Tíminn - 20.04.1991, Page 3
Laugardagur 20. apríl 1991
HELGIN
11
drakk af og lærisveinar hans er þeir
neyttu kvöldmáltíðarinnar eða
honum var færður í drykkur á
krossinn, kyrtill hans, skór, steinn
sem látinn var undir höfuð hans,
líkblæjur með sveitadúk og blóði
Krists, mundlaug sú er geymdi
vatnið sem hann þó úr fætur post-
ula sinna, dúkur sá er hann þerrði
þá með, reifar þær sem Kristur var
vafinn, og gull það er vitringarnir
færðu Jesú-barninu. Þar var og
belti og stafur Maríu guðsmóður,
vöndur Móse, kofi hins heilaga El-
íasar spámanns, stóll Davíðs kon-
ungs, beisli Konstantíns mikla,
blóð Pantaleons píslarvotts, horn
það sem Jósúa blés í áður en múrar
Jeríkóborgar hrundu. Líkneskja
helgra manna nokkurra er og getið,
þar á meðal líkneskis Maríu með
Jesúbarnið. Segir að gyðingur
nokkur hafi stungið það með hnífi í
barkann og hafi þá runnið úr því
blóð. Þar er og rit það er drottinn
reit sjálfur sínum höndum, o.s.frv.
(Alfr. ísl. I. 25-26).
Orkar það ekki tvímælis að mjög
hefur verið freistandi og vænlegt til
sálubóta að heimsækja Miklagarð.
St. Jago di
Compostella
Sá staður, sem í vestur- og suður-
hluta Evrópu þótti næstur eða ef til
vill að jöfnu ganga við Rómaborg
um helgi og til sálubóta, var St.
Jago di Compostella á vesturströnd
Spánar nyrst. Þar hvílir Jakob Ze-
bedeusson, postuli Jesú Krists.
Þangað fór Hrafn Sveinbjarnarson
og síðar Björn Jórsalafari. En ann-
ars þekki eg ekki sagnir um ferðir
íslendinga þangað.
Ekki verður það efað að suður-
göngur íslendinga hafi skipt miklu
máli. Um trú manna og guðsdýrk-
un hefur þessa fyrst og fremst gætt.
Þeir hafa aflað sér helgra dóma eitt-
hvað og trú þeirra á mátt þeirra
hefur styrkst. Helgisiðum manna
sunnar í álfunni hafa þeir kynnst og
trúrækslu yfirleitt. Þeir hafa senni-
lega orðið flestir hrifnir af ýmsum
mannvirkjum og byggingum, sem
á vegi þeirra hafa orðið. Þeir hafa,
að minnsta kosti sumir hverjir,
kynnst siðum og háttum suður-
manna og lært ýmsa kurteisi af
þeim. Ekki er heldur ólíklegt að
suðurgöngurnar hafi skipt nokkru
bókmenntalega, einkum um helgi-
rit og annálagerð. Sjóndeildar-
hringur suðurfaranna hlýtur að
hafa víkkað fyrir ferðalög þeirra.
Þeir hafa séð svo fjöldamargt sem
þá hefur ekki órað fyrir að til væri.
Og þeir hafa heyrt svo margt sem
þeir höfðu enga hugmynd um áður.
Vitanlega hafa lærðir menn og þeir,
sem áður höfðu fengið nokkra
nasasjón af þeim fræðum sem þá-
tímamenn ræktu, haft að þessu
leyti meira gagn af ferðum sínum
en almenningur. Skortur á mála-
kunnáttu hefur verið ólærðum
mönnum einkum tilfinnanlegur,
en hinir betri klerkar hafa sjálfsagt
haft mikil not latínukunnáttu sinn-
ar. Þeir gátu bæði lesið rit á latínu
og talað við aðra latínulærða menn
og hafa sennilega haft nokkurt
gagn af hvoru tveggja. Þegar heim
kom hafa suðurfarar miðað hér-
landsmönnum þeirri þekkingu sem
þeir höfðu aflað sér, eftir því sem
hver var lagaður til, og eftir því sem
þeir máttu við henni taka sem
heima sátu. Má og búast við því að
ýmiss konar hjátrú, sem vér nú
mundum kalla svo, og lygasögur
hafi breiðst út frá suðurförum, því
að sennilega hafa sumir „krítað lið-
ugt“ þegar þeir voru að segja ferða-
sögur sínar, enda hefur sjálfsagt
kennt misskilnings hjá hvorum
tveggja um það sem frá var sagt.
Áhrif suðurfaranna á trúarlíf og
kirkjuhætti hafa sennilega orðið
talsverð og lyft undir kröfur þær
sem síðar fer að bóla á um aukin
völd klerkdóms og kirkju, þó að lík-
lega verði ekki áþreifanlega bent á
nokkur sérstök atriði í þá átt.“
Hér verður staðar numið að sinni,
en í næsta blaði tekur til við að
segja frá suðurgöngum einstakra
íslendinga.
A
Frá grunnskólum
p Kópavogs
Innritun 6 ára barna, börn fædd 1985, fer fram í
skólum bæjarins mánudaginn 22. apríl og þriðju-
daginn 23. apríl frá kl. 13.00-16.00.
Innritun skólaskyldra barna og unglinga, sem
flytjast milli skólakerfa, flytja í Kópavog og/eða
koma úr einkaskólum, fer fram sömu daga á
skólaskrifstofu Kópavogs, Fannborg 4, kl. 9.00-
12.00.
Símar 41988 og 41863.
Skólafulltrúi.
•jily-
TILRAUNASTOÐIN A KELDUM
FRÁRÆSISLAGNIR
Tilboð óskast í gerð 345 m langrar holræsislagnar frá Keldum
sem tengist Grafarvogsræsi.
Verktími er til 8. júlí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7, Reykja-
vik, til og með miðvikudeginum 8. maí gegn 10.000,- kr. skila-
tryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriöjudaginn 14. maí kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK
Sama verð og í fyrra
Ný sending af ZETOR dráttarvélum á leið til landsins.
Við hvetjum bændur til að staðfesta pantanir strax og tryggja sér
nýjan ZETOR fyrir sumarið á betra verði en nokkru sinni fyrr.
ZETOR 5211 47 hö..........kr. 646.000,-
ZETOR 6211 59 hö..........kr. 723.000,-
ZETOR 7211 65 hö..........kr. 752.000,-
ZETOR 7245 65 hö..........kr. 954.000,-
ZETOR 7711 70 hö..........kr. 828.000,-
ZETOR 7745 70 hö..........kr. 1024.000,-
ZETOR 7711 Turbo 79 hö. .kr. 918.000,-
ZETOR 7745 Turbo 79 hö. .kr. 1160.000,-
Verð án vsk. og skráningar 19/4 ‘91.
ZETOR 7745 Turbo m/Hydrostatik vökvastýri
Verðið á ZETOR hefur sjaldan verið betra og endursalan er örugg.
Afturhlífar yfir framhjólum
Tectyl ryðvörn
Útvarp og segulband
Leiðbeiningasnælda
Vinnuljós framan og aftan
Vélartengd loftdæla
100% læsing á framdrifi
Lyftukrókur og þverbiti
Sjálfstæð fjöðrun á framhjól-
um á vélum án framdrifs
Vökvastýri
Sóllúga
Yfirstærð á dekkjum
Sérlega rúmgott og hljóðein-
angrað ökumannshús
w
umboðið:
«WJl
r
íslensk-tékkneska verslunarfélagið hf.
Lágmúla 5, sími 84525, Reykjavík.