Tíminn - 24.05.1991, Side 10
10 Tíminn
Föstudagur 24. maí 1991
MINNING
Sigríður Haraldsdóttir
Hrafnkelsstöðum
Fædd 30. desember 1900
Dáin 20. maí 1991
Neisti Guðs líknsemdar, Ijómandi skær,
lífinu besta er unaðinn fær,
móðurást blíðasta bömunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð,
Guð, sem að ávöxtinn gefur.
(Jónas Hallgrímsson)
Hún amma er dáin. Þessi hugsun
flýgur um huga okkar nú þegar
amma hefur kvatt okkur í hinsta
sinn.
Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands
á Selfossi hinn 20. maí s.l., eftir
stutta sjúkralegu. Ömmu varð að
ósk sinni um að þurfa ekki að dvelja
lengi á sjúkrahúsi, en hún talaði oft
um það að ekki vildi hún þurfa að
vera í sporum svo margra sem þar
þurfa að dvelja um langan tíma, og
hafa ekkert fyrir stafni annað en
bíða.
Amma var einmitt ein af þeim sem
varð að hafa alltaf eitthvað fyrir
stafni. Hún hélt sitt eigið heimili
fram til þess síðasta og þrátt fyrir að
sjónin væri farin að daprast þá
prjónaði hún enn eins og áður. Þær
eru líka ófáar peysurnar, vettling-
arnir eða sokkarnir sem amma
prjónaði og ekki þurftum við að
kvíða því að geta ekki klætt af okkur
kuldaþola, í nýjum sokkum eða með
nýja vettlinga frá ömmu „heima"
eins og við kölluðum hana alltaf.
Hún hafði alltaf stund fyrir litlu
strákana sína er þeir komu í gætt-
ina, hvort heldur var til að sníkja
kleinu eða biðja ömmu að segja sög-
ur. Amma var fróð manneskja og var
dugleg að veita úr viskubrunni sín-
um. Oft fannst okkur það hlutir sem
ekki skiptu neinu máli, en skiljum
gildi þeirra þegar við eldumst og
þroskumst. Við þökkum innilega
fyrir allan fróðleikinn sem hún veitti
okkur.
Amma var ein af þeim sem aldrei
vildi láta hafa neitt fyrir sér. Hún var
ætíð tilbúin að aðstoða þá sem áttu í
vanda eða erfiðleikum og taldi það
ekki eftir sér, en þegar að henni
sjálfri kom var allt óþarfa fyrirhöfn
og umstang í hennar augum. Alltaf
stóð heimili ömmu opið öllum og
ekki þurfti neinn að óttast það að
verða hrakinn þaðan út án þess að á
hann væri hlustað og reynt að leysa
þau vandamál sem að steðjuðu, ef
þau voru einhver.
Með þessum fátæklegu orðum
kveðjum við elsku ömmu og vonum
að henni líði vel í nýjum heimkynn-
um. Guð blessi hana.
Helgi og Ingólfur
Nú sefur jörðin sumargrœn,
nú sérhún rætast hverja bœn
og dregur andann djúpt og rótt
um draumabláa júlínótt.
(D.St.)
Á einhverjum yndislegasta degi
þessa annars vætusama vors, hinn
20. maf, andaðist heiðurskonan Sig-
ríður Haraldsdóttir á Hrafnkelsstöð-
um í Hrunamannahreppi, níræð að
aldri.
Hún var fædd að Hrafnkelsstöðum
30. desember árið 1900 og fylgdi því
öldinni, eins og sagt er. Sigríður var
tíunda í röðinni af tólf systkinum,
en tvö þeirra dóu ung. Foreldrar
Sigríðar voru þau Guðrún Helga-
dóttir frá Birtingaholti í Hruna-
mannahreppi og Haraldur Sigurðs-
son frá Kópsvatni í sömu sveit. Sig-
ríður var því Hreppakona í húð og
hár og ól allan aldur sinn í Hruna-
mannahreppnum.
Hún ólst upp á miklu menningar-
og myndarheimili þar sem allir,
smáir sem stórir, tóku þátt í heimil-
isstörfunum úti og inni.
Fræðslulög voru ekki samþykkt
hér á landi fyrr en 1907 og var því
heimiliskennari á Hrafnkelsstöðum
fram að þeim tíma, en þá tók við far-
skóli sem lengst af var á Hrafnkels-
stöðum og það var barnaskólanám
Sigríðar. Síðan var hún einn vetur
við nám í Kennaraskóla íslands árið
1919 og vor og sumar við garðyrkju-
nám í Gróðrarstöð Reykjavíkur hjá
Einari Helgasyni.
