Tíminn - 24.05.1991, Blaðsíða 5
Föstudagur 24. maí 1991
Tíminn 5
Davíð og Jón Baldvin hitta leiðtoga EFTA:
Fyrirvarinn um erlenda
fjárfestingu staðfestur
Davíð Oddsson forsætisráðherra og Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra fóru í vikunni til Vínarborgar. í gær funduðu utan-
ríkisviðskiptaráðherrar EFTA- ríkjanna og í dag hefst þar leiðtoga-
fundur EFTA-ríkja. Á fundum þessum er fjallað um samninginn um
Evrópskt efnahagssvæði og þau ágreiningsmál sem enn eru óleyst.
Á fundi utanríkisviðskiptaráðherr-
anna í gær var farið yfir stöðuna eftir
ráðherrafund leiðtoga EB og EFTA
14. maí síðastliðinn. Austurríski eftia-
hagsráðherrann, Wolfgang Schues-
sel, sem er í forsvari fyrir EFTA ríkin
gagnvart EB, sagði eftir fundinn að
samningamir væru nú komnir á það
stig að ekki yrði snúið til baka. Hann
sagði raunhæft markmið að undirrita
EES-samninginn í Salzburg 25. júní
eins og að hefur verið stefnt. Að sögn
Jóns Baldvins Hannibalssonar kom
fram hjá Schuessel á fundinum form-
leg staðfesting á þeim fyrirvara ís-
lendinga í samningum um EES að
ekki komi til greina að heimila er-
lendar tjárfestingar í íslenskum sjáv-
arútvegi. Jón Baldvin áréttaði þennan
fyrirvara undir lok fundarins í Brússel
á dögunum og segir Jón Baldvin að sú
spuming um túlkun sem uppi hafi
verið um þetta atriði hafi Schuessel
nú lýst yfir að væri úr sögunni.
Tilgangur fundanna í Vín er m.a. að
efla samstöðu EFTA-ríkjanna, en
ýmsir telja að talsvert hafi skort á
hana síðustu mánuði. Sumar þjóðir í
EFTA hafa þegar ákveðið að óska eftir
aðild að Evrópubandalaginu og leggj-
ast því ekki hart gegn þeim kröfum
sem EB hefur sett fram í samningun-
um um Evrópskt efnahagssvæði. Á
fundinum verða einnig lagðar línur
fyrir lokasamningalotuna um EES,
sem hefst eftir helgi en þá hittast
samningamenn EB og EFTA til við-
ræðna um landbúnaðarmál, sjávarút-
vegsmál og sérstakan sjóð til styrktar
fátækari svæðum í EB.
Þetta er fyrsta opinbera ferð Davíðs
Oddssonar sem forsætisráðherra út
fyrir landsteinana. Hann mun koma
heim á sunnudag. í för með honum
er Guðmundur Benediktsson ráðu-
neytisstjóri og Kjartan Gunnarsson,
ffamkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins. -EÓ
Frá blaðamannafundi þar sem fulltrúar SVFf, Vinnueftirlits, Stéttarsambands bænda og Jötuns hf. kynntu
slysavarnarátakið. Timamynd: Pjetur
Dráttarvéla- og drifbúnaðarslys algengustu slysin í landbúnaði:
Átak um síysavarn-
ir í sveitum hafið
Nú stendur yfir átak um slysavam-
ir í sveitum landsins. Það er Jötunn
hf. sem stendur fyrir þessu átaki í
samvinnu við Slysavamafélag ís-
lands, Vinnueftiriit ríkisins,
Bændasamtökin og Vátryggingafé-
lag íslands. Á síðasta ári bárust Vá-
tryggingafélagi íslands 388 til-
kynningar tengdar slysum við land-
búnaðarstörf.
Átakið beinist nær eingöngu að
aukinni notkun öryggishlífa á
vinnuvéladrifsköft. Samkvæmt
heimildum frá Vinnueftirliti ríkisins
eru dráttarvélaslys algengustu slysin
í iandbúnaði en slys af völdum óvar-
inna drifskafta eru næstalgengust. Á
árunum 1970 til 1990 urðu 49
dauðaslys við landbúnaðarstörf og
um helming þessara dauðaslysa má
rekja til dráttarvéla og óvarins drif-
búnaðar þeirra. Allt of algengt er að
öryggishlífar vanti á drifsköft vinnu-
véla þó svo að skylt sé að hafa þær á
öllum vinnuvélum sem eru tengdar
við dráttarvélar.
