Tíminn - 29.05.1991, Page 9

Tíminn - 29.05.1991, Page 9
Miðvikudagur 29. maí 1991 Tíminn 9 Halldór Ásgrímsson segir að vaxtahækkanir ríkisins leiði til vaxtahækkana í bönkum: RAUNVEXTIRINN- LÁNA FARA í 8.5% OG ÚTLÁNA í A.M.K. 11% Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sagði á Alþingi á mánudag að þær vaxtahækkanir, sem ríkisstjómin hefði boðað, myndi leiða til þess að bankarair myndu hækka sína vexti. „Ég skal ekki fullyrða hvað bankarair hugsa sér, en ekki er ólík- legt að vextir af verðtryggðum innlánum verði ekki minni en 8,5% í framhaldi af þessari ákvörðun og er þá ekki ólíklegt að út- lánsvextir fari í 11% að minnsta kosti,“ sagði Halldór. Hann sagði að ríkisstjórnin legði mikla áherslu á að með þessu sé verið að auka sparnað og draga úr eyðslu. Halldór sagði að hann hefði miklar efasemdir um að það myndi gerast. Þar að auki væru þessir vextir skattfrjálsir, sem gerði það að verkum að í raun yrðu þeir mun hærri en í löndun- um í kringum okkur. Það myndi leiða til þess að atvinnuvegirnir leituðu í auknum mæli eftir er- lendum lánum. Viðbrögðin í hús- bréfakerfinu væru þau að félags- málaráðherra hefði þegar sent sendimenn á erlendan markað til þess að kanna hvort ekki væri hægt að selja húsbréfin þar. „Það er útilokað að vextir hér á landi séu mjög frábrugðnir því sem gengur og gerist hérna í kringum okkur. Vextirnir geta hvorki verið mikið lægri eða hærri. Við erum það háð alþjóð- legum lánamörkuðum að það er mikilvægt að það sé samræmi á milli," sagði Halldór. Hann sagði að mikilvægast í stöðunni væri að halda jafnvægi og stöðugleika og þessi vaxtahækkun væri ekki til þess fallin. Halldór vék einnig að húsnæðis- málunum og sagði að það þýddi ekkert annað en að viðurkenna Halldór Ásgrímsson alþingis- maöur. fjármögnun húsnæðiskerfisins sem vandamál. „Það hlýtur að vera vandamál þegar aukin útlán eru orðin miklu meiri en byggingar- starfsemi, sem sýnir það að mikill hluti þessara lána fer til annarra þarfa," sagði Halldór. Hann sagð- ist telja þetta varhugaverða þróun og aðalatriði væri það hvernig hægt væri að útvega sem ódýrast fjármagn til þessara hluta. Það hafi verið staðfest að útlán hefðu aukist um 60-70% á sama tíma og íbúðarbyggingar hefðu aukist um 16%. Halldór sagðist vera sam- þykkur þeirri ráðstöfun að hækka vexti á lánum Byggingarsjóðs rík- isins. Halldór sagði að fyrir tveim- ur mánuðum hefði félagsmálaráð- herra sagt að ekki væri hægt að hækka þessa vexti nema það ættu sér stað eigendaskipti. Hann sagð- ist því ekki skilja í sjálfu sér af hverju þetta væri hægt núna, en hefði ekki verið hægt fyrir tveim- ur mánuðum. —SE Flugleiðir fá nýja þotu af gerðinni Boeing 757: Út í tvö ár Tímamyndir: Árni Bjarna Ljósmyndasýning í séra Friðriks-kapellu: „Líf og starf sr. Friðriks“ Opnuð hefur verið ljósmyndasýn- ing í kapellu séra Friðriks að Hlíðarenda við Öskjuhlíð í Reykjavík. Sýningin ber yfir- skriftina „Líf og starf séra Frið- riks“. Á sýningunni eru um eitt hundr- að ljósmyndir. Flestar eru mynd- irnar úr ljósmyndasafni KFUM og KFUK og meirihluti þeirra eru frá árunum 1890-1920. Sýningunni er skipt í sjö flokka og sérstaklega er gerð grein fyrir stofnun og starfi KFUM, KFUK, skáta, karla- kórsins Fóstbræðra og knatt- spyrnufélagsins Vals. Ásamt ljósmyndunum verða ýms- ir munir séra Friðriks til sýnis, m.a. Væringjaskikkja, handrit, bækur og fleira. Kvikmynd Ós- valdar Knudsen „Séra Friðrik" og kvikmyndir um sumarbúðir í Vatnaskógi verða sýndar af mynd- bandi. Sýningin er öllum opin og að- gangur ókeypis og hún stendur yf- ir til 2. júní. -SIS Nefnd skipuð um þyrluna Þann 12. mars sl. ályktaði Alþingi að fela ríkisstjórninni að sjá til þess, að á árinu 1991 verði samið um kaup á fullkominni björgunar- þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna. í framhaldi ályktunarinnar hefur Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra skipað nefnd til að vinna að undirbúningi