Tíminn - 29.05.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.05.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn Miðvikudagur 29. maí 1991 Kór Akureyrarkirkju: Tónleikar á Akra- nesi og í Reykjavík Kór Akureyrarkirkju, undir stjórn Bjöms Steinars Sólbergssonar, heldur tónleika í Vinaminni á Akra- nesi fimmtudagskvöldið 30. maí og í Hallgrímskirkju í Reykjavík föstu- dagskvöldið 31. maí. A tónleikunum á Akranesi verður flutt nýtt verk: „í forgörðum Drott- ins“ eftir Jón Hlöðver Áskelsson, en hann samdi verkið í tilefni 50 ára vígsluafmælis Akureyrarkirkju í fyrra. Einnig verður flutt verkið Missa brevis í C-dúr Kv. 259 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Þjóðlög útsett af Jóni Ásgeirssyni og Hafliða Hallgrímssyni verða jafnframt sung- in, svo og þrír madrígalar frá þrem- ur löndum. f Hallgrímskirkju flytur kórinn að nýju verkið „f forgörðum Drottins". Einnig verða flutt tvö verk með Kór Garðakirkju og Háskólakórnum. Það em verkin „Nun danket alle Gott“ eftir Franz Liszt og 150. Dav- íðssálmur eftir César Franck. Stjórnandi samsöngsins verður Fer- enc Utassy, en um undirleik sjá Kristinn Örn Kristinsson, Margrét Stefánsdóttir og Björn Steinar Sól- bergsson. Kammerhljómsveit Akureyrar lýkur starfsárinu með: „Strengleikum“ Kammerhljómsveit Akureyrar lýkur starfsárinu með óratóríunni „Strengleikum“ eftir Björgvin Guðmundsson í íþróttaskemmunni á Akureyri, sunnudaginn 2. júní kl. 17. Sérstakur hátíðarkór félaga úr Passíukórnum, Kór Glerárkirkju, Karlakór Akureyrar, Karla- kórnum Geysi og fleirum, var stofnaður til þessa. Tilefnið er aldar- afmæli Björgvins Guðmundssonar 26. apríl sl. Um 100 manns taka þátt í flutn- „Strengleikar" eru við samnefndan ingnum. Auk hljómsveitarinnar og kórsins koma sex einsöngvarar fram á tónleikunum. Þeir eru: Hólmfríð- ur Benediktsdóttir sópran, Þuríður Baldursdótir alt, Óskar Pétursson tenór, Þorgeir Andrésson tenór, Jón Helgi Þórarinsson baritón, og Stef- án Arngrímsson bassi. „Strengleikar" munu nú hljóma í fyrsta skipti með hljómsveitarleik og í heildarflutningi. Roar Kvam hefur unnið það stórvirki að búa verkið fyrir fullskipaða sinfóníu- hljómsveit. Hann stjórnar flutn- ingnum. Ijóðaflokk Guðmundar Guðmunds- sonar skólaskálds. Þeir eru fyrsta óratórían sem Björgvin samdi. Hann hóf verkið árið 1915. Það var frumflutt árið 1947 af Kantötukór Akureyrar með aðstoð Karlakórs Ak- ureyrar og einsöngvara undir stjórn Björgvins. Með tónleikunum vill Kammer- hljómsveit Akureyrar heiðra minn- ingu eins af helstu tónskáldum þjóðarinnar á fyrri hluta aldarinnar. Þeir eru hinir viðamestu sem hljóm- sveitin efnir til á starfsárinu. -aá. Birting, SUF og SUJ efna til rökræðna um framtíð íslands: Evrópa - Ef? í kvöld, miðvikudag, ætla Birting, Samband ungra framsóknarmanna og Samband ungra jafnaðarmanna að rökræða brýnar spurningar um framtíð íslands. Þær eru: Islenskt fullveldi - er það í hættu við þátt- töku í EES? Aðild að EB - er hún óhjákvæmileg? Aðrir kostir — raun- veruleiki eða loftkastalar? Opnun og uppstokkun - hvar eru mörkin? Mál hefja Jónas Kristjánsson rit- stjóri DV, Steingrímur Hermanns- son alþingismaður og Þröstur Ólafs- son hagfræðingur. Fundarstjóri er Kjartan Valgarðsson, formaður Birt- ingar. Fyrirspurnum og umræðum á palli stjórnar Óskar Guðmunds- son, ritstjóri Þjóðlífs. Fundurinn verður á Kornhlöðu- lofti Bernhöftstorfu. Hann hefst kl. 20:30. Þangað eru allir velkomnir. -aá. LANDGRÆÐSLUÁTAK UNGMENNAFÉLAGANNA, Fósturbörn, hófst síðastliðinn iaugar- dag. Þá gróðursettu þau Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, og Guðrún Sveinsdóttir verkefnisstjóri, „fósturmamma", fyrstu trjáplöntuna í