Tíminn - 12.09.1991, Page 7

Tíminn - 12.09.1991, Page 7
Fimmtudagur 12. september 1991 Tíminn 7 VETTVANGUR Jón Kristjánsson alþingismaður: Smáskjálftar frá Hafnarfirði og heitt haust Fyrsti þáttur sjónarspilsins um ramma fjárlaga fyrir árið 1992 er afstaðinn. Kratar hafa lúffað fyrir Sjálfstæðisflokknum, og það er ljóst að hann ræður ferðinni. Það er ljóst að við mikinn vanda er að etja í ríkisfjármálum, og er það eklri ný bóla. Við framsóknarmenn drógum enga dul á það í vor að svo væri. Hins vegar eru þær tölur, sem stjómarliðar eru að leika sér með, til þess gerðar að rugla fólk í ríminu og gera sem mest úr þessum vanda, sem er þó ærínn. Reiknað út frá óskalistum Blekkingin er þess eðlis að óska- listar ráðuneyta eru lagðir til grundvallar í fjárlagagerðinni og tölur um niðurskurð stjórnar- flokkanna reiknaðar út frá þeim. Fjárlagagerð fer þannig fram, að ráðuneytin leggja fram óskir um framlög úr ríkissjóði til þeirra mála sem þau fara með, og setja þá gjarnan fram ýtrustu óskir í fyrstu umferð. Þetta hefur ávallt verið svo. Hins vegar hafa stjórn- völd aldrei leikið sér að mismun- inum á þessum fyrstu tölum og niðurstöðu fjárlagafrumvarps í opinberri umræðu. Þær eru settar fram nú í áróðursskyni og tilgang- urinn er tvíþættur. í fyrsta lagi að viðskilnaður síðustu ríkisstjórnar hafi verið slæmur og í öðru lagi að gera sem mest úr verkum þessar- ar. Smáskjálftar frá Hafnarftrði Ég hef ekki, fremur en aðrir stjómarandstæðingar, séð neitt skjalfest um áform ríkisstjórnar- innar eða niðurstöður um fjár- lagagerðina. Ég hlusta eins og aðr- ir landsmenn á það sem fjölmiðla- mönnum tekst að toga upp úr stjómarliðum. í þeim fréttum kom fram að félagsmálaráðherra og bæjarstjórinn í Hafnarfirði, að- alvígi krata hérlendis, telja að ver- ið sé að eyðileggja velferðarkerfið. Eftir mikið fjölmiðlafár var boðað- ur flokksstjómarfundur þar sem átti að taka ráðherra flokksins í bakaríið og kenna þeim betri siði, fræða þá um stefnu Alþýðuflokks- ins og grundvallarhugsjónir. Eftirleikurinn af þessum fundi er grátbroslegur. Enginn virðist vera klár á því hvað var samþykkt, jafn- vel ekki á hvaða fundi þeir voru. Jóhanna kom í sjónvarpið í kvöld- fréttatíma í síðustu viku, sæl og ánægð, og talaði eins og véfrétt um jöfnunaraðgerðir sem hún hefði með mikilli baráttu náð fram. Ekkert hefur komið nánar Þeir vita sem er að slíkri skjálftahrinu línnir, og jafnframt múðri nokkurra þingmanna sem hafa verið að tala um velferðarkerfi og jafnvel grundvallar- hugsjónir Alþýöu- flokksins fyrir kosn- ingar. Sjálfstæðis- flokkurinn ræður ferðinni í þessari ríkisstjóm og krat- arnir eru fastir í því fram um það í hverju þær aðgerðir felast. Mikil átök voru um skóla- gjöld, sem saklaust fólk hélt að stafaði af því að þau ættu að hækka, en einn góðan veðurdag upplýsti Jón Baldvin að skólagjöld- in ættu að lækka. Það er erfitt fyr- ir venjulegt fólk að skilja þetta. Allt er þetta staðfesting á því, að kratarnir ætla að láta allt yfir sig ganga í fjárlagagerðinni, og ráð- herrarnir halda sér í stólana sína meðan smáskjálftar, sem upptök eiga hjá bæjarstjóranum í Haftiar- firði, ganga yfir. Þeir vita sem er að slíkri skjálftahrinu linnir, og jafnframt múðri nokkurra þing- manna sem hafa verið að tala um velferðarkerfi og jafnvel grund- vallarhugsjónir Alþýðuflokksins fyrir kosningar. Sjálfstæðisflokk- urinn ræður ferðinni í þessari rík- isstjórn og kratarnir eru fastir í því neti. Heitt haust í stjómmálum Hins vegar bíður umræða um fjárlagafrumvarpið þingsins