Tíminn - 08.06.1991, Qupperneq 6

Tíminn - 08.06.1991, Qupperneq 6
14 HELGIN Laugardagur 8. maí 1991 Hljómsveitin Júpiters í viðta.li við Tímann: Aðeins fyrir daginn ídag Hljómsveitin Júpiters er ekki eins og sveitir eru flestar. Þegar hún spilar fullskipuö fylla hljóðfæraleikarar hennar töluna" srettán, með blásara í meirihluta, og er hún því með stærstu "iljómsveitum landsins, ef sinfóníugeirinn er undanskilinn. Júpiters á geysigóðum tónleikum á Yfirstríkinu á fimmtudagskvöld. Þá spiluðu níu manns í hljómsveitinni, en fullskipuð eru þeir13. Timamynd: GS Átján hljómsveitir á Krísuvíkurplötu: Spilað fyrir húsið Vert er að vekja athygli á nýrri plötu, sem komin er út til styrkt- ar Krísuvíkursamtökunum. Hún ber nafnið Húsið og er þá vísað til húss þess, sem stendur í Krísuvík, væntanlegt athvarf unglinga er orðið hafa fíkniefna- neyslu að bráð. Allur ágóði af sölu plötunnar rennur til inn- réttingar og smíði hússins. Það er stúdíó Stöðin sem gefur plöt- una út, en Steinar sér um dreif- ingu.Og hér er nokkuð merkileg plata á ferðinni. Á henni spila 18 lítið þekktar hljómsveitir víða að af landinu frumsamin lög. Á plötunni má því greina hvað er að gerast undir yfirborði ís- lenskrar dægurtónlistar og er hún fyrir þær sakir athygli verð. Er ekki alls kostar óvitlaust á þessu stigi málsins að nefna þær hljómsveitir sem við sögu koma. Það eru Busarnir frá Stykkis- hólmi, Mömmustrákar og Stertimenni frá Vestmannaeyj- um, Óðfluga og Bróðir Darwins frá Akranesi, Munkar úr Kefla- vík, Bjartsýnismenn frá ísafirði, Nabblastrengir úr Hafnarfirði, Falski Flói frá Hólmavík, Mamma skilur allt frá Höfn, Efri deild Alþingis frá Egilsstöðum, Afrek frá Sauðárkróki og frá Reykjavík koma hljómsveitirnar Vesturbæingar, Sexmenn, Blaut- ir dropar, Arnar og Þórir, Ber að ofan og Stuðsamtökin Limbó. Plata sem á skilið eftirtekt, þó ekki sé nema vegna góðs málefn- is. Og fyrir það, að sumarsmell- inn í ár sé að finna á Húsinu, er ekki skotið loku. Og það er fleira sérkennandi; t.d. er aldursmunur á elsta og yngsta með- lim um fjörutíu ár og það má segja að endumýjun innan sveitarinnar sé meiri en gerist og gengur annars staðar. Frá því Júpiters var stofnuð fyrir um tveimur árum hafa rúmlega 40 manns starfað í henni. Fyrir því má færa rök að hér sé á ferðinni hreyfing en ekki hljómsveit. En aðalsmerki og helsta sérkenni hljómsveitarinnar er fólgið í öðm. Tónlist Júpiters, taktmikil og fjömg, gerir hana að einni af bestu, ef ekki þeirri bestu, danshljómsveit lands- ins. Blaðamaður mælti sér mót við hljómsveitina á fimmtudagskvöld, þar sem hún var að æfa í Yfir strikinu fyrir tónleika og skemmtikvöld til stuðnings eyðnisjúkum. Fyrir spum- ingum blaðamanns sátu fyrir svömm þeir Eiríkur saxófónleikari, Einar básúnuleikari, Jóhann trommuleik- ari og Kristinn gítarleikari. Var ekki úr vegi að fá vissa hluti á hreint í upp- hafi samtals: — Er það rétt sem heyrst hefur að plata sé væntanleg frá sveitinni? Eiríkur: Platan hefúr verið á leiðinni í tvö ár, þannig að það er alltaf rétt ef þú heyrir það. Einar: Við emm búnir að taka nokkra stúdíótíma. Kristinn: Við gemm ráð fyrir að gefa hana út fyrir 30 ára afmæli hljóm- sveitarinnar. — Má þá vænta þess að plata með Júpiters verði komin út eftir um 28 ár, eða í kringum árið 2019? Eiríkur: Já, já, ég þori að hengja mig upp á það. Einar: Jafnvel fyrr, jafnvel fyrr. — Hvaða efni emð þið að taka upp? Eiríkur: Það er bæði gamalt og nýtt. Við emm núna með glænýjan helm- ing á prógramminu. Lög sem hafa orðið til á síðustu mánuðum, vikum. Síðustu vikum, það hljómar betur. Annars emm við í nokkmm mæli að hætta að eltast við vals, samba, salsa- stefnuna. Það gætir