Tíminn - 17.08.1991, Blaðsíða 10
18
HELGIN
Laugardagur 17. ágúst 1991
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Uns dauóinn
oss aóskilur
Austin í Texas er mjög falleg borg og hinn gríðarstóri háskóli sem
breiðir úr sér í miðborginni er mjög fallegur háskóli, einn sá besti
í Bandaríkjunum. En skuggi morða liggur yfir háskólasvæðinu og
hverfunum í kring þar sem margir stúdentanna búa. Skugginn
fellur frá stóra klukkuturninum sem tilheyrir skólanum.
Það var á þessu hóteli sem þeir félagar sáu að komið var að
skuldadögunum og forðuðu sér yfir í annan heim.
Klukkutum skólans sést langt
að, sérstaklega þegar Texas Long-
horns hefur unnið fótboltaleik. Þá
er tuminn lýstur upp með appels-
ínugulum ljósum sem varpa birtu
um allt svæðið.
Nú til dags em þeir ekki margir,
nema kannski þeir allra svartsýn-
ustu, sem hugsa um morð þegar
þeir horfa á turninn. En saga
turnsins er blóðug. Það var 1. ág-
úst 1966 að Charles Whitman fór
upp í tuminn og skaut á fólk þaðan
og varð mörgum að bana áður en
hann féll sjálfúr fyrir skotum lög-
reglunnar.
Þessi dagur er svo til alveg
gleymdur nema þegar eitthvað það
gerist sem tengir mannsmorð við
skólann eða umhverfi hans. Slíkt
gerist í fleiri skólum í Bandaríkj-
unum og oftar en menn kæra sig
um að vita. Þar sem háskólar
tengjast yfirleitt tilhugsuninni um
efnileg ungmenni þykir það mjög
fréttnæmt þegar slíkir voðaatburð-
ir gerast í tengslum við þá.
Sunnudagurinn 21. október 1990
var mjög svo rólegur í Hyde Park
hverfinu sem er rétt norðan við há-
skólann í Austin. Meginhluti íbú-
anna þar er háskólastúdentar. Það
er oft líflegt í hverfmu en sunnu-
dagseftirmiðdagamir voru yfirleitt
rólegir því þá vom íbúarnir að búa
sig undir kennslustundir næsta
dags.
Það var rétt fyrir klukkan níu um
kvöldið að hringt var í hjón sem
bjuggu á 400 West 43d Street.
Konan sem hringdi var áhyggjufull
og í uppnámi.
Hún sagði að hún hefði verið að
reyna að ná símasambandi við
dóttur sína í margar klukkustund-
ir en ekki fengið neitt svar. Þetta
var mjög óvenjulegt þar sem unga
stúlkan, Tiffani Bmce, 18 ára ný-
nemi, eyddi sunnudögunum alltaf
í heimanámið. Móðir hennar
þekkti námsvenjur dóttur sinnar
og varð því mjög áhyggjufull.
Hún hafði heimsótt dóttur sína í
háskólahverfíð og vissi því hverjir
vom nágrannar hennar og leitaði
nú á náðir þeirra og bað þá um að
aðgæta hvort allt væri í íagi. Hún
sagði þeim hvar Tiffani faldi hús-
lykil fyrir utan íbúð sína.
Nágrannarnir fundu lykilinn og
fóru inn í íbúðina. Þau rak í rogast-
ans þegar þau sáu blóðblett á
stofugólfinu. Þau fóm ekki lengra
en snem samstundis heim til sín
og kölluðu á lögregluna og létu
vita að eitthvað hræðilegt hefði
gerst í íbúð stúlkunnar.
Ófögur aðkoma
Þegar lögreglan kom innan
skamms fylgdu lögreglumennimir
blóðslóðinni úr stofunni inn í bað-
herbergið í litlu íbúðinni. Þar
fundu þeir Tiffani Bmce.