Jötunn hf. hefur gert samkomulag
við hollenskt fyrirtæki um innkaup
á öryggishlífum á mjög hagkvæmu
verði. Töluverð lækkun verður því á
markaðsverði eða milli 40 til 50%.
Einnig hafa forsvarsmenn Jötuns
hf. ákveðið að andvirði ákveðins
hluta seldra öryggishlífa skuli renna
til Slysavarnafélags íslands þegar
átakinu lýkur í haust. -UYJ
Ríkisstjórnin kannar kosti þess að tengja
gengi krónunnar Evrópumynt (ECU):
Isl. króna
tengd
í skýrslu sem fjármálaráðherra
lagði fram á Alþingi í vikunni er
minnst á að ríkisstjómin sé að at-
huga kosti þess að tengja gengi ís-
lensku krónunnar við gengi Evr-
ópu myntarinnar ECU. Forsætis-
ráðherra og viðskiptaráðherra upp-
lýstu það í umræðum á þingi að
ríkisstjómin vildi skoða allar hliðar
þessa máls og sögðu að efnahagslíf
þjóðarinnar þyrfti á stöðugu gengi
að halda. Tenging krónunnar við
ECU væri ein aðferð við að styrkja
þann stöðugleika.
Svavar Gestsson alþingismaður
gagnrýndi þessa hugmynd í um-
ræðunum og sagði að íslenskt efna-
hagslíf væri það sérstakt að það
þyldi ekki að gengi krónunnar væri
rígbundið gengi ECU. Hann minnti
á að efnahagslíf íslendinga ein-
kenndist af sveiflum og við þeim
sveiflum yrði að vera hægt að
bregðast með sveigjanlegri gengis-
skráningu. Hann sagði fiskvinnslu-
fyrirtækin hringinn í kringum
landið ekki þola fastskráð gengi.
Svavar spurði þingflokksformenn
stjómarflokkanna hvort þetta mál
hefði eitthvað verið rætt í þing-
flokkunum.
ECU?
Eiður Guðnason umhverfisráð-
herra upplýsti að þingflokkur Al-
þýðuflokksins hefði rætt þetta mál
og sagði að alþýðufiokksmenn væru
óhræddir við að skoða ýmis mál, en
það sama væri ekki hægt að segja
um þingflokk Alþýðubandalagsins.
Viðskiptaráðherra sagði stöðuga
gengisskráningu forsendu fyrir
efnahagslegum stöðugleika og því
væri sjálfsagt að skoða þann mögu-
leika að binda gengi íslensku krón-
unnar gengi evrópskra gjaldmiðla.
Hann minnti á að nýlega hefðu
Norðmenn og Svíar ákveðið að
binda skráningu sinna gjaldmiðla
við ECU. Hann sagði að á næstu
vikum og mánuðum myndu Þjóð-
hagsstofnun, fjármálaráðuneytið og
viðskiptaráðuneytið skoða aliar
hliðar þessa máls, ekki síst reynslu
Norðmanna og Svía. Þegar sú vinna
lægi fyrir mætti vænta ákvörðunar.
Forsætisráðherra tók undir með
viðskiptaráðherra um nauðsyn
stöðugrar gengisskráningar og
sagði: „Menn vilja skapa atvinnulíf-
inu traustari viðmiðun og ég hygg
að atvinnulífið vilji gjarnan að til sé
þess háttar viðmiðun."
-EÓ
Samstarfsnefnd námsmannahreyfinganna:
Mótmælir lánaskerðingu
Samstarfsnefnd námsmanna-
hreyfinganna; Bandalags íslenskra
sérskólanema, Sambands ísknskra
námsmanna erlendis, og Stúdenta-
ráðs Háskóla íslands, mótmælir
þeirri skerðingu námslána sem rik-
issfjórn Davíðs Oddssonar fyrir-
hugar.
