Tíminn - 28.02.1991, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 28. febrúar 1991
Tíminn 7
VETTVANGUR
Björn S. Stefánsson:
Rannsóknir í
beinni útsendingu
Mér þótti Þorvaldi Gylfasyni prófessor mælast vel í Hagmálum
30 (1989), tímariti Mágusar, félags viðskiptafræöinema, í grein-
inni „Hvert er hlutverk Viðskipta- og hagfræðideildar Háskól-
ans?“. Hann getur þess fyrst, að þess hafi orðið vart í vaxandi
mæli undanfarin ár að margir áhugamenn um stjórnmál og þjóð-
mál yfirleitt söknuðu þess, að deiidin skyldi ekki láta í sér heyra
í opinberum umræðum um efnahagsmál. Óskimar væm eðlileg-
ar og boraar fram af góðum hug, en samrýmdust ekki hefð-
bundnum skilningi háskólamanna á hlutverki Háskóla íslands,
deilda hans og stofnana, eins og hann lýsti í greininni.
Óskir þessar kvað hann helgast að
miklu leyti af því, að málflutning-
ur nokkurra áhrifamikilla stjórn-
málamanna um ýmis efnahagsmál
hefðu verið mjög óskynsamlegar
undanfarin misseri. „Sumir þess-
ara manna hafa orðið uppvísir að
tilfinnanlegri fáfræði um einfaldar
staðreyndir efnahagslífsins og
einnig að furðulegum fordómum
um lögmál markaðsviðskipta í
hagskipulagi vestrænna ríkja. Það
er ekki auðvelt fyrir hagfræðinga
að þurfa að hlýða á þvflíkan mál-
flutning í fjölmiðlum daginn út og
inn.“ Þetta rökstyður hann með
tveimur vel völdum dæmum um
slíkan málflutning.
í lok greinarinnar lýsti hann hlut-
verki hagfræðistofnunar Háskól-
ans, sem þá var nýlega tekin til
starfa, en það væri í fyrsta lagi
rannsóknir „unnar í kyrrþey eðli
málsins samkvæmt, en ekki í
beinni útsendingu, og niðurstöður
þeirra eru yfirleitt birtar í fræðirit-
um og á erlendum vettvangi fyrst
og fremst, svo sem tíðkast um
grundvallarrannsóknir í háskólum
smáþjóða." í öðru lagi væri henni
„ætlað að efla tengsl hagfræði-
rannsókna, ráðgjafar og kennslu á
ýmsa vegu, til dæmis með því að
taka að sér rannsóknar- og ráðgjaf-
arverkefni af ýmsu tagi fýrir félög,
fyrirtæki og stofnanir og fyrir
stjórnvöld í því skyni meðal annars
að greiða fyrir hagkvæmum
rekstri og skynsamlegri hag-
stjórn."
Nú brá svo við eftir að grein Þor-
valds birtist, að rannsóknir Hag-
fræðistofnunar tóku að birtast „í
beinni útsendingu". Hafa þeir birt
þar þrír, Þorvaldur á síðum Morg-
unblaðsins og Guðmundur Ólafs-
son í sjónvarpi ásamt Þórólfi Matt-
híassyni, forstöðumanni stofnun-
arinnar, en þeir hafa einnig leyft
lesendum blaða og tímarita að
fylgjast með. í sem stystu máli hef-
ur ekki verið auðvelt fyrir mig sem
búnaðarhagfræðing og þjóðfélags-
fræðing „að þurfa að hlýða á þvflík-
an málflutning í fjölmiðlum dag-
inn út og inn“. Ég hef samt setið
undir þessu, en tók þó til gagnrýni
á skrif forstöðumannsins í 50. hefti
Vísbendingar, vikurits um efna-
hagsmál, 1990, þar sem hann setti
fram ályktun sem var hreint öfug-
mæli (sjá grein mína „Samsæri
gegn sjálfum sér“ í 3. hefti Vís-
bendingar í ár).