Stúlkan lá á bakinu á baðherberg-
isgólfinu og vom hand- og fótlegg-
ir teygðir út frá líkamanum. Hún
var í sinnepsgulum sokkabuxum
sem höfðu verið dregnar niður að
hnjám. Samlit síð peysa sem hún
var í hafði verið skorin í sundur að
framan.
En það sem vakti helst athygli
lögreglumannanna vom þrjú ljót
skotsár á líkinu. Eitt í brjóstinu og
tvö á höfðinu. Breitt silfurlitt lím-
band hafði verið sett yfir munn
hennar og nef, límband sem inn-
brotsþjófar og kynferðisafbrota-
menn nota mikið.
Réttarlæknirinn áleit að stúlkan
hefði verið látin í tvo eða þrjá daga.
Líkið og blóðblettirnir var myndað
og blóðsýni tekin á meðan lög-
reglumennirnir leituðu vandlega í
lítilli og snyrtilegri íbúðinni að
sönnunargögnum.
Þeir fundu engin merki um inn-
brot. Reyndar benti kennslubók í
latínu, sem lá á hvolfi í sófanum, til
þess að Tiffani hefði setið eða legið
í sófanum og verið að læra þegar
morðinginn tmflaði hana. Þar sem
engin merki sáust um innbrot dró
lögreglan þá ályktun að Tiffani
hefði þekkt þann sem myrti hana á
svo mddalegan hátt og hefði lík-
lega sjálf hleypt viðkomandi inn.
Þegar krufningin hafði verið
framkvæmd kom í ljós að Tiffani
hafði ekki verið nauðgað. Allt benti
til þess að föt hennar hefðu verið
skorin í sundur og færð úr lagi að
henni látinni.
Helsta sönnunargagnið sem
fannst á vettvangi var blóðugt
handarfar á stólsetu. Rannsókn
leiddi í Ijós að handarfarið var ekki
af hinni myrtu.
Þó svo að lögreglan fyndi ekkert
sem bent gæti til átaka, eins og
húsgögn á hvolfi eða aðra óreiðu,
tók hún eftir því að nokkrar neglur
hennar vom brotnar og gat það
bent til þess að hún hefði reynt að
verjast árásarmanninum.
Kmfningin leiddi í ljós að Tiffani
Bmce hafði verið skotin af stuttu
færi, að öllum líkindum með
skammbyssu. Réttarlæknirinn
sagði að hvert skotanna þriggja
hefði haft banvæn áhrif um leið.
Ekki leit út fyrir að leitað hefði ver-
ið í íbúðinni eða neitt tekið þaðan.
Hver var ástæðan?
Tiffani hafði ekki verið nauðgað
og engu verið stolið og var lögregl-
an því ráðþrota um hver ástæða
hefði verið fyrir morðinu.
Lögreglan eyddi tíu klukkustund-
um í íbúðinni í leit að vísbending-
um.
Það var ekkert að finna í lífí stúlk-
unnar sem bent gæti til þess hver
hefði getað haft ástæðu til að vilja
hana feiga. Þegar lögreglan yfir-
heyrði ættingja hennar og vini
fengust þær upplýsingar að hún
hefði verið hvers manns hugljúfi
og góður námsmaður. Hún hafði
sótt skóla í Houston. Skólastjórinn
þar sagði að hún hefði verið af-
burða nemandi og einkum haft
áhuga á listum og sögu. Hún hafði
verið vinsæl og mannblendin.
Tiffani hafði skrifað foreldrum
sínum skömmu áður en hún var
myrt og lýst þar ánægju sinni með
háskólalífið og sagst helst vilja vera
í skóla það sem eftir væri ævinnar.
Lögreglumönnunum Brent
McDonald og Bruce Boardman var
falin rannsókn málsins. Þeir hófust
handa strax á mánudeginum við að
yfirheyra alla sem þekktu Tiffani,
ættingja, vini og skólafélaga. Eins
og venjan er við morðrannsóknir
einbeittu þeir sér að því að reyna
að þrengja hóp þeirra sem til
greina komu, einkum þar sem tal-
ið var að Tiffani hefði þekkt morð-
ingja sinn.
