Tíminn - 01.03.1991, Page 15

Tíminn - 01.03.1991, Page 15
Tíminn 15 Föstudagur 1. mars 1991 Þeir mætast á laugardag þjálfaramir Sigurður Gunnarsson og Guðmundur Guðmundssor Sigur Skagamanna Skagamenn tryggðu sér um síðustu helgi íslandsmeistara- titil í 2.fl. karla í innanhúss- knattspyrnu. Skagadrengirnir sigruðu KR í úrslitaleik, 8-4, eftir skemmtilegan úrslitaleik. Mótið var haldið í íþróttahúsinu í Garðabæ og var framkvæmd mótsins í höndum Stjörnunnar og var til mikils sóma. Ólafur flautar ei Ólafur Lárusson knattspyrnu- dómari, sem mörg undanfarin ár hefur dæmt í 1. deild íslands- mótsins, hefur tilkynnt að hann muni ekki dæma í deildinni í sumar. Ákvörðunin kemur á óvart þar sem Ólafur dæmdi vel í fyrra og var meðal annars val- inn dómari júlímánaðar af Hörpu, sem var styrktaraðili 1. deildar. Það vekur einnig athygli að stórveldið KR á þá engan dóm- ara í hópi þeirra sem dæma í 1. deild, þar sem Guðmundur Har- aldsson lagði flautuna á hilluna síðasta haust. Á laugardag fer fram í Laugardals- höll einn af stærstu íþróttaviðburð- um í íslensku Íþróttalífi, en þá verð- ur leikinn úrslitaleikurinn í Bikar- Víkingur Markverðir leikir Hrafn Margeirsson......60 Reynir Reynirsson......39 Aðrir leikmenn Alexei TVufan..........29 Dagur Jónasson.........39 Birgir Sigurðsson......62 Björgvin Rúnarsson.....35 Ingimundur Helgason....62 Karl Þráinsson........204 Guðm. Guðmundsson.....329 Bjarki Sigurðsson.....157 Árni Friðleifsson.....138 Hilmar Sigurgíslason..197 Einar Jóhannesson.....147 Kristján Ágústsson .....7 Þjálfari: Guðm. Guðmundsson Aðst. Þjálfari: Árni Indriðason Liðstjóri: Ásgeir Sveinsson Fyrirliði: Karl Þráinsson keppni HSÍ. Að þessu sinni eru það iið Víkings og ÍBV sem eigast við og hefst leikurinn klukkan 16.30. Þó að Víkingar, sem eru nýkrýndir deildarmeistarar, verði að teljast sig- urstranglegri, þá hafa Vestmannaey- ingarnir yfirhöndina ef tekin eru úr- slit úr leikjum vetrarins, en þó að- eins á betri markatölu. Liðin áttust við í eyjum þann 9. nóv. og þar fóru Víkingar með sigur af hólmi, 27-26, eftir hörkuleik. En í síðari leiknum, þann 15. febrúar, sigruðu hins vegar Eyjamenn með 6 mörkum, 29-23. Þess ber þó að geta að Víkingar voru þegar búnir að tryggja sér deildar- meistaratitilinn og voru án sinna bestu manna. Á þessum tölum sést að búast má við hörkuleik og að við- bættri fullri Höll af hávaðasömum Víkingum og Eyjamönnum ætti leikurinn að verða hin besta skemmtun. Þetta er í fyrsta skipti sem ÍBV leik- ur til úrslita í bikarnum og má segja að frammistaða liðsins í deild og bikar hafi komið verulega á óvart. Liðið hefur náð að tryggja sér sæti í úrslitakeppni hinna sex efstu um fs- landsmeistaratitilinn í handknatt- leik. Kannski má þennan góða ár- angur fyrst og fremst rekja til þjálf- ara og besta leikmanns liðsins, Sig- urðar Gunnarssonar, sem náð hefur að binda liðið saman í prýðisgott handknattleikslið. Þó má geta þess að heimavöllur þeirra Vestmannaey- inga skiptir