Tíminn - 28.08.1991, Síða 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 28. ágúst 1991
HHIminning
Elísabet Guðmundsdóttir
Fædd ll.júlí 1892
Dáin 19. ágúst 1991
Elísabet Guðmundsdóttir, ekkja
Þórhallar Sæmundssonar, fyrrum
bæjarfógeta á Akranesi, lést þann
19. ágúst sl. Þar kveður merk kona,
sem átti virðingu og traust sam-
ferðamanna sinna. Hún var fædd í
Hnífsdal þann 11. júlí 1892. Foreldr-
ar hennar voru hjónin Ingibjörg
Kristjánsdóttir og Guðmundur
Sveinsson, kaupmaður og útvegs-
bóndi í Hnífsdal. Guðmundur vara
um langt skeið umsvifamikill at-
vinnurekandi og heimili hans fjöl-
mennt. Hann var vel metinn og
traustur maður.
Ung að árum fór Elísabet í Kvenna-
skólann í Reykjavík og síðar á hús-
mæðraskóla í Danmörku. Þann 19.
des. 1925 giftist hún Þórhalli Sæ-
mundssyni, þá ungum lögfræðingi
frá Stærra Árskógi á Árskógsströnd í
Eyjafirði. Hann var eitt af mörgum
mannvænlegum börnum Sæmund-
ar Sæmundssonar skipstjóra, sem
þjóðkunnur varð af bók Hagalíns —
Virkir dagar. Heimili þeirra stóð
fyrst í Vestmannaeyjum, þá í Hnífs-
dal og Reykjavík. Nokkur ár á hverj-
um stað. þann 1. janúar 1932 verður
Þórhallur lögreglustjóri á Akranesi
og síðar bæjarfógeti og gegnir þeim
störfum til 1. okt. 1967 eða í 36 ár.
Eftir það var hann settur bæjarfóg-
eti í Neskaupstað í tæpt ár en kemur
síðan til Akraness og á þar heima til
dánardægurs 11. ágúst 1984. Rúm-
lega ári síðar flutti Elísabet til
Reykjavíkur. Síðustu árin dvaldi
hún á sjúkradeild Elliheimilisins
Grundar. Á Akranesi stóð því heimili
hennar í 53 ár.
Elísabet var mikilhæf húsmóðir og
umhyggjusöm móðir barna sinna.
Þau Þórhallur og Elísabet áttu fjög-
ur fósturbörn sem þau ólu upp frá
bamæsku. Þau eru Guðmundur
Samúelsson, prófessor í Hannover í
Þýskalndi. Hann er systursonur El-
ísabetar. Sigríður Sigmundsdóttir
frá A
og Lilja Gestsdóttir, báðar búsettar í
Reykjavík. Þær em bræðradætur
Þórhallar. Þórhallur Már, prentari í
Reykjavík. Hann er sonur Sigríðar.
Fósturbörnin hafa öll stofnað eigin
heimili fyrir löngu og eiga marga af-
komendur. Þau hjón reyndust fóst-
urbömum sínum sem bestu foreldr-
ar. Kostuðu þau til náms lengri eða
skemmri tfma og studdu þau í lífs-
baráttunni eftir þörfum. f viðlögum
áttu svo barnabörnin þar athvarf og
þótti eftirsóknarvert. Heimilið var
því jafnan fjölmennt og ástríkið
milli Elísabetar og fósturbarnanna
og bama þeirra einlægt og traust.
Þannig mundu börnin og þeirra
böm aftur lengi minnast mildi, ástar
og umhyggju Elísabetar.
Heimili hennar á Akranesi í meira
en 50 ár var mikill rausnargarður
sem margir nutu — bæði heima-
menn og gestir — sem erindi áttu
við bæjarfógetann á löngum emb-
ættisferli hans. Gestrisni þeirra
hjóna var einlæg og hlý. Þau voru
samhent í því að veita gestum sín-
um vel og láta þeim ekki leiðast á
meðan á dvölinni stóð. Þórhallur var
glaðvær og kunni frá mörgu að
segja, enda fróður og stálminnugur.