Árið 1926 verða þau umskipti í lífi
þessarar heimasætu á Hrafnkels-
stöðum að hún giftist sveitunga sín-
um Sveini Sveinssyni í Efra-Lang-
holti og bjuggu ungu hjónin í Efra-
Langholti eitt ár með mági Sigríðar,
sem einnig hét Sveinn. Árið 1927
keyptu þau jörðina Hrafnkelsstaði
ásamt Helga bróður Sigríðar og
bjuggu þar æ síðan. Þeim Sigríði og
Sveini varð 5 barna auðið. Elstur er
Þorgeir, bóndi á Hrafnkelsstöðum,
kvæntur Svövu Pálsdóttur; þá Krist-
rún, hún andaðist árið 1979 og var
ógift; Sveinn, bóndi á Hrafnkels-
stöðum, kvæntur Sjöfn Hannesdótt-
ur; Guðrún, húsfreyja á Varmalæk,
gift Karli Gunnlaugssyni; og yngst-
ur er Haraldur, bóndi á Hrafnkels-
stöðum, kvæntur Jóhönnu Ingólfs-
dóttur. Barnabörn Sigríðar eru 16
og barnabarnabörnin 16.
Mann sinn missti Sigríður árið
1954 eftir þung veikindi. Hann lá
sína banalegu heima á Hrafnkels-
stöðum, studdur af kærleiksríkum
höndum konu sinnar og barna.
Fljótlega eftir lát manns síns hætti
Sigríður sínu búsumstangi og
Sveinn yngri tók við jörðinni.
Ég dvaldi aldrei á Hrafnkelsstaða-
heimilinu, en ég veit að þar var gott
að vera. Þar var alltaf mannmargt og
hrædd er ég um að húsfreyjan þar
hafi ekki alltaf farið snemma í hátt-
inn. En Sigríður á Hrafnkelsstöðum
þekkti ekki annað en að vinna og
vinna vel. Ég veit að henni og systk-
inum hennar var haldið vel að
vinnu, en þó Ias hún Sigríður og
kunni svo óteljandi margt og henn-
ar fáu frístundir hafa sjálfsagt oft
farið í sjálfsmenntun.
Ég, sem þessar línur rita, þekkti í
raun Sigríði frá blautu barnsbeini.
Hrafnkelsstaðafólkið var vinafólk
foreldra minna, þegar þau bjuggu á
Flúðum í Hrunamannahreppi. Ég
minnist óljóst skemmtilegra heim-
boða á Hrafnkelsstaðaheimilinu þar
sem farið var í leiki og allt var svo
gaman. Ég minnist Sveins á Hrafn-
kelsstöðum, laglegs, dökkhærðs
manns ríðandi á glæstum hestum.
Ég minnist hans sérstaklega er ég
var skælandi eitt sinn við Hruna-
kirkju, búin aö týna pabba. Þá kom
hann mér til hjálpar og skilaði mér í
réttar hendur. Við fluttum frá Flúð-
um til Reykjavíkur, en vinátta Sig-
ríðar við foreldra mína hélst meðan
þau lifðu. Ég kom aftur til dvalar í
Hrunamannahreppinn og örlögin
gerðu mér þann greiða að gera dæt-
ur Sigríðar á Hrafnkelsstöðum að
góðum vinkonum mínum og þannig
endurnýjuðust kynni mín við þessa
góðu konu.
Sigríður á Hrafnkelsstöðum var
með afbrigðum greind og skemmti-
leg manneskja og svo góðhjörtuð að
hún mátti ekkert aumt sjá, hvorki
menn né málleysingja. Að sjá hana
Sigríði í blómagarðinum sínum eða
talandi við blómin í gluggunum hjá
sér er ógleymanlegt, enda óx allt og
dafnaði kringum hana. Ég held að
sú menntun, sem hún fékk þennan
eina vetur í Kennaraskólanum, og
garðyrkjunámið hafi átt eins vel við
hana og hennar lífsviðhorf eins og
hugsast gat.
