Tíminn - 28.02.1991, Síða 7

Tíminn - 28.02.1991, Síða 7
Fimmtudagur 28. febrúar 1991 Tíminn 7 VETTVANGUR Björn S. Stefánsson: Rannsóknir í beinni útsendingu Mér þótti Þorvaldi Gylfasyni prófessor mælast vel í Hagmálum 30 (1989), tímariti Mágusar, félags viðskiptafræöinema, í grein- inni „Hvert er hlutverk Viðskipta- og hagfræðideildar Háskól- ans?“. Hann getur þess fyrst, að þess hafi orðið vart í vaxandi mæli undanfarin ár að margir áhugamenn um stjórnmál og þjóð- mál yfirleitt söknuðu þess, að deiidin skyldi ekki láta í sér heyra í opinberum umræðum um efnahagsmál. Óskimar væm eðlileg- ar og boraar fram af góðum hug, en samrýmdust ekki hefð- bundnum skilningi háskólamanna á hlutverki Háskóla íslands, deilda hans og stofnana, eins og hann lýsti í greininni. Óskir þessar kvað hann helgast að miklu leyti af því, að málflutning- ur nokkurra áhrifamikilla stjórn- málamanna um ýmis efnahagsmál hefðu verið mjög óskynsamlegar undanfarin misseri. „Sumir þess- ara manna hafa orðið uppvísir að tilfinnanlegri fáfræði um einfaldar staðreyndir efnahagslífsins og einnig að furðulegum fordómum um lögmál markaðsviðskipta í hagskipulagi vestrænna ríkja. Það er ekki auðvelt fyrir hagfræðinga að þurfa að hlýða á þvflíkan mál- flutning í fjölmiðlum daginn út og inn.“ Þetta rökstyður hann með tveimur vel völdum dæmum um slíkan málflutning. í lok greinarinnar lýsti hann hlut- verki hagfræðistofnunar Háskól- ans, sem þá var nýlega tekin til starfa, en það væri í fyrsta lagi rannsóknir „unnar í kyrrþey eðli málsins samkvæmt, en ekki í beinni útsendingu, og niðurstöður þeirra eru yfirleitt birtar í fræðirit- um og á erlendum vettvangi fyrst og fremst, svo sem tíðkast um grundvallarrannsóknir í háskólum smáþjóða." í öðru lagi væri henni „ætlað að efla tengsl hagfræði- rannsókna, ráðgjafar og kennslu á ýmsa vegu, til dæmis með því að taka að sér rannsóknar- og ráðgjaf- arverkefni af ýmsu tagi fýrir félög, fyrirtæki og stofnanir og fyrir stjórnvöld í því skyni meðal annars að greiða fyrir hagkvæmum rekstri og skynsamlegri hag- stjórn." Nú brá svo við eftir að grein Þor- valds birtist, að rannsóknir Hag- fræðistofnunar tóku að birtast „í beinni útsendingu". Hafa þeir birt þar þrír, Þorvaldur á síðum Morg- unblaðsins og Guðmundur Ólafs- son í sjónvarpi ásamt Þórólfi Matt- híassyni, forstöðumanni stofnun- arinnar, en þeir hafa einnig leyft lesendum blaða og tímarita að fylgjast með. í sem stystu máli hef- ur ekki verið auðvelt fyrir mig sem búnaðarhagfræðing og þjóðfélags- fræðing „að þurfa að hlýða á þvflík- an málflutning í fjölmiðlum dag- inn út og inn“. Ég hef samt setið undir þessu, en tók þó til gagnrýni á skrif forstöðumannsins í 50. hefti Vísbendingar, vikurits um efna- hagsmál, 1990, þar sem hann setti fram ályktun sem var hreint öfug- mæli (sjá grein mína „Samsæri gegn sjálfum sér“ í 3. hefti Vís- bendingar í ár). Fyrst af öllu þurfa starfsmenn há- skólastofnunar að þekkja efnisat- riði máls, sem þeir fjalla um opin- berlega, en þau eru orðin nokkur dæmin, þar sem annað hefur sann- ast á þá félaga. í öðru lagi þurfa þeir að kunna að beita rökum fræðigreinarinnar og sýna það. Hér er vitaskuld ekki vettvangur til að rökræða málflutning þeirra þremenninganna, en ég vil þó vekja athygli á því, sem er snið- gengið. I markaðsfræði er gerð grein fýrir því við hvaða aðstæður markaðsöflin af sjálfum sér leið- beina framleiðendum óljóst um rekstrarforsendur og jafnvel villa um fýrir þeim. Þess gætir ekki síst í landbúnaði, en það kemur hvergi fram, að ÞG sé kunnugt um það og geri grein fýrir því, hvernig við megi bregðast. Þarna er um það að ræða, að sveiflur í náttúrufari valda sveiflum í framboði afurða. í öðru lagi eru viðbrögð