sem kemur saman nú fýrsta október, og mér býður í grun að þar sé al- varlega hluti að finna, sem ekki hafa komið fram í dagsljósið enn nema að litlu leyti. Mjög alvarlegt útlit er nú í at- vinnuvegum landsmanna og fyrir- sjáanleg meiri skerðing á veiði- heimildum en nokkru sinni. Einnig hefur afli verið tregur að undanförnu. Landbúnaðurinn gengur í gegnum miklar og sárs- aukafullar breytingar, sem eru í miðjum klíðum. A að leysa fjár- lagavandann að hluta til á kostnað þessara atvinnugreina, auk þess að auka álögur á sjúka og náms- menn? Verður því haldið til streitu að taka hagræðingarsjóð sjávarútvegsins í ríkissjóð og eyði- leggja þar með möguleika hans til hagræðingar í greininni og til þess að koma (veg fyrir áföll ein- stakra byggðarlaga? Á að kippa fótunum undan framleiðnisjóði landbúnaðarins og möguleikum hans til uppbyggingar í sveitun- um? Þessum spurningum og fleir- um verður svarað þegar fjárlaga- frumvarpið kemur fram, og fjallað verður um það á Alþingi. Það er heitt haust framundan í stjórn- málum. Gunnar Dal: SOLKERFIÐ OKKAR Slokknar sólin þegar allt vetni er þrotið? Nei, ekki strax. Hún reynir að veijast hruni með því að Ig'arninn dregst saman. Þegar helíumkjami dregst saman þá hitnar hann og sólin bætir sér á þann hátt upp orkutapið. Hvað næst geríst vita menn ekki með vissu, en um eitt eru allir vísindamenn sammála: Sólin deyr. Sól getur dáið á þrjá vegu. Hún get- ur orðið svarthol. Hún getur orðið nifteindastjama. Og hún getur orðið rauður risi, sem síðar breytist í hvít- an dverg. Okkar sól getur ekki orðið svarthol. Til þess er hún ekki nógu stór. Sól, sem verður svarthol, þarf að vera að minnsta kosti þrisvar sinnum stærri en okkar sól. Stórar sólir verða svarthol á þann hátt að kjaminn verður stjómlaus og springur. Við það myndast fyrirbæri sem nefnist supemova. Það er jarð- arför stórrar sólstjömu. Hún verður björt eins og heil vetrarbraut Þessi leið er óhugsandi hvað okkar sól snertir. Nifteindastjama verður varla til úr sól sem er meira en 2.2 sólmassar og hvítur dvergur verður ekki til úr sól sem er meira en 1.4 sólmassar. Ef sólin okkar verður hvítur dvergur þá gerist það þannig: Á sama tíma og helíumkjami sólar- innar minnkar og hitnar, stækkar miðhluti sólarinnar. Yfirborð sólar- innar kólnar um helming, en sólin getur orðið tugum eða hundruð sinnum stærri en nú. Sólir, sem eru á þessu stigi, eru nefndir rauðir risar. Sólin reynir að leita að nýju jafnvægi og kjaminn dregst meira og meira saman. Að lokum er kjaminn orðinn nógu lítill og heitur til að ný tegund af sprengingum geti byijað í miðju sólarinnar. Helíumkjaminn verður nýtt eldsneyti við að breytast í kol- efniskjama. Hitastigið í kjamanum verður að fara yfir 10 í áttunda veldi til að þetta gerisL Sólin hefur enn fundið nýja Ieið til að láta ekki eftir þyngdaraflinu og falla saman. Kjam- inn hættir að dragast saman, — um stund. Menn þekkja rauða risa. Sá, sem menn þekkja besL er Betelgense í Orion-stjömumerkinu. Sólin okkar verður eins og hann eftir 5 þúsund milljón ár, þó að hún verði ekki eins stór. Ef þá verður til mannkyn í ein- hverri mynd, sem verður að teljast afar ósennilegL verður jörðin nú óbyggileg. Samdráttur kjamans hættir, en aðeins ákveðið tímabil. Helíumsprengingamar virðast hætta og byrja síðan aftur. Og nú gerast margar breytingar. Allt hel- íum brennur og við það myndast kolefni og súrefni. Við súrefnisbrun- ann myndast sílíkon og brenni- steinn. Og loks breytist neón, magnesíum og allt annað í jám. Það koma öðru hvoru