Tíminn - 29.05.1991, Page 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 29. maí 1991
IHHiR MINNING
Sigríður Haraldsdóttir
Hrafnkelsstöðum
Pædd 30. desember 1900
Dáin 20. maí 1991
Það var í júnímánuði 1948 að við
systur tvær úr Laugardal erum á
leið með mjólkurbíl í eina af upp-
sveitum Árnessýslu.
Hin mikla vélvæðing hafði enn
ekki hafið innreið sína í landbúnað-
inn, en orfið og hrífan enn í fullu
gildi. Við systur vorum á leið í
kaupavinnu að Hrafnkelsstöðum í
Hrunamannahreppi.
Það var glaðasólskin og ekki annað
hægt að segja en að sveitin heilsaði
okkur vel. Samt sem áður setti að
mér nokkurn kvíða, þetta var í fyrsta
skipti sem ég fór í kaupavinnu til
vandalauss fólks, fólks sem ég þekkti
ekki. Hér blasti við hús, gamalt en
með mikilli reisn, trjágarður og um-
hverfl all stórt í mínum augum.
Við vorum komnar heim á hlað. Þá
kom á móti okkur kona ljós yfirlit-
um, feitlagin og kvik í hreyfingum.
Hún bauð okkur velkomnar, sagðist
heita Sigríður og vera verðandi hús-
móðir okkar. Það geislaði af henni
góðvildin, fann ég við fyrstu sýn.
Hún spurði okkur hvor yrði stelpan
hennar í sumar. Ég varð fyrir svör-
um og sagðist búast við að það væri
ég, því ég væri ráðin hjá Sveini. En
hvað sem öllum ráðningum leið,
myndaðist strax í upphafi mjög
sterkt samband okkar í milli.
Þessi fyrsti dagur þarna varð mér
minnisstæður. Húsbóndinn Sveinn
var með börnum sínum þrem að
reka lambfé sitt á afrétt, en þau
komu síðla dags sjúskuð nokkuð af
vökum og erfiði.
Sigríður var hress við fólk sitt sem
mér fannst margt og mjög glaðsinna.
Eftir að hafa gefið því hressingu, dreif
hún rekstrarfólkið ásamt fleirum í
sundlaug sveitarinnar að Flúðum og
þeirra á meðal fórum við systur.
Það var mikið af ungu og hressu
fólki þar þetta kvöld.
Þessi fýrsti dagur minn á Hrafn-
kelsstöðum varð einkennandi fyrir
það sumar sem í hönd fór. Ekkert
sumar er jafn bjart í endurminning-
unni. Sigga, en svo kallaði ég og
fleiri hana jafnan, átti stóran þátt í
þeirri mynd sem þar er greypt. Það
var ekki einungis að vinnan væri
leikur, heldur umhyggjan þegar
heim var komið, líka glaðværðin og
hinar afgerandi ákvarðanir hennar.
Ég vil ekki heldur draga strik yfir
þátt húsbóndans Sveins, hann var
einstakur. T.d. lét hann mér til af-
nota reiðskjóta þetta sumar, hryssu
sem kölluð var Hrefna, stór og
stæðileg. Þau voru því mörg kvöldin
að ég og yngri dóttirin Guðrún
þeystum út í sumarnóttina, hún á
hryssunni Skerplu sem var afburða
gæðingur, skeiðhross í hæsta flokki.
Enn finn ég angan jarðarinnar og
enn heyri ég klið fuglanna frá þessu
ógleymanlega sumri. Það var líka oft
glatt á hjalla innan dyra undir hand-
arjaðri Siggu. Stundum þegar regn
buldi á þakinu og ekki þótti fært
rakstrarkonum á engjar, tók Sigga
kannski „Fjárlögirí' og lék á orgelið,
en ég söng. Já, það er margs að
minnast, samverustundir sem
gleymast seint.
Síðan skildu leiðir. Tíminn breytt-
ist hjá okkur báðum tveim. Ungvið-
ið á Hrafnkelsstöðum óx úr grasi og
varð að sjálfstæðum einstaklingum.
Sigga fluttist í nýtt og notalegt hús-
næði, fyrst til að annast bróður sinn
Helga. Síðar ein í skjóli sonar og
tengdadóttur. Gott var að heim-
sækja þar gamla vinkonu, sem þrátt
fyrir að nokkur ár höfðu bæst við,
hélt sinni reisn og sló ekki slöku við
garðinn sinn.
Sigga var trúuð kona. Ekki það að
hún þrengdi skoðunum sínum upp
á aðra. Hún var leitandi sál sem að-
hylltist spíritisma Haralds Níelsson-
ar og Einars Kvaran.
