Tíminn - 14.05.1991, Qupperneq 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 14. maí 1991
Laxeldisstöðin í Kollafirði er brautryðjandi í laxahafbeit.
Ljósmynd R.H.
Laxahafbeitin í örum vexti
Stífla og móttökubúnaður hjá Dalalaxi í Saurbæ.
Ör þróun er þessi árin í iaxahafbeit-
inni hér á landi. Sumarið 1990
komu úr sjó 91 þúsund laxar í 13
hafbeitarstöðvar. Það er mesti fjöldi
laxa sem fengist hafði úr hafbeit á
einu ári til þessa. í sumar má vænta
veruiegs fjölda laxa inn í hafbeitar-
stöðvarnar. Ef gert er ráð fyrir 5%
endurheimtu má ætla að tæplega
300 þúsund laxar komi í stöðvarnar
í sumar, bæði átsfiskur úr sjó og
eldri lax. Á sumrinu 1990 var sleppt
5,6 milljónum gönguseiða í sjó frá
hafbeitarstöðvunum, en á þessu
sumri er stefnt að því að sleppa í haf-
beit 6 milljónum gönguseiða af laxi,
samanber skýrslu Veiðimálastofn-
unar.
íslendingar
forystuþjóð
íslendingar eru forystuþjóð á sviði
laxahafbeitar við Atlantshaf, en um
þessar mundir eru 30 ár liðin frá því
að þetta starf hófst með stofnun
Laxeldisstöðvar ríkisins í Kollafirði.
Nokkrum árum síðar reis Lárós-
stöðin á Snæfellsnesi. Nú eru 13
hafbeitarstöðvar í rekstri, sem fyrr
greinir, og má í því sambandi meðal
annars nefna Vogalax hf. á Vatns-
leysuströnd, Silfurlax hf. í Hrauns-
firði á Snæfellsnesi og hafbeitarstöð
Dalalax hf. í Saurbæ í Dölum.
Laxveiðikvótakaupin
Nýlega hefur verið gerður samn-
ingur við Færeyinga um kaup á lax-
veiöikvóta þeirra til þriggja ára. Það
er Alþjóðlega laxakvótakaupanefnd-
in undir forystu Orra Vigfússonar
sem hefur komið þessu í kring. Er
gert ráð fýrir að hlutur íslendinga í
kvótakaupunum nemi um þremur
milljónum króna á ári. Þá hafa bor-
ist fréttir um að stjórnvöld á Græn-
landi séu tilbúin aö ræða laxakvóta-
mál, en hvort að það verði gert á
svipuðum nótum og við Færeyinga
er of snemmt að segja til um á þess-
ari stundu.
Sjóræningjar flæmdir
brott
Þá hefur tekist að fá stjórnvöld í
Póllandi og Panama til þess að
hætta að veita afdrep svonefndum
sjóræningjabátum sem stundað
hafa veiðar á laxi á svonefndu Gráu
svæði í hafinu norðan Færeyja. Talið
er að veiðst hafi á þessu ári 600 lest-
ir af laxi 1990. Með þessu er fokið í
flest skjól hjá laxveiðiþjófum þess-
um. Eins og menn muna tóku Dan-
ir fast á þeim bátum sem brutu lax-
veiðibannið og eru þau mál fyrir
dómstólum.
Aukið veiðieftirlit
Með minnkandi laxveiði í úthafinu
mun laxinn skila sér í vaxandi mæli
á heimastöðvarnar í ánum. Þessi
hagstæða þróun með laxakvóta-
kaupum og upprætingu á ólögleg-
um veiðum í úthafinu eykur þrýst-
ing á okkur sjálfa að standa vel í
stykkinu í þessum efnum. Við get-
um sjálfir ekki horft upp á það að lax
sé veiddur ólöglega við strendur ís-
lands hvorki í blóra við silungsveiði-
heimildir né á annan hátt. Aukið
veiðieftirlit þarf hér til að koma, svo
að öruggt sé aö óviðkomandi aðilar
fái ekki færi á að valda tjóni á þeim
verðmætum sem laxveiðiárnar gefa
hinum strjálu byggðum landsins
bæði beint og óbeint. Þá hafa haf-
beitarstöðvar lagt stórfé í fram-
leiðslu gönguseiða. Þær þurfa því að
fá sína uppskeru óskipta, sem skilar
einnig verulegum tekjum til byggð-
arlaganna. Á hinn bóginn hefur
komið fram gagnrýni á fyrirkomu-
lag á töku lax í sumum hafbeitar-
stöðvum, bæði frá veiðiréttareig-
endum og samtökum stangaveiði-
manna.
