Tíminn - 24.05.1991, Blaðsíða 9

Tíminn - 24.05.1991, Blaðsíða 9
Föstudagur 24. maí 1991 Tíminn 21 Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, í umræðum á Alþingi um stefnuræðu forsætisráðherra: Hvernig ætlar stjórnin að vinna trúnað launþega? „Hvemig ætlar núverandi ríkisstjóm að ná þeim trúnaði hjá laun- þegum og verkalýðshreyfingunni í Iandinu, sem nauðsynlegur er til þess að hún geti átt afgerandi þátt í gerð nýrrar þjóðarsáttar? Ætlar hún enga fyrirhyggju að sýna í þeim málum? Ætlar hún að kasta því öllu íyrir róða?“ Þetta sagði Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins, í umræðum um stefnuræðu forsætisráð- herra. Hann sagðist óttast að núverandi rfldsstjóra hefði glatað trúnaði launþega með því að ákveða að hækka vexti. Steingrímur spurði hvort ný rík- isstjórn ætlaði ekki að taka þátt í gerð nýrrar þjóðarsáttar. Hann minnti á orð formanns VSÍ um að síðasta ríkisstjórn hefði átt afger- andi þátt í gerð þjóðarsáttarinnar og staðið við allt sem hún hefði lof- að við gerð hennar. Steingrímur sagði athyglisvert að sjá hve lítið af stefnumálum Alþýðuflokksins hefði komist inn í stefnu hinnar nýju stjórnar. Stefna ríkisstjórnar- innar væri að halda áfram þeirri landbúnaðarstefnu sem síðasta rík- isstjórn markaði í samvinnu við bændur. Stefnumáli Alþýðuflokks- ins um að endurskoða nýgerðan búvörusamning frá grunni væri hafnað. Steingrímur sagði að sama væri upp á teningnum í sjávarút- vegsmálum. Stefnu Alþýðuflokks- ins um veiðileyfasölu væri hafnað og sjávarútvegsráðherra vildi byggja á sjávarútvegsstefnu íyrr- verandi stjórnar. Steingrímur sagði að forsætisráð- herra leitaði að sökudólgi fyrir því sem hann sæi framundan á ferli frjálshyggjunnar. Steingrímur vitnaði í skýrslu Þjóðhagsstofnun- ar, sem lögð var fram skömmu fyr- ir kosningar, þar sem fram kemur að staðan í efnahagslífinu væri betri en upphaflegar spár gerðu ráð fyrir. Verðbólgan væri 5%, reiknuð á ársgrundvelli og vöruskiptaaf- gangur væri meiri en gert hefði verið ráð fyrir. „Það er alveg rétt hjá forsætisráð- herra að nokkur þenslumerki voru í efnahagslífinu. Það var aldrei far- ið leynt með það. Það er að sjálf- sögðu ekkert nýtt í íslensku efna- hagslífi. Það hafa ætíð verið afar miklar sveiflur í íslensku efnahags- lífi og við höfum nýlega gengið í gegnum einhvern þann mesta sam- drátt sem við íslendingar þekkjum. Við erum núna á uppleið. Fyrri rík- isstjórn var að sjálfsögðu ljóst að þegar sá vinningur kæmi yrði vit- anlega að draga úr ýmsum þáttum og þannig að draga úr þenslunni. Fyrri ríkisstjórn hefði að sjálf- sögðu ekki dottið í hug að gera það með því að brjóta þjóðarsáttina. Ég harma að núverandi ríkisstjórn hefur kastað inn stríðshanskanum með þeirri vaxtahækkun sem nú hefur verið ákveðin. Að sjálfsögðu eru til fjölmargar aðrar leiðir til að draga úr þenslu en að hækka vexti. Reyndar hygg ég að hækkun vaxta sé einhver sú versta leið sem ríkis- stjórn getur fundið upp á. Það var Ieiðin sem því miður var farin árið 1987 og leiddi flest útflutningsfyr- irtæki í landinu á barm gjaldþrots. Menn verða í þessu sambandi að gera sér grein fyrir því hve skuld- sett íslensk fyrirtæki eru. Þau þola ekki háa vexti.