Tíminn - 08.06.1991, Page 5

Tíminn - 08.06.1991, Page 5
Laugardagur 8. maí 1991 HELGIN 13 klúbbi. Fjölskylda viðkomandi, eða vinur fjölskyldunnar, útvegaði félagsaðild, sem þegar í stað veitti félagslegan ávinning, og „nafnið" var búið að koma sér vel fyrir, að því er álitið var, til æviloka. I góðu árferði gat „nafn“ gert sér vonir um að sanka að sér 30,000 pundum eða þ.u.b. fyrir aðild að einum kaupsýslumannahópi, sem var hrein guðs gjöf fyrir efri stéttimar. Hneyksli á hneyksli ofan á síðasta áratug En á níunda áratugnum kom Lloyd’s fram í dagsljósið sem skóli fyrir fjármáiahneyksli, að því marki að þeir sem vissu um ástandið drógu sig, fjölskyldur sínar og vini hljóðlega í hlé frá stofnun sem þeir báru ekki lengur traust til. Lloyd’s lenti á tímabili í alræmdum svikamálum ,ábyrgðarskrifstofa, sem ■ I allt í einu gáfu til kynna að þar virtist frekar vera saman kominn klúbbur drullusokka en hefðarmanna. Síöan kom tímabil stórslysa, eins og Piper Alpha, fellibylurinn Hugo, Exxon Valdez olíuslysið, og þó framar öllu hinar hroðalegu kröfur vegna „asbestosis", sem að mestu leyti stöfuðu af tryggingaviðskiptum sem gerð voru fyrir meira en mannsaldri.Núær nokkuð miklu,. Ættarsetur Malcolms Gomme-Duncan er nú farið í Lloyd’s hítina og hann býr nú á bóndabýli í grenndinni. miklu stærra í sniðum framundan, mengunarskaðabætur í Bandaríkjunum sem gætu þurrkað upp allan ágóða í mörg ár. 1988 náði meðlimafjöldi hámarki við 32,400, en í ár hefúr hann dreg- ist saman í 26,600. Og eftir því sem „nöfnunum" fækkar hefur Ijóminn yfir Lloyd’s ekki aðeins dofnað, hann er horfmn. Slóttugri kaupsýslumenn, þeir sem glöggskyggnari eru á teiknin en þeir sem hafa þegið inngöngu eftir 1980, eru farnir. Mjög fáir af nýrri kynslóð áhugasamra verktaka eða kaupsýslumanna hafa gengið inn. Sjóðstjórnendur sem til þekkja, sem áður hefðu komið á þátttöku skjólstæðinga sinna, ráða þessa dagana harðlega gegn því. Fáir félagar myndu nú láta sér detta í hug að sækja um inngöngu fyrir börn sín á sama hátt og þeir sjálfir urðu meðlimir fyrir milligöngu sinna eigin foreldra, í ljósi þeirrar stórskriðu skaðabótakrafna sem hellast munu yfir Lloyd’s á næsta áratug. Nú er Lloyd’s komið úr tísku, bæði viðskiptalega og félagslega, enda er heildarmarkaðsstærð þess minni en eins stórs nútímalegs tryggingafyrirtækis eins og t.d. Sun Aliiance. Það hefur hrökklast til hliðar fyrir vexti breyttra markaða og vegna umskipta í viðskiptum. Fomfálegt, duglaust og máttlaust Upphaflega var Lloyd’s byggt upp kringum yfirburði Bretlands í kaup- skipaheiminum, og tryggingasér- fræðingar líta svo á í vaxandi mæli að það sé fornfálegt, duglaust og máttlaust, klúbbur þar sem ábyrgð- arhafarnir taka of mikið út úr félag- inu með háum launum og kostnaði, og séu ekki reiðubúnir að leggja nógu mikið aftur til félagsins. En því miður er það ekki auðvelt fyr- ir „nafn“ að ganga út úr Lloyd’s. Jafnvel þó að viðkomandi geti gert upp skuldir sínar, tekur það samt a.m.k. þrjú ár. Og þeir sem ekki eru að yfirgefa hið sökkvandi skip, leggja í sumum tilfellum fram kærur. Táp- ið hefur leitt til þess að fram hafa komið nokkrar stefnur, málaferli, ógnanir og ákærur. „Einu sinni var Lloyd’s vígi virðingar og heiðarleika," segir Tom Benyon, fyrrverandi íhaldsþingmaður og fýrrum formaður sambands félaga Lloyd’s. „Fjöldi „nafna“ dróst inn í félagsskapinn vegna þessa orðstírs og þau treystu fólkinu sem fékk það til inngöngu. Nú höfum við komist að raun um að það er ólykt af ákveðnum atriðum þar.