Tíminn - 29.06.1991, Qupperneq 2

Tíminn - 29.06.1991, Qupperneq 2
ldV«;rW, HEUGIN J t'ailddrcfág liKíð; júiri í1991 Framsóknarmenn í Reykjavík efna til sumarleyfsferðar til Búlgaríu í júlí. Fararstjóri verður Finnur Ingólf sson. Nánari upplýsingar á skrifstofunni í síma 62-44-80 SUF-arar Fjölmennum í Steingrímsþúfu, laugardaginn 29. júní. Farið verðurfrá Borgarnesi kl. 10.30 og Reykjavík kl. 13.00 (frá BSÍ) og ekiö sem leið liggur austur í Steingrímsþúfu ( Landssveit. Það verður grillaö og þátttakendur hafi með sér kjöt, pylsur eða hvaö sem er á grilliö og auðvitað drykkjarföng eftir smekk og löngun. Einnig skóflur eða önnur verkfæri til gróðursetningar. Klæðist samkvæmt veðurspá, gerið þó ráð fyrir frávikum. Skylt er að mæta með grænt eða grænleitt höfuðfat ásamt fiokks- merki. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Önnu á skrifstofu Framsóknar- flokksins í síma 624480 eða Olgeirs í síma 93-78671 eftir kl. 19. Undirbúningsnefnd Sumartími skrífstofu Framsóknarflokksins Frá 15. maf verður skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III hæð, opin frá kl. 8:00-16:00 mánudaga-föstudaga. Verið velkomin. FramsóhnarHokkurinn --------------------------------------------^ Utboð Arnarnesvegur, Bæjar- braut - Reykjanesbraut Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboöum í ofan- greint verk. Lengd vegarkafla 1,1 km, fyllina og burðarlag 37.000 m3, skering 25.000 m3 og malbiksslitlag 12.700 m2. Vegurinn skal opnaðurtil umferðar 15. októ- ber 1991 og verkinu aö fullu lokið 15. júni 1992. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rík- isins, Borgartúni 5 (aðalgjaldkera), Reykja- vík, frá og með 1. júli 1991. Skila skal tilboöum á sama staö fyrír kl. 14.00 þann 15. júli 1991. Vegamálastjóri. v_____________________________________________J AREIÐANLEGAR HEIMILDIR íslensk ugla og fálki. Myndlrnar eru úr bók Andersons hins þýska, sem var helsta rit um ísland er Horrebow hóf rannsóknir sínar. Það var svo fullt af illgjörnum rangfærslum að Horrebow ver miklu rými til þess að hrekja þær. með sagt að maturinn sé það í raun og veru, eins og betur skal rakið í öðru sambandi. En að ís- lendingar fái lítið af þessu svo- kallaða ómeti sínu, stangast á við það sem höfundur segir annars staðar í riti sínu, þar sem hann álasar íslendingum fyrir ofát og matargræðgi. Vel má tala um harðfengi íslendinga að ákveðnu marki, en ekki á það sérstaklega við um börnin, því að um þau er annast og við þau dekrað, rétt eins og okkar börn, svo að þau eru ekki frá fæðingu knúin til hreysti af vinnu og illum aðbún- aði. Þegar piltar hafa náð þeim líkamsþroska að þeir séu færir um sjósókn, fara þeir að róa. Og það verður að játa að það er bæði erfitt verk og illur aðbúnaður yf- ir vertíðina. En fram að þeim aldri er bæði börnum og kven- fólki haldið mikið innan húss, svo að þau verði sem minnst fyr- ir kulda og öðrum óþægindum. Þetta er því furðulegra sem karl- ar verða síðar að leggja á sig mjög stranga erfiðisvinnu, sem þeir eru ekki vandir við á bernskuárum. Þegar ég segi að íslendingar séu hraustir, er átt við að þeir séu það á þroskaárum sínum milli tvítugs og fimmtugs. Það er nefnilega ekki óvenjulegt að burðum þeirra taki að hnigna um fimmtugsaldurinn og að þeir verði þá einhverjum sjúkdómi að bráð, sem leiðir til dauða, svo sem tæringu, brjóstveiki eða öðrum tærandi sjúkdómum. Sennilega má kenna þetta erfiði því hinu mikla og vosbúð, sem þeir þola þann tíma, sem sjór er sóttur og hversu ógætilega þeir fara með sig. Þannig hika þeir ekki við að stökkva fyrir borð, þegar bátarnir eru að lenda, til þess að styðja við þá, svo þeir brotni ekki. Við þetta verða þeir rennvotir og eru síðan oft lang- an tíma úti, jafnvel í kalsaveðri, án þess að skipta um föt. Af þessu má ráða hversu lítill fótur er fyrir því „að íslendingar verði fjörgamlir, margir nær 100 ára, og einnig að þeir njóti glaðrar og heilbrigðrar elli og hafi lítil kynni af sjúkdómum þeim og hrumleika, sem annars fylgir ellinni meðal þeirra, sem búa við aðra lifnaðarhætti.