framleið- enda bundin árstíðum, en eftir- spurnin miklu síður, og sömuleið- is meðgöngutíma búfjárins, og í þriðja lagi er þess að gæta, að lang- ur tími líður frá því að viðbrögð neytenda eru kunn þar til fram- boðið getur orðið í samræmi við þau. Yfirleitt er eftirspurnin eftir lífsnauðsynjum, eins og mikill hluti matvæla landbúnaðarins er, ósveigjanleg. Því verða verðsveifl- ur miklar, ef ekki er gripið í taum- ana á viðeigandi hátt. Verðsveiflur hafa því takmarkað gildi til leiðbeiningar framleiðend- um um væntanlegt verðlag. Þessir annmarkar koma sterkt fram á markaðssvæði sem er afmarkað vegna fjarlægðar, eins og ísland er og einstök byggðarlög landsins. Á slíkum markaði yrðu verulegar verðsveiflur milli þess, að heima- framleiðsla fullnægði ekki heima- eftirspurn, og þyrfti því aðdrætti til viðbótar, og að framboð væri umfram heimaeftirspurn, án sér- stakra ráðstafana, sem ekki eru á færi einstaklinga. Allt þetta dregur úr gildi verðsveiflna til leiðsagnar framleiðendum um hagkvæmt framboð miðað við það sem er gagnvart jafnstórum hópi fram- leiðenda á markaðssvæðum meg- inlanda. (Menn athugi, að hér er um að ræða verðsveiflur, en ekki verðþróun). Markaðsskipulag ís- lensks landbúnaðar er sniðið að þessum forsendum, þótt fleira komi til. Sá sem vill leggja þar til málanna til „að greiða fyrir hag- kvæmum rekstri og skynsamlegri hagstjórn", eins og ÞG telur annað ætlunarverk Hagfræðistofnunar, án þess að athuga þessar forsend- ur, er ekki viðræðuhæfur. Kennivald hagfræðinnar er mik- ið. Á frumstigi beitir hún einföld- um forsendum og sniðgengur annað en það, sem hver maður má skilja. Þar reynir ekki síst á þá hag- fræðinga, sem starfa að rannsókn- um, að viðurkenna takmörk hag- fræðinnar og taka tillit til þeirra. í ákafa sínum mega þeir gá að sér að láta þær systur vil og dul ekki taka af sér ráðin. Án gagnrýni getur svo farið, að hagfræðingar í fflabeins- í ákafa sínum mega þeir gá að sér að láta þær systur vil og dul ekki taka af sér ráðin. Án gagnrýni getur svo farið, að hagfræðingar í fílabeinsturni háskóla njóti kennivalds hag- fræðinnar til þess að sniðganga markmið, sem þeim eru ekki þóknanleg af persónu- legum eða pólitískum ástæðum. turni háskóla njóti kennivalds hagfræðinnar til þess að sniðganga markmið, sem þeim eru ekki þóknanleg af persónulegum eða pólitískum ástæðum. Þetta gerir ÞG, þegar hann heldur því fram, að það sé í þágu bænda einna, að landbúnaðurinn er verndaður fyrir innflutningi og það sé fýrir óeðli- legan þingstyrk þeirra, að svo sé gert. Þessu heldur hann fram, þótt Alþingi hafi samhljóða sett vernd- arákvæði grundvallarlaga þeirra sem hér ráða, búvörulaganna frá 1985. Þar var því til að mynda ekki um að ræða málamiðlun stjórnar- meirihlutans á þingi, heldur studdi stjórnarandstaðan málið einnig. Verndarákvæðin voru reyndar hert, ef nokkuð var, frá því sem var í fýrri lögum, lögum um framleiðsluráð landbúnaðarins, sem að stofni til voru frá 1947. Nýjasta opinbera álitsgerðin um þetta er frá Evrópunefnd Alþingis, sem skipuð er níu fulltrúum sex þingflokka. Þar er samhljóða hald- ið fram sams konar verndarsjónar- miði, um leið og bent er á, að tak- markanir á innflutningi landbún- aðarafurða til íslands séu ekki eins víðtækar og annars staðar meðal Evrópuþjóða, þar sem hér á landi séu framleiddar færri tegundir landbúnaðarafurða. Það kveður þá gjarna við það hjá ÞG, en án rökstuðnings, að vernd- arsjónarmiðið sé úrelt. Með slík- um orðum má skilja, að það hafi einhvern tíma átt við. Nú vill svo til, að formaður áðurnefndrar al- þingisnefndar hafði í 17 ár kenn- arastöðu við viðskiptadeild (hann fékk lausn 1. ágúst síðastliðinn). Það hlýtur að vera lágmarkskrafa til