Villti laxastofninn og
fískeldi
Ljósmynd Einar Hannesson
laxi í heiminum var á árinu 1990
224.000 lestir. Á hinn bóginn voru
nytjar af villta laxastofninum tæp-
lega 5.000 lestir hið sama ár. Á þessu
sést að eldislaxinn er um 45 sinnum
meiri en veiði á villtum laxi. Hins
vegar er talið að inn í tölur um veiði
á villtum laxi megi bæta um 40%
vantalið, að dómi fróðra manna er-
lendis um þetta efni. Verður heildar-
veiði þá um 7.000 lestir sé þessu
bætt inn í heildartölurnar. Er lax-
eldisframleiðslan því 30 sinnum
meiri en nemur veiði á villtum laxi í
laxveiðiánum, við sjávarstrendur og
úti í hafi.
Með þetta í huga er ekki að undra
þó að ýmsir veiðiréttareigendur hafi
áhyggjur af framtíð villta laxastofns-
ins. Það þarf ekki mikið út af að bera
til þess að mikill fjöldi eldisfiska geti
orðið að flökkufiskum, sem fyrr eða
síðar leita í laxveiöiárnar, eins og
reynslan hefur sýnt. Fyllsta ástæða
er til þess að hafa í framtíöinni
mikla aðgát í þessum efnum, svo
tryggt sé að villti laxastofninn fái
frið á sínum heimavelli fyrir að-
komufiski og erfðablöndum stofns-
ins sé þar með útilokuð.
Sé laxeldisframleiðslan 1990 skoð-
uð kemur í Ijós að Norðmenn eru
stórtækastir í eldinu, en þeir fram-
leiddu 158.000 lestir af eldislaxi.
Næstir koma Skotar með 32.000
lestir, síðan Færeyingar með 13.000
lestir, þá írar með 8.000 lestir og
Kanada með tæplega 8.000 lestir. Þá
eru ótalin ísland með 2.800 lestir,
Bandaríkin með 2.000 lestir, Norð-
ur-írar með 100 lestir og Sovétríkin
með 5 lestir. Alls eru þetta því
224.000 lestir af eldislaxi.
Tveir setjarar óskast
í umbrot á Macintosh (QuarkXpress).
Vaktavinna. Uplýsingár hjá
framkvæmdastjóra í síma 686300.
Tíminn, tæknideild
Sjómenn
Stýrimann og vélavörð vantar á bát frá Horna-
firði.
Upplýsingar í síma 97-81818. m
Borgey hf.
_
Framleiðsia f fiskeltíi á AtlarítóhaTs-
V v v V 4 4 * * * v •; * V v * pU
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka í
Reykjavik 10. til 16. maí er I Holtsapótekl og
Laugavegsapóteki. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi
til kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfja-
þjónustu eru gefnar i síma 18888.
NeyðarvaktTannlæknafelags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátiöum. Sim-
svari 681041.
Hafnarflörður Hafnarfjaröar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar i simsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða, Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræöingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
sima 22445.
Apótek Keflavíkun Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
dagakl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað i hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opiö rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjamames og
Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugard. kl. 10.00-11.00. Lokaöá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapant-
anir í síma 21230. Borgarspítalinn vakt frá kl. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (sími 81200). Nánari upplýsingar um
lyflabúöir og læknaþjónustu erugefnar í sím-
svara 18888.
ÓnæmisaðgerÖir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöö Reykjavíkur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi meö sér
ónæmisskírteini.
Seltjamames: Opiö er hjá Tannlæknastofunni
Eiðistorgi 15 viri<a daga kl. 08.00-17.00 og
20.00- 21.00, laugardaga kl. 10.00-11.00. Sími
612070.
Garöabæn Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er í
síma 51100.
Hafnarljöröur. Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt sími 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Sími 40400.
Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöö Suðumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistööin: Ráögjöf í sál-
fræðilegum efnum. Sími 687075.
Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspitali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspítali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartími
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 ogeftirsamkomulagi. Álaug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnartoúöín Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvíta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstööin: Kl.
14 til kl. 19. - FæÖingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Weppsspítali: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífilsstaöaspítali: Heimsóknar-
timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL
Jósepsspítali Hafnarfirði: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikuriæknishéraðs og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Sími 14000. Keflavík-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartími virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgarog á hátíöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyrv sjúkrahúsið: Heimsóknartími
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusími frá kl.
22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Slökkvilið - Lögregla
Reykjavik: Seltjamarnes: Lögreglan sími
611166, slökkvilið og sjúkrabifreiö sími 11100.
Kópavogur. Lögreglan sími 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarflörður Lögreglan sími 51166, slökkviliö
og sjúkrabifreið sími 51100,
Keflavik: Lögreglan sími 15500, slökkviliö og
sjúkrabill sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138,
Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666,,
slökkvilið sími 12222 og sjúkrahúsið sími
11955.
Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabífreið sími 22222.