Tíminn - 29.05.1991, Page 2

Tíminn - 29.05.1991, Page 2
2 Tímirm Miðvikudagur 29. maí 1991 ' Viö höfnina í Þorlákshöfn. Þorlákshöfn í fjörutíu ár Gálgafrestur í Náttúrulækninga- hælismálinu: Yfirlæknir ráðinn í gærmorgun Rekstrarstjóm Heilsuhælis NLFl í Hverageröi réð í gærmorgun yfir- lækni að hælinu, og var eini læknir- inn sem eftir er á hæiinu, Jakob Úlfarsson, ráðinn í starfið. Þar með hefur hælið fjögurra vikna frest til að ganga frá sínum málum og hefur heilbrigöisráðherra falið aðstoðar- landlækni og héraðslækninum á Suðurlandi að fylgjast daglega með rekstrinum í þessar fjórar vikur. Stjórn Læknafélags lslands fundaði í gærmorgun og bendir hún á, að með ráðningu yfirlæknis sé ein- göngu verið að fullnægja formsat- riðum, en einn læknir í starfi á hæl- inu tryggi ekki læknisfræðilega um- önnun 177 sjúklinga. Þá kom stjórn Læknafélagsins enn saman síðari hluta gærdagsins og þar var sam- þykkt að reka Jakob Úlfarsson úr fé- laginu, yrði hann ekki farinn úr yfir- læknisstarfinu innan mánaðar. Stjórnin fjallaði einnig um tillögur landlæknis til heilbrigðisráðherra um skilyrði fyrir áframhaldandi rekstrarleyfi fyrir hælið. Hún telur að tillögurnar séu ófullnægjandi, enda leysi þær ekki þann vanda sem hafi verið í rekstri stofnunarinnar mörg undanfarin ár. —SE Ríkisstjórninni ekki treystandi Starfsmannafélag ríkisstofnana hefur sent frá sér ályktun þar sem vaxtahækkunum ríkisstjómarinnar er harðlega mótmælt og þá sérstak- Iega afturvirkum vaxtahækkunum á lánum Byggingasjóðs ríkisins frá árinu 1984. Þá telur SFR algert siðleysi að koma þannig aftan að húseigendum sem gert hafa greiðsluáætlanir út frá öðr- um forsendum og telur stjómvöld, sem ekki virða leikreglur, fyrirgera trausti almennings. -SIS Næstkomandi laugardag hefjast í Þorlákshöfn hátíðahöld í tilefni þess að á þessu ári eru liðin 40 ár frá því að þar tók að myndast þétt- býli. Hátíðin stendur i eina viku og verður mikið í hana lagt. Þorlákshöfn er aldagömul verstöð og árið 1877 fékk staðurinn löggild- ingu sem verslunarstaður. Þorláks- höfn var bújörð til ársins 1950, en upp úr því hófst þar mikiö uppbygg- ingarstarf fyrir atbeina Egils Thorar- ensen, kaupfélagsstjóra KÁ. Árið 1950 voru fjórir karlmenn skráðir til heimilis í Þorlákshöfn, en hvorki kona né barn. Árið eftir vom fyrstu þrjú íbúðarhúsin reist og íbúarnir urðu 14. Það ár, 1951, var Meitillinn eina atvinnufyrirtækið og aðeins gerðir út 5 bátar frá Þorlákshöfn. En í dag búa í Þorlákshöfn á 1229 íbúar, á sjötta tug fyrirtækja eru þar starf- andi og á nýliðinni vertíð var 31 skip gert þaðan út. Þorlákshöfn er vax- andi byggðarlag og varðandi frekari uppbyggingu er einkum horft til þil- plötuverksmiðju þeirrar, sem vænt- anlegaverðurbyggðhérálandi. Há- tíðahöldin í Þorlákshöfn verða í sam- vinnu sjómannadagsráðs og sér- stakrar hátíðarnefndar og hefjast þau kl. 14 á laugardaginn með sam- komu í íþróttahúsi staðarins, þar sem forseti íslands verður meðal gesta. Sjómannadagsmessa verður á sunnudaginn kl. 1:30 og þá verður nýr prestur settur í hið nýja Þorláks- hafnarprestakall og í tengslum við sjómannadaginn verða margvísleg hátíðahöld. Þá verður ný björgunar- stöð Slysavarnafélagsins tekin í notkun og síðar í vikunni ný heilsu- gæslustöð. Á þriðjudag halda þrjár lúörasveitir tónleika, á miðvikudag verður dorgveiðikeppni fyrir börn og Óvenju mikið er um fósturlát og að lömb gangi morkin niður austur í Holtum. Sýkin herjar á einstaka bæi, en er ekki útbreidd. Sumir hafa orðið illa úti. Ekki er vitað hvað veldur. Sýni, sem voru send til Keldna, eru á austurleið þaðan. Af þeim mátti fátt eitt ráða. „Sýni frá þeim bæ þar sem ástand- ið er verst eru nú í rannsókn. Ég hef ekki heyrt neinar niðurstöður af þeim. Ég hef tilfinningu fyrir því að það sé óvenju mikið um fósturlát og unglinga og á fimmtudag fer fram í Þorlákshöfn hluti af íslandsmeist- aramóti 3. flokks í knattspyrnu. Laugardaginn 8. júní stendur Lúðra- sveit Þorlákshafnar fyrir sinni árlegu Þorláksvöku, en á sunnudeginum lýkur hátíðahöldunum en þá skemmta hestamenn bæjarbúum og landslið íslands í handbolta leikur að lömb komi morkin við burð. En ég hef engar skýringar. Það er eitt- hvað í umhverfinu, kannski fóðrinu, sem veldur. Á sínum tíma bárust kvartanir um að ákveðið bóluefni væri valdur að fósturláti. Það hefur hins vegar ekki komið upp í mínu héraði. Hér er ekki um neitt slíkt að ræða,“ segir Grétar Hrafn Harðar- son, héraðsdýralæknir á Hellu. Á rannsóknarstofunni á Keldum fengust þær upplýsingar að af fengn- um sýnum megi ekki ráða hvað æfingaleiki í íþróttahúsinu. Auk þess verður alla hátíðadagana, milli kl. 16 og 22, opin sýning sem rekur sögu staðarins langt aftur fyrir 1951 og til dagsins í dag. Þar verður einnig sýn- ishorn af tómstundaföndri Þoriáks- hafnarbúa ásamt verkum listamanna sem á einn eða annan hátt tengjast staðnum. -sbs. valdi. Það verði ekki gert nema með fleiri sýnum. Hins vegar væru oftast þrjár ástæður fyrir fósturláti í sauð- fé. í fyrsta Iagi leynast oft í skemmdu heyi skaðlegir sýklar. í öðru lagi get- ur baktería, sem fuglar bera, verið skaðvaldurinn. í þriðja lagi getur einfrumungur sem kettir, sérstak- legar ungir kettir, bera, valdið fóst- urláti. Erfitt sé við fyrstu tilraun að greina á milli þessara þriggja ástæðna. -aá. Sauðburður í Holtum: ÓVENJU MIKIÐ UM FÓSTURLÁT

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.