háskólamanna, áður en þeir fara að fræða almenning, að sýna starfsnaut í sömu deild þá virðingu að afgreiða hann ekki með því einu, að álit, sem hann setur fram í ábyrgðarstöðu, sé úrelt. Þess verður þá enn að geta um þá skýr- ingu ÞG á innflutningsverndinni, að hún sé vegna ofríkis bænda á Alþingi, að nefndur deildarkenn- ari, sem var líka alþingismaður, þegar búvörulögin voru sett 1985, hefur auðvitað aldrei verið háður fýlgi bænda. Hvernig á Hagfræði- stofnun að verða trúverðugur ráð- gjafi stjórnvalda, ef hún ansar því ekki einu sinni að ræða grundvall- armarkmið þeirra? Það var með tilliti til þess sem kunnugt var af opinberum heim- ildum um stuðning stjórnvalda við innflutningsvernd, að við Ólafur Ólafsson landlæknir sömdum greinargerð um viðbúnað til að treysta öryggi þjóðarinnar og birt- um í Morgunblaðinu 20. júlí 1989 („Fæðuöflun á þrengingatímum"). Ég leyfi mér að drepa á efni henn- ar til að benda á takmörk hagfræð- innar, sem háskólastofnun sem ætlar að standa undir nafni verður að kunna að taka tillit til. í þessu efni er fýrst að gæta einhæfni inn- lendra matvæla, þótt ríkuleg séu. Því væri mest um vert, töldum við, að tryggja framboð á afurðum sem breikka fæðuval þeirra sem þarfn- ast mest fjölbreyttrar næringar úr garðmat og mjólk. Til að tryggja framboð á mjólk þyrfti að tryggja kúm fóður, en það gerist best með ríkulegum grasnytjum, og munar þá einnig um það fóður sem aflað er handa öðrum gripum en kúm á venjulegum tímum. Lykilefni að öruggri fóðurframleiðslu er vita- skuld ræktað land og eigin áburð- ur. Við Ólafur reifuðum málið, eins og gera þarf á frumstigi aðgerða- rannsóknar, sem var svið áður- nefnds deildarkennara og alþingis- nefndarformanns, Kjartans Jó- hannssonar dósents. ÞG Iætur eins og verðmæti inn- Iendrar vöru sé jafnmikið og verð- mæti innfluttrar vöru af sömu gerð. í öryggisviðhorfinu felst hins vegar það, að innlend vara er met- in meira en innflutt. Það þarf þó ekki að koma fram í afstöðu neyt- anda sem einstaklings við búðar- borðið. íslenskur ferðamaður á leið til landsins, sem kemur að búðarborði í flughöfn, getur vita- skuld sniðgengið annað en stund- arhagsmuni sína og keypt sér þar ost til að hafa með sér heim, í trausti þess að engu að síður sé vel séð fyrir hag heildarinnar og þar með hans með góðum skilyrðum fýrir mjólkurframleiöslu, svo að nægileg mjólk verði handa þeim sem mest þurfa, börnum, ungling- um og konum í barneign, þótt að- drættir fóðurs, áburðar og ýmissa matvæla frá útlöndum bregðist um skeið. Það verður ekki fest í tölur í verði einstakra vörutegunda, hversu mikils menn meta þá lífshagsmuni sem um er að ræða. Hagfræðin á ekkert verð á líf og heilsu einstak- linga eða þjóðar að setja í dæmið. Ekki eru heldur til neinar tölur um líkurnar á því að heilsu og lífi kunni að verða hætt. Hagfræðin á því hér sín takmörk. Þar reynir á hagfræðinga að ætla fræðigreininni ekki meira en ástæður eru til. Hagfræðingur í virðingarstöðu sem sniðgengur þessar hliðar í opinberri umræðu misnotar stöðu sína. Hagfræðin ræður ekki við kostnaðar- og nytjagreiningu á íslenskum land- búnaði, þegar aðeins eru til tölur um kostnaðinn, en ekki um nytj- arnar, sem meðal annars felast í fæðuöryggi. Hagfræðingar geta samt lagt ýmislegt til málanna, svo sem mat á styrk og veikleika þjóð- arbúskaparins í þessum efnum og ráð um það, hvernig megi beina framleiðsluháttum að því, sem styrkir fæðuöryggið á sem hag- kvæmastan hátt, með aðferðum aðgerðafræði. í þessu ljósi er það ekki annað en áróður til æsinga, þegar ÞG setur fram tölur, sem hér er ekki staður til að dæma um hvernig eru fengn- ar, um það hvað almenningur leggur mikið með hverri einstakri bændafjölskyldu mánaðarlega, eins og