Fyrst af öllu þurfa starfsmenn há-
skólastofnunar að þekkja efnisat-
riði máls, sem þeir fjalla um opin-
berlega, en þau eru orðin nokkur
dæmin, þar sem annað hefur sann-
ast á þá félaga. í öðru lagi þurfa
þeir að kunna að beita rökum
fræðigreinarinnar og sýna það.
Hér er vitaskuld ekki vettvangur til
að rökræða málflutning þeirra
þremenninganna, en ég vil þó
vekja athygli á því, sem er snið-
gengið. I markaðsfræði er gerð
grein fýrir því við hvaða aðstæður
markaðsöflin af sjálfum sér leið-
beina framleiðendum óljóst um
rekstrarforsendur og jafnvel villa
um fýrir þeim. Þess gætir ekki síst
í landbúnaði, en það kemur hvergi
fram, að ÞG sé kunnugt um það og
geri grein fýrir því, hvernig við
megi bregðast. Þarna er um það að
ræða, að sveiflur í náttúrufari
valda sveiflum í framboði afurða. í
öðru lagi eru viðbrögð framleið-
enda bundin árstíðum, en eftir-
spurnin miklu síður, og sömuleið-
is meðgöngutíma búfjárins, og í
þriðja lagi er þess að gæta, að lang-
ur tími líður frá því að viðbrögð
neytenda eru kunn þar til fram-
boðið getur orðið í samræmi við
þau. Yfirleitt er eftirspurnin eftir
lífsnauðsynjum, eins og mikill
hluti matvæla landbúnaðarins er,
ósveigjanleg. Því verða verðsveifl-
ur miklar, ef ekki er gripið í taum-
ana á viðeigandi hátt.
Verðsveiflur hafa því takmarkað
gildi til leiðbeiningar framleiðend-
um um væntanlegt verðlag. Þessir
annmarkar koma sterkt fram á
markaðssvæði sem er afmarkað
vegna fjarlægðar, eins og ísland er
og einstök byggðarlög landsins. Á
slíkum markaði yrðu verulegar
verðsveiflur milli þess, að heima-
framleiðsla fullnægði ekki heima-
eftirspurn, og þyrfti því aðdrætti
til viðbótar, og að framboð væri
umfram heimaeftirspurn, án sér-
stakra ráðstafana, sem ekki eru á
færi einstaklinga. Allt þetta dregur
úr gildi verðsveiflna til leiðsagnar
framleiðendum um hagkvæmt
framboð miðað við það sem er
gagnvart jafnstórum hópi fram-
leiðenda á markaðssvæðum meg-
inlanda. (Menn athugi, að hér er
um að ræða verðsveiflur, en ekki
verðþróun). Markaðsskipulag ís-
lensks landbúnaðar er sniðið að
þessum forsendum, þótt fleira
komi til. Sá sem vill leggja þar til
málanna til „að greiða fyrir hag-
kvæmum rekstri og skynsamlegri
hagstjórn", eins og ÞG telur annað
ætlunarverk Hagfræðistofnunar,
án þess að athuga þessar forsend-
ur, er ekki viðræðuhæfur.
Kennivald hagfræðinnar er mik-
ið. Á frumstigi beitir hún einföld-
um forsendum og sniðgengur
annað en það, sem hver maður má
skilja. Þar reynir ekki síst á þá hag-
fræðinga, sem starfa að rannsókn-
um, að viðurkenna takmörk hag-
fræðinnar og taka tillit til þeirra. í
ákafa sínum mega þeir gá að sér að
láta þær systur vil og dul ekki taka
af sér ráðin. Án gagnrýni getur svo
farið, að hagfræðingar í fflabeins-
í ákafa sínum mega
þeir gá að sér að láta
þær systur vil og dul
ekki taka af sér ráðin.
