Tíminn - 24.05.1991, Page 3
Föstudagur 24. maí 1991
Tíminn 3
Seðlabankinn: Því ekki 0% vexti á húsbréfum
ef afföllin lenda ekki á íbúðakaupendum?
Hver hefur blekkt
íbúðakaupendur?
„Nauðsynlegt er að auka skilning þeirra, sem nota (húsbréfa)kerfíð
til öflunar íbúðarhúsnæðis, á áhrifum affallanna,“ segir m.a. í til-
lögum Seðlabankans, frá því fyrr í þessum mánuði, um aðgerðir til
að draga úr lánsfjárþörf húsnæðislánakerfísins.
Að mati Seðlabankans hafa villandi
upplýsingar við kynningu húsbréfa-
kerfisins m.a. tafið fyrir því að vaxta-
breytingar á markaðnum hafi haft
tilætluð áhrif á framboð og eftir-
spum húsbréfa.
„Margt af því sem sagt hefur verið í
fjölmiðlum er viilandi, ef ekki bein-
Iínis rangt. T.d. er því haldið fram að
kaupendur húsnæðis, sem greiða
hluta verðsins með húsbréfum, verði
ekki fyrir afföllum, þar eð bréfin séu
metin á uppreiknuðu verði í við-
skiptunum. Þetta passar ekki við
þær upplýsingar að við staðgreiðslu
sé gefinn 10-15% afsláttur af upp-
gefnu verði íbúðar, en enginn sé
greitt með húsbréfum. Verði kaup-
endur ekki fyrir afföllunum þegar
ávöxtunarkrafa hækkar á markaðn-
um, má spyrja hvers vegna nafnvext-
ir bréfanna séu ekki bara hafðir 0%,“
segir Seðlabankinn.
Láta ríkið borga affóllin?
Þá segir að villandi upplýsingar um
þessi mál tefji fyrir því að framboð og
eftirspum húsbréfa jafnist við vaxta-
breytingar á markaðnum. Og jafn-
framt bendir Seðlabankinn á að
kaupendur íbúða hefðu hag af því að
afföll húsbréfanna væru tilgreind í
kaupsamningum, því þá yrðu þau
grundvöllur vaxtabóta.
Þar með væri hægt að láta ríkissjóð
endurgreiða íbúðarkaupendum af-
föllin að nokkru eða miklu leyti —
þ.e. svipað og þeim er nú lofað að
ríkissjóður muni endurgreiða þeim
núverandi vaxtahækkun húsnæðis-
iánanna að stórum hluta og mörg-
um jafnvel alveg. Þess má geta að
Seðlabankinn lagði til að vextir af
lánum Byggingarsjóðs ríkisins yrðu
hækkaðir í 5,5% til 6%, enda stefni
rekstur sjóðsins í óefni á næstu ár-
um.
Ríkisstjómin ákvað, sem kunnugt
er, að hækka vextina í 4,9% á lánum
veittum frá 1. júlí 1984. En lán frá
1979 til 1984 bera áfram 2,25%
vexti.
Landssamband hestamanna og fleiri aðilar
hvetja hestamenn til varúðar í beitarmálum:
Landinu verður
að sýna aðgæslu
„Markmiðið er að koma góðu skipulagi á beitarmálin þannig að
ekki sé gengið of nærri iandinu. Nú fer að líða að því að menn
sleppi hrossunum og við viljum benda hestamönnum, sérstak-
lega úr þéttbýlinu, á að sleppa þeim ekki of snemma.“ Þetta
sagði Kári Amórsson, formaðiur Landssambands hestamanna, í
samtali við Tímann í gær en landssambandið í samstarfí við
fleiri aðila hafa sent tilmæli til hestamanna um að sýna að-
gæslu, núna þegar verið er að sleppa hrossum í sumarbeit.
