Tíminn - 08.06.1991, Blaðsíða 2

Tíminn - 08.06.1991, Blaðsíða 2
10 HELGIN Laugardagur 8. júní 1991 Einfalt „rúllu“- mál - Pottþéttir baggar FYRIR GARN - EÐA NET tæki frá KRONE vinna mjög vel KRONEI om Jámhálsi 2 Sfmi 683266 110 Reykjavík J Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður Nafn umboðsmanns Heimili Sími Hafnarfjöröur Stom Sigurðsson Suöurgötu 15 54948 Kópavogur Linda Jónsdóttir Hamraborg 26 641195 Garðabær Ragnar Borgþórsson Holtageröi 28 45228 Keflavík Guðríður Waage Austurbraut 1 92-12883 Njarövík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826 Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261 Borgames Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgötu 26 93-71740 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Ólafsvik Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269 Grundarfjöröur Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629 Búðardalur Kristiana Guömundsdóttir Búöarbraut 3 93-41447 ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541 Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366 Hólmavík Elísabet Pálsdóttir Borgarbraut 5 95-13132 Hvammstangi Hólmfríöur Guömundsd. Fífusundi 12 95-12485 Blönduós Snorri Bjarnason Uröarbraut 20 95-24581 Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772 Sauöárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíö 13 95- 35311 Siglufjörður Sveinn Þorsteinsson Hlíöarvegi 46 96-71688 Akureyrí Halldór Ingi Ásgeirsson Hamarsstíg 18 96-24275 skrifstofa Skipagötu 13 (austan) 96-27890 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016 Húsavik Friörik Sigurðsson Höföatúni 4 96-41120 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggö 8 96-62308 Raufarhöfn Sandra Ösp Gylfadóttir Aðalbraut 60 96-51258 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu 44 97-31289 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógum 13 97-11350 Seyðisljörður Margrét Vera Knútsdóttir Múlavegi 7 97-21136 Neskaupstaður Birkir Stefánsson Miögarði 11 97-71841 Reyöarfjönður Ólöf Pálsdóttir Mánagötu 31 97-41167 EskiQöröur Berglind Þorgeirsdóttir Svínaskálahlíð 17 97-61401 Fáskrúðsfjörður Guöbjörg H. Eyþórsd. Hlíðargötu 4 97- 51299 Djúpivogur Jón Björnsson Borgarlandi 21 97-88962 Höfn Skúli Isleifsson Hafnarbraut 16A 97-81796 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Engjavegi 5 98-22317 Hveragerðl Vilborg Þórhallsdóttir Laufskógum 19 98-34323 Þoríákshöfrí Halldóra S. Sveinsdóttir Egilsbraut 22 98-33627 Eyrarbakki Þórir Eriingsson Túngötu 28 98-31198 Stokkseyri Andrés Ingvason Eyjaseli 7 98-31479 Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179 Hvolsvöilur Jónína og Ámý Jóna Króktúni 17 98-78335 Vík Ingi Már Bjömsson Ránarbraut 9 98-71122 Vestmannaeyjar Marta Jónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192 FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Sérfræðingur í geðlækningum óskast til starfa á Geðdeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri frá 15. september 1991. Um er að ræða afleysingastöðu til 15. júní 1992, sem hugsanlega verður framlengd. Umsóknarfrestur er til 15. júlí 1991. Umsóknir um stöðuna sendist Sigmundi Sigfússyni, yfirlækni Geðdeildar F.S.A., og gefur hann allar nán- ari upplýsingar. