriggja ára skeió á
sjöunda áratugnum aðalhijóm-
sveitarstjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands. Buketoff var
vinur Rachmaninoffs síðustu
átta æviár hans og vegna þessar-
ar vlnáttu var hann beðinn um
að leita ieiða tll að koma óper-
unni á framfærí, segir í frétt frá
Sinfóníuhljómsveitinni.
Elnleikarí á tónleíkunum er
bandaríski píanóleikarinn Willi-
am Black og er talið að hann sé
eini píanóleikarinn í dag, sem
hafi þennan konsert á valdi sínu.
Black hefur hlotið margháttuð
verðlaun og viðurkenningar fyr-
ir pfanóleik sín og leikið einleik í
Bandaríkjunum, Kanada og víð-
ar í Evrópu.
Nokkrir söngvarar koma við
sögu í óperunni Monna Vanna.
Þar er merkastan að telja barí-
tónsöngvarann Sherrill Milnes.
Hann hefur um aldarfjórðung
sungiö í fiestum óperuhúsum
heims og hlotið takmarkalaust
lof fyrir. Hann hefur sungið ÖU
baritónhlutverk tónbókmennt-
anna og hvar sem komið er í
hljómplötuverslanir blasir nafn
hans við á hljómplötum og
geisladiskum ásamt söngvurum
eins og Pavarotti og Placido
Domingo.
Aðrír söngvarar eru Jón Þor-
steinsson, sem hefur í rúman
áratug starfað í Hollandi og
syngur nú við óperuna f Amst-
erdam, bandaríski baritónsöngv-
arínn Nickols Karousatos, sem
hefur, þótt ungur sé, getið sér
Igor Buketolt hlj6m
. - I* A. -|
Bvwiareqon.
WilBam Black Sherrfll Mllne* barl-
pianólolkari. tóntöngvari.
Blythe Walker sópr-
ansöngkona.
Nlckolas Karousat-
os baritónsöngvari.
gott orð sem söngvarí austan
hafs og vestan. Bandaríski ten-
órsöngvarínn Seth McCoy, sem
hefur hlotið mörg verðlaun fyrir
söng sinn og bandaríska sópran-
söngkonan Blythe Walker, sem
hefur sungið mörg sópranhlut-
verk tónbókmenntanna. Kór-
stjóri er Peter Locke, segir jafn-
framt í frétt Sinfónfuhljóm-
sveitarinnar.
Fangaverðir álykta um fangelsun
geðsjúkra afbrotamanna:
Sérstaka réttar-
geðdeild strax
„Það er skoðun félaga í Fangavarðaféiagi íslands að hraða verði
eins og kostur er stofnun sérstakrar réttargeðdeildar fyrir geðsjúka
afbrotamenn,“ segir í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi í
íifs!
Fangavarðafélagi íslands nýlega.
í samþykktinni er vitnað í lög um
fangelsi og fangavist þar sem segir
að fangi, sem á við líkamlega og
andlega fötlun að stríða eða þarfnist
af öðrum ástæðum sérstaks aðbún-
aðar, skuli afplána í því fangelsi sem
uppfylli skilyrði um slíkan aðbúnað.
Ekkert íslenskt fangelsi uppfylli þau
skilyrði sem hér sé átt við.
„Fangavörðum er fullkunnugt um
ástand þeirra einstaklinga sem þurft
hefur að vista í fangelsum landsins
um lengri eða skemmri tíma án þess
að þeir hafi hlotið viðeigandi með-
ferð eða sérfræðiþjónustu.
f nútíma þjóðfélagi, sem vill láta
kenna sig við framfarir og þróun, er
óhæfa að geðsjúkt fólk sé lokað inni
í einangrunarklefum fangelsa, bein-
línis vegna sjúkdóms síns.
Það hlýtur að vera krafa okkar sem
störfum við fangelsin, að þessir
skjólstæðingar okkar fái þá meðferð
og þjónustu sem þeim ber sam-
kvæmt lögum," segir ennfremur í
ályktun félagsfundarins.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00
1982- 1.fl. 1983- 1 .fl. 1984- 2.fl. 1985- 2.fl.A 1985-2.fl.B 01.03.91-01.03.92 01.03.91-01.03.92 10.03.91-10.09.91 10.03.91-10.09.91 10.03.91-10.09.91 kr. 127.257,41 kr. 73.936,79 kr. 53.937,24 kr. 35.233,98 kr. 24.285,71**)
*)lnnlausnarverö er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
**)Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiöslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, febrúar 1991.
SEÐLABANKI ÍSLANDS