Það eru Landssamband hesta- Með því að dreifa áburði á landið
manna, Landgræðsla rikisins og
Búnaðarféiag Isiands sem standa
sameiginlega að þessu varaaðar-
starfi. f tilmælum sem hesta-
mönnum hafa verið send segir að
nú, þegar snemma vorar, þurfi að
gæta þess að leyfa landinu að gróa
áður en hrossum er sieppt til beit-
ar. Ef þehn sé of snemma sleppt
gangl þau á iandið og dragi úr
sprettu og beitarþolL Þar sem
þröngt sé í högum sé þetta sýnu
alvarlegast. Og nú, þegar nóg er til
af heyi á hagstæðu verði, sé eidd
ástæða til að ganga nærri högum í
upphafí sprettutímans.
„Við vifium líka benda hesta-
mönnum á að hægt er að nýta
beitilandió mikiu betur en gert er.
eða skipta því niður með raf-
magnsgirðingu, en það er orðið
mjög handhægt. Með því að skipta
iandinu er hægt að stýra beitinni
og einnig koma í veg fyrir að
hrossin fitni mikið,“ sagði Kári.
Þá sagðist hann vilja brýna fyrir
hestamönnum að undirbúa ferðir
um hálendið vei og hafa fóður
ávallt tíl staðar. „Hálendið þolir
enga beit og sem betur fer er
lausaganga hrossa þar að mestu
liðin tíð.“ Kári sagði að á nokkr-
um stöðum á hálendinu yrði hey-
sala í sumar, t.d. á Kiii. Shk þjón-
usta væri öllum hagkvæm, hesta-
menn gætu keypt hey, bændur
selt það og um leið skapað sér at-
vinnu. -sbs.
Islendingur vitni að skotárás á Ítalíu:
UM MORÐ
Islenskur sjómaður á millilanda-
skipinu Selfossi var handtekinn í Vi-
bo á Ítalíu en það var fyrsti við-
komustaður skipsins þar í landi.
Hann var ákærður fyrir skotárás og
sat í fangelsi í sólarhring áður en
skipstjórinn og umboðsmaður
skipsins gengu í málið og fengu
hann lausari með því skilyrði að
hann færi ekki frá borði í þessari
höfn.
Dregið úr framboði
húsbréfa?
Seðlabankinn segir húsbréfakerf-
ið vaxa hröðum skerfum og ýmis-
legt benda til að útgáfa þeirra verði
umfram áætlanir á árinu. Útgáfa
húsbréfa hafi t.d. verið 4 milljarð-
ar á fyrstu fjórum mánuðum árs-
ins.
Þótt hækkuð ávöxtunarkrafa
dragi hugsanlega úr útgáfunni
telur Seðlabankinn eigi að síður
ástæðu til að stinga við fæti og
gaumgæfa Ieiðir til þess að draga
úr framboði húsbréfa tímabund-
ið.
Þrír kostir eru einkum taldir koma
til greina, þar af tvær glænýjar hug-
myndir:
Sú athyglisverðasta er að hleypa af
stokkunum nýjum flokki húsbréfa,
samhliða núverandi flokki, en með
styttri lánstíma. í öðru lagi að
lækka lánshlutfali ve.gna kaupa á
notuðum íbúðum (nú 65%) um
sinn.
Og í þriðja lagi að fresta hækkun
lánshlutfalls í 75% og upptöku end-
urbótalána, eins og hugmyndir hafa
áður verið viðraðar um.
Þá segir Seðlabankinn að kynning á
húsbréfakerfinu þurfi að halda
áfram. Enda vafalaust hægt að auka
eftirspum sparifjáreigenda eftir
þessum bréfum með góðri kynn-
ingu.
- HEI
Þeir sem hlutu námustyrkina eða fulltrúar þeirra.
Tímamynd: Ámi Bjarna.
Landsbanki íslands:
Námustyrkir og
myndasamkeppni
Nýlega var efnt til sérstakrar hátíöarsamkomu í afgreiðslusal aðai-
banka Landsbanka íslands þegar veittir voru þar styrkir og viður-
kenningar sem bankinn stendur að. Annars vegar var um að ræða
verðlaunaafhendingu í myndasamkeppni í tengslum við leikritið
„Kela þó“ og hins vegar styrki til námsmanna sem eru þátttakend-
ur í Námunni, námsmannaþjónustu Landsbankans.