þá miklu máli, jafnvel meira máli heldur en það skiptir nokkurt annað lið, en í þetta skiptið eru það Víkingar sem njóta heima- vallar. Það eru þrír leikmenn í liði ÍBV er hafa ieikið bikarúrslitaleiki áður. Sigmar Þröstur Óskarsson og Gylfi Birgisson urðu báðir bikar- meistar með Stjörnunni 1987 og Gylfi síðan aftur 1989. Þá hefur Sig- urður Gunnarsson leikið fjóra úr- slitaleiki, alla með Víkingum. Þess má geta að Víkingar unnu sigur í þeim öllum. Víkingar eru hins vegar engir ný- græðingar í bikarúrslitaleikjum. Þessi leikur er þeirra níundi. Af þeim átta úrslitaleikjum sem þeir hafa þegar leikið hafa þeir sex sinn- um borið sigur úr býtum, en tapað tvívegis, en það var á síðasta ári er þeir töpuðu fyrir Val, og einnig árið 1981 er þeir máttu lúta í lægra haldi fyrir Þrótti, sem á þeim árum hafði í sínum röðum leikmenn eins og Sig- urð Sveinsson og Pál Ólafsson. Þjálf- ari Víkinga, Guðmundur Guð- mundsson, hefur leikið alla bikarúr- slitaleikina átta og leikur því vænt- anlega sinn níunda leik á laugardag. Síðast urðu Víkingar bikarmeistarar 1986 og þá stjórnaði Árni Indriða- son, núverandi liðstjóri liðsins, Vík- ingum. Þá lék Hilmar Sigurgíslason, sem nú leikur í liði Víkings, í fyrra með ÍBV. Eins og áður sagði hefst leikurinn kl. 16.30 laugardaginn 2. mars. Heiðursgestir á leiknum verða þeir Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og Borgarstjór- inn í Reykjavík, Davíð Oddsson. Dagskráin í Höllinni hefst hinsvegar kl. 15.45 þegar leikmenn hefja upp- hitun og lúðrasveit hefur leik. Búast má við fullu húsi því heyrst hefur að hundruð Eyjaskeggja fjölmenni á leikinn. Stuðningsmannafélag þeirra hefur auglýst dagskrá og koma þeir til með að hittast á Kringlukránni kl 14.00 til að njóta þar matar og drykkjar. TbV' ÍBY Markverðir leikir Sigmar Þröstur Óskarsson .. 72 Ingólfur Arnarsson.......38 Aðrir leikmenn Sigurbjörn Óskarsson........87 Þorsteinn Viktorsson ...91 Guðfinnur Kristmannsson ..43 Gylfi Birgisson ............22 Sigurður Gunnarsson......52 Sigurður Friðriksson.....76 Davíð Hallgrímsson ..........4 Haraldur Hannesson..........22 Helgi Bragason...........17 Davíð Guðmundsson .......36 Jóhann Pétursson ........73 Svavar Vignisson..........4 Sigurður Ólafsson........49 Erlendur Richardsson.........3 Þjálfari: Sigurður Gunnarsson Aðst.maður: Arnar Richardsson Liðstjóri: Ragnar Hilmarsson Fyrirliði: Sigmar Þ. Óskarsson MOLAR Kraftlyftingar íslandsmótið í kraftlyftingum verður haldið í íþróttahúsi Snæ- landsskóla í Kópavogi laugar- daginn 2. mars. Keppni hefst klukkan 10.00 og áætlað er að mótinu ljúki kl 16.00. Margt er öflugra keppenda og má nefna að Magnús Ver Magnússon hefur náð sér eftir meiðsli og honum til aðstoðar verður enginn annar en Jón Páll Sigmarsson . Roma á kafi í lyfjum ítalska knattspyrnuliðið Roma hefur átt undir högg að sækja vegna notkunar leikmanna á eit- urlyfjum en er nú að reyna að rífa sig upp úr ruglinu. Til að bæta gráu ofan á svart lést for- seti félagsins á dögunum og bættist þá við vandamálin óvissa um framtíð félagsins. í nóvem- ber voru tveir leikmenn liðsins, þeir Carnevale, sem lék í loka- keppni HM á Ítalíu, og mark- vörðurinn Peruzzi, sem leikið hefur með 21 árs landsliði Ítalíu, dæmdir í eins árs bann. Eftir það hefur leiðin einungis legið nið- ur, en nú virðist vera að rofa til hjá félaginu. 