Án gagnrýni getur svo
farið, að hagfræðingar í
fílabeinsturni háskóla
njóti kennivalds hag-
fræðinnar til þess að
sniðganga markmið,
sem þeim eru ekki
þóknanleg af persónu-
legum eða pólitískum
ástæðum.
turni háskóla njóti kennivalds
hagfræðinnar til þess að sniðganga
markmið, sem þeim eru ekki
þóknanleg af persónulegum eða
pólitískum ástæðum. Þetta gerir
ÞG, þegar hann heldur því fram, að
það sé í þágu bænda einna, að
landbúnaðurinn er verndaður fyrir
innflutningi og það sé fýrir óeðli-
legan þingstyrk þeirra, að svo sé
gert. Þessu heldur hann fram, þótt
Alþingi hafi samhljóða sett vernd-
arákvæði grundvallarlaga þeirra
sem hér ráða, búvörulaganna frá
1985. Þar var því til að mynda ekki
um að ræða málamiðlun stjórnar-
meirihlutans á þingi, heldur
studdi stjórnarandstaðan málið
einnig. Verndarákvæðin voru
reyndar hert, ef nokkuð var, frá því
sem var í fýrri lögum, lögum um
framleiðsluráð landbúnaðarins,
sem að stofni til voru frá 1947.
Nýjasta opinbera álitsgerðin um
þetta er frá Evrópunefnd Alþingis,
sem skipuð er níu fulltrúum sex
þingflokka. Þar er samhljóða hald-
ið fram sams konar verndarsjónar-
miði, um leið og bent er á, að tak-
markanir á innflutningi landbún-
aðarafurða til íslands séu ekki eins
víðtækar og annars staðar meðal
Evrópuþjóða, þar sem hér á landi
séu framleiddar færri tegundir
landbúnaðarafurða.
Það kveður þá gjarna við það hjá
ÞG, en án rökstuðnings, að vernd-
arsjónarmiðið sé úrelt. Með slík-
um orðum má skilja, að það hafi
einhvern tíma átt við. Nú vill svo
til, að formaður áðurnefndrar al-
þingisnefndar hafði í 17 ár kenn-
arastöðu við viðskiptadeild (hann
fékk lausn 1. ágúst síðastliðinn).
Það hlýtur að vera lágmarkskrafa
til háskólamanna, áður en þeir fara
að fræða almenning, að sýna
starfsnaut í sömu deild þá virðingu
að afgreiða hann ekki með því
einu, að álit, sem hann setur fram
í ábyrgðarstöðu, sé úrelt. Þess
verður þá enn að geta um þá skýr-
ingu ÞG á innflutningsverndinni,
að hún sé vegna ofríkis bænda á
Alþingi, að nefndur deildarkenn-
ari, sem var líka alþingismaður,
þegar búvörulögin voru sett 1985,
hefur auðvitað aldrei verið háður
fýlgi bænda. Hvernig á Hagfræði-
stofnun að verða trúverðugur ráð-
gjafi stjórnvalda, ef hún ansar því
ekki einu sinni að ræða grundvall-
armarkmið þeirra?
Það var með tilliti til þess sem
kunnugt var af opinberum heim-
ildum um stuðning stjórnvalda við
innflutningsvernd, að við Ólafur
Ólafsson landlæknir sömdum
greinargerð um viðbúnað til að
treysta öryggi þjóðarinnar og birt-
um í Morgunblaðinu 20. júlí 1989
(„Fæðuöflun á þrengingatímum").
Ég leyfi mér að drepa á efni henn-
ar til að benda á takmörk hagfræð-
innar, sem háskólastofnun sem
ætlar að standa undir nafni verður
að kunna að taka tillit til. í þessu
efni er fýrst að gæta einhæfni inn-
lendra matvæla, þótt ríkuleg séu.
Því væri mest um vert, töldum við,
að tryggja framboð á afurðum sem
breikka fæðuval þeirra sem þarfn-
ast mest fjölbreyttrar næringar úr
garðmat og mjólk. Til að tryggja
framboð á mjólk þyrfti að tryggja
kúm fóður, en það gerist best með
ríkulegum grasnytjum, og munar
þá einnig um það fóður sem aflað
er handa öðrum gripum en kúm á
venjulegum tímum. Lykilefni að
öruggri fóðurframleiðslu er vita-
skuld ræktað land og eigin áburð-
ur. Við Ólafur reifuðum málið, eins
og gera þarf á frumstigi aðgerða-
rannsóknar, sem var svið áður-
nefnds deildarkennara og alþingis-
nefndarformanns, Kjartans Jó-
hannssonar dósents.
