Tíminn - 01.03.1991, Blaðsíða 9

Tíminn - 01.03.1991, Blaðsíða 9
8 Ttminn Föstudagur 1. mars 1991 I ígulker, öðuskeljar og beitukóngar frá íslandi matreiddir ofan í gesti á eir.ni stærstu matvælasýningu í Svíþjóð í næstu viku: YFIRMATSVEINN SVÍAKONUNGS PNAÐIDYRNAR AÐ MARKAÐNUM Fyrirtækið íslenskur skelfiskur hf. í Sand- gerði fer ótroðnar slóðir í rekstri sínum. Það stundar veiðar og vinnslu á óvenjulegum sjávardýrum, s.s. öðuskel og ígulkerjum, og í næstu viku verða afurðir fyrirtækisins kynntar á einni stærstu matvælasýningu fyr- ir hótel og veitingahús f Svíþjóð. íslenskur skelfiskur hefur að undanförnu verið í sam- starfi við öflugt sænskt markaðsfyrirtæki, Vásterhavsfisk, og hefur það séð um að markaðssetja afurðir íslensks skelfisks í Sví- þjóð, með góðum árangri. Þorbjörn Daníelsson og Eiríkur Sigurgeirs- son eiga helming í fyrirtækinu ásamt fjöl- skyldum sínum. Hinn helminginn eiga út- gerðarfyrirtækið Miðnes og Byggðastofnun. Islenskur skelfiskur stundar aðallega veiðar á humri, en einnig á beitukóngi, öðuskel, ígulkerjum, tindaskötu, trjónukrabba og ýmsum fleiri botndýrum. Humarinn, beitu- kóngurinn og krabbinn er veiddur með gildrum sem fengnar voru frá Skotlandi og hafa verið þróaðar hér síðan. Humarinn, öðuskelin og ígulkerin eru send lifandi með flugi til veitingahúsa hér heima og í Evrópu en krabbinn er mulinn niður og notaður í súpur. Nýlega fór sending frá íslenskum skelfiski af trjónukrabba til súpuverksmiðju í Frakklandi. Beitukóngurinn er tekinn hrár úr skelinni og hófst sala á frosnum beitu- kóngi hér á landi fyrir jólin og gekk hún ágætlega. Ýmist er kafað eftir ígulkerjum og öðuskeljum en einnig er notaður plógur við að ná þeim upp. Þeir félagar Þorbjörn og Ei- ríkur hafa ásamt starfsfólki sínu verið að þróa aðferðir við veiðar og vinnslu afurð- anna. Theódór Jóhannesson vinnur hjá þeim við viðhald og smíðar á gildrum og er að sögn Eiríks Sigurgeirssonar fyrsti gildru- smiður á landinu. Matreiðslumeistari sænska konungsins mjög hrifinn Samvinnan við sænska markaðsfyrirtækið Bónusvíkingurínn úr Nýju Itfi, Eiríkur Sigurgeirsson, aðstoðar Krístínu Benediktsdóttur viö að hreinsa beitukónginn sem matreiddur verö- ur á sýningunni i Svíþjóð. Timamynd: Pjetur Vásterhavsfisk hefur opnað þeim félögum ýmsa möguleika. Þorbjörn Daníelsson sagði að upphafið að samvinnunni við þetta fyrir- tæki hefði verið heimsókn yfirmatreiðslu- meistara sænska konungsins hingað til lands fyrir þremur árum, en hann kom hing- að á vegum Sigmars B. Haukssonar. „Sigmar kynnti fyrir honum það nýjasta hér á landi og gerði það á veitingahúsinu Við Tjörnina. Við vorum þar með og hann varð mjög hrif- inn af okkar afurðum,11 sagði Þorbjörn. Mat- reiðslumeistarinn rekur frægt veitingahús í Stokkhólmi sem heitir Óperukjallarinn, og eftir heimsókn hans hingað til lands hóf hann að kaupa afurðir frá íslenskum skel- fiski og selja þær á veitingahúsinu. „Þeir tóku eftir því hjá Vásterhavsfisk að hann var farinn að kaupa afurðir frá okkur og þeir sögðu við sjálfa sig fyrst að þessi frægi yfir- matreiðslumeistari Svíakonungs væri að kaupa þessar afurðir frá íslandi, þá hlyti eitt- hvað að vera í þær spunnið," sagði Þorbjörn. Þessi sýning, sem