“ Steingrímur sagði að besta leiðin til að draga úr þenslu væri að draga úr útgáfu húsbréfa. -EÓ Austfirðingar álykta: Göng frá Héraði til Vopnafjarð- ar gangi fyrir Bæjaryflrvöld á Eskifírði og Reyðarflrði hafa sent sam- gönguráðherra ályktun þessara sveitarfélaga um jarðgöng á Austurlandi. Þar segir að sveit- arfélög á Austurlandi séu sam- máia um að jarðgöng frá Fljóts- dalshéraði til Vopnafjarðar hafl forgang þegar jarðgangagerð hefst í þessum landsfjórðungi. f bréfinu segir að tengja beri saman Neskaupstað og Seyöis- fjörð við strandbyggðirnar með göngum frá Eskifirði til Norð- fjarðar og þaðan svo til Seyðis- fjarðar. Með þessu yrðu báðir staðirnir inni á atvinnusóknar- svæði væntanlegrar stóriðju á Mið-Austurlandi. Auk þess myndu skapast auknir möguleik- ar á sérhæfingu í fiskiðnaði með þessum bættu samgöngum. Auk þessa er sett fram í bréfinu krafa um jarðgöng frá Reyðar- firði til Fáskrúðsfjarðar eða suð- ur í Breiðdal með hliðargöngum úr Fáskrúðsfirði, sé það hag- kvæmara. Jafnframt beri að kanna möguleika á rekstri lítillar opinnar bflferju yfir Berufjörð. -sbs. íslandsdeild Norræns umhverfisárs: Viðurkenning vegna umhverfismála í gær vom afhentar viðurkenningar íslandsdeildar Norræns um- hverfísárs til aðila, sem sýnt hafa fmmkvæði í umhverfísmálum hér á landi. Viðurkenningin var tvíþætt: annars vegar til einstaklinga eða samtaka fyrir árangursríkt áhugamannastarf að umhverfís- nefnd, og hins vegar til fyrirtækis sem gengið hefur fram fyrir skjöldu við vistræna starfsemi, hvort sem það er á sviði vömfram- Ieiðslu eða þjónustu. Tilgangur þessara viðurkenninga Þriggja manna dómnefnd, skipuð er að vekja athygli á því, sem vel er þeim Arnþóri Garðarssyni prófessor gert í umhverfismálum hérlendis, í og formanni Náttúruverndarráðs, þeirri von að það verði öðrum til Árna Steinari Gunnlaugssyni garð- hvatningar.yrkjustjóra og Siv Friðleifsdóttur bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi, valdi viðurkenningahafana. Það var svo Eiður Guðnason umhverfisráðherra sem afhenti viðurkenningarskjöl við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu, að viðstöddu fjölmenni. Björn Guð- brandsson fékk viðurkenningu vegna þess starfs sem hann hefur unnið til friðunar íslenska erninum. Gúmmívinnslan h/f á Akureyri hlaut viðurkenningu vegna starfs fyrír- tækisins við endurvinnslu á hjól- börðum og öðru gúmmíi. SIS. Verölaunahafar Norræns umhverfisárs. T.v. Bjöm Guöbrandsson og t.h. Þórarinn Kristjánsson hjá Gúmmívinnslunni h/f. Timamynd: Árni Bjama Fundur vísindanefndar Hvalveiðiráðsins í Reykjavík: Ekkert þokaðist í samkomulagsátt Ekkert þokaðist í samkomulagsátt á fundi vísindanefndar Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem lauk í Reykjavík um helgina. Fulltrúar þeirra þjóða, sem andvígar em hvalveiðum, féllust ekki á tillögur íslend- inga um bráðabirgðakvóta á langreyði og hrefnu. Sýnt er að árs- fundur Hvalveiðiráðsins afléttir tæpast veiðibanni. Á fundi vísindanefndarinnar lögðu íslendingar fram tillögur um bráða- birgða veiðikvóta, er skyldi gilda þar til nýjar stjórnunarreglur hafa verið samþykktar. Þær voru ekki sam- þykktar. Vinna við nýju reglurnar hefúr einnig dregist nokkuð. Fyrir- sjáanlegt er að þær koma ekki til endanlegrar afgreiðslu fyrr en eftir 2 ár í fyrsta lagi. Tálið er að fulltrúar hvalfriðunga í Alþjóða hvalveiðiráð- inu ætli að þæfa málið þangað til hvalveiðiútgerðin fer á hausinn. Þeir hafi fundið sér hverja tylli- ástæðuna á fætur annarri til að koma í veg fyrir skynsamlegt vinnu- lag. Greenpeace