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Kynleg örlög yfirgangsmanns Manndráp og mann- raunir Það var að haustlagi, eða nánar til- tekið að kvöldi dags hinn 9. október 1899, að ferðlúinn aðkomumaður kvaddi dyra hjá sýslumanni ísfirð- inga. Kvaðst hann heita Guðjón Friðriksson og væri hann kominn heiman frá Dýrafirði þeirra erinda að leita ásjár yfirvaldsins gegn ásælni erlendra togara, sem mjög hefðu herjað á heimamiðin að und- anförnu. Tók hann það sérstaklega fram að eitt þessara ræningjaskipa hefði haldið sér að ólöglegum botn- vörpuveiðum uppi við landsteina í samfleytt fimm daga og gætu menn naumast unað öllu lengur svo hrak- legri sjón. Um þessar mundir var sýslumaður ísfirðinga Hannes Hafstein, hið ást- sæla þjóðskáld sem síðar varð ráð- herra fyrstur íslenskra manna. Sýslumaður tók erindi sendimanns- ins hið besta og bjóst þegar til ferðar ásamt fylgdarmanni sínum, þótt dimmt væri orðið af nótt. Sóttist ferðin betur en ætla mætti, þar sem yfir fjall var að fara, en snjór mikill á jörðu og þung færð. Kom það sér því vel að Hannes Hafstein var slíkt þrekmenni sem hann jafnan reynd- ist, og sjálfur hefur hann skýrt svo frá að hann hafi í þessari næturferð sett það eitt fyrir sig að hann kynni að missa af togaranum. Það sýndi sig þó að þær áhyggjur voru óþarfar. Sýslumaður og fylgdarmaður hans komu í bítið um morguninn á ákvörðunarstað og blasti þá við þeim hinn breski togari, sem enn var að veiðum, rétt framan við versl- unarstaðinn Haukadal í Dýrafirði. Þó að ætla mætti að Hannes Haf- stein væri vanbúinn til stórræða eft- ir hið erfiða ferðalag og næturvöku, sinnti hann lítt um að hvíla sig, en tók þegar að undirbúa aðför sína að togaranum. Fékk hann Iánaðan bát, sex manna far, og réð hina völdustu menn sér til fylgdar. Voru það þessir: Jóhannes Guðmundsson á Bessa- stöðum, 37 ára, Guðmundur Jóns- son á Bakka, ókvæntur maður um tvítugt, Jón Þórðarson, kvæntur, Jón Gunnarsson og Guðjón Frið- riksson, sem áður er nefndur. Var síðan bátnum hrundið á flot og róið sem leið lá út að togaranum. Kalt var í veðri þennan dag og talsverð ylgja, en þó ekki svo að slíkt hefði átt að verða æfðum sjómönnum til verulegs trafala. Er samt ekki því að leyna að ferðin sóttist verr en ætla hefði mátt og lágu til þess óvæntar orsakir, eins og síðar verður greint frá. Hér verður þess að geta að skip- stjórinn hafði látið mála yfir nokkuð af stöfunum í nafni og einkennis- númeri togarans. Leit því svo út sem skipið héti OYALI H 42, en ekki dugði það skipstjóranum til blekk- ingar. Hafði Hannes Hafstein þegar komist að hinu sanna um heiti skipsins og kynni sagan af þessari ferð allri að hafa orðið önnur og skemmri ef ekki hefði notið við þeirrar vitneskju. En svo heppilega vildi til að skipstjórinn hafði sjálfur verið í landi nokkrum dögum áður og þá skýrt verslunarstjóra þar á staðnum frá nafni, númeri og eig- anda skipsins. Hét það ROYALIST H 423, en eigandi þess var George Wal- ton, kunnur útgerðarmaður í Hull. Um leið hafði það einnig komið upp úr dúrnum að skipstjórinn á togar- anum var enginn annar en „hinn áð- ur þekkti Nilson", sænskur maður, sem árum saman hafði stundað botnvörpuveiðar í íslenskri land- helgi og oftar en einu sinni sýnt fá- heyrðan hrottaskap í umgengni við landsmenn, án þess að nokkru sinni hefði tekist að hafa hendur í hári hans. Verður því ekki annað sagt en að hér hafi verið til allmikils að vinna. Að sjálfsögðu