verður í næstu viku, er seinni hálfleikur á kynningunni í Svíþjóð. Fyrir áramót var haldin veisla í Gautaborg þar sem 500 völdum veitingamönnum var boðið að borða afurðir íslensks skelfisks. Rúnar Marvinsson, matreiðslumeistari á veitingahúsinu Við Tjörnina, sá þá um að elda ofan í veislugesti og létu veislugestir vel af matnum. Vásterhavsfisk er með sýningarbásinn á sýningunni nú sem er um 200 fermetrar að stærð og þar verður aðaláherslan lögð á að kynna afurðir íslensks skelfisks. Þemað á bak við básinn er lítið fiskimannaþorp á vesturströnd Svíþjóðar og þar er veitingahús sem allt að 50 manns geta snætt í einu. í loftinu yfir básnum hangir 4 tonna fiskibát- ur úr Höfnunum á Suðurnesjum. Rúnar Marvinsson sér um ásamt syni sínum að elda fyrir sýningargesti sem aðeins eru fagfólk í hótel- og veitingarekstri. Þeir hjá sænska markaðsfyrirtækinu hafa látið útbúa nýtt vörumerki sem er hafmeyja, sveipuð ís- lenska fánanum, og verður hún í búri á sýn- ingarbásnum meðan á sýningunni stendur. Þorbjörn Daníelsson sagði að Vásterhavs- fisk hefði notað afurðir íslensks skelfisks sem sölutrikk fyrir sínar venjulegu afurðir, svo sem karfa og þorsk, en ígulkerin, öðu- skelina og beitukónginn fengju þeir hvergi annars staðar frá og notuðu það sem Iykil að stóru fyrirtækjunum, svona sem eins konar beitu. „Þeir veðja það mikið á okkur að þeir setja þarna upp 200 fermetra bás og eru með lítið veitingahús þar inni fyrir um 50 gesti. Þarna eiga að rúlla á hverjum degi þessir réttir sem við erum með, öðuskelin, ígulker, beitukóngur og tindaskata og þetta kemur til með að renna ofan í þessa veitingamenn sem koma oftast í hópum frá veitingahúsun- um til að kynna sér afurðirnar. Síðan verða þeir teknir til hliðar og vonandi gerðir sölu- samningar. Það er heilmikið lagt í þetta og við leggjum til allt okkar hráefni og vinnu og þeir aðstöðuna,“ sagði Þorbjörn. Eftir mark- aðsstarfið í Svíþjóð er ætlunin að færa sig yf- ir til Þýskalands og Danmerkur og ef viðtök- urnar þar verða eins góðar og í Svíþjóð þá er búið að opna gríðarlega stóran markað fyrir afurðirnar. Kerfið hefur lítinn áhuga sýnt Aðspurður hver árangur Gautaborgarveisl- unnar hefði verið sagði Þorbjörn að því mið- ur hefðu þeir ekki getað annað eftirspurn. „Því miður stóðum við okkur ekki sem skyldj að því leytinu til, eins og oft vill verða með íslendinga, að við náðum ekki að anna eftirspurn. Við höfum ekki fengið neins stað- ar svörun í kerfinu, við erum búnir að æpa á hjálp, því að við teljum að þetta sé stórkost- legur markaður. Við erum bátlausir og náð- um ekki einu sinni að koma okkur upp báti til að ná upp þessum afurðum," sagði Þor- björn. Hann sagði að þeir hefðu fengið sjó- Eftir Stefán Eiríksson menn til að veiða þetta fyrir sig og einnig hefðu þeir leigt báta en það væri mjög erfitt að standa í því. Þekking á dreifingu afurð- anna væri í flestum tilfellum takmörkuð og enginn skrásetning til hjá Hafrannsóknar- stofnun yfir dreifingu þeirra. Þorbjörn sagði að þeir væru með góðar skrár yfir giidru- veiðarnar sem þeir stunduðu við Vogastapa en erfitt væri að gera jafnnákvæmt yfirlit yf- ir hitt þar sem margir aðilar stunduðu veið- arnar fyrir þá. Eiríkur Sigurgeirsson sagði