Tíminn - 20.07.1991, Blaðsíða 7
HELGIN
Laugardagur 20. júlí 1991
MYNDBÖND
15
Augnakonfekt fyrir unnendur fallegra bíla
Bergvík h.f. hefur gefið út þrjú
myndbönd þar sem getur að líta
það helsta sem fyrir augu ber í
bílaheiminum í Bandaríkjunum
um þessar mundir.
„Þrumugnýr og þotubflar" er 45
mín. löng mynd um kvartmílu-
akstur. Sýnt er frá keppni í grín-
bílaflokki, en á milli getur að líta
spyrnur í hinum ýmsu flokkum,
allt frá götubílum upp í eldspú-
andi bíla knúna þotuhreyflum.
Þá eru viðtöl við helstu ökuþóra í
grínbflaflokknum og þeir gefa
áhorfendum innsýn í sinn sér-
stæða heim.
Myndin er hin fróðlegasta og
jafn nauðsynleg í safni íslenskra
kvartmflumanna og „Hot Rod“
blöðin. Þulur myndarinnar hefði
þó gjarnan mátt tala skýrar og
hljóðsetning myndarinnar hefði
mátt vera betri.
„Kraftakaggar" er eins: bflasýn-
ing frá upphafi til enda. Litið er
inná bflasýningar, þær stærstu í
heimi, en þar eru sérsmíðaðir
„kaggar" í líki fornbfla allsráð-
andi (svokallaðir Hot Rod bflar).
Sannkallað augnakonfekt fyrir
unnendur eðalvagna. Myndin er
30 mín. löng.
„Framtíðin og fornbflar" er ekki
ósvipuð „kraftakaggamyndinni",
en hér getur að líta raunverulega
fornbfla. Sannkallaða eðalvagna
fortíðarinnar. Einnig er skyggnst
aftur í tímann og gamlar sjón-
varpsauglýsingar skoðaðar, þar
sem ameríski draumurinn er á
fjórum hjólum.
Þá er í myndinni horft fram í
tímann. Sýndur er DeLorean-
bfll, sem smíðaður var sem eftir-
líking af bflnum úr myndunum
,Aftur til framtíðar" (Back to the
Future). Myndin er 30 mín. löng.
Þýðandi og þulur í myndunum
er Ari Arnórsson. Hann á hrós
skilið fyrir ágæta þýðingu á erf-
iðu viðfangsefni, enda þekkir
hann vel til í heimi bflaáhuga-
manna.
Myndirnar eru sölumyndir ein-
göngu og hægt er að nálgast þær
í Miklagarði og Bflabúð Benna.
Verðið á hverri mynd er 1.990 kr.
BL
5 MANNA FÓLKSBILL MEÐ VORUPALLI
TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR
Búnaður:
■ Dieselhreyfill
■ Tengjanlegt aldrif
■ Tregðulæsing á afturdrifi
■ Framdrifslokur
Verð kr. 1.394.880.- m.vsk.
Kjörinn bíll fyrir:
■ Vinnuflokka
■ Bændur
19 Iðnaðarmenn
9 Útgerðarmenn
9 Verktaka
9 Fjallamenn
HEKLA
LAUGAVEGI174
SÍMI695500
A
MITSUBISHI
MOTORS
ÞRIGGJA. ÁRÆ ÁBYRGÐ
Fæst einnig með lengdum palli
Kr. 1.534.880
+ vsk. 302.044
Verð kr. 1.232.836