Elísabet var svo hin frábæra hús-
móðir. Hún var greind kona og
gerðarleg. Góðviljuð og Ijúf í fram-
komu. Jafnlynd og háttvís. Hún var
listræn í sér og hafði næmt auga fyr-
ir því sem fagurt var og bar heimili
hennar því ljóst vitni. Hún var vin-
föst og trygglynd með afbrigðum, en
hlédræg og lét ekki mikið til sín taka
utan eigin heimilis. Manni sínum
var hún hollur ráðgjafi sem hann
kunni vel að meta. Reynslan hafði
kennt honum að dómgreind hennar
mátti treysta. Enda þótt hún forðað-
ist afskipti af einstökum málum
fylgdist hún vel með og sá langt
fram í tímann. í allri framkomu var
hún einstök heiðurskona sem naut
álits og virðingar allra þeirra sem
henni kynntust og því meir sem
kynnin urðu nánari.
Á þessari stundu er mér efst í huga
sú vinátta er hún sýndi mér og fjöl-
skyldu minni er við fluttum til Akra-
ness 1954 og alla tíð síðan hefur hún
sýnt okkur hjónum tryggð og góð-
vild sem við þökkum á kveðjustund.
Því lengri sem kynnin urðu dáð-
umst við að svo mörgu í fari hennar,
ekki síst eftir að hún komst á 10.
áratuginn, hversu vel hún hélt dóm-
greind sinni og andlegu atgervi.
Alltaf var hún sama háttvísa hefðar-
konan — bjartsýn og bar í brjósti
sínu velvildarhug til allra.
Mér er eftirminnilegt hversu þessi
hlédræga kona hafði náin kynni af
öllum þeim sem störfuðu við emb-
ætti bæjarfógetans á Akranesi í tíð
Þórhallar og lét sér annt um hag
þeirra og velferð. Sýndi hún starfs-
fólkinu oftlega vináttu og rausn —
bæði skrifstofufólki og löggæslu-
mönnum. Átti hún óskipta virðingu
allra starfsmanna embættisins sem
voru sammála um að hún væri hin
sanna „lady“. Þegar leiðir skilja
minnast þeir hennar með þakklæti
og virðingu.
Elísabet var ákaflega vel gerð kona
— bæði andlega og líkamlega —
heilbrigð og hógvær. Hún bar aldur-
inn vel ffam á síðustu ár og sem
dæmi um það skal þess getið að í ág-
ust 1987 — nokkru eftir að hún
náði 95 ára aldri — heimsótti hún
Guðmund son sinn í Hannover og
fjölskyldu hans. Þeir hjá Flugleiðum
ráku upp stór augu þegar þeim var
ljóst að þessi farþegi var fæddur
1892 og mundu varla eftir jafngöml-
um viðskiptamanni áður. Af ferð
þessari hafði Elísabet mikla ánægju.
Aldurinn bar hún ákaflega vel fram á
síðustu árin og var sístarfandi á
heimili sínu. Vinum og vandamönn-
um skrifaði hún bréf sem báru vott
um góða frásagnargáfu, auk þess
sem hún hafði einstakleg góða rit-
hönd. Hún undi sér löngum við spil-
in milli heimilisstarfanna og bækur
voru henni eftirlæti.
Löngu og farsæli lífsstarfi er lokið.
Eftir lifir minningin um öndvegis
húsmóður á rausnarheimili í meira
en hálfa öld. Minning um ástríka
móður margra barna sem elskuðu
hana og virtu. Lífið var ekki alltaf
dans á rósum en vandamálunum var
mætt af manndómi og æðruleysi.
Þau hurfu því fyrir betri og bjartari
tímum. Hún átti fulla virðingu Ak-
urnesinga sem lengi munu minnast
hennar með þakklæti. Börnin henn-
ar fjögur 0g fjölskyldur þeirra
reyndust henni vel, ekki síst er degi
tók að halla. Umhyggja þeirra og
hugulsemi í hennar garð vakti at-
hygli allra sem til þekktu. Þau
munu telja endurminningu um
móður sína og uppeldisáhrif hennar
dýrmætan arf og varðveita hann æv-
ina út. Á kveðjustundinni taka þau
undir með skáídinu frá Fagraskógi:
„Haffiu þökk fyrir öll þín spor.
Það besta, sem fellur öðrum í arf,
er endurminning um göfugt starf."