hafði sýslumaður bú- ist einkennisbúningi til þessarar far- ar, en fyrir varygðar sakir hafði hann klætt sig í kápu utan yfir einkennis- búninginn. Var það jafnan háttur ýmissa landsmanna, þó að slíkt væri jafnan illa þokkað af almenningi, að fara um borð í hina erlendu togara til kaupa á úrgangsfiski og í öðrum viskiptaerindum og máttu slíkir menn vænta sér ólíkt greiðari upp- göngu en yfirvöld landsins. Þótti því sýslumanni henta að láta líta svo út sem báturinn væri í þvílíkum erind- um, enda mátti ella gera ráð fyrir viðbúnaði af togarans hálfu til að verjast mönnum eða koma sér und- an út fyrir landhelgislínuna. En hér fór öðru vísi en ætlað var. Sú leynd, sem komumenn hugðust hafa á sér, brást þeim algjörlega, eins og auðveldlega mátti ráða af viðbrögðum hinnar erlendu skips- hafnar. Er skemmst frá því að segja að þegar báturinn nálgaðist togar- ann raðaði áhöfnin sér upp við borð- stokkinn og hagaði sér all víga- mannlega. Höfðu útlendingarnir Hinn ungi sýslumaöur á ísa- firði, Hannes Hafstein, sem nærri týndi lífi við aðförina að Royalist H 423. mörg og stór barefli að vopni og bjuggust sýnilega til varnar. Þetta kom bátsverjum vitanlega mjög á óvart, en seinna kom í ljós hvernig í öllu lá. Á togaranum var íslenskur maður, Valdimar Rögn- valdsson að nafni, búsettur í Kefla- vík, en reykvískur að ætt. Var hann kvæntur og þriggja barna faðir. Þyk- ir sannað að hann hafi borið kennsl á sýslumann og gert skipstjóra við- vart. Má því segja með nokkrum sanni aö Hannes Hafstein hafi í þetta sinn goldið þess áþreifanlega að hann var manna auðkennilegast- ur. En Hannes Hafstein var fjarri því að láta viðbúnað hinna erlendu sjó- ræningja skjóta sér skelk í bringu. Hann lét þegar í stað renna bátnum upp að skipshliðinni og krafðist þess að fá að tala við skipstjórann. Var þá Nilson hinn sænski þar kominn og svaraði hann með skömmum einum og dólgslegum munnsöfnuði. Hófst þar með sú viðureign sem einna sögulegust hefur orðið í annálum ís- lenskrar landhelgisgæslu. Þegar förunautar sýslumanns sáu að hverju stefndi reyndu þeir að ná í kaðal sem hékk útbyrðis á skipinu. Það mistókst þó og seig báturinn aftur með skipshliðinni, en togarinn var á hægri ferð. Þegar komið var í námunda við afturstefnið varð fyrir vírtrossa, sem botnvarpan var fest við, og tókst bátsverjum að ná taki á henni. Dróst þá báturinn með togar- anum, en þegar skipstjórinn og menn hans sáu þetta þustu þeir óð- ara aftur á skipið, öskruðu eins og villidýr og höfðu í frammi hinar fólskulegustu hótanir. Þegar hér var komið stóð sýslumaður upp í bátn- um. Fletti hann nú skyndilega frá sér yfirhöfninni, svo að einkennis- búningurinn kom í ljós og krafðist þess af skipstjóra að hann veitti sér heimild til uppgöngu á skipið. Fara ekki sagnir af því hvort eða hverju skipstóri kunni að hafa svarað, en víst er um það að kröfu sýslumanns var ekki sinnt. í stað þess gripu skip- verjar stóra ár og vörpuðu henni af miklu afli niður í bátinn. Til allrar hamingju geigaði þó skotið og tókst þeim ekki að hitta neinn mannanna í bátnum. En nú var brátt stærri tíðinda að vænta. Þegar hinir erlendu menn sáu að þessi fýrsta árás hafði mis- heppnast hugkvæmdist þeim ráð til að granda bátnum með öðrum og stórvirkari hætti. Hlupu þeir að spil- inu og losuðu um vírtrossuna sem við það féll af miklum þunga