Trú sinni lýsti hún best í vísu sem
hún kenndi mér, en flestir kunna:
Trúðu á tvennt í heimi,
tign sem œðsta ber:
Guð í alheimsgeimi,
guð í sálu þér.
Það var gott að ræða þetta við
hana í rólegheitum, þar sem hún
var í engum vafa um framvindu
lífsins.
Mér finnst henni svipa til einnar
sögupersónu Einars Kvaran. Það er
fóstran í sögunni Marias, þegar
sögumaður, ungur drengur, hafði
ort rímuna um vinnufólkið á bæn-
um, heldur niðrandi kvéðskap, en
það gerir kröfu til húsbænda sinna
að rímnasmiður yrði duglega
flengdur. Þá segir fóstran: „Ég ræð
flengingum hér.“ Síðar þegar sögu-
maður er orðinn fullorðinn maður.
Hann hafði Ient í útistöðum við það
sem kallast lög og reglur. Þá leitar
hann til fóstru sinnar á ný, því enn
er hún vinur og ráðgjafi. „Ert þú
raunamæddari nú heldur en þú
varst þegar rímurnar og maríasinn
var þér efst í huga?“
„Ég veit ekki,“ sagði hann, „en þá
var ég barn. En núna er um allt ann-
að og meira að tefla, en ekki hégómi
eins og þá.“ ,M hverju veist þú það?“
sagði fóstran. Svarið vafðist fyrir, en
fóstran hélt áfram: „Ef við komumst
einhverntímann svo langt að sjá að
allar okkar áhyggjur, sorgir, móðg-
anir, reiði, að allt þetta er ekkert
annað en hégómi. Ekkert annað en
skuggi af hrófatildri heimskunnar.
Skuggi sem hverfur þegar hrófa-
tildrið hrynur."
Þetta viðhorf fóstrunnar finnst mér
samrýmast mjög skoðunum Siggu á
lífinu og tilverunni, því hún kunni
manna best að aðgreina hismið frá
kjarnanum._
Hún var ekki einungis sterk líkam-
lega, afkastamikil í verkum sínum,
heldur með þessa þróttmiklu og
geislandi sál.
Ég minnist hennar við dánarbeð
dóttur sinnar Kristrúnar er dó fyrir
aldur fram. Þar var Sigríður hin
sterka kona eins og ævinlega. Ég hef
þá trú að Kristrún hafi verið nær-
stödd síðustu dægur móður sinnar.
Ég þakka þér, Gunna, að leyfa mér
að vera hjá móður þinni seinustu
nóttina. Það er gjöf sem ég kann að
meta.
Ég minnist fyrsta brossins henn-
ar Siggu á Hrafnkelsstöðum. Það
var þegar hún heilsaði okkur
systrum á sínu bæjarhlaði fyrst er
við sáumst. Brosin hennar urðu
mörg og heillandi. Nú að loknum
degi sitjum við tvær við rúmið
hennar, ég og Gunna. Við vitum
ekki fyrir víst hvort hún skynjar
nærveru okkar, fyrr heldur en
Gunna segir: „Sérðu blómin þín,
mamma." Bros leið yfir andlit
hennar, veikt en heillandi. Bros
gefið blómi, í fullu samræmi við líf
hennar allt.
Ég sakna Siggu minnar mikið, en
þetta er framvinda lífsins, eðlilegur
hlutur, þáttur tilverunnar.
Ég minnist hennar með virðingu
og þökk fyrir allt.
Ég votta fjölskyldunni samúð
mína. Guð blessi ykkur.
Lilja Guðmundsdóttir
Kvöld-, nætur- og helgldagavarsla apóteka
I Reykjavik 24.-30. mai er I Brelöholts-
apóteki og Apótekl Austurbæjar. Það apó-
tek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsluna frá
kl. 22.00 aö kvöldi tll kl. 9.00 aö morgni
virka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upp-
lýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru
gefnar I sima 18888.
Neyöarvakt Tannlæknafélags fslands
er starfrækt um helgar og á stórhátfðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjöröur: Hafnarfjaröar apótek og Norö-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvern laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar i símsvara nr. 51600.
Akureyrf: Akureyrar apótek og Stjörnu apótek
eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opið I því apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opið frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar eru gefnar I
sfma 22445.
Apótek Keftavíkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafrídaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opíð virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opið til kl. 18.30.
Opið er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garöabær: Apótekið er opiö rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamarnes og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavikur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá
sunnudögum.
Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar og tímapant-
anir I slma 21230. Borgarspítalinn vakt frá kl.
08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki-
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími
696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysadeild)
sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sólar-
hringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyflabúðir og læknaþjónustu erugefnar I sím-
svara 18888.