í áfyktun segin „Fundur haldinn í
Samstarfsnefnd námsmannahreyf-
inganna 23. maí 1991 mótmælir
harðlega fyrirhuguðum skerðing-
um námslána á næsta skólaári og
lýsir furðu á því að fyrirhugað sé að
skerða námslán um eða yfir 20% á
meðan aðrir þegnar landsins vænta
aukins kaupmáttar. Þetta mun
valda því að hluti námsmanna verð-
ur að hverfa frá námi eða hætta við
fyrirhugað nám. Það er með öllu
óþolandi að námsmenn, margir
með fjölskyldur á framfæri, sem
hafið hafa nokkurra ára nám hér-
lendís eða erkndis skuli búa við
sUkt óötyggi sem raun ber vitni; að
lífcviðurværi þeirra sé skert um
tugi prósenta fyrirvaralaust án þess
að þeir hafi möguleika á að bæta sér
þaö upp á annan hátt. Því munu
margir þurfa að leita á náðir for-
eldra og ættingja sem margir eru
ekki afiögufærir og stríða aögerðir
sem þessar gegn megintilgangi
laga um námslán, sem er að tryggja
jafnrétti tíl náms óháð efnahag.
Þann 600 milljón króna fjárhags-
vanda sem LÍN stendur frammi fyr-
ir á þessu ári má að mestu Íeyti
skýra á þrennan hátt. í fyrsta lagi
ákvað Alþingi að flyfia 200 milijón-
ir frá LÍN yflr í húsnæðiskerfið við
lokaumræðu Qárlaga fyrir árið
1991 og áttu þær að sldla sér á
Iánsljáraukalögum þessa árs. í
öðru lagi er um að neða afborganir
vaxta og lántökugjalda upp á um
200 milljónir króna vegna lána sem
tekin voru og eidd gert ráð fyrir á
fjáriögum. f þriðja lagi er um að
ræða meirí fjölgun námsmanna en
gert var ráð fyirir og þykir Sam-
starfsnefndinni óeðlilegt að ián séu
lækkuð vegna aukins fjölda náms-
manna og má benda á að í fjárlög-
um segir að útgjaidaauki vegna
fjölgunar skuli bættur. Fundurinn
harmar þá breytingu á vinnubrögð-
um sem orðið hefur vlð ráðherra-
sldpti í menntamálaráðuneytinu,
en þessar fyrirhuguðu breytingar
sáu námsmenn fyrst í fjölmiðlum
og ekki hefur enn verið haldinn
fundur í sfjóm Lánasjóðsins þótt
þrjár vikur séu liðnar sfðan núver-
andi rfldsstjóm tók við og því ekk-
ert samráð verið haft vlð náms-
menn.“
Undir þetta rita formenn náms-
mannahreyfinganna þriggja, full-
trúar þeirra og varafulltrúar í stjóm
LÍN. Við þetta má bæta. Sú 300
milijóna skerðing sem ríkisstjómin
hefur boðað nær aðefns til haust-
annar. Þá úthiutar LÍN aðeins
þriðjungi af heildarlánum nám-
sársins. Skýringin er, að 1. árs
nemar fá ekki lán fyrr en þeir hafa
staðist haustannarpróf, og tckjutil-
lit kemur til framkvæmda á haust-
mánuðum. Að skerða framlÖg til
LÍN um 300 milljónir nú, felur í
sér skerðingu upp á miiijarð fyrir
allt námsárið. Um Íeið er stjórn
Lánasjóðsins gert að samþykkja
nýjar úthlutunarreglur sem taka
mið af því. Með þessu hefur ríkis-
sijóm Davíðs Oddssonar teldð til
baka allar þær leiðréttingar sem
fráfarandi ríkisstjóm gerðl. Og
fært Lánasjóðinn aftur í það horf
sem Sverrir Hermannsson skildl
við hann í. -aá.
í gæslu-
varðhald
Hæstiréttur úrskurðaði í gær annan
af mönnunum tveimur, sem hand-
teknir voru vegna stóra hassmálsins,
sem upp kom á dögunum, í gæslu-
varðhaid til 19.júní. Staðfestir
Hæstiréttur með þessu dóm saka-
dóms, sem maðurinn áfrýjaði.
GS.
Hlaðmenn halda
aðgerðum áfram:
Hæg hleðsla
Hlaðmenn á Keflavíkurflugvelli
munu halda áfram aðgerðum sínum
næstu daga. Hlaðmenn eru óánægð-
ir með breytt vaktafyrirkomulag yfir
sumartímann og telja það hafa í för
með sér launalækkun fyrir þá. Til að
mótmæla þessu hafa þeir gripið til
þess ráðs að hægja á vinnu sinni.
Ekki urðu tafir í millilandafluginu í
gær vegna þessa. -SIS