niður í bátinn. Fór þá sem ætlað hafði verið að báturinn stakkst snögglega í kaf og var þar með sokkinn. Svo virtist sem hinir erlendu sjó- ræningjar létu sér þetta vel líka. Hirtu þeir ekkert um að koma báts- verjum til bjargar, en fóru þess í stað að innbyrða botnvörpuna. Innan skamms skaut þó bátnum upp og með honum tveimur mannanna, þeim Jóni Gunnarssyni og Guðjóni Friðrikssyni. Tókst þeim að halda sér í bátinn, en hins vegar færðust hinir þrír félagar þeirra í kaf. Eng- inn þessara fimm manna kunni nokkuð að synda. Hannes Hafstein var einn þeirra manna sem losnað höfðú við bátinn og greip hann þegar til sunds. Barð- ist hann lengi af ótrúlegum hetju- skap við að halda ofansjávar þeim þrem mönnum er einnig höfðu skolast úr bátnum. Mátti litlu muna að sú fórnfýsi hefði kostað hann líf- ið, því hinir drukknandi menn höfðu enga gát á viðbrögðum sínum og drógu hann hvað eftir annað með sér niður í djúpið. Þegar þess er einnig gætt að veður var mjög kalt og hryssingslegt má öllum ljóst vera hversu mjög hefur reynt á þrek hans og hugrekki og hetjulund. En vitan- lega hefði sú barátta ekki getað end- að nema á einn veg, ef atvikin hefðu ekki tekið nýja stefnu. Inni á Dýrafirði höfðu heimamenn fylgst með ferðum bátsins í sjón- auka. Virtist þeim brátt sem ekki mundi allt vera með felldu og var þá fljótt brugðið við og tveimur bátum hrundið fram. Sóttist þeim greið- lega, en þegar skipverjar á togaran- um sáu þá nálgast leit svo út sem mesti móðurinn rynni af þeim og gerðu þeir sig meira að segja líklega til að koma hinum nauðstöddu Is- lendingum til bjargar með því að losa um einn björgunarbátinn. Þeir sáu sig þó brátt um hönd og létu sér þess í stað nægja að renna niður til þeirra kaðli og björgunarhring, en ekki höfðust þeir slíkt að fyrr en mennirnir þrír, sem losnað höfðu við bátinn, voru drukknaðir. Hinir tveir, sem enn héldu sér í bátinn, náðu í björgunarhringinn og voru dregnir upp á skipið. Enn fremur tókst sýslumanni að handsama kað- alinn og gat vafið honum utan um sig. Var hann þá kominn að því að örmagnast og hneig í ómegin. Vissi hann það næst til sín að hann lá á þilfari togarans við hlið bátsverj- anna tveggja er bjargast höfðu með honum. Var þá einn hinna erlendu manna búinn að ræna hann tygil- hníf sem hangið hafði við belti hans. Gerði sá hinn sami sig líklegan til að vinna á honum með þessu vopni, en aðrir skipverjar, sem þá munu sennilega hafa talið nóg að gert, komu í veg fyrir það, enda voru þá aðkomubátarnir tveir lagstir að tog- aranum. Var þeim ekki meinað að flytja sýslumann og förunauta hans í land og voru þeir, er að var komið, bornir heim til Matthíasar Ólafsson- ar verslunarstjóra, þar sem þeim var veitt hin besta aðhlynning. í líkan mund sást hinn breski togari stefna til hafs og var hann innan stundar horfmn mönnum úr augsýn. Frétt- ist það næst til hans að hann hefði komið við í Keflavík og haft með sér konu og börn Valdimars Rögnvalds- sonar. Fara ekki sögur af þessum óhappamanni eftir það, en hann mun ásamt fjölskyldu sinni hafa sest að í Bretlandi og ekki leitað til ís- lands á ný. Ekki öll nótt úti í blöðum frá þessum tíma er orð á því haft að Hannes Hafstein hafi tek- ið sér drukknun hinna þriggja manna mjög nærri og sjálfur var hann fyrstu dagana mjög þrekaöpr

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.