og fleiri náttúruvernd- arsamtök hafa krafist þess að Al- þjóða hvalveiðiráðið aflétti ekki banni við hvalveiðum, en festi það í sessi til frambúðar. Þeir segja að hvalir, sem þeir tala gjarna um sem einn stofn, hafi ekki jafnað sig eftir ofveiði undangenginna áratuga. Með öllu óþarft sé að veiða hvali. Á sama tíma spyrst að Grænfriðungar hafi í hyggju herferð gegn fiskveið- um í Barentshafi. Hún skal í fyrstu byggjast á því að fiskur sé ofveiddur. Af sögunni má þó hugsanlega ráða, að þau rök muni víkja fyrir öðrum og heimspekilegri. Þó skýrsla vís- indanefndarinnar verði ekki ekki gerð opinber fyrr en á ársfundi Hval- veiðiráðsins, er vitað að tillögur ís- lendinga fengu ekki hljómgrunn hjá óopinberum fulltrúum hvalfrið- unga, sem þar sitja. Þar með er línan og lögð. Varla er von til að Hval- veiðiráðið aflétti veiðibanni þegar vísindanefndin hefur kveðið upp sinn dóm. Sá möguleiki hefur marg- oft verið reifaður að íslendingar ættu þá að ganga úr ráðinu. Það er hægara sagt en gert. Með því er heldur ekki tryggt að hvalveiðar geti hafist hér að nýju. Samkvæmt haf- réttarsáttmálanum, sem íslendingar eru yfirsmiðir að, má ekki veiða hvali nema með samþykki viður- kenndrar alþjóðlegrar stofnunar. Hana hrista menn ekki fram úr erm- inni. Á útmánuðum ræddu hval- veiðiþjóðir þó þann möguleika. Vísir að henni er meira að segja þegar til. Þó eru enn að minnsta kosti tvö ljón í veginum. Einhverjir yrðu eflaust til þess að efast um að ný samtök stæðust ákvæði hafréttarsáttmál- ans. Þann sáttmála geta íslendingar alls ekki brotið. Ekki er heldur Ijóst hvort Norðmenn og Japanir eru búnir til að ganga úr Hvalveiðiráð- inu. Benda má á að sjávarútvegsráð- herra Breta brýnir nú hvalveiðiráðs- menn að aflétta ekki veiðibanni. Al- menningur þar virðist því enn mjög á móti veiðum. Með því að hefja þær á ný er miklu hætt. Ekki síst ef það er gert með því að segja sig úr ráð- inu. Þá eiga friðungar nokkuð hæg- an leik að snúa skutlinum í höndum veiðimanna. -aá. Ársfundur Hvalveiðiráðsins hefst eftir helgina í Reykjavík. Hvalfriðunarmenn sigurvissir. Magnús Skarphéðinsson: SJÁUM EKKI ÁSTÆÐU TIL STÓRRA AÐGERÐA Tíminn hafði samband við Magn- ús Skarphéðinsson, hvalavin, vegna ársfundar Hvalveiðiráðsins, sem verður í næstu viku. Hann segist ekki sjá ástæðu til mót- mæla. Stríðið sé unnið, hvalveiðar við ísland aflagðar og verði ekki teknar upp aftur. „Það er von á stórum hópi fólks úr aðskiljanlegustu náttúruvernd- arsamtökum víðs vegar úr heimin- um. Fæst þeirra er úr Greenpeace. Ég veit ekki um Sea Shepherd. Páll vinur minn Watson ætlaði að koma. En hann er fastur í rekneta- baráttunni við Japan. Ég veit ekki hvort hann kemst. En vona það vitaskuld, eins og allir. Þannig að hér verða einhver mót- mæli. Klassísk og kannski óklass- ísk líka. Annars er allt óákveðið hjá okkur hér heima. Sumir vilja mót- mæla, aðrir ekki. Ég vil fara rólega í sakirnar. Ég held líka að þetta verði allt á lágu nótunum, nú þeg- ar Halldór Ásgrímsson er farinn úr ráðuneytinu. Þorsteinn Pálsson var líka sá besti sem við gátum fengið. Enda er ég sannfærður um að hvalveiðar viðlsland eru aflagð- ar og verða aldrei teknar upp aftur, nema með stórstyrjöld við allar þjóðir heims, sem ég vona að ís- lenskir ráðamenn flani ekki út í,“ segir Magnús Skarphéðinsson, hvalavinur. -aá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.