Ónæmlsaögeröirfyrirfullorðna gegn mænusótt
fara fram á Hellsuvemdarstöö Reykjavikur á
þriðjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskirteini.
Garöabær: Heilsugæslustööin Garðaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, sími 656066. Læknavakt er i
síma 51100.
Hafnarfjöröur: Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, simi 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogur: Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavík: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöö Suöumesja. Sími: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I
sálfræöilegum efnum. Simi 687075.
Auglýsing
um starfslaun listamanna
Samkvæmt reglum, sem samþykktar voru í
borgarstjórn 3. maí 1990, er heimilt að veita ár-
lega starfslaun til listamanns eða listamanna í
allt að 12 mánuði.
Menningarmálanefnd velur listamennina, sem
starfslaun hljóta.
Þeir einir listamenn koma til greina við úthlutun
starfslauna, sem búsettir eru í Reykjavík, og að
öðru jöfnu skulu þeir ganga fyrir um úthlutun,
sem ekki geta stundað listgrein sína sem fullt
starf. Listamennirnir skuldbinda sig til að gegna
ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfs-
launa.
Menningarmálanefnd auglýsir hér með eftir rök-
studdum ábendingum frá Reykvíkingum, ein-
staklingum sem og samtökum listamanna, eða
annarra, um hverjir skuli hljóta starfslaunin.
Menningarmálanefnd er þó ekki bundin af slíkum
ábendingum.
Ábendingar, sbr. ofanritað, sendast Menningar-
málanefnd Reykjavíkurborgar, Austurstræti 16,
fyrir 1. júlí 1991.
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar.
Bændur athugið!
Óska eftir að kaupa góða kúajörð á Suðurlandi.
Vinsamlegast hringið í síma 97-81017.
FLUGMÁLASTJÓRN
BÓKLEGT ATVINNUFLUGNÁM
Flugmálastjórn mun standa fyrir bóklegri kennslu
fyrir væntanlega atvinnuflugmenn í samstarfi við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja skólaárið 1991-
1992, ef næg þátttaka verður.
Kennt verður í kennsluhúsnæði Flugmálastjórn-
ar á Reykjavíkurflugvelli.
Inntökuskilyrði eru einkaflugmannsskírteini og
stúdentspróf (þar af a.m.k. 3 einingar í eðlis-
fræði).
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu Flugmála-
stjórnar í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli.
Umsóknir þurfa að hafa borist þangað fyrir 1. júlí
nk.
Umsóknum skal fylgja:
Staðfest Ijósrit af stúdentsprófi,
Ijósrit af einkaflugmannsskírteini og
1. flokks heilbrigðisvottorð frá trúnaðar-
lækni flugmálastjórnar.
FLUGMÁLASTJÓRN.
IÐNSKOLINN í REYKJAVÍK
Skólaslit verða í Hallgrímskirkju föstudaginn 31.
maí kl. 14.00.
Ættingjar útskriftarnema og velunnarar skólans
velkomnir.
•-1L1 r 1»1»V -
4. V, ». <f*. 4. ý. r ■
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadeildin: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartlmi fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspítali Hrlngsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunariækningadeild Landspítal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspftali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Bamadeild 16-17.
Heimsóknartlmi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspítallnn I Fossvogi:
Mánudaga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og
eftir samkomulagi. Á laugardögum og sunnu-
dögum kl. 15-18.
Hafnarbúöir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdelld: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnu-
daga kl. 14- 19.30. - Heilsuvcrndarstööin: Kl.
14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspítali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshæliö: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vifilsstaöaspitali: Heim-
sóknartími daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspitall Hafnarfirði: Alla daga kl.
15-16 og 19-19.30._______________________
Sunnuhlið hjúkrunarheimili í Kópavogi: Heim-
sóknartimi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavikurfæknlshéraðs og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Simi 14000. Keflavlk-sjúkrahúsiö:
Heimsóknartimi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátíöum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri- sjúkrahúsiö: Heim-
sóknartími alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofusími frá
kl. 22.00- 8.00, sími 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30.
Slökkvilið - Lögregia
Reykjavík: Scltjarnamcs: Lögreglan simi
611166, slökkviliö og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið simi 11100.
Hafnarfjöröur: Lögreglan simi 51166, slökkvi-
liö og sjúkrabifreið simi 51100.
Keflavik: Lögreglan sími 15500, slökkvilið og
sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar: Lögreglan, sími 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsið simi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222.
Isafjörður Lögreglan simi 4222, slökkvilið sími
3300, b'njnáslmi óg síukrábifreiö-simi 3333