Þrastaskógi og er þessi mynd tekin við það tækifæri. Aðal- þungamiðja verkefnisins verður helgina 8. og 9. júní, þegar ungmennaféiögin huga að fósturbörnum sínum i náttúrunni og stefnir allt ígóða þátttöku. Tímamynd: Sigurður Bogi Þróunarfélag íslands: Vill opna Austurstræti fyrir bíla Á fundi sfjóraar Þróunarfélags Reykjavíkur, sem haldinn var ftmmtudaginn 23. maí, var samþykkt opnun Austurstrætis fyrir bifreiöaumferð til reynslu, a.m.k. f 6 mánuði. Einnig var samþykkt að tekin verði upp stöðukort í miðborg Reykjavíkur f stað stöðumæla á 240 bifreiðastæðum, og að há- markstími á stöðureit verði styttur úr eínni klukkustund f 45 mfnútur. Fundinn sátu VHhjálmur Þ. VHhjálmsson formaður Þróun- arfélagslns, Árni Sigfússon, Jón Adolf Guðjónsson, Jóhann J. Ólafsson, Bolli Kristinsson og Pétur Sveinbjaraarson. -SIS Nýtilkomið samkomulag Vinnueftirlits ríkisins og Reykjavíkurborgar: Allir þurfa vottorð ef þeir ráðgera að byggja Vinnueftiriit ríkisins og borgaryfir- völd í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag um að húsbyggjendur fái ekki úttekt á botnplötu nema þeir geti framvísað vottorði frá Vinnueftir- litinu um að fullnægjandi starfs- mannaaðstaða sé til staðar. Þetta var samþykkt á fundi borgarráðs 30. apríl síðast liðinn. Samkomulag þetta tek- ur gildi nú í vor. Gylfi Már Guðjónsson hjá Vinnueftir- litinu sagði að samkomulagið ætti sér langan aðdraganda. Bæði Vinnueftir- litið og stéttarfélög í byggingariðnaði hefðu sóst eftir þessu, því starfs- mannaaðstaða í byggingariðnaði hefur víðast hvar verið mjög slæm og með þessu móti mætti tryggja að hún batni. Með samkomulagi þessu er ætlast til að starfsmannaaðstaðan sé í samræmi við það sem reglur um hús- næði vinnustaða kveða á um. Þó er megináhersla lögö á upphitað og snyrtilegt húsnæði. Einnig verður hreinlætisaðstaða að vera til staðar, en víða er misbrestur á því. Vegna samkomulagsins gerir bygg- ingarfulltrúi Reykjavíkur ekki lengur úttekt á botnplötum nema fyrir liggi vottorð frá Vinnueftirlitinu um full- nægjandi starfsmannaaðstöðu. Hús- byggjandi þarf því fyrst að hafa sam- band við Vinnueftirlitið og fá það til þess að skoða starfsmannaaðstöðuna og gefa út vottorð, áður en haft er sam- band við byggingarfúlltrúa vegna út- tektar á botnplötu. Gylfi sagði að engar tafir yrðu við byggingarframkvæmdir vegna þessa. Vinnueftirlitið myndi reyna að sinna beiðnum jafhskjótt og þær berast. Áætlað er að að húsbyggjendur Ieigi sér starfsmannahúsnæði í auknum mæli og að kostnaðurinn við það verði milli 1 og2% afbyggingarkostn- aði. Eins og er þá á þetta samkomulag einungis við í Reykjavík, en hugmynd- in er að færa þetta síðan út á land. -UÝJ Bifreiðapróf endurskoðuð Bifreiðaeftirlit ríkisins var lagt nið- ur í janúar 1989. Bifreiðaskoðun ís- lands hf. tók þá við skráningu og skoðun ökutækja. Umsjón og fram- kvæmd ökuprófa var áfram sjálf- stætt verk undir nafninu Bifreiða- próf ríkisins. Þau þykja óhentug eining til að gera úr sjálfstæða stofnun. Þorsteinn Pálsson dóms- málaráðherra hefur óskað atbeina hagsýsludeildar fjármálaráðuneytis- ins við að kanna starfsemina. M.a. hvort ekki sé heppilegt að rekja upp úr stofuninni kennsluþráð hennar í meiraprófsnámskeiðum. Ennfrem- ur að leggja til hvernig heppilegast sé að skipa þessum málum til fram- búðar. Kanna skal ítarlega hvort ekki sé unnt að tengja starfsemina við, eða fella hana undir, einhverja af stofnunum ríkisins. Má nefna Um- ferðarráð. Það starfar í umsjá dóms- málaráðuneytisins. Markmiðið er að finna hagkvæmari lausn á rekstri bifreiðaprófanna, að efla öku- kennslu í landinu og þar með auka öryggi. -aá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.