En það var eitt enn sem var henni
Sigríði í blóð borið, en það voru
hjúkrunarstörf. Á heimili hennar
dvöldust iðulega sjúkir ættingjar og
fólk sem jafnvel var ekkert vanda-
bundið henni, en hafði unnið Hrafn-
kelsstaðaheimilinu um langa ævi.
Þetta fólk átti sitt athvarf hjá Sigríði
og hún hlúði að því til hinstu stund-
ar. Ég hef sagt frá eiginmanni henn-
ar og önnur dóttir hennar, Kristrún,
vinkona mín, lést árið 1979 úr
krabbameini.
Síðustu mánuðina sem hún lifði
dvaldist móðir hennar hjá henni á
sjúkrahúsinu. Þessi 78 ára gamla
kona svaf á dýnu á gólfinu til þess að
geta verið hjá henni Rúnu síðustu
stundirnar. Og ég man að hún sagði
við mig einu sinni: „Ég þarf bara að
Félagsstarf aldraðra
í Reykjavík
Yfirlits- og sölusýningar, á munum unnum í fé-
lagsstarfinu, verða laugardaginn 25. maí, sunnu-
daginn 26. maí og mánudaginn 27. maí kl.
14.00-17.00 alla dagana
á Aflagranda 40
í Bólstaðarhlíð 43
að Norðurbrún 1
Kaffisala verður á öllum stöðunum.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Mjólkurkvóti
Öska eftir að kaupa allt að 30.000 lítra mjólkur-
kvóta. Staðgreiðsla kemur til greina.
Tilboð eða nafn og símanúmer leggist inn á aug-
lýsingadeild biaðsins, merkt „Mjólk 1991“.
Sími 680001.
hugsa um hann Helga, svo er mér
ekkert að vanbúnaði að kveðja þenn-
an heim.“ Og hún hugsaði um hann
Helga til hans hinstu stundar, en
þau systkinin héldu í raun heimili
saman alla tíð — fyrst í tvíbýli og
síðustu árin bjuggu þau tvö ein í
litlu, notalegu íbúðinni hennar Sig-
ríðar heima á Hrafnkelsstöðum.
Sigríður hafði unun af að ferðast og
var með afbrigðum dugleg að fara í
ferðalög, drífa sig í leikhús og fara á
hljómleika. Þegar hún heyrði að
Þjóðleikhúsið ætlaði að sýna Pétur
Gaut nú í vetur sagðist hún mega til
að fara. Það gerði ekkert til þó hún
heyrði ekkert, hún kynni leikritið!
Geri aðrir betur sem kannski hafa
meira lesið og lært.
Sigríður var gestrisin með afbrigð-
um, enda sagði hún í gamla daga að
hugurinn flygi alltaf fyrst í köku-
kassana þegar hún sæi gest nálgast
bæinn. Og þessi gestrisni hennar
hélst ævilangt. Það var óhugsandi
að koma að Hrafnkelsstöðum án
þess að þiggja góðgerðir — því
meira því betra.
Og nú er þessi góða kona horfin af
sjónarsviðinu. Kona sem bjó á sama
bænum í sinni heimasveit alla æv-
ina utan eitt ár. Hún unni sveitinni
sinni af heilum hug og vildi hag
hennar sem mestan og bestan. Hún
átti því láni að fagna að börnin
hennar öll búa í sveitinni og hafði
hún mikið og gott samband við þau
öll, börnin þeirra og litlu barna-
barnabörnin.
Aðeins hún Rúna settist að í
Reykjavík vegna atvinnu sinnar, en
hún kom Iíka alltaf austur þegar
hún mögulega gat.
Það er sjónarsviptir að slíkum
manneskjum sem Sigríði, en gott er
þreyttum að hvílast og hún var
ábyggilega alveg tilbúin til brottfar-
arinnar. Ég efast ekki um að henni
hefur þótt gott að sofna inn í dýrð
vorsins vitandi að sumarið var á
næsta leiti. Minningin um Sigríði
mun geymast hjá okkur öllum sem
þekktum hana og þótti vænt um
hana.
Ég votta Guðrúnu vinkonu minni,
bræðrum hennar og öllu þeirra
skylduliði innilegustu samúð okkar
hjónanna, en jafnframt samgleðj-
umst við þeim að hafa átt hana öll
þessi mörgu, góðu ár.
Nú dreymir allt um dýrð og frið
við dagsins þögla sálarhlið
og allt er kyrrt um fjöll og fjörð
og friður drottins yfir jörð.