“ Heill þriðjungur meðlimanna er nú tengdur einhverri illvígri deilu, ýmist við stofnunina sjálfa eða við einhver félaganna sem starfa þar. Skiptir það máli? Ja, það gerir það frá því sjónarmiði að Lloyd’s er enn einstæð bresk stofnun, þrátt fyrir alla gallana, og hefur óumdeilt orð á sér fyrir áreiðanleika um allan heim. Skráningin ,A1 hjá Lloyd’s" er viðtekin athugasemdalaust hvar sem er í heiminum sem merki um „traust lán“. Enn ávinnur það 1.4 milljarð punda í „ósýnilegum“ gróða fyrir Bretland, hefur 8,000 manns og 20,000 miðlara í þjónustu sinni um allan heim og greiðir út skaðabætur, yfirleitt án undanbragða — enn sem komið er a.m.k. Það skiptir líka máli fyrir félagana. Enginn fellir tár vegna margmilljónamæringsins sem getur hæglega séð á eftir einhverju af eigum sínum án þess að finna til þess. En allt frá sjöunda áratugnum, þegar tryggingamarkaðurinn var að þenjast út og Lloyd’s varð að fá nýtt blóð, hefúr myndin af Lloyd’s „nafninu" orðið greinilega minna tengd bláa blóðinu eftir að miðstéttirnar fengu inngöngu. Það er svo sem engin undantekning lengur að heimili fjölskyldu kosti 250,000 pund. „Ef guð hefði ekki ætlast til að þeir yrðu rúnir hefði hann ekki gert þá að sauðum!“ Nick Doak er yfirmaður fjölmiðla- tengsla hjá Lloyd’s. Hann segir að núorðið sé félagar í Lloyd’s fólk sem aldrei hefði átt að veita inngöngu, eftir á að hyggja. Það hafi fengið rangar ráðleggingar um að leggja fé sitt í hááhættufyrirtæki. Nú er þrautanefnd fyrirtækisins, sem sett var á fót í fyrra og er undir forsæti Mary Archer, konu rithöfundarins og stjórnmálamannsins Jeffrey, að kynna sér þrengingar um 160 „nafna" sem skortir lausafé. Enginn hefði nokkurn tíma getað séð fyrir að ástandið yrði svona slæmt. Lögmaður, sem fæst við mál margra „nafna" sem orðin eru félaus, segir að sér líði eins og félagsráðgjafa. Lafði Delves-Broughton, nýkosin í sveitarstjórn og sjálf „nafn“, hefur nýlega hrint af stokkunum „hjálparsímalínu" fyrir áhyggjufulla félaga. Hún segist fá fjölmargar símhringingar frá niðurdregnu fólki og sér finnist hagir þess ákaflega hörmulegir. Ólánssögurnar kunna að vera legíó, en Gomme-Duncan, Alexander og þeirra líkar eru ekki að leita eftir samúð. „Ég vissi hvað ég var að fara út í,“ segir Gomme-Duncan með uppgjafarsvip. „Ég ætla ekki að væla. Ég var ákaflega heppinn að hafa peningana til að tapa í upphafi. Og þar að auki er það eins og með annað, hvort maður er ríkur eða fátækur er afstætt." En það eru ekki allir sem taka þessu með sömu ró. Bóndi einn í Cumbria fékk inngöngu í kaupsýslumannahóp aðeins einum degi áður en farið var að rannsaka viðskipti hópsins. Nú er jörðin hans til sölu og líf hans lagt í rúst. Og svo er sorgarsagan af húsbóndaholla einkaritaranum sem fékk inngöngu í Lloyd’s sem gjöf frá fyrirtækinu sínu þegar hún fór á eftirlaun. Hún er nú allslaus — sannarlega eitruð gjöf. Það er verst að hún skyldi ekki vera aðnjótandi sömu ráðleggingar og einn velefnaður Eton-maður fékk. Þegar hann var að velta fyrir sér inngöngu fyrir þrem árum dró reyndur vátryggjandi hann til hliðar og sagði: „Ég myndi ekki hafa fyrir því að ganga inn einmitt núna, félagi." Einkaritarinn gamli sækir heldur enga huggun í framhald orða vátryggjandans: „Ef guð hefði ekki ætlast til að þeir yrðu rúnir, hefði hann ekki gert þá að sauðum!"

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.