Tíminn - 12.09.1991, Qupperneq 11
Fimmtudagur 12. september 1991
Tíminn 11
Ólafsvík
Aöalfundur framsóknarfélaganna f Ólafsvlk verður haldinn
fimmtudaginn 19. september kl. 20.301 Framsóknarhúsinu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning á Kjördæmisþing.
3. Almennar umræður um málefni bæjarfélagsins.
4. Ingibjörg Pálmadóttir alþingism. ræðir um starfiö
framundan.
Stjómln.
Reykjavík -
Viðtalstímar
Finnur Ingólfsson, alþingismaður, veröur með viötalstima á
skrifstofu Framsóknarflokksins að Hafnarstræti 20,3. hæð,
mánudaginn 16. september kl. 17.00-19.00. Finnur
Sigrún Sturiudóttir Slgrún Magnúsdóttlr Sigrfður Hjartár Bjarney Bjarnadóttir
10 ára
afmælisþing L.F.K.
Landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið
i Reykjavlk dagana 4. og 5. október nk. aö Borgartúni 6.
[ tilefni af 10 ára afmæli Landssambands framsóknar-
kvenna býður Félag framsóknarkvenna f Reykjavlk til
skoðunarferðar föstudaginn 4. október. Við heimsækjum
fyrirtæki og stofnanir borgarinnar, sem ekki eru alltaf til
sýnis almenningi, undir leiðsögn Sigrúnar Magnúsdóttur og Sigrlöar Hjartar.
Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður f boði FFK.
Laugardagskvöldiö 5. október er lokahóf Landsþingsins að Borgartúni 6, sem
jafnframt verður afmælishóf með skemmtidagskrá.
Við hvetjum framsóknarkonur um iand allt til að fjölmenna á afmælisþingiö.
Afmællsnefndln
Fulltrúaráð
Framsóknarfélaga
Kópavogs
Fulltrúaráðsfundur verður haldinn fimmtudaginn 12.
september kl. 20.30 á Digranesvegi 12.
Steingrfmur Hermannsson verður gestur fundarins.
Fulltrúaráðlð.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVÍK
Vegna úthlutunar
úr Framkvæmdasjóði
fatlaðra 1992
Hlutverk sjóðsins er að fjármagna framkvæmdir í
þágu fatlaðra.
Væntanlegir umsækjendur um fé úr sjóðnum árið
1992 þurfa að skila eftirfarandi til Svæðisstjórnar:
1. Umsóknir ertilgreini upphæð.
2. Yfirlit yfir stöðu þeirra framkvæmda, í Reykjavík,
sem ólokið er og úthlutað hefur verið úr sjóðnum.
3. Sundurliðaðri framkvæmdaáætlun vegna ólokinna
verkefna í Reykjavík og áætlun um fjármögnun
þeirra.
Sérstaklega skal sundurliða hvern verkáfanga
fyrir sig og möguleika hvers framkvæmdaaðila
að fjármögnun til framkvæmdanna (þ. e. eigin
Ijármögnun eöa önnur sérstök framlög).
Nauðsynlegt er að ofangreindar upplýsingar berist
Svæðisstjóm eigi síðar en 23. september næst-
komandi.
Svæðisstjórn
málefna fatlaðra í Reykjavík,
Nóatúni 17
105 REYKJAVÍK
Steingrímur
Christian Moore er komin meö kærustu upp á arminn. Hún er bandarísk og heitir Heather.
Sonur Rogers Moore er farinn að eiga við stelpurnar:
Yngsti sonurinn
kominn með dömu
Þegar Christian Moore hitti nýju
kærustuna sína fyrst, passaði hann
sig á að minnast ekkert á fjölskyldu
sína. Það er ekki það að yngsti son-
ur Rogers Moore sé leiður á að tala
um föður sinn eða búinn að fa nóg
af að fólk álíti hann annað en hann
er. Hann vildi einfaldlega ekki vera
að monta sig af því að vera sonur
fyrrverandi James Bond og fá í
staðinn einhverja sérmeðferð
vegna þess.
Christian er 18 ára gamall, og er
yngsti sonur Rogers Moore og Lu-
isu Moore. Hann á tvö systkini.
Hann heldur sig á jörðinni og þyk-
ir efhilegur ungur maður. Christi-
an hefur hingað til forðast alla fjöl-
miðla, en oft vill verða að böm
fræga fólksins fara illa út úr frægð
foreldra sinna. Það er óhætt að
segja að Christian hafi sloppið vel,
en heilbrigðin geislar af stráknum.
Hann er nú kominn með kærustu
og hún heitir Heather Van Zuidam.
Þau hittust hjá tannlækni, en síð-
an hefúr ástin blossað á milli
þeirra. Christian býr í Lundúnum
með foreldrum sínum og lætur sig
engu máli skipta þótt sú heittelsk-
aða búi í Flórída. Hann segir að þau
Þeir feðgar eru samrýmdir og
miklir félagar.
ætli að halda sambandi og reyna að
hittast eins oft og hægt er.
Heather segist ekki hafa haft
nokkra hugmynd um að Christian
ætti svo frægan föður, hún hafi
ekki komist að því fyrr en síðar.
Christian segir að hann forðist æ
að tala um föður sinn, en virðir
hann þrátt fyrir það og metur mik-
ils. Christian ætla að feta í fótspor
föður síns, en ekki sem leikari
heldur leikstjóri. Hann segist þó
hafa nógan tíma, ekki nema 18 ára,
og þurfi ekkert að verða ríkur og
frægur strax. En það kemur
kannski að því dag einn.
Roger Moore og kona hans Luisa.