að nokkur veitingahús hér á landi væru með skelfisk frá þeim á sínum matseðlum en þeir hefðu ekki sóst mikið eftir viðskiptum við veit- ingahúsin. „Maður getur selt alveg helling af t.d. öðuskelinni, en þegar maður byrjar viðskipti við veitingahús þá verður maður að eiga afurðina til í öll skipti sem hún er pöntuð, en ekki í níu tilvikum af hverjum tíu. Meðan við erum bátlausir er sú hætta fyrir hendi og því höfum ekkert verið að sækjast eftir þessum viðskiptum," sagði Ei- ríkur. Þorbjörn sagði að ef markaðssetning- in í Svíþjóð og jafnvel fleiri löndum gengi vel, þá yrði þetta án efa útgerð fyrir nokkra báta. Aðaltekjulind fyrirtækisins er humarveið- arnar en það hefur um 2300 humargildrur sem Elliði, skip í eigu útgerðarfyrirtækisins Miðnes, vitjar um. „Við lifum á þessum veið- um og það er enginn launung að við værum ekki hér ef við hefðum ekki fengið aöstoð frá Miðnesi," sagði Þorbjörn. Eiríkur og Þor- björn draga enga dul á það að þeir eru óhressir með þær hægu viðtökur sem þeir hafa fengið í kerfinu. „Við höfum ekki fengið einn einasta aur í þetta frá kerfinu. Það hef- ur alls ekki svarað þessu þó svo að við séum búnir að vinna markaðinn. Hér á landi er hlutunum oft snúið við. Það er rokið í að fara að framleiða einhverja vöru í massavís og síðan farið að skoða hvort einhver mark- aður sé fyrir hana. Þá fyrst uppgötva menn að það er enginn markaður fyrir vöruna. Við snerum þessu hins vegar alveg við, fundum fyrst markaðinn og erum nú að berjast fyrir því að anna eftirspurn," sagði Þorbjörn. Hann sagði að skorturinn á upplýsingum um miðin gerði það að verkum að þeir gætu ekki gefið sænska markaðsfyrirtækinu ná- kvæmar upplýsingar um það hversu mikið væri hægt að veiða á ári. „Svíarnir spyrja okkur mikið um það hve mikið sé til og hvað þeir eigi að leggja mikið púður í þetta. Þetta eru upplýsingar sem við höfum því miður ekki. Við höfum verið í sambandi við Haf- rannsóknarstofnun en við setjum ekki upp rannsóknaráætlanir fyrir þá. Þeir eru með áætlanir 3-4 ár fram í tímann og þetta er ekki komið inn á þeirra borð. Þetta er allt mjög þungt í vöfum nema á tyllidögum þeg- ar menn flytja ræður,“ sagði Þorbjörn. Hann sagði að Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra hefði hlustað á þeirra mál og gefið þeim tilraunaleyfi til veiða á humri. Þeir hefðu stundað þær veiðar í tvö ár og það hefði komið í Ijós að þarna er um að ræða hágæðahumar sem mjög gott verð fæst fyrir Þorbjöm Daníelsson gæðir sér á hörpudiski. á erlendum mörkuðum. Veiðin hjá þeim gengi líka miklu betur en t.d. hjá Skotum sem væru helstu samkeppnisaðilarnir, þeir væru að fá 300 til 400 grömm í gildrurnar meðan Skotarnir fengju í kringum 100 grömm. „Halldór er okkur velviljaður en því miður virðist vera lítið um aura til að sinna þessum hlutum. Það sem er ákaflega góður kostur við hann er að þú færð svör hjá hon- um strax, en ert ekki sendur í mánaðagöngu út í kerfið til að fá sama svar, hvort sem það er já eða nei,“ sagði Eiríkur. Hið nýja vömmerki Vástertiavsfisk er hafmeyja, sveipuð íslenska fánanum, og kemur hún til með að vera í búri á sýningarbásnum í Svíþjóð meðan á sýningunni stendur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.