Tíminn - 20.07.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 20. júlí 1991
Wlí' '-T-i M
HELGIN JL 11
frá Húsavík...
Heim og setið þar. Til Jóns Sig-
urðssonar kl. 8. Þar las eg í Föður-
landinu um ákafa Brúnsvíkinga
móti Dönum, það gladdi mig og
datt mér í hug:
Brúnsvíkingar blessaðir,
berjið þið á Dönurri!
þeir eru meir en maðkaðir
og mjög svo líkir hönum.
25. apríl
Á fætur kl. 10. Ritað framhald af
formálanum fyrir Norðurfara.
Borðað kl. 3. Ritað formálann.
Fært það Möller kl. 7. Hana! Þar
eru Prússar búnir að reka Dani til
Flensborgar, það er hefndin sem
nú kemur fyrir gamlar syndir. Eg
fór til Mjóna kl. 8 og hitti Jónas,
aldrei hef eg séð slík andlit sem á
Dönum, svoddan felmtur var á
þeim öllum. Heim og tókum Ei-
rík. Danir vilja ei lofa Islendingum
að velja, en annist þeir nú sjálfa
sig. Fórum til Jóns Sigurðssonar,
en hann var ei heima og hittum
við hann hjá Mjóna. Heim kl. 11
— og háttað kl. 12.
30. apríl
Á fætur kl. 10 f morgun. Eg hef
alltaf verið að slæpast og lesa ýmis
blöð. Borðaði hjá Vincent og fór til
Mjóna. (Eg var ei heima nema litla
stund hjá mömmu í dag.) Heim
kl. 10 og ætlaði nú að skrifa frá
Evrópu, en eg fór að lesa í Berling
eldri til undirbúnings og Ljunges
„Scener" etc. Dönum hjálpa Rúss-
ar, ó, að Napóleon lifði nú til að
berja á þeim kúgunardjöflum,
sem allir ættu að hata, því láta ei
Prússar Pólland sitt laust? Og þá
yrðu allir siðaðir menn á móti
Rússum.
9. maí
Á fætur kl. 9 og leiðrétt nokkuð
af handritinu af „Frá Norðurálf-
unni“. Fært það Möller; illa geng-
ur prentunin. Eg hef verið að
hugsa um stjórnina sem nú er hér
og eg finn betur og betur hve
óþolandi hún er, það er eins og
farg liggi á hug og munni og það
veit guð minn, að eg skal gjöra allt
til að steypa henni, sem eg get, og
þess mun ei lengi að bíða, því það
er farið að versna hljóð f borgur-
um hér; eg gæti vel séð Lehmann
og Plough hengda, því einkum í
Plough er holdgað allt sem napr-
ast, hrokalegast og auðvirðilegast
er í danskri þjóðarlund, og frá því
eg fyrst sá hann hefur mér staðið
stuggur af honum. Föðurlandið er
líka svívirðilegt blað, sem oflengi
hefur haldist við og tekið upp á sig
höfðingjasvip yfir Hafnarpóstinn,
sem er hið einasta almennilega
blað hér.
En þessi vesæla danska þjóð, sem
sefur með opin augun á heimsku
sinni og þykist alltaf vera mikil,
guð er nú að straffa hana. Það er
hlægilegt. Nú er prentfrelsi hér,
en enginn þorir að brúka það; ó!
að Rússar kæmu, svo Frakkar
gætu fljótt ásamt Þjóðverjum
byrjað stríð frelsisins og Norður-
Ameríka, hetjan mikla, komdu
okkur til hjálpar og England, Eng-
land, þá er þér hætt...
23. maí
Nú kom eg heim frá Jóni Sig-
urðssyni. Þar var Sivert og hélt
með Dönum; eg skil ei hvemig
nokkur getur það, hatað svo
mannkynið, að hann vilji það falli,
svo þessi auma milljón og það sú
armasta og vesalasta sem til er
geti unnið sigur. En því fer betur,
það mun ei verða og bíðum nú um
stund og sjáum svo hvort Þýska-
land ei eftir 20 ár verður orðið eitt
mesta land í heimi? Það er óhugs-
andi annað um þjóð með slíkri
menntan. En Danir hugsa nú í
heimsku sinni þeir geti spyrnt
móti broddunum, guð hjálpi þeim
Kaupmannahafnarborgarar
kveðja hermenn er halda skulu
með járnbraut til vígvallarins
1848. Jámbrautin náði þó að-
eins til Hróarskeldu á þessum
tíma.
og taki af þeim blinduna, ef unnt
er!
28. maí
Á fætur kl. 10. Til Mjóna. Oná
Löngulínu og gengið þar með
einni af Shapersdætrum, sem
heitir Clara; þar hef eg nú ei kom-
ið lengi. Mætt dóttur Gersens og
fylgst með henni ögn. Það er leitt
fýrir mig að eg get ei talað svo við
neinn mann hér að hann ei brigsli
mér um Schleswig- Holsteinism-
us og því verð eg Iáta vera að tala.
Á Löngulínu mætti eg Confer-
ensráði Thorsteinsson gamla, syn-
ir hans Ieiddu karlinn hálfblindan,
en glaður var hann samt og sagði
út af Dönum: „Við erum nú komn-
ir á sparibrækurnar núna trú’ eg,
en það var nú Iíka heldur en ekki
eftir orustuna við Flensborg, en
þá var Adam ei nema 24 stundir í
Paradís, því þá kom syndin við
Slésvík og rak hann þaðan.“ Guð
Shinum góða, gamla manni til
íds...
4. júní sunnudag
Á fætur kl. 10. Eg las í rúmi mínu
í gær bréf frá Meza til konu hans,
sem hún léði mér; það er lýsing á
orustunum og er hann óánægður
með Dani; eg hef annars alténd
haldið hann nógu góðan her-
mann, og það hann segir er víst
gott, en það kemur svo fram að
aðrir hlæja að því og er það rangt,
en þeir skilja hann ei, og hann
vantar afl til að fá á þá (imponere
dem).
5i / /
. juni
... Kl. er 10 og stúdentar eru að
syngja úti í garði, líklega greyin
sem eiga að fara á morgun. Eg fer
að svala mér á tveimur óröngum,
sem eg keypti.
Eg las í dag í Berling útleggingu
af þætti úr Schleswig Holsteini-
sche Zeitung: prýðilega var hann
saminn, þeir spurðu Þjóðverja
hvort þeir ei fyndu til neinnar
blygðunar yfir smán Þýskalands
eða gremju yfir því er Danir hæld-
ust um? Það er víst að eg finn það.
Mikið syngja nú stúdentar og un-
andi er líka í trjáskugganum í
dimmunni. En eg fer að hátta, kl.
er að slá 11.
BÆNDUR
SlÐSUMARSVERÐ
Best búnu vélarnar á
hagstæðasta verðinu.
CLAAS tekur þátt í leiknum og
býður síðsumarsverð á hey- og
rúllubindivélum.
Til afgreiðslu nú þegar.
Fyrsta greiðsla 15. nóv. 1991.
Mlésúdftq
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVIK SIMI 91-670000