Tíminn - 14.05.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Jaröskjálftahrinan í Hverageröi. Gísli Garðarsson:
„Kippum okkur ekki
upp viö smákippi“
Síðdegis í gær hafði mikið dregið
úr jarðskjálftunum í Hveragerði
og þar í kring. Mældust þá að jafn-
aði þrír til fjórir vægir kippir á
klukkustund. Um hádegi á sunnu-
dag hófst hrina og urðu snörp-
ustu kippimir 2,7 og 3,3 á Richt-
er. Upptökin eru í Selfjalli, sem er
3 kflómetra norðan við Hvera-
gerði.
Snarpasti skjálftinn, sem var 3,4,
reið yfir um klukkan hálf fjögur í
gærdag. „Það var eins og kæmi
högg undir húsið. Slíkt er óvenju-
legt, því oft fylgir einhver titringur
á undan svona skjálftum," sagði
Gísli Garðarsson, bæjarstjómar-
maður í Hveragerði. „Þetta var
ekkert til þess að kippa sér upp
við," bætti hann við. Ekki urðu
neinar skemmdir f Hveragerði, en
hús nötmðu, myndir á veggjum
skekktust og munir féllu úr hill-
um. Nokkuð hefur verið um jarð-
skjálfakippi á Suðurlandi frá í
janúar, þegar Hekla gaus. Ekki er
hægt að setja þessa skjálfta í ein-
hlítt samhengi. En jarðskjálftar í
Hveragerði og nágrenni eru ekki
óalgengir og árin 1971, 1977 og
1984 hafa komið hrinur sem allar
hafa verið af svipaðri stærð og í
fyrradag.
„Það er ekkert sem bendir til þess
að þessir skjálftar boði nokkurn
skapaðan hlut annan en sig sjálfa,"
sagði Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur. Gísli Garðars-
son sagði að bæjarstjómin í Hvera-
gerði hefði ekki séð ástæðu til þess
að viðhafa neinar ráðstafanir
vegna þessa. „Við kippum okkur
ekki upp við svona smákippi,"
sagði Gísli. -sbs.
Kristján Ágústsson jarðeðlisfræðingur virðir hér fýrir sér á tölvuskjá
hvemig skjálftamir komu firam á mælum. Tímamynd: Ámi Bjama
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Holnarhusinu v Tryggvogotu,
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-68-76-91
HOGG-
> DEYFAR
IVerslió hiá faemönnum
varahluti
LH'-Haaarshóffri-s. 67-Ó744 J TVÖFALDUR1. vinninqur
Ií lllinu
ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ1991
Alþýðusam-
bandið með
færeyskum
verkamönnum
Föroyja Arbeidarafélag á í hörðum
vinnudeilum við vinnuveitendur á
eyjunum. Samningar runnu út 1.
maí. ítrekaðar tilraunir til lausnar
deilunum hafa engan árangur borið.
Vinnuveitendur höfnuðu tillögum
sáttasemjara, sem Arbeidarafélagið
samþykkti, og settu á verkbann.
í bréfi, sem Föroyja Arbeidarafélag
hefur sent ASÍ, segir:
„Hér með förum við þess á leit við
Alþýðusamband íslands að sam-
bandið og aðildarsamtök þess sýni
félagsmönnum okkar fyllstu sam-
stöðu og sjái til þess að hvergi verði
gengið inn á verksvið félagsmanna
okkar meðan á deilunni stendur,
þ.m.t. við löndun eða afgreiðslu fær-
eyskra fiskiskipa sem ieita kynnu til
erlendra hafna meðan á deilunni
stendur."
í tilkynningu frá ASÍ segir: „í ára-
tugi hafa íslensk og færeysk verka-
lýðsfélög veitt gagnkvæman stuðn-
ing í vinnudeilum. Alþýðusamband
íslands hvetur því aðildarfélög sín til
að fylgja þessum tilmælum ef á
reynir." -aá.
Þingflokkur
Framsóknar
Núverandi þingflokkur
Framsóknarflokksins eftir
setningu Alþingis í gær.
Frá vinstri Jón Helgason,
Guðni Ágústsson, Jón
Kristjánsson, Páll Pétursson
formaður þingflokksins, Halldór
Ásgrímsson, Ingibjörg
Pálmadóttir, Steingrímur
Hermannsson, Valgerður
Sverrisdóttir varaformaður
þingflokksins, Finnur Ingólfsson,
Guðmundur Bjamason,
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
Ólafur Þ. Þórðarson og
Stefán Guðmundsson.
Tímamynd: Ámi Bjama
ALVARLEG UMFERÐAR-
SLYS A NORÐURLANDI
Davíð og Perlan
Davíö Oddsson borgarstjóri lagði Davíð lagði homsteininn. Hann
á laugardaginn homstein að út- sagði í ávarpi að útsýnishúsið
sýnishúsinu á Öskjuhlíð. Þetta hefði á stundum verið kallað Perl-
var eitt síðasta embættísverk Dav- an og þar sem það væri fallegt
íðs sem borgarstjóra. nafn mæltist hann tU að það nafn
Fjöldi gesta var viðstaddur þegar festíst við húsíð. -sbs.
Tveir útlendingar úr-
skurðaðir í vaiðhald
Tvö alvarleg umferðarslys urðu á
Norðurlandi um helgina. Á laugar-
dag var ekið á mann á hestí á
Krossanesbraut við Akureyri, með
þeim afleiðingum að maðurinn
kastaðist af baki, og slasaðist mik-
ið. Aðfaranótt sunnudags var bif-
reið ekið útaf veginum við bæinn
Háls í Fnjóskadal. Ökumaður og
þrír farþegar vom í bflnum, og vom
allir fluttír á slysadeild.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknardeildar lögreglunnar á Akur-
eyri varð slysið á Krossanesbraut
*■ með þeim hætti að bifreið var ekið
yfir blindhæð, þar sem fjórir reið-
menn voru á ferð. Ökumaðurinn
náði ekki að stöðva bifreiðina, og ók
aftan á einn hestinn. Hesturinn
kastaðist uppá vélarhlíf bflsins, og
knapinn í götuna. Knapinn var flutt-
ur á slysadeild á Akureyri, og síðan
til Reykjavikur þar sem gerð var að-
gerð á höfði hans, en auk þeirra
meiðsla var annar lærleggur hans
tvíbrotinn. Hestinn sakaði hins veg-
ar ekki.
Bifreiðin, sem fór útaf veginum í
Fnjóskadal, fór nokkrar veltur, og er
talin ónýt. Ökumaður og þrír far-
þegar voru allir fluttir á slysadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
Einn farþeganna var meðvitundar-
laus og var ekki kominn til meðvit-
undar á sunnudagskvöld. Annar far-
þegi var kjálkabrotinn, og fékk að
fara heim að aflokinni aðgerð hjá
tannlækni á sunnudag, en ökumað-
ur og einn farþeganna fengu að fara
heim strax að lokinni rannsókn um
nóttina.
Þá var einn ökumaður tekinn fyrir
meinta ölvun við akstur, og annar
sviptur ökuleyfi vegna hraðaksturs.
Hann mældist á 96 km hraða innan
bæjarmarka Akureyrar þar sem
leyfilegur hámarkshraði er 50 km.
hiá-akureyri.
Þýskur maöur og spænsk kona voru
um helgina úrskurðuð í gæsluvarð-
hald fyrir smygl á rúmu einu og
hálfu kflói af hassi tíl landsins.
Þau munu hafa komið til landsins í
síðustu viku og fannst smyglið við
leit í íbúð þar sem þau dvöldust.