Tíminn - 20.04.1991, Qupperneq 6
14 T HELGIN
Laugardagur 20. apríl 1991
Laugardagur 20. aprríl 1991
HELGIN
' TVÖFALDUR1. vinningur
María og bömin.
Tónlist: Richard Rodgers
Söngtextan Oscar Hammerstein II.
Leikhandrit: Howard Lindsay og Russel Crouse
Þýöing: FIosi Ólafsson
Leikstjóri: Benedikt Ámason
Hljómsveitarstjóm: Agnes Löve
Dansan Ingibjörg Bjömsdóttir
Leikmynd: Oliver Smith
Lýsing: Mark Pritchard
Hljóðsetning: Autograph, Julian Beech, Georg
Magnússon.
Sýningarstaðun Þjóðleikhúsið.
Allir þeir sem komnir eru á fullorðinsár
þekkja til söngleiksins The sound of music
og þá flestir vegna kvikmyndarinnar sem
sýnd var hér á landi á sjöunda áratugnum
svo mánuðum skipti og sló öll sýningar-
met fýrr og síðar.
Nú er þessi hugljúfi söngleikur kominn í
Þjóðleikhúsið og áhorfendur láta ekki á sér
standa. Áður en leikdómar birtast og frétt-
ir taka almennt að berast frá þessari upp-
færslu er uppselt á margar sýmngar fram í
tímann.
Söguþráðurinn er í stuttu máli á þann veg
að hin unga María, sem hyggst ganga í
klaustur, gerist
óvænt barnfóstra hjá Georg von Trapp,
kapteini í austurríska flotanum, en hann
er ekkjumaður með 7 börn. María vinnur
hug og hjörtu barnanna og síðar kapteins-
ins einnig.
Leikurinn gerist í þann mund sem Hitler
leggur Austurríki undir sig.
Von Trapp er mikill ættjarðarvinur og get-
ur ekki hugsað sér að ganga til liðs við flota
þriðja ríkisins eins og honum ber eftir inn-
limunina. Fjölskyldan flýr til frelsisins yfir
fjöllin fagurblá og allt fer vel að lokum.
Sýning í Þjóðleikhúsinu er mjög falleg og
hefur ákaflega vel tekist til með val í hlut-
verk.
Ber þar fyrst að telja Margréti Pétursdótt-
ur sem Maríu. Bæði söngur og leikur er
með miklum ágætum. Það fylgir henni
mikil útgeislun og með hressilegri og
óþvingaðri framkomu sinni á sviðinu hrif-
ur hún ekki síður áhorfendur en María
börnin í leiknum.
Jóhann Sigurðsson er ákaflega afslappað-
ur sem Georg von Trapp.
Fyrst aginn uppmálaður en síðar Ijúfur
sem lamb. Hlutverkið hæfir honum prýð-
isvel og ekki skaðar hans ágæta og þrótt-
mikla söngrödd.
Börnin í leiknum eru 7 eins og áður seg-
ir.
Það eru engar ýkjur að segja að frammi-
staða þeirra er aðdáunarverð og þá ekki síst
þeirra yngstu. Allan tímann eru þau full-
komlega í heimi leiksins, detta aldrei út úr
hlutverkunum og leika af svo mikilli ein-
lægni að bræðir hvert íshjarta.
Örn Árnason og Helga Jónsdóttir eru í all-
stórum hlutverkum og skila þeim stórvel.
Örn sýnir gamla góða takta en passar að of-
leika ekki.
Helga gæðir hina lævísu Elsu Shraeder
miklum ytri glæslileik og kemur einnig vel
til skila því rotna sem undir býr.
Ragnheiður Steindórsdóttir
fer með hlutverk príorinnunnar
og skilar því með prýði, bæði leik og ekki
síður söngnum.
Fjölmargir aðrir taka þátt í sýningunni.
Leikmyndin er klassísk. Ósköp hlý og eðli-
leg og skipting sviðsmynda gekk ákaflega
fljótt fyrir sig, greinilegt að þar voru vanir
menn að störfum.
Söngvarnir í leiknum eru löngu orðnir
hluti af því besta og vinsælasta sem samið
hefur verið á þessari öld.
Textarnir í þýðingu Flosa Ólafssonar eru á
góðri íslensku og létt yfir þeim.
Kvöldstund undir Söngvaseiði er afar
notaleg. Um fólk líða straumar þægilegra
tilfinninga, gleði og fögnuðar þegar hlut-
irnir taka að snúast á þann veg að hið góða
í manninum nær yfirhöndinni.
Hér eru engin flókin vandamál á ferðinni.
Engin stórátök þar sem leikarar froðufella.
Við sjáum hér mannlegar tilfinningar tjáð-
ar í tali og tónum pakkaðar inn í skraut-
pappír, sumir kalla það væmið aðrir hug-
ljúft, best er að hver dæmi fyrir sig.
Gísli Þorsteinsson
Kosningamiðstöðin okkar
er að Borgartúni 22. Símar: 62-03-58 - 62-03-60 - 62-03-61
Akstur á kjördag: Símar 62-03-56 og 62-03-57
Komið í kosningakaffi og Framsóknar-
takið þátt í lokasókninni 4^v> flokkurinn
Áhugafélög um brjóstagjöf vilja stuðla að réttu fæðuvali „þín vegna og bamsins“
MUNDU EFT1R OSTINUM ^
Hann byggir upp