ÞG Iætur eins og verðmæti inn-
Iendrar vöru sé jafnmikið og verð-
mæti innfluttrar vöru af sömu
gerð. í öryggisviðhorfinu felst hins
vegar það, að innlend vara er met-
in meira en innflutt. Það þarf þó
ekki að koma fram í afstöðu neyt-
anda sem einstaklings við búðar-
borðið. íslenskur ferðamaður á
leið til landsins, sem kemur að
búðarborði í flughöfn, getur vita-
skuld sniðgengið annað en stund-
arhagsmuni sína og keypt sér þar
ost til að hafa með sér heim, í
trausti þess að engu að síður sé vel
séð fyrir hag heildarinnar og þar
með hans með góðum skilyrðum
fýrir mjólkurframleiöslu, svo að
nægileg mjólk verði handa þeim
sem mest þurfa, börnum, ungling-
um og konum í barneign, þótt að-
drættir fóðurs, áburðar og ýmissa
matvæla frá útlöndum bregðist
um skeið.
Það verður ekki fest í tölur í verði
einstakra vörutegunda, hversu
mikils menn meta þá lífshagsmuni
sem um er að ræða. Hagfræðin á
ekkert verð á líf og heilsu einstak-
linga eða þjóðar að setja í dæmið.
Ekki eru heldur til neinar tölur
um líkurnar á því að heilsu og lífi
kunni að verða hætt.
Hagfræðin á því hér sín takmörk.
Þar reynir á hagfræðinga að ætla
fræðigreininni ekki meira en
ástæður eru til. Hagfræðingur í
virðingarstöðu sem sniðgengur
þessar hliðar í opinberri umræðu
misnotar stöðu sína. Hagfræðin
ræður ekki við kostnaðar- og
nytjagreiningu á íslenskum land-
búnaði, þegar aðeins eru til tölur
um kostnaðinn, en ekki um nytj-
arnar, sem meðal annars felast í
fæðuöryggi. Hagfræðingar geta
samt lagt ýmislegt til málanna, svo
sem mat á styrk og veikleika þjóð-
arbúskaparins í þessum efnum og
ráð um það, hvernig megi beina
framleiðsluháttum að því, sem
styrkir fæðuöryggið á sem hag-
kvæmastan hátt, með aðferðum
aðgerðafræði.
í þessu ljósi er það ekki annað en
áróður til æsinga, þegar ÞG setur
fram tölur, sem hér er ekki staður
til að dæma um hvernig eru fengn-
ar, um það hvað almenningur
leggur mikið með hverri einstakri
bændafjölskyldu mánaðarlega,
eins og landbúnaðurinn væri ekki í
þágu annarra en bænda. Það væri
líkt því að telja, að starfsemi Há-
skólans væri aðeins í þágu prófess-
ora hans og deila með tölu þeirra í
fjárveitingu til hans á fjárlögum.
Þá kæmi út, að almenningur legg-
ur að meðaltali 1.100.000 kr. á
mánuði með hverjum prófessor
árið 1991.
Með þessu er ekki lagður dómur á
fræðistörf ÞG. Ég Iít á málflutning
hans í því sem ég hef rætt hér sem
stjórnmálaumræðu, sem er að vísu
með þeim hætti, sem ég hélt ung-
ur, að góð menntun mundi venja
menn af. Þeir sem ekki þekkja
Hagfræðistofnun af öðru en beinni
útsendingu af rannsóknum á land-
búnaðarmálum mega halda, að
hún sé pólitísk bækistöð. ÞG getur
þess, að óskað hafi verið eftir slík-
um skrifum. Fjölmiðlar ýmsir
kjósa æsingar og hleypidóma,
sumir sem krydd, en aðrir sem að-
alinntak þjóðmálaumræðu. Mest
þykir þá varið í að sá, sem semur
æsingaskrif eða kemur í hleypi-
dómaviðtal, sé í virðingarstöðu.