Samtíðarmenn Elísabetar Guð-
mundsdóttur, sem af henni höfðu
einhver kynni, kveðja hana með
virðingu og þökk.
Daníel Ágústínusson
1 JÓN DAN SKRIFAR
Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apóteka i
Reykjavfk 23. tll 29. ágúst er (Garðs apóteki
og Lyfjabúðinni Iðunn. Það apótek sem fyrr
er nefnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 að
kvöldl tll kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl.
22.00 á sunnudögum. Upplýslngar um
læknls- og lyfjaþjónustu eru gefnar I sima
18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartíma búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgldagavörslu. Á kvöldin er
opiö I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðmm tímum er lyfja-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar em gefnar I
síma 22445.
Apótek Keflavfkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgldaga og al-
mennafrldaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokað I hádeginu milli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjarins er opið virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garöabær: Apótekið er opið rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandlnn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styðja smitaða og sjúka
og aöstandendur þeirra, slmi 28586.
Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjamames og
Kópavog er í Heilsuvemdarstöð Reykjavikur
alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgidögum allan sóiarhringinn.
Á Seltjamamesi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 og laugand. kl. 10.00-11.00. Lokað á
sunnudögum. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar
og tfmapantanir I slma 21230. Borgarspftalinn
vakt frá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem
ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans
(slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sól-
arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyfjabúðir og læknaþjónustu erugefnar I sim-
svara 18888.
Ónæmlsaðgerðirfyrirfullorðna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvemdarstöð Reykjavfkur á
þriöjudögum kl. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskfrteini.
Garöabær: Heilsugæslustöðín Garöaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I
slma 51100.
Hafnarflörður Heilsugæsla Hafnarfjaröar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, slmi 53722. Laeknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Slmi 40400.
Keflavik: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöð Suöumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráðgjöf I
sálfræðilegum efnum. Slmi 687075.
Landspitallnn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadelldln: kl. 19.30-20.00.
Bútasögur og
afgangamyndir
Nú gruflum við Fúsi frændi um ritlist og
kvikmyndir.
Fyrir skömmu var ég að glugga í smásög-
ur eftir Singer í þýðingu sem Hjörtur Páls-
son leysir vel af hendi. Eins og öðrum
dauðlegum mönnum eru Singer mislagðar
hendur þó nóbelshöfundur sé. En víða
glittir í gullið og alls staðar er augljóst að
klassísk grundvallarsjónarmið í smásagna-
gerð eru honum Ijós. Ummæli í einni sög-
unni skil ég á þann veg að Singer hafi verið
sakaður um „að færa klukkuvísa bók-
menntasöguunar aftur“. Það gerir hann að
sjálfsögðu tíkki. ílann veit vel af nýjungum
sem fitjað ':cfur verið upp á í skáld- og smá-
sagnagerð, hagnýtir sér sumar en telur
enga þörf á að apa eftir. í þeirra stað hverf-
ur hann til uppsprettulindanna og gefur
þar með til kynna að margt af hinu nýja og
tilraunakennda sé honum lítils virði.
Ég spurði Fúsa frænda hvemig honum
félli við Singer. Hann svaraði: Vel, hann
minnir mig á Maupassant. Hann lætur
aldrei vaða á súðum. Þó er Singer jafnvel
enn naumari en Maupassant. En það er dá-
lítið um liðið síöan ég las hann. Ég var á
kafi í bútasögu. Nærri drukknaður.
Bútasaga? Hvað er nú það?
Bútasaga, það er afgangasaga og þykir
fimamikil list. Þú sperrir brýr eins og bjáni,
maður sem sjálfur hefur skrifað bútasögu.
Ég kannast ekki við að nokkur sagna
minna þyki fimamikil list.
Látum það gott heita. Eigi að síður hef-
urðu samið bútasögu. Uppskriftin er ein-
föld. Maður tekur tvær eða fleiri stuttar
sögur, bútar þær niður og raðar aftur,
þannig að næsti kafli sé alltaf úr annarri
sögu en sá fyrri. Þannig nýtist mörgum
höfundinum ýmis afgangur sem ekki kom
að gagni á annan hátt. Bara demba brotun-
um saman í eina hít, hræra vel í og bíða svo
þar til menningarbúrar lofa bullið í hástert,
já, þeim mun hærra sem það er ruglings-
le|ra.
