Tíminn - 20.07.1991, Blaðsíða 12
20 Tíminn
Laugardagur 20. júlí 1991
Við fjöruborðið í Hafnarfirði var tekið á móti Húnverjum og fylgiliöi af höfðingsskap.
Tímamyndir: GS.
Um borð í víkingaskipinu Erninum. Það var gjöf
Norðmanna til íslendinga á afmæli fullveldisins árið
1974. Það er varðveitt á Árbæjarsafni, en er nú not-
að við tökur á myndinni „Svo á jöröu".
HUNVERJAR blésu til veislu um mið-
bik þessarar viku. Var föngulegum
flokki manna stefnt til Nauthólsvík-
ur þar sem stóðu í fjöru íslenskir
tónlistarvíkingar, klæddir vaðmálstreyjum
og með vopn í höndum. Lá við strönd vík-
ingaskipið Örninn, gjöf frá frændum vorum
Norðmönnum, reiðubúið til siglingar með
höfðingja og fylgifólk, sem leið lá til byggða
Hafnarfjarðar. Var siglt af stað og stóðu þar
atgervismenn í stafni og vísuðu leið. Á skips-
fjöl fóru menn gjarnan með gamanmál og
dreypt var á brjóstbirtu úr hrútshorni, sem
veitti yl í svalri sjávargolu.
Til Hafnarfjarðar var komist klakklaust. Biðu
þar á bryggju hafnfirskir höfðingjar og tóku
á móti komufólki af gestrisni mikilli. Kálfar
lölluðu þar letilega um tún og fiðurfénaður
flögraði. Var liði fylkt til Fjörukrárinnar, þar
sem sest var við langborð og veislan hófst.
Spilaði þar hæfileikamaður á langspil og
þjónustustúlka söng vísur að íslenskum sið.
Borinn var hákarl og annað fiskmeti á borð
og mjöður teygaður úr krúsum. Því næst var
borið fram nautakjöt, grillað á kolum og
endahnúturinn var bundinn á málsverðinn
með skyri. Var hrútshornið ætíð innan seil-
ingar.
Um miðbik veislunnar kvað sér hljóðs Hún-
verji og mælti: „Á sumri íslensks ljóðs og
Stefán Hilmarsson otar spjóti sínu, en yfirleitt otar
hann hljóðnema.
Það eru hljómsveitirnar Sálin hans Jóns mín, Síðan
skein sól og Stuðmenn sem hafa yfirumsjón með
Húnavershátíðinni. Stefán Hilmarsson í Sálinni og
Helgi Bjömsson og Jakob Magnússon í Sólinni eru
til í slaginn.
lags leggjast í víking þeir andans menn sem
lög og ljóð íslenskri alþýðu flytja. Þá mun
stefnt til Húnaþings og haldin sönghátíð hin
mesta." Var þar kominn Ingi Hans, einn for-
vígismanna Húnavershátíðar, sem haldin
verður um komandi helgi verslunarmanna.
Var vel látið að hans máli, en í lok ræðu
sinnar mælti hann svo fyrir „að með lögum
skyldi land byggja og með ljóðum lönd
nema.“
í salnum voru samankomnir margir valin-
Ákaflega þjóðlegt.
kunnir tónlistarmenn, sem allir munu stíga
á stokk í Húnaveri. Mátti þarna þekkja þá
Stuðmenn Jakob, Þórð og Ásgeir, meðlimina
í Sálinni hans Jóns míns, Síðan skein sól og
Todmobile. Fór svo að Sálin mundaði magn-
ara sína og míkrófóna og seiddi fram nokkur
lög úr sinu söngvasafni. Settu því næst full-
trúar fjölmiðla saman sveit og voru nokkrir
söngvar að hætti Engilsaxa kyrjaðir við und-
irtektir. Að loknum fjölmiðlaleik hóf Síðan
skein sól sinn hljóðfæraleik. Tónlistargoðinn
var blótaður í þessari víkingaveislu Hún-
verja, og var mælt að þetta væri aðeins for-
smekkurinn af tónlistarþingi því sem fram
fer í Húnaveri.
Héldu því næst gestir heim til kofa sinna,
glaðir og reifír. GS