“ Það er mjög sjaldgæft að nokkur ís- lendingur verði 100 ára og meira að segja fátítt að þeir nái áttræðisaldri. Vel getur verið að einstöku menn séu heilsugóðir fram í svo háa elli, en langflestir verða lasburða með aldrinum, svo að þegar þeir eru komnir yf- ir fimmtugt hafa þeir ekki af miklu að státa um heilsufarið. Eins og áður er sagt þjást þeir að jafnaði af brjóstveiki og ýmsum tærandi sjúkdómum og vér munum ekki fyrirhitta marga menn á þeim aldri, sem eru sæl- legir og heilsugóðir, eins og títt er hjá oss. Það er þegar tekið fram að ís- lendingar nái ekki yfirleitt mjög háum aldri og um leið verða ástæðurnar, sem höfundur færir fyrir háum aldri þeirra, hrein vitleysa, en þær eru „að þeir dragi fram lífið í áhyggjulausri einfeldni á fábreyttum, vondum mat, en við mikla hreyfingu." Vér skulum ekki ætla að íslend- ingar séu þær skepnur að þeir skynji ekki áhyggjur og alvöru, né svo hamingjusamir að þeir þurfi ekki að bera nokkra um- hyggju vegna daglegs brauðs síns. Flestir íslendingar eru fá- tækir og hljóta að vinna baki brotnu, ekki einungis fyrir sjálfa sig, heldur fyrir hina, sem ræna arðinum af vinnu þeirra. Það veldur þeim áreiðanlega miklum áhyggjum að þurfa að sjá borgið konu og oft stórum barnahópi, áður en lokið er þeirri ævi, sem Guð hefur ákvarðað þeim. Það er því fullkomin fjarstæða að þeir lifi lífi sínu í áhyggjulausri ein- feldni. Þá er önnur ástæðan til þess að þeir nái háum aldri sögð vera sú að þeir lifi á fábreyttum, vondum mat. Eins og óhóf í mat og drykk, krydd og kræsingar, veikir líkamann og veldur elli- hrörnun fyrir tímann og styttir lífið, eins er víst að vondur og lítill matur getur ekki gert fólk gamalt og hraust, heldur miklu fremur veikir hann krafta þess, en óbrotin, kjarngóð fæða, sem neytt er í hófi, skapar heilbrigði og lengir lífið. Hin stöðuga og mikla hreyfing, sem höfundur talar um, er með þeim hætti að á sumum tímum ársins reyna menn allt of mikið á sig, en hreyfa sig svo of lítið á öðrum árstímum. Nokkra mánuði á vetrum hafa karlmenn ekkert að gera, svo að líkami þeirra stirðn- ar af æfingarleysi, en svo koma tímar þegar áreynslan er óhóf- lega mikil og mun þetta fremur stytta en lengja líf þeirra. Enn síður gætu ummæli höfundar átt við konurnar, því að fjarri fer að þær hafi mikla hreyfingu. Þegar heyvinnunni sleppir, sitja þær mest við vinnu sína, svo sem að tæja ull, kemba, spinna, prjóna sokka eða vettlinga og vefa vað- mál, sauma föt, gera skó eða annað þess háttar, sem engrar hreyfingar krefst. Höfundur segir réttilega: „ís- lendingar eru almennt vel vaxn- ir og hafa fallegar, hvítar og heilbrigðar tennur, sem mjög er undrunarvert, eins og loftslagi er háttað og fæði þeirra vont.“ En í stað þess að furða sig á þessu er nær að draga þá skyn- samlegu ályktun að fyrst líkams- vöxtur þeirra er í svo góðu lagi, hljóti loftslagið að vera heil- næmt og fæðið ekki svo lélegt og heilbrigði þeirra stafi af hinu hreina lofti, sem þeir alast upp við, eins og höfundur sjálfur heldur. Það er mjög algengt meðal allra þjóða að alþýða manna og erfiðismenn, svo sem bændur og búalið, séu með mjög góðar tennur, af því að þeir éta ekki eins mikið góðgæti, sem spillir þeim, og auðmenn og heldra fólk gerir, sem hefur efni á að spilla tönnum sínum á margvíslegan hátt. Almúga- menn gera sér að góðu harðar skorpur af grófgerðu rúgbrauði, það heldur tönnum þeirra hreinum og hvítum, svo að þeir þarfnast hvorki tannbursta né hreinsidufts. Sama hygg ég að harðfiskurinn geri fslendingum, en hann er hversdagsfæði þeirra. Ég get ekki samþykkt að „kon- ur séu jafnokar karla að kröftum og harðfengi." Karlmenn sýna ótvírætt harðfengi í því mikla erfiði sem fylgir sjósókn þeirra. Konur eru fremur kulvísar og vinna engin þau störf, sem kraft þarf til, nema heyvinnuna. Allra síst eru þær gæddar þeim þrótti og hörku „að þær fæði börn sín greiðlega, baði sig jafnskjótt og barnið er fætt og hlaupi síðan brott.“ Þvílíka hestaheilsu hafa íslenskrar konur ekki. Oft vill það til að full þörf væri lærðra Íækna og ljósmæðra við barns- burð, því að fæðing er íslenskum konum ekki hægari en öðrum konum, og fjöldi kvenna deyr af barnsburði, vegna þess að þær skortir hjáip og hjúkrun. Aldrei hefur þess heyrst getið á íslandi að sængurkona fari í bað um leið og barnið er fætt, og því síð- ur eru þær svo hamingjusamar að þær geti hlaupið frá öllu sam- an að afstöðnum barnsburðin- um. Venjulega liggja konur á sæng í 8 daga og stundum leng- ur. Þær verða oft að þola miklar og þungar þjáningar við barns- burð, því að ljósmæðurnar kunna ekki að hjálpa þeim eins

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.