tímabil þegar þessi hnignun stöðvast um stund, en svo Seinni grein heldur hún áftam að nýju. Þessi lýs- ing byggist á rannsóknum á öðmm sólum á öllum æviskeiðum frá vöggu til grafar. — Og loks eru allar orkulindir þrotnar. Sólin okkar dregst saman þar til hún verður á stærð við jörðina. Hún breytist úr rauðum risa í hvítan dverg. En það þýðir að kjami hennar er einn eftir. rkiirbis v jiirdcn *.T... ..... Vvnus — Menn þekkja hvíta dverga. Sá bjartasti nefnist Síríus B, öðm nafni Hvolpurinn. En eins og menn vita þá er Síríus á flestum tungum kallaður Hundurinn. Síríus A er tíu þúsund sinnum bjartari en Síríus B og þess vegna erfitt að sjá hana. Sumir hafa haldið því fram að það sé líf á Síríusi B. Þær lífvemr þyrftu að hafa sterk bein, því að þar mundi venjulegur eldspýtustokkur vega um 10 tonn vegna hins gífurlega þyngdarafls. Þegar sólin okkar er orðin á stærð við jörðina heldur hún að mestu efn- ismassa sínum og aðdráttarafli. Og hún hættir að hrynja saman. Vegna þéttleikans kemur fram nýr þrýst- ingur, sem nefnist rafeindaþrýsting- ur. Nafnið er dregið af hnignunar- ástandi rafeinda. Þrýstingurinn er svo mikill að rafeindimar leggjast þétt saman án þess að bil sé á milli þeirra. Rafeindimar veita mótstöðu eins og litlar stálftaðrir sem þrýst er á. En í heimi rúms og tíma er endan- legt ástand ekki til.Allt breytist. Þessi litli hvíti dvergur breytist, að menn halda, í svartan dverg. Þeir em að vísu enn hvergi til. Alheimurinn er einfaldlega ekki orðinn nógu gamall til þess að nokkur stjama hafi náð þessu stigi. Sólin gæti líka hugsanlega orðið nifteindastjama. Hún er á mörkun- um hvað stærð varðar. Sól verður nifteindastjama þegar öll atóm hennar em horfin og nifteindimar einar eftir. Þær leggjast þétt saman og efnið verður eins þétt og það get- ur orðið. Ef sólin okkar yrði nift- eindastjama yrði hún aðeins um 20 kílómetrar í þvermál. En fyrst yrði húnaðverðanova. Örlög sólarinnar verða að lokum þau sömu og örlög alheimsins. Sjálf- ur tíminn hefst með stórusprengju, en endar í hinu alheimslega svart- holi. Alheimurinn hverfur í lok tím- ans inn í svartholið. En svarthol brotnar niður og breytist í hvíthol. Það þýðir að nýr alheimur kemur fram í upphafi nýs tíma. En hvaða áhrif hefur þetta allt á til- vem mannsins? Ekki nein. Sólin verður óbreytt næstu fimm þúsund milljón árin. Ef maðurinn lifir allan þann tíma á jörðinni verður saga hans orðin tvö til þrjú þúsund sinn- um lengri en hún nú er. Ef við lítum á manninn eins og hann var fyrir tveimur ármilljónum og bemm hann saman við manninn í dag þá er breytingin orðin svo mikil að hann er varla þekkjanlegur. Hvemig verð- ur þá maðurinn þegar búið er að margfalda þessar breytingar með tvö þúsund og fimm hundmð? Það er erfitt að vita hvert þróunin leiðir hann. Kannski á hann eftir að verða stjómandi á nýjum stjömum. Kannski eyðileggur hann sjálfen sig. Við eigum enga framtíð nema við læmm að lifa á þessari jörð. Ef til vill getur hin nýja heimsmynd hjálpað mönnum til þess. Þegar menn fara að gera sér ljóst hve hnöttur okkar er smár í þessum stóra heimi, þá hljóta menn að fara að skilja að mannkynið verður að sameinast til þess að glat- ast ekki. í stað allra þessara ffum- stæðu, ftandsamlegu þjóða, sem eyða kröftum sínum í vígbúnað og gjöreyðingarvopn, hlýtur að koma mannkyn sem sameinasL Það em stór verkefni sem maðurinn verður að leysa til að eiga framtíð. Og aðeins sameinað en þó frjálst mannkyn get- ur gert það sem gera þarf.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.