Tíminn - 28.02.1991, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.02.1991, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 28. febrúar 1991 Tíminn 9 Frumvarp lagt fram um greiðslur úr ríkissjóði og fleira: Fjárveitinganefnd vill af- nema aukafjárveitingar Þingmenn í fjárveitinganefnd, sem sæti eiga í neðri deild, hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um greiðslur úr ríkissjóði og fleira. Frum- varpinu er ætlað að afnema svokallaðar aukafjárveitingar og tryggja betur fjárveitingavald Alþingis, en um alllangt skeið hefur það tíðk- ast að framkvæmdavaldið ráðstafi fjármunum jafnvel án samráðs við fjárveitinganefnd og Alþingi. Með frumvarpinu er stefnt að því að girða fyrir greiðslur úr ríkissjóði sem ekki eiga sér stoð í fjárlögum eða fjáraukalögum. í 41. gr. stjórn- arkrárinnar er skýrt kveðið á um að ekki megi greiða neitt úr ríkissjóði nema heimild sé fyrir því í fjárlög- um eða fjáraukalögum. Þrátt fyrir þetta skýra ákvæði hefur lengi tíðk- ast að fjármálaráðherrar hafa veitt aukafjárveitingar og þá ýmist með eða án samráðs við ríkisstjórn eða fjárveitinganefnd. Margoft hefur verið á það bent að koma verði böndum á þessar fjárveitingar og jafnframt að óeðlilegt sé að fjár- , Nordic Travel Mart: Islandskynn ingá um mörkuðum Samnorræn ferðakaupstefna, Nordic Travel Mart, verður hald- in í Reykjavík dagana 22.- 25.apríl. Kaupstefnan er haldin til skiptis á Norðurlöndunum { samvinnu ferðamálaráða þessara landa og flugfélaganna Finnair, Flugleiða og SAS. Á þessa kaupstefnu er eingöngu boðið kaunendum ffá Ameríku, Asíu og Astralíu. Þarna munu um 100 seljendur kynna ferða- möguleika á Norðudöndunum fyrir 120-140 kaupendur frá fyrmefndum heimálfum Nordic Travel Mart ernú haldin í 6. sinn og nú í fyrsta shm á íslandi. Er þetta stærsta tækifæri sem hefur boðist til að kynna ísland fyrir ferðafrömuðum frá þessum íjar- hegu markaðssvæðum. -sbs. Breytingar á utanríkis- þjónustunni Breytingar hafa veríð ákveðnar í utanríkisþjónustunni, þannig að Einar Benediktsson, sendiherra í Brussel og hjá Evrúpubanda- laginu, tekur við starfi sendi- herra Islands í Ósló ffá 1. mars n.k. Síðan mun Hannes Haf- stein, sendiherra og aðalsamn- ingamaður íslands í viðræðum um evrópska efnahagssvæðið, taka við í aprð n.k. starfi sendi- herra íslands í Brussel og hjá Evrópubandalaginu. Jafnframt mun hann halda áfram að gegna starfi aðalsamningamanns. Þetta segir í ffétt frá utanríkis- ráðuneytinu. —GEÓ Barnaskákmót Sunnudaginn 3. mars kl. 14 verður haldið barnaskákmót, ABC-mótið, á vegum Skáksam- bands íslands og Fróða hf. Mót- ið fer fram í húsnæði skákhreyf- ingarinnar að Faxafeni 12 og er opið öilum bömum sem fædd eru 1978 og síðar. Góð verðlaun eru f boðl og allir keppendur fá viðurkenningarskjal. Skráning keppenda er í sfma Skáksam- bandsins, 689141, dagana 25. febr. til 1. mars milli 11 og 12. málaráðherra taki sér vald sem sam- kvæmt stjórnarskrá á að vera í höndum Alþingis. Dregið hefur verulega úr aukafjárveitingum í tíð þessarar ríkisstjórnar og telur fjár- málaráðherra að það eigi sinn þátt í að tekist hefur að minnka hallann á fjárlögum. í frumvarpinu er lagt til að ríkis- stoffiunum verði óheimilt, með nokkrum undantekningum þó, að gera nokkrar þær fjárskuldbinding- ar sem ekki eru sérstaklega heimil- aðar eða gert ráð fyrir í fjárlögum eða fjáraukalögum. Undantekningar frá þessari meginreglu lúta einkum að þörfum