Ibúar Hyde Park urðu skelfingu
lostnir þegar þeir heyrðu um
morðið. Þetta var síðasti ofbeldis-
glæpurinn í röð margra slíka sem
átt höfðu sér stað í hverfinu — þar
á meðal óleyst mál þar sem ung
stúlka hafði verið kyrkt á heimili
sínu 30. nóvember 1986. Og und-
anfarin fimm ár hafði verið framin
þar hver nauðgunin á fætur ann-
arri og gekk árásarmaðurinn enn
laus og var kallaður Hyde Park
nauðgarinn.
Skýrslur lögreglu sýndu að 133
kynferðisglæpir og 38 líkamsárásir
höfðu verið framin á svæðinu. Hy-
de Park nauðgarinn var grunaður
um að minnsta kosti þrjár nauðg-
anir og fjórar nauðgunartilraunir,
en lögreglan var viss um að árás-
irnar hefði verið fleiri, en ekki ver-
ið kærðar. Kynferðisglæpirnir
höfðu allir verið framdir á konum
á aldrinum 18 ára til þrítugs og
höfðu átt sér stað á heimilum
þeirra.
Flestar þeirra höfðu búið einar.
Ungur nýnemi sem bjó skammt frá
Tiffani sagði: „Ég er bara 18 ára
sjálf. Þetta hefði getað verið ég.“
Grunsamleg hegðun
Lögreglan leitaði á náðir almenn-
ings og bað alla sem höfðu hitt eða
talað við Tiffani vikuna áður en
hún var myrt að hafa samband.
Vinur hennar gaf sig fram og sagð-
ist hafa verið heima hjá henni
fimmtudagskvöldið 18. október og
hefðu þau verið að læra undir lat-
ínupróf. Hann sagðist hafa farið frá
henni um klukkan kortér yfir tíu
um kvöldið. Hún hefði þá verið
klædd sömu fötunum og hún var í
þegar hún var myrt.
Lögreglan kannaði feril hans og
gat útilokað hann frá grun. En frá-
sögn hans gat bent til þess að Tiff-
ani hefði verið myrt það kvöld eftir
að skólabróðir hennar hélt heim-
leiðis, þar sem vitað var að hún
hafði verið látin í tvo til þrjá daga
áður en lík hennar fannst. Og hún
hafði ekki mætt í latínuprófið sem
var klukkan 10 á föstudagsmorg-
uninn.
Morðið á Tiffani Bruce hlaut mjög
mikla umfjöllun í fjölmiðlum.
Tveimur dögum eftir morðið hafði
ungur maður samband við lögregl-
una. Hann sagðist hafa ákveðið að
láta lögregluna vita af einkenni-
legri hegðun samstarfsmanns síns.
Hann sagði að félagi sinn hefði
verið að gera ráðstafanir til að yfir-
gefa fylkið og jafnvel landið. Hann
hefði farið og keypt mikið af við-
legubúnaði, föt, myndavél, hnífa,
byssu og margt fleira. Á laugardeg-
inum, daginn áður en Tiffani
fannst, hafði maðurinn, sem hét
Matt Novatny, ásamt nánum vini
sínum hlaðið dótinu í bláan
Chevrolet Suburban og hafði hvor-
ugur þeirra sést síðan.
Sá sem hringdi skýrði einnig frá
því að Matt Novatny hefði annast
undirskriftasöfnun fyrir umhverf-
ismálastofnun og þá hefði hann
hitt Tiffani Bruce. Eftir það talaði
hann mikið um hana og virtist
hafa fengið hana á heilann.
Símtal þetta setti lögreglumenn-
ina McDonald og Bordman á fulla
ferð. Þeir könnuðu feril Novatnys
og töluðu við alla sem þeir fundu
sem höfðu haft einhver kynni af
honum. Þeir komust að því að um-
Vinirnir tveir voru mjög ólíkir en áttu það sam-
eiginlegt að vera hugfangnir af dauðanum. Þeir
gerðu allt saman — fram í rauðan dauðann.