Tíminn - 26.10.1991, Page 5

Tíminn - 26.10.1991, Page 5
Laugardagur 26. október 1991 Tíminn 5 Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra ávarpaði kirkjuþing og sagði: ÞJOÐKIRKJUNNI BER KIRKJUGARÐSGJALDIÐ Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra ávarpaði kirkjuþing í gær og svaraði síðan fyrirspurnum. í ræðu ráðherrans kom fram að það hafi verið með ánægjulegri og efiirminnilegri verkum frá því að hann sat í fiármálaráðu- neytinu, að semja um þá nýbreytni að fella tekjuöflun kirkjunnar inn í stað- greiðslu skatta. Mótmæli þau, sem uppi voru höfð í fyrra, báru þann árang- ur að á Alþingi var skerðing sóknargjalds afnumin, en kirkjugarðsgjald skert um 20%. En herra Ólafur Skúlason biskup vék einnig í setningar- ræðu sinni að tregðu ríkisvaldsins til að standa við gerða samninga um skil á hlutdeild safnaða og kirkjugarða í sköttum. Ráðherra telur að kirkjunni beri þeir fjármunir, sem ríkið hefur tekið að sér að innheimta fyrir hana. Hann segir að um leið og svigrúm gefst til þess að afnema skerðingu kirkjugarðsgjaldsins, þá verður það gert af hálfu þessarar ríkisstjórnar og það verður við fjárlagagerð árið 1993. Þá vék kirkjumálaráðherra að þeim veraldlegu úrlausnarefnum sem rík- ið og þjóðkirkjan þurfa að leysa úr sameiginlega, en jarðamál munu vera þau flóknustu. Þar er um að ræða stór álitaefni, sem lengi hafa vafist fyrir mönnum og ólíkum sjón- armiðum verið teflt fram. Ráðherra taldi að nú væri tími til kominn að leiða þau álitaefni til lykta. Lög- fræðileg niðurstaða, sem nú liggur fyrir, er sú að þær jarðir, sem kirkjan hafi átt og eigi hafa verið seldar frá þeim með lögmætum hætti, séu enn kirkjueign. Þessi niðurstaða er af- rakstur mikillar vinnu vísustu manna á þessu sviði. Nú verður ekki undan því vikist að bregðast við þessari niðurstöðu og skipa málum til frambúðar að því er þetta álita- efni varðar, segir ráðherra. -js Tímamynd Ámi Bjarna Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráöherra ávarpar kirkjuþing. Niðurstaða ráðgjafafyrirtækisins Moret og Young: Sameining Landspítala og Borgarspítala best Ráðgjafafyrirtækið Moret Emst & greinum sérhæfðrar læknisþjón- Heilbrigöisráðherra hefur sagt aö Young, sem hefur sérhæft sig á ustu. Þetta mundi leiða til meiri hann vilji sameina Landakot og sviði ráðgjafar í sjúkrahúsrekstri, kostnaðar vegna verri nýtingar Borgarspítala og koma á verka- telur eldd hagkvæmt að sameina sérhæfðs starfsfólks og dýrra skiptingu og auknu samstarfi Borgarspítala og Landakotsspít- tækja og minni gæða vegna þess milli Landspítala og hins samein- ala, eins og heUbrigðisráðherra að sérfræðingar í undirsérgrein- aða spítala. Moret Ernst & Young vill gera. Fyrirtækiö leggur til að um fengju ekki tækifæri til að við- telja hins vegar að reynslan er- Borgarspítalinn og Landspítalinn halda hagnýtri reynslu. Með tifliti lendis frá sýni að shk verkaskipt- sameinist. til fólksfæðar er því ekki réttlæt- ing og samstarf eigi sér ekki stað Umræður um sameiningu anlegt að hafa mjög sérhæfða nema með sameiningu. Óhag- sjúkrahúsa í Reykjavík hafa hing- þjónustu á tveimur stöðum. kvæmt sé að hafa tvo jafnstóra að tU fyrst og fremst snúist um að Með sameiningu Borgarspítaia spftala. sameina Borgarspítaia og Landa- og Landspítala myndu spítalamir Skýrsla ráðgjafafyrírtældsins var kot. Moret & Young telja að slík bæta hvor annan upp, þannig að unnin að frumkvæði stjómar Rík- sameining leiði ekki til sparnaðar samvirkni og hagkvæmni yrði isspítalanna. Skýrslan hefur verið og hagræðingar. Þannig yrðu til veruleg. Siðan yrði hægt að dreifa send heilbrigðisráðherra. Það er tvö sjúkrahús af svipaðri stærð, almennri þjónustu. Æslrilegt væri hans að ákveða hvort farið verður annars vegar Ríkisspítalar og hins að hinn sameinaði spítali stripti að tillögu ráðgjafafyrirtækisins vegar Borgarspítaii/Landakot við Landakot á bráðaþjónustu og um að Rðdsspítaiamir taki upp