Tíminn - 21.08.1991, Side 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
, eru okkarfag'- _ fíármá! eru
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAJR © VERBBRÉfAVHISKIPn
Hotnorhusinu v Tryggvagotu: SAMVINNUBANKANS
S 28822 SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568
Ókeypis auglýsingar fyrir einstakiinga
SIMI 91-676-444
T
Tíminn
MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins:
Viðbrögd við
Sorpuprísum
Nokkuð hefur borið á því í sumar að menn hafa ekki notfært sér nýt-
ilkomnar sorpmóttökustöðvar þegar þeir hafa verið að losa sig við
eiturefni. Mikill kostnaður fylgir því að losa sig við eiturefni þar sem
þau þarf nær öll að flytja úr landi til eyðingar. Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að þetta ástand gangi ekki
til lengdar, því menn einfaldlega losi sig við eiturefni með öðrum
hætti í stað þess að koma með þau til eyðingar hjá Sorpu. Ástæðan
sé þessi mUdi kostnaður.
Sorp flokkað inni á gólfi Sorpu í Gufunesi. Tímamynd: Ami Bjama
Gámastöðvar Sorpu:
Flokkun sorps
fer batnandi
„Ennþá er langt í land með það að fá fólk til að flokka hjá sér rusl
en þaö fer þó batnandi,“ sagði Halldór Sigurðsson hjá Sorpu. Hann
sagði að það tæki trúlega nokkurn tíma til þess að fá fólk til að
flokka hjá sér ruslið því fram að þessu hefðu ekki verið gerðar mikl-
ar kröfur um flokkun sorps. Nú væru hins vegar gerðar kröfur um
grófa flokkun sorps. „Það má þó segja að á þeim gámastöðvum sem
opnar eru frá 10 á morgnana til 22 á kvöldin og gæslumaður er á
staðnum, þar hefur þetta lagast. Þar gengur þokkalega að fá fólk til
þess að vinna með okkur og flokka sorpið sitt,“ sagði Halldór.
Fjórar af þeim átta gámastöðvum
sem reisa á hafa verið opnaðar. Þær
hafa verið opnar í einn til tvo mán-
uði og töluvert mikið hefur verið að
gera á þeim. Þar er m.a. tekið á móti
timbri, prentpappír, málmhlutum,
rafhlöðum, spilliefnum og öðru.
Halldór sagði að gámastöðvarnar
Þingmennimir tveir:
Fóru til Lithá-
en í morgun
Ferð þingmannanna Láru
Margrétar Ragnarsdóttur og
Jóhannesar Geirs Sigurgeirs-
sonar til Eystrasaltslandanna
verður ekki frestað lengur.
Það var formaður utanríkis-
málanefndar Alþingis, Eyjólfur
Konráð Jónsson, sem tók
ákvörðun um frestun ferðar-
innar í fyrradag að höfðu sam-
ráði við forseta Alþingis. Hann
, sagði ástæðuna þá að óþarfi
hefði verið að senda þing-
mennina af stað þegar allt væri
enn í óvissu.
í gærkvöldi var hins vegar
ákveðið að tvímenningarnir
legðu af stað nú í morgunsár-
ið, enda hafa þeir ekki misst af
fundinum sem þeir hyggjast
sækja. -aá.
hefðu verið settar upp með það fyrir
augum að fólk kæmi þangað með
sorp til dæmis þegar tekið væri til í
bflskúrnum, á lóðinni eða þá að það
þyrfti að losa sig við einhver heimil-
istæki. Eftir sem áður sæi sorphirð-
an um sín mál og tæki hún allt
húsasorp eins og áður hefur verið.
Jafnframt sagði hann að fyrirtæki
ættu að sjá um sín sorpmál að und-
anskildu því sorpi sem sorphirðan
sæi um. Einnig væru nokkur fyrir-
tæki sem sérhæfðu sig í því að safna
saman sorpi, flokka það og koma því
til Sorpu.
Bragi Ragnarsson, framkvæmda-
stjóri hjá Hafnarbakka og Hirði,
sagði að á vissan hátt tæki fyrirtæk-
ið að sér að flokka sorp og safna því
saman. Fyrst og fremst væru það
ýmis fyrirtæki sem bæðu um þessa
þjónustu. Þó kæmi fyrir að einstak-
lingar bæðu um þessa þjónustu. Það
væru oftast þeir sem stæðu í húsavi-
gerðum og þess háttar.
„Það sem við bjóðum upp á eru
margs konar flát fyrir sorp. Við
flokkum síðan sorpið í samráði við
okkar viðskiptavini og flokkum það
sem hagstætt þykir að flokka. í því
sambandi er aðallega um að ræða
timbur, pappa og pappír. Sorpa býð-
ur síðan upp á móttöku á þessu
flokkaða sorpi," sagði Bragi. Jafn-
framt sagði hann að yfirleitt væru
fyrirtækin heimsótt, farið vandlega
yfir sorpmál þeirra og leitað að hag-
kvæmustu lausnunum.