Eg ansa þér ekki, Fúsi minn, þú hefúr ekk-
ert vit á þessu. Eg var að tala um Singer.
Það er þess vegna út í hött hjá þér að nöldra
um bútasögur.
Jæja. Þú lætur þó svo lítið að taka þér
nafnið í munn eins og þú kannist við það.
Og ég man ekki betur en þú hafir talað um
áþekkt fyrirbrigði í kvikmyndum.
Nei. Ég hef talað um afgangamyndir. Þær
eru allt öðruvísi en bútasagan þín. Það sem
einkennir afgangamynd er hröð klipping.
Líklegasta skýringin á þessum stuttu skot-
um er sú að skotið allt, miklu lengra en það
sem við fáum að sjá, hafi misheppnast. Að-
eins hluti af því er notaður og þá ekki endi-
lega kjaminn, hitt er klippt burt. Það vant-
ar því mikið á að það sem segja þarf komist
til skila. Svona gengur það myndbút eftir
myndbút.
Sagði ég ekki? Bútamynd.
Óhæft nafn. Afgangamynd er ekki saman-
sett úr tveimur eða fleirum sögum. Af-
gangamynd er blátt áfram mynd sem gerð
er úr því sem eftir er þegar allt það mis-
lukkaða í skotinu hefur verið Ijarlægt.
Meinið er bara að þá er það sem eftir er ekki
nógu mikið eða gott í mynd og því sjálft
mislukkað.
Fúsi kinkaði koili. En, sagði hann, svo er
það teygjumyndin.
Fúsi minn, ég impraði á Singer. Erum við
ekki komnir langt út fyrir efnið?
Fúsi horfði á mig eins og hann tryði varla
að ég hefði látið svona bjánalega spumingu
út úr mér.
Síður en svo, sagði hann. Höfum við ekki
verið að tala um þær ógöngur sem sagan og
kvikmyndin kemst í þegar Singer sleppir?
Þegar Ijarlægst er uppsprettulindimar?
Jón Dan
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspitali Hrlngslns: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlæknlngadelld Landspltal-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspitali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartimi annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspitalinn i Fossvogi: Mánu-
daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Hellsuvemdarstöðin: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum. - Vífilsstaðaspftali: Heim-
sóknartlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
St Jósepsspitall Hafnarflrði: Alla daga kl.
15-16 00 19-19.30.
Sunnuhlfð hjúkrunarheimili i Kópavogi: Heim-
sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkurtæknishéraðs og
heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Slmi 14000. Keflavfk-sjúkrahúsið:
Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátiöum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyrl- sjúkrahúsið: Heim-
sóknartfmi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofusfmi frá
kl. 22.00- 8.00, simi 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartími Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavfk: Neyöarslmi lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan slmi 611166,
slökkviliö og sjúkrabifreið sími 11100.
Kópavogur: Lögreglan slmi 41200, slökkviliö
og sjúkrabifreiö sími 11100.
HafnarQörður Lögreglan slmi 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið slmi 51100.
Keflavik: Lögreglan simi 15500, slökkvilið og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjar: Lögreglan, slml 11666,
slökkviliö slmi 12222 og sjúkrahúsið slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan slmar 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið slmi 22222.
(safjörður: Lögreglan slmi 4222, slökkvilið simi
3300, brunaslmi og sjukrabifreið slmi 3333.
jjHd Flokksstar* BlJ
Héraðsmót framsóknarmanna
í Skagafirði
verður haldið í Miðgarði laugardaginn 31. ágúst
Dagskrá:
1. Ávarp: Steingrímur Hermannsson, fv. forsætisráðherra.
2. Galgoparnir frá Akureyri syngja (Óskar Pétursson og félagar)
3. Jóhannes Kristjánsson skemmtir með eftirhermum og gaman-
málum.
4. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur fyrir dansi, svo allir
verða í stuði.
Nefndin
Fulltrúaráð framsóknarfélag-
anna í Reykjavík
Drætti i skyi idihappdrættinu hefur verið frestað.
Nánar auglýst síðar.