6.sekúndur Von er á þeirri reglu frá FIFA mönnum um að markvörður megi aðeins halda á knettinum í 6 sekúndur, án þess að á hann sé dæmt. Enginn regla hefur verið til hve lengi markvörður megi halda á knettinum, en þetta er gert til að leikmenn fái ekki að tefja leikinn. Háskólaskemmtiskokk Sunnudaginn 3. mars er fyrir- hugað skemmtiskokk á vegum Háskóla íslands og Búnaðar- bankans og hefst það klukkan 14.00. Hlaupnir verða tæplega fimm kílómetrar um vesturbæ- inn og er hlaupin sama leið og undanfarin ár. Hlaupið hefst og endar við aðalbyggingu Háskól- ans og hægt er að skrá sig í and- dyri skólans allt til kl. 13.00 á hlaupdag. Vegleg verðlaun verða veitt. Fjöldi æfingaleikja Undirbúningur knattspyrnu- liða fyrir komandi íslandsmót er nú kominn í fullan gang. Lið- in keppast við að leika æfinga- leiki og með nýjum gervigras- velli í Kópavogi hafa möguleik- ar liðanna til að fá leiki aukist til muna. Við látum fylgja með úrslit í tveimur æfingaleikjum. Valsmenn sigruðu lið ÍA á gervi- grasinu í Laugardal 2-1 og þá vann lið skipað leikmönnum 21 árs og yngri lið Fylkis 3-0 á Kópavogsvelli. Egill þjálfar Ármann Egill Steinþórsson, sem um árabil hefur þjálfað og leikið með liðum í Færeyjum við góð- an orðstír, hefur verið ráðinn þjálfari knattspyrnuliðs Ár- manns. Lið Ármanns má muna sinn fífil fegri, en liðið hefur á að skipa mjög glæsilegum gras- velli. Mikill hugur er í mönnum fyrir sumarið og eru æfingar hafnar af fullum krafti. Þá hefur Egill leikið með handknatt- leiksliði Ármanns að undan- förnu. FIFA breytir Þær fréttir berast nú frá her- búðum FIFA að breytinga sé að vænta á allra næstu dögum um aldurshámark FIFA dómara og þykja þær allbyltingarkenndar. Sem kunnugt er hefur verið miðað við að menn detti út af milliríkjalistum um fimmtugt en nú ku vera ætlunin að lækka það niður í 45 ár, með um tveggja ára aðlögunartíma. Þetta þýðir það til dæmis að all- ir ensku milliríkjadómararnir sjö eru orðnir of gamlir og verð- ur því skipt út á næstu tveimur árum. Áhrifin á íslenska milli- ríkjalistann, en hann skipa þeir Óli Olsen, Eyjólfur Ólafsson, Sveinn Sveinsson og Bragi Bergmann, eru óljós. Vandræði hjá Man.Utd Alex Ferguson, stjóri Man.Utd., á í miklum erfiðleikum þessa daga, þar sem sex af lykilmönn- um liðsins eru á hinum fræga sjúkralista. Það gæti þýtt það að hinn 18 ára gamli sonur stjór- ans, Darren Ferguson, fengi tækifæri á að spreyta sig á laug- ardaginn. Þeir s. liggja eru þeir Steve Bruc Bryan Rob- son, Mark Robii Neil Webb, Mark Hughes og ‘ke Phela og það munar um r. a.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.