Tíminn - 21.08.1991, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 21. ágúst 1991
Tíminn 9
Landsbjörg
- landssamband björgunarsveita stofnað
Ákveðið hefur verið að sameina í
ein samtök Landssamband hjálpar-
sveita skáta og Landssamband flug-
björgunarsveita. Enn fremur hefur
Björgunarsveitin Stakkur í Keflavík
ákveðið að gerast aðili að nýju sam-
tökunum. Alls verða því um 30
björgunarsveitir innan þeirra. Fé-
lagar sveitanna eru á þriðja þúsund,
þar af virkir félagar um 1200. Stofn-
þing nýju samtakanna verður haldið
á Akureyri, laugardaginn 28. sept-
ember nk.
Efnt var til almennrar samkeppni
um nafn á samtökin og bárust um
700 tillögur. Ákveðið var að velja
nafnið Landsbjörg — landssamband
björgunarsveita úr tillögunum. Að-
eins einn tillöguhöfundur átti þessa
hugmynd og fékk hann að launum
veglegan ferðavinning. Höfundur
nafnsins er Lárus Þórarinsson flug-
umferðarstjóri, en hann starfaði í
skátahreyfingunni á yngri árum og
var félagi í Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík.
-js
Lárus Þórarínsson tekur viö
verðlaunum úr hendi Ólafs
Proppé, formanns Lands-
bjargar.
100 ára afmæli Staðarfells-
kirkju minnst.
Staðarfells-
kirkja 100 ára
Á þessu ári eru Iiðin 100 ár frá
því að Staðarfellskirkja á Fells-
strönd í Dalasýslu var vígð, en
vígslan fór fram síðla árs 1891.
Kirkja undir Staðarfelli er nefnd
í kirknaskrá Páls biskups frá því
um 1200 og er það elsta heimild
um kirkju á þessum stað. TVúlegt
þykir að sóknarkirkja hafi þó ver-
ið þar að minnsta kosti frá setn-
ingu tíundarlaga árið 1096.
Kirkjan var helguð Páli postula.
Elsti máldagi hennar er frá árinu
1327 og lágu þá til hennar 20 bæ-
ir. Það er einum bæ færra en lög-
býli voru í sókninni á seinustu
öldum. Nú eru í sókninni 14
byggð býli með 76 íbúa. Auk þess
dvelja á Staðarfelli liðlega 30
manns vegna starfrækslu með-
ferðarheimilis þar á vegum SÁÁ.
Kirkjan var byggð sumarið 1891
af kirkjueiganda, Hallgrími Jóns-
syni bónda, en yfirsmiður var
Guttormur Jónsson frá Hjarðar-
holti. Söfnuðurinn tók við kirkj-
unni 16. ágúst 1964 en þá afhenti
ríkissjóður hana eftir verulegar
endurbætur.
Aldarafmælis Staðarfellskirkju
verður minnst með hátíðarguðs-
þjónustu í kirkjunni sunnudag-
inn 1. september klukkan 14:00.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, mun predika og sókn-
arprestur kirkjunnar, séra Ingi-
berg J. Hannesson prófastur á
Hvoli, mun þjóna fýrir altari. Að
guðsþjónustu lokinni verða
bornar fram veitingar í Sam-
komuhúsinu á Staðarfelli í boði
sóknarnefndar.
Endurskoða
Formleg samtök gegn aðild að EES og EB stofnuð á höfuðdaginn:
Fresturinn nýttur til
undirskriftasöfnunar
Samtök gegn aðild íslands að EES og EB verða formlega stofnuð á
fundi á Hótei Borg höfuðdaginn, 29. ágúst nk. Samstarfshópurinn,
sem vinnur nú að undirbúningi stofnfundarins, segir það sífellt vera
að koma betur í ljós að íslendingar hefðu lítinn sem engan efna-
hagslegan ávinning af aðild að Evrópsku efnahagsvæði en að skerð-
ing fullveldis þjóðarinnar sé samt meiri en flesta hafi órað fyrir.
Hópurinn fagnar þeim drætti sem nú hefur orðið á samningsgerð-
inni. Hyggst hann nota þann tíma tii að gera átak í söfnun undir-
skrifta undir áskorun til ríkisstjómarinnar um að hætta þessari
samningagerð áður en hún hefst að nýju.
En liggur ekki þegar í loftinu að
þessir samningar hafi endanlega
runnið út í sandinn?
„Það er svo mikið í húfi að við þor-
um ekki að hætta á það. Enda stigu
norrænir forsætisráðherrar hér á
fjalir og strengdu þess heit að halda
áfram samningaviðræðum um
EES,“ sagði Bjami Einarsson, sem
unnið hefúr ötullega að undirbún-
ingi þessara samtaka sem kunnugt
er. „Og svo heyrast líka þær kenn-
ingar frá utanrfkisráðherra og fleiri
merkismönnum að ef samningar
um EES náist ekki þá verði íslandi
bara súrrað inn í EB. í báðum tilvik-
um mundi þetta þýða mikið fúll-
veldisafsal. Það virðist því full
ástæða til að vera á varðbergi."