Leikritið „Keli þó“ var fært upp af sóknir bárust um 5 styrki, sem síðan
leikurum Alþýðuleikhússins og var
tilgangurinn að setja umferðarboð-
skap til ungra vegfarenda fram á ný-
stárlegan hátt. Einnig var gefin út
segulbandsspóla með Iögum úr leik-
ritinu. f framhaldi af því ákvað
Landsbanki íslands að efna til sér-
stakrar myndakepnni meðal barna á
aldrinum 6 til 9 ára. Tæplega 1100
myndir bárust í keppnina og voru
höfundum 10 bestu myndanna, að
mati dómnefndar, veitt verðlaun:
reiðhjólahjálma og segulbandsspól-
una með lögunum úr „Kela þó“.
Fyrstu verðlaun hlaut Samúel Krist-
jánsson úr Kópavogi sem fékk full-
búið fjallareiðhjól í verðlaun.
Þá voru veittir styrkir til þátttak-
enda í Námunni, námsmannaþjón-
ustu Landsbankans. Yfir 400 um-
var fjölgað í 7. Þeir sem Námustyrk-
ina hljóta eru námsmenn sem sýna
sérlega glæstan árangur Námuþeg-
arnir eru: Helgi Kr. Sigmundsson,
læknanemi í HI, Eiríkur S. Jóhanns-
son hagfræðinemi við HÍ, Runólfur
Smári Steinþórsson, í doktorsnámi
við Verslunarháskólann í Kaup-
mannahöfn, Kristján Sigurður Guð-
mundsson í doktorsnámi við Uni-
versity of Michigan, Hlynur Guð-
mundsson, nemi við Tækniskóla ís-
lands, og Unnur Vilhemsdóttir, sem
var að Ijúka seinni hluta einleikara-
náms við Tónlistarskólann í Reykja-
vík. Einnig var ákveðið að veita ein-
um námufélaga sérstaka viðurkenn-
ingu, Gunnari Guðbjörnssyni tenór-
söngvara.
-sbs.
Ríkisstjórnin fyrirskipar 350 milljón króna samdrátt í vegaframkvæmdum:
Vegagerðin vinsar úr
skipta ætti niðurskurðinum milli
nýframkvæmda og viðhalds. Hann
sagði það nokkuð bæta úr skák í
þessari stöðu að talsvert minna fé
hefði farið til snjómoksturs í vetur
en áætlað hefði verið og því yrði
þessi 350 milljón króna niðurskurð-
ur ekki alveg jafnharkalegur.
-sbs.
Starfsmenn Vegagerðar ríkisins
settust niður í gær og hófu að leita
leiða vegna hins 350 milljón króna
samdráttar í vegaframkvæmdum
sem ríkisstjórn hefur fyrirskipað
vegna slæmrar stöðu ríkisfjármála.
„Við byrjuðum í málinu í morgun
og erum ekki nema rétt komnir af
stað,“ sagði Eymundur Runólfsson,
yfirverkfræðingur Vegagerðar ríkis-
ins í samtali við Tímann. „Við leit-
um til okkar manna úti á landi sem
við biðjum um tillögur sem við
söfnum síðan saman og berum und-
ir samgönguráðherra sem síðan aft-
ur leitar álits þingmanna viðkom-
andi kjördæma," sagði Eymundur.
Eymundur sagði að til stæði að
Forsaga málsins er sú að maðurinn
var á ferð í miðbæ Vibo þegar hann
heyrði skothvell og sá mann hníga
til jarðar. Hann hljóp til mannsins
honum til hjálpar en hann særðist í
árásinni. Rétt á eftir kom ítalska lög-
reglan aðsvífandi og handtók íslend-
inginn eins og áður sagði. Ekki er
enn búið að finna árásarmennina
eða -manninn en íslendingurinn er
nú laus allra mála. - SIS.
GÆÐI OG AFKOST...
Fyrsta flokks tæki fyrir þá
sem velja það besta - KRONE
Allar búvélar í öflun á
góðu fóðri:
í slátt, snúning, rakstur,
hleðslu, bindingu.
Allt á einni hendi.
Framúrskarandi tækni
og þjónusta
án aukakostnaðar.
tæki frá KRONE vinna mjög vei
KR0NEI
Jámhálsi 2
Sími 83266
110 Reykjavík