örlítilla soul- áhrifa í hljómsveitinni núna. — Er hljómsveitin að breyta um stefnu? Eiríkur: Nei hún er bara aö víkka hana. Annars höfum við ætíð haft stefnuleysi að stefnu okkar. — Er mikil starfsemi innan hljóm- sveitarinnar núna? Kristinn: Já, en við höfum lítið kom- ið fram undanfarið. Við höfum æft þeim mun meira. Einar: Sumarið er lítið skipulagt hvað varðar tónleikahald. — Er það engum erfiðleikum háð að starfrækja svona stóra hljómsveit? Eiríkur: Jú, jú, við vitum aldrei hvað B.B. King, Live at the Apollo: HANS HÁTIGN í HAM Gamli blúsnaglinn B.B. King er hreint ekki af baki dottinn, ef einhver heldur það. Á nýrri tónleikaplötu, sem tekin er upp í Apollo Theater í Nýju Jórvík í nóvember á síðasta árí, leikur kóngurinn, sem kominn er á sjötugsaldur, á gítar og syngur eins og honum er einum lagið með stórsveit á bak við sig, skipaða úrvals mönnum úr jazz-og blúsgeiranum. Meðal þeirra má nefna bassaleikarann Ray Brown, sem plokkar strengina listavei, básúnuleikarann Urbie Green, trompetleikarann Harry „Sweets" Edison, hljómsveitar- stjórann og píanóleikarann Gene Harrís og marga fieirí gamla refi sem og nýrri spámenn. B.B. King tekurtíu nýja og gamla slagara á plötunni og meðal þeirra nýju er upphafslagið When Love Comes to Town, eftir þá félaga í U2, sem King kýlir á af krafti. Síðan fýlgja gullkomin í kjölfar- ið og platan geislar af blús- stemmningu eins og hún geríst best. Enda er sagt að þegar B.B. King spilar í Harlem nái hann sér sjaldan jafn vel á strík. Og með slíka stórsveit með í leiknum getur útkoman vart orðið annað en geysigóð. GS. dagurinn ber í skauti sér. Þess vegna er okkar kjörorð aðeins fyrir daginn í dag. Er það ekki ágætis fyrirsögn: Að- eins fyrir daginn í dag? Einar: Ég held að þetta sé AA- slag- orðið. — En hvert er hugarfarið á bak við þessa hljómsveit? Eruð þið í þessu meira af gríni en alvöru? Eiríkur: Nei, af fullri alvöru. Kristinn: Þetta er okkar áhugamál. Einar: Já, alvarlegt áhugamál. Kristinn: En þetta er náttúrlega eng- in atvinnumennska. Eiríkur: Við leggjum allir höfuð- áherslu á þetta áhugamál, að minnsta kosti ég. Einar: Nú er það? — Eigið þið ekki tiltölulega fastan og dyggan aðdáendahóp? Einar: Jú, og við náttúrlega stefnum á að víkka hann. Við verðum t.d. á safnplötu frá Skífunni innan tíðar Kristinn: Aðdáendahópurinn saman- stendur a.m.k. af þeim sem hafa ver- ið í hljómsveitinni. Eiríkur: Og þeirra fjölskyldum og vinum. Jóhann: Það er nú talsvert. Einar: Svo held ég að öll íslenska þjóðin hafi skolfið fyrir framan Hemma Gunn á sínum tíma þegar við komum fram þar. Kristinn: Skolfið af hverju er ekki al- veg vitað. Eiríkur: Af gleði. Jóhann: Já, hún skalf að minnsta kosti. Einar: Þess má geta að Júpiter er í gamalli stjömufræði gleðistjarna. Við sækjum okkar gleði einmitt þangað. — Haldið þið að tónlist Júpiters höfði til margra? Eiríkur: Ég held að hún höfði til allra. Það bara átta sig ekki allir á því. Það má segja að hún höfði til undir- meðvitundarinnar. Einar: Hún höfðar kannski einna helst til fótanna. Og með þeim orðum, sem sannar- lega eru að sönnu, var samtalinu lok- ið og viðmælendur blaðamanns héldu upp á svið og tóku lagið. Eins og Júpiters er einni lagið. GS. HLJÓMSVEITIN FRÍÐA sársauki hélt tónleika í Púlsinum á fimmtudagskvöld þar sem hún spilaði frumsamiö efríi. í hljómsveitinni eru Andrí Öm Ciausen söngvarí, Fríðrík Sturiuson bassi, Eðvarð Vil- hjálmsson trommur, Guðmundur Höskuldsson grtar og Páll Ólafsson gítar. Þeim til aðstoðar voru Aðalheiður Þorsteinsdóttir hljómborð og söngkonumar Hanna Dóra Sturiudóttir og Krisflana Sveinsdóttir. Tímamynd: GS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.