málsins. Hún skal gera heildarúttekt á flugrekstri Landhelgisgæslunnar, að því er varðar björgunar- og eftirlitsflug. Gera tillögur um val hentugra þyrlna og flugvéla til þessara verk- efna og samstarf við aðra björgun- araðila og varnarliðið á Keflavíkur- flugvelli. í nefndinni sitja Björn Bjarnason alþingismaður, formaður; Þor- steinn Geirsson ráðuneytisstjóri, Gunnar Bergsteinsson forstjóri, Þórhallur Arason skrifstofustjóri, Róbert Trausti Árnason sendiherra. Til aðstoðar eru Páll Halldórsson yfirflugstjóri og Sigurður Steinar Ketilsson skipherra. -aá. Flugleiðir tóku á dögunum við þríðju Boeing 757 þotunni frá Boeingverksmiðjunum í Seattle í Bandaríkjunum. Þotan hefur þeg- ar verið leigð til breska flugfé- lagsins Brítannia Airways næstu tvö árín, en að þeim loknum er fyrst reiknað með að Flugleiðir þarfnist hennar. Boeing 757 eru þær þotur sem Flugleiðir nota í Norður- Atlants- hafsfluginu. Félagið hefur á síð- ustu tveimur árum .keypt 7 nýjar farþegaþotur og á næsta ári verður innanlandsflotinn endurnýjaður. Þá koma 4 nýjar Fokker 50 skrúfu- þotur af fullkomnustu gerð. Sig- urður Helgason, forstjóri Flug- leiða, sagði í samtali að flugvéla- kaupin hefðu reynst happadrjúg. Hann sagði hins vegar ekki vera þörf fyrir nýju þotuna í reksturinn fyrr en eftir tvö ár. „Það er mikil- vægt fyrir Flugleiðir að hafa sem fæstar vélagerðir í rekstri í einu vegna kostnaðar. Það verður því gott að geta gengið í eigin vél í reksturinn eftir tvö ár, einkum þar sem tekist hefur að koma henni í hagstæða leigu þangað til,“ sagði Sigurður Helgason. -sbs. Hin nýja kapella sr. Friðriks á Hlíöarenda. Frá Ijósmyndasýningunni „Líf og starf séra Friðriks". Ingólfur Á. Jóhannesson Doktor í BNA Nýlega varði Ingólfur Á. Jóhannes- son sagnfræðingur doktorsrítgerð í námskipunar- og kennslufræðum við Department of Currículum and Instruction í Wisconsinfylki í Bandaríkjunum. Lausleg þýðing á titli ritgerðarinnar er Baráttuvett- vangur íslenskra menntaumbóta og félagsleg skilningarvit mennta- frömuða. Ritgerðin fjallar um menntaum- bætur á íslandi sl. 25 ár. Ritgerðina má skoða í tvennskonar samhengi: Annars vegar sem greiningu á hug- myndastraumum og bakgrunni menntaumbóta á íslandi og hins vegar er ritgerðin framlag til alþjóð- legrar þróunar í pólitískri félags- fræði menntaumbóta. Höfundurinn, Ingólfur Á. Jóhann- esson, er fæddur 1954 og er frá Skútustöðum í Mývatnssveit. Hann er sagnfræðingur og kennari að mennt, hefur stundað kennslu og ritað nokkrar kennslubækur. Um árabil hefur hann starfað á sumrin sem landvörður. -sbs. Ráðstefna um ferða- w m jr mal a Blönduósi Fyrir skemmstu hélt Ferðamála- félag Húnvetninga ráðstefnu um feröamál. Hlgangurinn var að vekja athygli á öllu því sem Húnaþing hefur upp á að bjóða. Til ráðstefnunnar var boðað með það f huga, að nú hillir und- ir veridok við Blönduvirígun. Þá missa margir heimamcnn vinn- una. Um leið hefur samdráttur f hefðbundnum landbúnaði bitnað hart á Húnvetningum. Ekki ligg- ur Ijóst fyrir hvort stjómvöld ætla mjólkurbúi og sláturíiúsi, sem þar eru starfrækt, marga líf- daga. Sturia Bragason hjá Ferðamála- félagi Húnvetninga segir að at- vinnulff í Húnaþing! eigi helst vaxtarvon í þjónustu við ferða- menn. Þar séu líka margir mögu- leikar. T.d. finnist þar varía svo vatnspoliur, að hann sé eldd full- ur af fiskL Húnvetningar þurfi aðeins að fá ferðamenn til að staldra við í héraðinu. Algengt sé að þeir æði beint í gegn. í áiyktun ráðstefhu Ferðamála- félags Húnvetninga segir m.a. að fundarmenn fagni þeirri þróun sem orðið hefur f ferðamálum á íslandi. Tekjur af ferðamálum séu nú sambærilegar við tekjur af saltfiskútfiutningi. Þess er krafist að stjórnvöld sjái til þess að ferðaþjónustan fái þær tekjur sem henni ber lögum sam- kvæmt. Vinna ber markvisst að því að auka hlut Norðurlands vestra í stefnumótun ferðamála á íslandi. -aá.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.