fýrirtækja í eigu ríkis- sjóðs sem stunda framleiðslu, versl- un eða viðskipti með svipuðum hætti og einkafýrirtæki. í kjölfar banns við aukafjárveiting- um með gamla laginu verður ekki komist hjá því að aðlaga fjárlagaaf- greiðsluna og fjárlögin sjálf strang- ari reglum í þessum efnum. Þess vegna er lagt til að gerður verði skýr greinarmunur á framlögum í fjár- lögum eftir eðli þeirra og jafnframt verði mælt fýrir um hvort þau geti tekið verðbreytingum innan fjár- lagaársins eða ekki. Almennt er frumvarpinu bæði ætlað að stuðla að og tryggja að vandað sé til verka við fjárlagaafgreiðsluna og fjárlögin verði þannig skýrari og raunhæfari áætlun eða rammi um útgjöld og geymi marktækari fýrirmæli um fjárráðstafanir og fjárreiður ríkis- sjóðs en verið hefur til þessa. í frumvarpinu er gert ráð fýrir að þegar ríkið geri kjarasamninga sem fela í sér viðbótarútgjöld fyrir ríkis- sjóð, verði heimilda til slíkra út- gjalda aflað í frumvarpi til fjárauka- laga. Þá er einnig gert ráð fýrir að vald fjármálaráðherra til að ráðstafa eignum ríkissjóðs verði skert. Verði frumvarpið samþykkt verður fjár- málaráðherra hér eftir að leita heimilda í fjárlögum eða fjárauka- lögum til að kaupa, selja eða leigja til langs tíma, fasteignir, eignarhlut í félögum, skip og flugvélar, lista- verk, listmuni og söfn sem hafa að geyma menningarverðmæti og aðr- ar eignir sem verulegt verðgildi hafa. Þetta frumvarp var lagt fram á síð- asta þingi, en fékk þá ekki af- greiðslu. Á því hafa verið gerðar fá- einar breytingar. -EÓ reynd áð- ur en boð- ið er upp Ásgeir Hannes Eirfksson al- þingismaður hefur iagt fram frumvarp á Alþingi um að fast- eignir skuli boðnar til sölu á frjálsurn markaði áður en þær eru boðnar upp á uppboði. Ás- geir Hannes segir að algengt sé að eignir sem seldar eru á nauð- ungaruppboð) séu seldar langt undir sannvirði og þannig séu lánadrottnar og skuldarar hlunnfamir. Ásgeir Hannes hefur einnig flutt þingsályktun- artillögu um sama efni. TiOagan gerir ráð fyrir að dómsmálaráð- herra verði falið að semja frum- varp um að fasteignir manna séu ekki seldar langt undir markaðsverði á nauðungarupp- boðum. Miðað er við að frum- varpið verði lagt fram næsta haust. -EÓ Fréttabréf úr Gaulverjabæjarhreppi: Séð og heyrt í sveitinni I sveitum Suðurlands lofa menn og prísa menn hið milda veðurfar það sem af er vetrí og vart á sér hlið- stæðu um langt árabil. Jörð er klaka- laus að kalla, menn dytta jafnvel að girðingu á þorra og aka skami á hóla ef fært er um ræktunarlöndin vegna aurbleytu. Hekla gamla, hið fræga eldfjall, hef- ur sýnt að hún er enn ekki dauð úr öllum æðum. Ef skyggni er gott sést bjarmi hennar á síðkvöldum, bæði svipmikill og stórbrotinn. Félagslíf hefur notið velgengni af góðu veðri og greiðfærum sam- gönguleiðum að undanfömu, saumaklúbbar og íþróttaæfingar með líflegra móti. Aðalfundur Umf. Samhygðar, sem haldinn var 11. janúar síðastliðinn, bar vitni um fjölþætt og þróttmikið félagsstarf á liðnu ári og benti á væntingar til þess sama á yfirstand- andi ári. Anný Ingimarsdóttir var kosinn formaður félagsins í stað Helga Stefánssonar sem ekki gaf kost á sér lengur í stjórnina. Anný er önn- ur konan sem gegnir formannsstörf- um í Umf. Samhygð. Á árum áður var Ingibjörg Dagsdóttir í Gaulverjabæ formaður félagsins um skeið, með góðum árangri. Félagsmálabikar Samhygðar hlaut Eitt dansatriðið á hjónaskemmtun Gaulverja var