Aðspurður hvernig flokkunin færi
fram sagði hann að sorpið væri ekki
sett í stóran haug og flokkað úr hon-
um. Flokkunin hjá Hirði væri svoköll-
uð upprunaflokkun. Upprunaflokkun-
inn færi þannig fram að fyrirtækjun-
um eru útveguð flát fyrir vissan úr-
gang, til dæmis einn gámur fyrir
pappa og annar fyrir óflokkað sorp.
Hirðir sæi síðan um að sækja gámana
og losa úr þeim sorpið. -UÝJ
Sigrún sagði í samtali við Tímann
að þrátt fyrir að tilkoma Sorpu hefði
verið framfaraskref, þá væri nokkr-
um sprurningum ósvarað í sam-
bandi við óbagganlegt sorp og það
sorp sem nauðsynlega þyrfti að
brenna. Sigrún lagði fram fyrirspum
á borgarráðsfundi í gær um þessi
málefni: „Sorpböggun er vissulega
framfaraskref frá urðun á haugum.
Þegar ákvörðun var tekin um sorp-
böggunina var eigi greint frá því að
ekki væri unnt að bagga allt sorp.
Komið hefur í ljós að óhjákvæmilegt
er að brenna og/eða urða verulegt
magn af sorpi. Því spyr ég í fyrsta
lagi; hvar er ætlunin að urða óbagg-
aða sorpið? í öðru lagi; hvað felst í
samningi við sorpeyðingu Suður-
nesja? Iþriðja lagi; stendur ekki til
að endurskoða gjaldskrá Sorpu þar
sem komið hefur í ljós að hættuleg-
um eiturefnum er kastað í sjóinn
fremur en að færa þau til Sorpu
vegna hins mikla kostnaðar?"
Sigrún bað ennfremur um skýrslu
frá DIMC í Danmörku, um umhverf-
isspillandi efni, sem lögð var fram á
fundi Sorpu 15. maí sl. Skýrslan
fjallaði um hugsanlega eyðingarstöð
hér á landi, en ekki hafa fengist nán-
ari upplýsingar um innihald hennar
þar sem stjórnin tók þá ákvörðun að
birta ekki skýrsluna.
Sigrún Magnúsdóttir sagði að
nauðsynlegt væri að bregðast við
hárri gjaldskrá Sorpu. Hún sagði að
það færi enginn með 3-4 málningar-
dollur úr kjallaranum hjá sér upp í
Sorpu til þess að borga 5000 krónur
fyrir að láta eyða málningunni. Fólk
setti þetta bara í poka og losaði sig
við það með öðrum hætti. .—SE
Sigrún Magnúsdóttir.
Biskupin
vígir kirkju-
miðstöðina
Næstkomandi sunnudag, þann 25.
ágúst, mun biskup íslands vígja
Kirkjumiðstöð Austurlands að Eiðum.
Vígsluathöfnin hefst með messu
klukkan 14:00. Biskup íslands þjónar
við altarisgöngu ásamt hr. Jónasi
Gíslasyni Skálholtsbiskupi og próföst-
unum Þorleifi K. Kristmundssyni og
Einari Baldurssyni. Aðrir prestar er
þjóna við vígslumessuna eru sr. Davíð
Baldursson, sr. Sjöfn Jóhannesdóttir,
sr. Þórhallur Heimisson, sr. Bjami
Guðjónsson og sr. Sverrir Haraldsson.
Jafnframt munu leikmenn lesa pistla
og bænir. Um kórsöng sér blandaður
samkór kirkjukóra prófastsdæmanna
undir stjóm Ágústs Armanns Þorláks-
sonar. Þá leika Hildur Þórðardóttir og
Stefán Höskuldsson forspil og eftirspil
á þverflautu. Að vígslu lokinni býður
stjóm Kirkjumiðstöðvarinnar öllum
vígslugestum til kaffisamsætis í mið-
stöðinni.
Kostnaður við framkvæmdir við Perl-
una umtalsvert hærri en endurskoðuð
Borgarstjóri
spyr um auk-
inn kostnað
Markús Öra Antonsson borgar- hafa fram úr áætlun og hvernlg
stjóri lagði fram á borgarráðs- staðið var að ákvörðun um þá.
fundi í gær skriflega fyrirspura Þessu verid verður hraðað svo
vegna aukins kostnaðar við fram- sem kostur er og hafa borgarhag-
kvæmdir við Periuna. Fyrirspum fræðingur og forstöðumaður
borgarstjóra er svohljóðandi: byggingadeiidar borgarverkfræð-
„Ljóst er að kostnaður vegna ings aðstoðað við það. Greinar-
framkvæmda við Periuna í gerðin verður lögð fyrir borgar-
Öskjuhb'ð verður umtaisvert ráð og stjórn veitustofnana um
hærri á þessu ári en endurskoð- leið og hún er tilbúin. Jafnframt
uð áætiun ársins frá því i apríl sl. er ákveðið að slá á frest frekari
sagð) fyrir um. Vegna þessa hef framkvæmdum í húsinu."
ég faUð hitaveitustjóra að gera Ekki náðist i Marirús örn An-
nákvæma greinargerð um aOa tonsson í gærkvöidi vegna þessa
einstaka útgjaidaliði sem farið máls. —SE