Bjami segir undirtektir til þessa
hafa verið mjög góðar. Komið hafi í
ljós, að þegar þjóðin loks fær eitt-
hvað að vita um þessi mál þá sé hún
hreint ekki hrifin. En til þessa hafi
þó einungis verið um tilraunastarf-
semi að ræða, eða pmfur hér og þar
á landinu. Það lendi því í höndum
þeirrar stjómar sem kosin verður á
stofnfundinum að skipuleggja þetta
starf, þannig að það nái til alls lands-
ins. - HEI
Bjami Einarsson
Landsfundur Útvarð-
ar 24.-25. ágúst:
Byggðamál í
brennidepli
Landsfundur byggðahreyfingar-
innar Útvarðar verður haldinn að
Hvolsvelli 24. og 25. ágúst og hefst
kl. 13 báða dagana.
Útvörður er þverpólitísk lands-
samtök sem efla vilja jafnrétti milli
landshluta og að stofnað verði nýtt
stjórnsýslustig sem auki sjálfstjórn
landshlutanna.
í tengslum við landsfundinn verð-
ur haldin ráðstefna undir yfirskrift-
inni Byggðamál í brennidepli. Þar
verða framsögumenn Steingrímur
Hermannsson fyrrv. forsætisráð-
herra, Sturla Böðvarsson alþingis-
maður, Skúli G. Johnsen héraðs-
læknir og Áskell Einarsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssambands
Norðlendinga.
Tímamynd Pjetur
Metþátttaka var í Reykjavíkurmaraþoni:
Um 2300 manns tóku þátt í maraþoninu
Um 2300 hlauparar tóku þátt í
Reykjavíkurmaraþoninu sem haldið
var síðastliðinn sunnudag. Aldrei áð-
ur hafa jafnmargir tekið þátt í mara-
þoninu og nú en þetta var í áttunda
sinn sem Reykjavíkurmaraþonið var
haldið. Langflestir tóku þátt í 7 kfló-
metra skemmtiskokki.
Skotinn Kevin Brown sigraði í
maraþonhlaupi karla en hann hljóp
42 kflómetra á 2 klst. 32,25 mínút-
um. Fyrstur íslendinga í þessum
flokki varð Jóhann Heiðar Jóhanns-
son en tími hans var 2 klst. 56,07
mínútur. Breska stúklan Susan
Bendley sigraði í kvennaflokki. Tími
hennar var 2 klst. 48,26 mínútur en
það er einn besti tími sem náðst hef-
ur í þessum flokki í maraþoninu.
Fyrst íslenskra kvenna varð Ursula
Junemann á tímanum 4 klst. 09,01
mínúta. Frfmann Hreinsson sigraði í
hálfu maraþoni karla en hann hljóp
21 kflómetra á 1 klst. 10,25 mínút-
um. í hálfu maraþoni kvenna sigraði
Margrét Brynjólfsdóttir en tími
hennar var 1 klst. 29,46 mínútur.
Það var Kristján Skúli Ásgeirsson
sem kom fyrstur í mark í skemmti-
skokki karla á tímanum 23,18 mín-
útur. í skemmtiskokki kvenna var
það Martha Ernestdóttir sem hljóp 7
kflómetra á bestum tíma. Það tók
hana 24,07 mínútur og munaði ein-
ungis 49 sek. á henni og sigurvegar-
anum í karlaflokki. -UÝJ
kvikmyndalög
Menntamálaráðherra hefur skipað
nefnd til þess að endurskoða lög um
kvikmyndamál nr. 94/1991.
í nefndinni eiga sæti Eiríkur Thor-
steinsson, sem er formaður Félags
kvikmyndagerðarmanna, Hrafn
Gunnlaugsson, formaður Félags
kvikmyndaframleiðenda, Kristín Jó-
hannesdóttir, formaður Félags kvik-
myndaleikstjóra, Helgi Jóhannesson
hdl. en hann er tilnefndur af fjár-
málaráðuneytinu og Knútur Halls-
son ráðuneytisstjóri en hann er jafn-
framt formaður nefndarinnar.
-uýj
Þýsk vika
á Hótel
Sögu
Þýskaland verður í öndvegi á
Hótel Sögu vikuna 23.-31. ágúst
nk, þar sem öllum sem áhuga
hafa gefst kostur á að njóta and-
rúmslofts þýskrar menningar og
kynnast matargerðarlist þjóðar-
innar.
Hótel Saga gengst fyrir þýsku
vikunni í samvinnu við þýska
sendiráðið í Reykjavík og Pull-
man Hotel Mondial í Köln, en í
aprfl á síðastliðnu ári var haldin
sérstök íslandsvika á þessu vel
þekkta hóteli.
Þeir sem þekkja þýska matar-
gerðarlist verða varla fyrir von-
brigðum, því þýskir matreiðslu-
meistarar sjá um eldamennsk-
una. Öll kvöld verða þýskir sér-
réttir á matseðli Grillsins. Af
hlaðborði Skrúðs geta sælkerar
fengið þýskan hádegis- og kvöld-
verð alla daga vikunnar. Vert er
að geta þýskra osta sem á boð-
stólum verða, en þeir eru rómað-
ir fyrir gæði og eiga sér langa
hefð. Drykkjarföng sem borin
verða fram eru að sjálfsögðu þýsk
að uppruna.
Þýski tónlistarmaðurinn Hans
Berger leikur á sítar fyrir gesti öll
kvöld á þýsku vikunni. —SE