rúllubaggadansinn. Frá vinstri talið: Halldór Stefánsson, Helgi Stefánsson, Ingimar Ottósson, Stefán Jasonarson og Markús ívarsson. Valdimar Guðjónsson að þessu sinni. Hann hefur verið ritstjóri félags- blaðsins Viljans um nokkurt skeið og unnið mikið starf fyrir félagið á ýms- an annan hátt. Helsti afreksmaður Umf. Samhygð- ar er kúluvarparinn og íslandsmet- hafinn Pétur Guðmundsson. Má það Norðurland eystra: Listi Þjóðarflokks- ins opinberaður Listi Þjóðarflokksins í Norður- landskjördæmi eystra hefur verið lagður fram. Listinn var samþykkt- ur á fundi í stjórn kjördæmafélags Þjóðarflokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra nýverið. Listann skipa eftirtaldir: 1. Árni Steinar Jóhannsson um- hverfisstjóri, Akureyri. 2. Anna Helgadóttir kennari, Kópaskeri. 3. Björgvin Leifsson lífefnafræð- ingur Húsavík. 4. Oktavía Jóhannesdóttir hús- móðir, Akureyri. 5. Gunnlaugur Sigvaldason bóndi Hofsárkoti, Svarfaðardal. 6. Karl Steingrímsson sjómaður, Akureyri. 7. Klara Geirsdóttir matreiðslu- nemi, Akureyri. 8. Helga Björnsdóttir húsmóðir, Húsavík. 9. Sigurpáll Jónsson bóndi, Háls- hreppi. 10. Gíslína Gísladóttir fulltrúi, Dalvík. 11. Kolbeinn Arason flugmaður, Akureyri. 12. Anna Kristveig Arnardóttir símvirki, Akureyri. 13. Guðný Björnsdóttir húsmóðir, Kelduhverfi. 14. Valdimar Pétursson skrifstofu- maður, Akureyri. hiá-akureyri. tíðindum sæta að lítið ungmennafé- lag í Flóanum hefur innan sinna vé- banda slíkan kappa sem fæstar mi- ljónaþjóðir geta státað af. Tæplega er því fyrir að fara að félagið hafi fjár- hagslegt bolmagn til að styrkja Pétur sem vert væri, en hann stefnir nú á þátttöku á næstu Ólympíuleikum sem verða haldnir í Barcelona á Spáni á næsta ári. Því var brugðið á það ráð á aðalfund- inum að stofna frjálsan sjóð þar sem væntanlegir stuðningsmenn Péturs geta greitt mánaðarlega dálitla (jár- upphæð sem til hans rennur jafnt og þétt fram að leikunum. Umsjónar- menn sjóðsins eru formaður félags- ins, Anný Ingimarsdóttir, og bræð- urnir Jón og Markús ívarssynir. Þeir sem vilja leggja hönd á plóginn geta sett sig í samband við eitthvert þeirra. (Anný s. 98-63387, Jón s. 91- 72780 og Markús s. 98-63318). Næsta stórmót Péturs verður heims- meistaramótið innanhúss í Sevilla á Spáni í næsta mánuði og verður þá fróðlegt að fylgjast með. Pétur, ný- kjörinn íþróttamaður HSK, er í góðu formi og til alls líklegur. Ýmsir góðir gestir hafa komið í Fé- lagslund á nýliðnum mildum vetrar- vikum og skemmt okkur Gaulverjum og fleirum. Og gert gott mannlíf enn betra. Fyrst komu lífsglaðir leikarar úr Hrunamannahreppi með sitt „Bless- að bamalán" og veittu okkur góða Anný Ingimarsdóttir, fonnaður Umf. Samhygðar. skemmtun eina kvöldstund. Næst gerðu skólabörn úr Gaulverjabæjar-, Hraungerðis- og Vi 11 íngaholtsskól- um glatt á góðra vina fundi með ágætri dagskrá á sameiginlegri skóla- skemmtun í Félagslundi. Þökk sé börnunum og skólastjórunum fyrir myndarlegt framtak og góða forystu. Síðast en ekki síst fjölmenntu í Fé- lagslund á 50. hjónaskemmtun okkar brottfluttir sveitungar og margir aðr- ir góðir gestir og blönduðu geði á góðri stund með heimafólki. Gnægð matfanga (þorramatur), fjölþætt dag- skrá með tónum, söng og töluðu orði, sem jafnan áður á slíkum sam- komum síðustu hálfu öldina, tengdu svo sannarlega saman fólkið, fortíð og framtíð. I síðustu viku þorra 1991. Stjas

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.