Blessuð sé minning Sigríðar Har-
aldsdóttur á Hrafnkelsstöðum.
Ásgerður Ingimarsdóttir
Hún amma mín er dáin og komin
til guðs. Þá er hún komin til afa og
Rúnu og þar veit ég að hún er
ánægð.
Mig langar að minnast hennar
ömmu minnar, Sigríðar Haralds-
dóttur frá Hrafnkelsstöðum. Eftir að
foreldrar mínir hófu búskap var
heimili ömmu hjá þeim, og því ól-
umst við systkinin upp með ömmu.
Ekki ósjaldan vaknaði ég á nóttunni
og fékk að kúra til fóta og þar var
gott að vera. Hún var hafsjór fróð-
leiks og kunni ógrynni af sögum og
þulum. Við minnumst hennar með
gleði og söknuði. Ég hafði ömmu
hjá mér alla mína bernsku og það
var eins og að upplifa ýmislegt aftur
að fylgjast með ömmu og Magnúsi
litla bróður mínum, sem hefur
misst mikið. Að sjá hana sitja á rúm-
inu sínu með prjónana og segja
hcnum sögur, hvernig hún lék þær
urn leið og hún sagði frá.
Um leið og við kveðjum hana
ömmu þá minnumst við hennar
með þakklæti og biðjum guð að
blessa hana í nýjum heimi.
Helga Sigríður, Kolbrún,
Sveinn Hannes og Magnús
Kvöld-, nætur- og hdgidagavarsla apóteka í
Reykjavík 24.-30. maf er i Breiðholtsapóteki og
Apóteki Austurfaæjar. Það apótek sem fyrr er
nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 að kvöldi
til kl. 9.00 að morgni virka daga en kl. 22.00 á
sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfja-
þjónustu eru gefnar I sfma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátfðum. Sim-
svari 681041.
Hafnarfjörður Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó-
tekin skiptast á slna vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið i þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar i
síma 22445.
Apótek Keflavfkur Opið virka daga frá k. 9.00-
19.00. Laugardaga, helgidaga og almenna frl-
daga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl.
8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabær Apótekið er opið rúmhelga daga kl.
9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur alla
virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugardög-
um og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og timapant-
anir I sima 21230. Borgarsprtalinn vaktfrá kl. 08-
17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (simi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúöir og læknaþjónustu emgefnar I sim-
svara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöö Roykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmissklrteini.
Garðabæn Heilsugæslustöðin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er I
sima 51100.
Hafnarfjörður: Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga ki. 8.00-
17.00, simi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Sími 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á
Heilsugæslustöð Suðumesja. Simi: 14000.
Sálnæn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I sál-
fræðilegum efnum. Simi 687075.
Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til
kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl. 15-
16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-20.30.
Bamaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla daga.
Öldrunariækningadelld Landspltalans Hátúni
10B: Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. - Landa-
kotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30
til 19.00. Bamadeild 16-17. Heimsóknartimi
annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borg-
arspitallnn I Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 15-18.
Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartími frjáls
alla daga. Grensásdcild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvemdarstöðin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavikur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítaii: Alla
dagakl. 15.30 tilkl. 16ogkl. 18.30 til kl. 19.30.
- Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópa-
vogshæiið: Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á
helgidögum. - Vífllsstaöaspltali: Heimsóknar-
timi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - St
Jósepsspítall Hafnarfiröi: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Sunnuhlíð hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heim-
sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuriæknishéraðs og heilsu-
gæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólarhring-
inn. Slmi 14000. Keflavík-sjúkrahúsið: Heim-
sóknartími virka daga kl. 18.30-19.30. Um
helgar og á hátiðum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-
19.30. Akureyri- sjúkrahúsið: Heimsóknartlmi
alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-20.00. Á
barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra Sel 1:
Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusími frá kl.
22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akraness:
Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla
daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavík: Seltjamames: Lögreglan slmi
611166, slökkuilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogun Lögreglan simi 41200, slökkviliö
og sjúkrabrfreið sími 11100.
Hafnarfjöröun Lögreglan simi 51166, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 51100.
Keflavík: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og
sjúkrabíll sími 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, simi 11666,
slökkviliö slmi 12222 og sjúkrahúsiö slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan simar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222.
Isaljöröur: Lögreglan simi 4222, slökkvilið síml
3300, brunasími og sjúkrabifreið slmi 3333.