Mér verður hugsað til hinna ráð-
settari kennara Viðskipta- og hag-
fræðideildar og Háskólans yfirleitt,
hvernig þeim þyki að láta þetta
ganga yfir sig og að láta beina út-
sendingu fá þannig að móta álit
ókunnugra á deildinni og Háskól-
anum.
Málflutningur þeirra þremenn-
inganna er svo fjarri öllu sem ég
hef kynnst í Noregi og Svíþjóð,
þeim löndum þar sem ég þekki
best til háskóla. Svo vill til, að einn
þeirra nam við stofnun, sem ég hef
átt rannsóknavist við og kynnst
starfsandanum þar, þjóðhagfræði-
stofnun Óslóarháskóla. Eg hef
lengi dáðst að þeirri heiðríku
hugsun sem einkenndi staðinn.
Þar störfuðu samtímis þrír í hópi
merkustu hagfræðinga heimsins.
Tveir þeirra hlutu nóbelsverðlaun
fýrir verk sín, og mér hafa sagt
þeir, sem máttu vita, að röðin hefði
verið komin að þeim þriðja, þegar
hann lést fýrir aldur fram.
Kennslubók hans um hagstjórn
ríkisins hefur verið notuð við Há-
skóla íslands. Engan gat grunað af
þeirri bók, að hann væri virkur fé-
lagi í utangarðsstjórnmálaflokki,
svo örugg var hlutlægni hans. —
Annar þeirra þremenninganna
starfaði um skeið við hagfræði-
stofnun í Stokkhólmi. Sjálfur
þekki ég háskólamál í Svíþjóð eftir
10 ára setu í stjórn norrænnar há-
skólastofnunar í Stokkhólmi, með
þjóðskipulag sem viðfangsefni.
Stjórnin skiptir sér vitaskuld ekki
af því hvernig kennarar kynna
skoðanir sínar. Nýlega kom til álita
að leggja stofnunina niður, eins og
fleiri menntastofnanir Norður-
landaráðs, til að fá til ráðstöfunar
fé til annarra verkefna. Ef kennar-
ar þar hefðu kynnt málflutning
eins og þeir þremenningarnir,
hefði það varla verið álitamál
stundinni lengur, heldur hefðu
ráðamenn menningarmálafjár
Norðurlandaráðs átt auðvelt með
að fá fé stofnunarinnar varið í ann-
að háskólastarf á Norðurlöndum.
Þriðji þremenningurinn var við
nám í Leníngrað. Eg þekki ekki til
sovéskra háskóla af eigin raun, en
hef fýrir satt, að þeir hafi verið pól-
itískar bækistöðvar.
Stúdentar Viðskipta- og hag-
fræðideildar sækja námskeið
Heimspekideildar í aðferðum vís-
indanna og rökvísum vinnubrögð-
um, þótt fæstir þeirra muni sinna
vísindastörfum að loknu kandíd-
atsprófi. Meiri þörf er sýnilega á,
að sumir kennaranna sæki slík
námskeið. Þó verður varla nokkur
fullfær af námskeiðum Heimspeki-
deildar einum saman, heldur þarf
þjálfun að fýlgja á eftir í samstarfi
við reynda menn og ráðsetta.
Rannsóknir krefjast næðis og að
menn fái næga hvfld til að halda
skýrri hugsun. Mér sýnist Háskóla-
ráð taka þar öfuga stefnu, þegar
það leyfði kennurum nýlega að
auka enn yfirvinnu sína með
kennslu. Nær hefði verið að taka
fýrir yfirvinnu þeirra við kennslu
til að draga úr hættu á vanhugsuð-
um rannsóknum.
Fréttabréf Háskóla íslands
13,1991.1. tbl. 36-9.