Tíminn - 29.06.1991, Page 4
12
HELGIN
Laugardagur 29. júnt 1991
TJALDVAGNAR
og allt í útileguna:
Bómull (l.i.OOOj
N.vlon (12.900)
I byrjun þessa mán-
aðar giftist elsta dótt-
ir sellósnillingsins
Mstislav Rostropov-
ich frönskum auð-
mannssyni í París.
Viðhöfnin hefur vakið
athygli víða um lönd
er enn í fremstu röð. Ættmenni
hans voru meðal margra heims-
þekktra gesta í brúðkaupinu, en
gestir voru um 500 talsins.
Hátíðarhöldin stóðu í fimm daga í
París og tóku þá við þriggja sólar-
hringa „arabískar nætur“ í Mar-
okkó, sem áður segir. Giftingin fór
fram í ráðhúsinu í París og var það
borgaraleg gifting. Þar var við-
staddur borgarstjóri Parísar,
Jacques Chirac, og kona hans, en
frúin er mikill vinur Rostropovich-
fjölskyldunnar.
Eftir giftinguna í ráðhúsinu tók
við veisla undir berum himni í
görðum Marmottan-safnsins og
voru þar mörg hundruð gesta.
Sama kvöld fór fram athöfn í anda
rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar
f kirkju safnaðar hennar við Daru-
stræti.
íburðurinn var með fádæmum.
Sellósnillingurinn fylgdi dóttur
sinni til kirkjunnar og bar við það
tækifæri orður þær sem honum
hafa hlotnast víðsvegar um heim-
inn. Koma þeirra feðgina hafði
mikil áhrif á brúðgumann að von-
um, sem ekki hafði fyrr séð brúðar-
skart Olgu, eins og siðir rétttrún-
aðarkirkjunnar gera ráð fyrir.
Hönnuður brúðarkjólsins var Yves
Saint-Laurent og var hann úr
gullnu tjullefni og bar brúðurin
við hann höfuðdjásn úr gulii.
í stað hinna venjulegu hvftu rósa
var Olga með vönd af rauðum rós-
um, sem eru uppáhaldsblóm móð-
ur hennar. Brúðarmeyjarnar voru í
kjólum með blómamynstri og báru
höfuðsveig úr gulum rósum og
höfðu rauðan linda um mitti sér.
Meðan á athöfninni stóð voru
brúðhjónin látin standa undir
tveimur kórónum, en allt um kring
gnæfðu íkonar og krossar kirkj-
unnar. Brúðurin gaf keisaraynjum
keisaratímans ekki eftir að íburði á
neinn hátt.
Olga er heimsborgari eins og fað-
ir hennar, og þekktur fiðluleikari.
Faðir hennar fæddist í Sovétríkj-
unum og hóf þar feril sinn. Hann
öðlaðist heimsfrægð á tónleika-
ferðalögum erlendis og árið 1977
OPIÐ ALLAR
HELGAR í SUMAR
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
Olga Rostropovich í brúðar-
kjólnum, sem hannaður var af
Yves Saint-Laurent.
Rostropovichfjölskyldan á hinum stóra degi ásamt brúöarmeyjum
eistu dóttur sinnar.
Brúðkaup, sem líklegt er að verði
í minnum haft í mörg ár, fór fram í
París í fyrstu viku þessa mánaðar.
Þar giftist Olga Rostropovich, dótt-
ir sellósnillingsins heimskunna,
Olaf Guerrand-Hermes. Viðhöfnin
var með ólíkindum og stóðu hátíð-
arhöld vegna brúðkaupsins bæði í
París og í Marrakech í Marokkó.
Olga, sem er 34 ára, er elsta dótt-
ir Rostropovich og konu hans,
óperusöngkonunnar Galinu Pavl-
ovu Vishnevskayu, en endurminn-
ingar hennar komu út á íslensku
nú fyrir nokkru, þar sem hún lýsir
einstæðum ævi- og listamannsferli
sínum.
Olaf er fjórum árum yngri en
kona hans og er af þekktri auð-
mannafjölskyldu, en Elena, amma
hans, stofnsetti heimsþekkt fyrir-
tæki er framleiðir lúxusvarning og
Tjöld, svefnpokar, himnar,
gönguskór, allur útilegufatnaður,
stólar, grill, borð, sólskýli
og margt margt fleira.
Vatnsheldir með útöndun
'Domon
með rússneskum íburði
Brúðhjónin vlð athöfnina í kirkjunni.