landbúnaðurinn væri ekki í þágu annarra en bænda. Það væri líkt því að telja, að starfsemi Há- skólans væri aðeins í þágu prófess- ora hans og deila með tölu þeirra í fjárveitingu til hans á fjárlögum. Þá kæmi út, að almenningur legg- ur að meðaltali 1.100.000 kr. á mánuði með hverjum prófessor árið 1991. Með þessu er ekki lagður dómur á fræðistörf ÞG. Ég Iít á málflutning hans í því sem ég hef rætt hér sem stjórnmálaumræðu, sem er að vísu með þeim hætti, sem ég hélt ung- ur, að góð menntun mundi venja menn af. Þeir sem ekki þekkja Hagfræðistofnun af öðru en beinni útsendingu af rannsóknum á land- búnaðarmálum mega halda, að hún sé pólitísk bækistöð. ÞG getur þess, að óskað hafi verið eftir slík- um skrifum. Fjölmiðlar ýmsir kjósa æsingar og hleypidóma, sumir sem krydd, en aðrir sem að- alinntak þjóðmálaumræðu. Mest þykir þá varið í að sá, sem semur æsingaskrif eða kemur í hleypi- dómaviðtal, sé í virðingarstöðu. Mér verður hugsað til hinna ráð- settari kennara Viðskipta- og hag- fræðideildar og Háskólans yfirleitt, hvernig þeim þyki að láta þetta ganga yfir sig og að láta beina út- sendingu fá þannig að móta álit ókunnugra á deildinni og Háskól- anum. Málflutningur þeirra þremenn- inganna er svo fjarri öllu sem ég hef kynnst í Noregi og Svíþjóð, þeim löndum þar sem ég þekki best til háskóla. Svo vill til, að einn þeirra nam við stofnun, sem ég hef átt rannsóknavist við og kynnst starfsandanum þar, þjóðhagfræði- stofnun Óslóarháskóla. Eg hef lengi dáðst að þeirri heiðríku hugsun sem einkenndi staðinn. Þar störfuðu samtímis þrír í hópi merkustu hagfræðinga heimsins. Tveir þeirra hlutu nóbelsverðlaun fýrir verk sín, og mér hafa sagt þeir, sem máttu vita, að röðin hefði verið komin að þeim þriðja, þegar hann lést fýrir aldur fram. Kennslubók hans um hagstjórn ríkisins hefur verið notuð við Há- skóla íslands. Engan gat grunað af þeirri bók, að hann væri virkur fé- lagi í utangarðsstjórnmálaflokki, svo örugg var hlutlægni hans. — Annar þeirra þremenninganna starfaði um skeið við hagfræði- stofnun í Stokkhólmi. Sjálfur þekki ég háskólamál í Svíþjóð eftir 10 ára setu í stjórn norrænnar há- skólastofnunar í Stokkhólmi, með þjóðskipulag sem viðfangsefni. Stjórnin skiptir sér vitaskuld ekki af því hvernig kennarar kynna skoðanir sínar. Nýlega kom til álita að leggja stofnunina niður, eins og fleiri menntastofnanir Norður- landaráðs, til að fá til ráðstöfunar fé til annarra verkefna. Ef kennar- ar þar hefðu kynnt málflutning eins og þeir þremenningarnir, hefði það varla verið álitamál stundinni lengur, heldur hefðu ráðamenn menningarmálafjár Norðurlandaráðs átt auðvelt með að fá fé stofnunarinnar varið í ann- að háskólastarf á Norðurlöndum. Þriðji þremenningurinn var við nám í Leníngrað. Eg þekki ekki til sovéskra háskóla af eigin raun, en hef fýrir satt, að þeir hafi verið pól- itískar bækistöðvar. Stúdentar Viðskipta- og hag- fræðideildar sækja námskeið Heimspekideildar í aðferðum vís- indanna og rökvísum vinnubrögð- um, þótt fæstir þeirra muni sinna vísindastörfum að loknu kandíd- atsprófi. Meiri þörf er sýnilega á, að sumir kennaranna sæki slík námskeið. Þó verður varla nokkur fullfær af námskeiðum Heimspeki- deildar einum saman, heldur þarf þjálfun að fýlgja á eftir í samstarfi við reynda menn og ráðsetta. Rannsóknir krefjast næðis og að menn fái næga hvfld til að halda skýrri hugsun. Mér sýnist Háskóla- ráð taka þar öfuga stefnu, þegar það leyfði kennurum nýlega að auka enn yfirvinnu sína með kennslu. Nær hefði verið að taka fýrir yfirvinnu þeirra við kennslu til að draga úr hættu á vanhugsuð- um rannsóknum. Fréttabréf Háskóla íslands 13,1991.1. tbl. 36-9.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.