Hörð samkeppni yrði mifli þeirra annarri starfsemi sem dreift verð- viðræður við Borgarspftalann um um fjármagn og starfsfólk. Bæði ur frá nýja spítalanum. Ráðgjafa- að sjúkrahúsin láti fara fram ná- sjúkrahúsin mundu keppast við að fyrirtækið telur þennan kost vera kvæma athugun á hagkvæmni verða lelðandi í sem flestum þann hagkvæmasta. þess að sameina þau. -EÓ Landssamband kúabænda mótmælir harö- lega 10% lækkun á nautagripakjöti: Bændur telja verð- lækkunina lögbrot Landssamband kúabænda (LK) tel- ur að sú ákvörðun margra slátur- leyfíshafa að lækka einhliða verð á nautgripakjöti til framleiðenda um 10% sé lögbrot. LK telur að ekkert offramboð sé á nautgripakjöti á markaðinum í dag, en telur hins vegar verulega hættu á offramboði um og uppúr miðju næsta ári. Þess vegna hvetur LK mjólkurframleið- endur til að selja ekki kálfa til kjöt- framleiðslu á afsláttarverði. LK telur verðlækkun sláturleyfis- hafa vera skýlaust brot á lögum um framleiðslu, verðlagningu og sölu búvara, en þar segir að enginn megi kaupa eða selja vöru á öðru verði en ákveðið er samkvæmt lögum, og að afurðastöðvum sé skylt að haga greiðslum í samræmi við ákvæði laganna og þeirra samninga og ákvarðana sem teknar eru með heimild í þeim. Verðlagning á naut- gripakjöti er ákveðin af sexmanna- nefnd og er verðlagsgrundvöllur kúabús nú bundinn til næsta árs. LK hefur sent Landssamtökum slátur- leyfishafa og sláturleyfishöfum bréf þar sem skorað er á þá, sem lækkað hafa verð til bænda, að hækka það nú þegar til samræmis við skráð verð. LK telur erfitt að leggja raunhæft mat á framboð á nautakjöti, en bend- ir á að tölur byggðar á forðagæslu- og sláturskýrslum bendi tæpast til að á þessu hausti sé meira framboð á ungnautakjöti en á síðasta hausti. Sala á nautakjöti hefur aukist um 20% á síðustu 10 árum. Verð til bænda hefur á sama tíma lækkað að raungildi um 20%. Framleiðsla og sala hefur síðustu tvö ár verið í kringum 3000 tonn á ári. Framboð á nautgripakjöti er langmest í október og nóvember. -EÓ JÓHANNES PÁLL páfl II hefur tilnefnt Gunnar Friöriksson riddara heilags Gregóríusar, sem er páfalegt heiöursmerki, veitt fyrir fram- úrskarandi þjónustu í þágu kirkjunnar. Gunnar er annar íslending- urinn sem hlýtur þennan heiöur, afi hans og alnafni var fyrstur ár- iö 1925 fyrir staöfestu í trúnni. Páfi hefur og veitt Jóhönnu Friöriksdóttur krossinn Pro Ecclesia et Pontifice, en þaö þýöir „Fyrir kirkju og páfa“, fyrir þrautseigju í trúnni. Hún er fyrst íslendinga til að hljóta þann heiöur af hendi hans heilagleika. Á myndinni eru Torfi Ólafsson, formaöur leikra kaþólskra, Jóhanna Friöriksdóttir, Alfred Jolson biskup, og Gunn- ar Frlöriksson. -aá. Tímamynd: Árni Bjarna Um 5.700 milljónum óhagstæöari vöruskiptajöfnuður en í fyrra: Almenn innkaup aukist um 1 % minna flutt út 20%, en Um 1.040 miiljónum króna (13%) minna fékkst fyrir útfluttar vörur núna í september heldur en í sama mánuði í fyrra. í septemberiok var vöruútflutn- ingur landsmanna frá áramótum (69,4 milljaröar) um 1% minni heldur en á sama tímabili í fyrra. Þrátt fyrir það hefur þjóðin aukið almennan inn- (lutning um 20% milli ára, eða um 9,3 milljarða króna (um 144.000 kr. á meðalfiölskylduna). Svo dæmi sé tekið hefúr þessi 9,3 milljarða aukning aimennt sömu áhrif á vöruskiptajöfnuðinn eins og ef olíu- verð hefði þrefaldast milli ára. Olíuinn- flutningur var um 5,2 milljarðar á fyrstu níu mánuöum ársins, borið saman við 4,8 milljarða á sama tíma í fyrra. Vegna margfalt minni flugvélakaupa á þessu ári en í fyrra hefur heildarinn- flutningur (69 milljarðar) hins vegar vaxið mun minna heldur en almennur innflutningur, eða í kringum 5 millj- arða (tæp 8%) milli ára. Innflutningur flugvéla er nú aðeins 1,9 milljarðar, borið saman við 6,9 miiljarða á sama tíma í fyrra. Vegna þessa hefði mátt ætla að vöruskipta- jöfriuður landsmanna væri hagstæðari á þessu ári en því síðasta — en það er nú aldeilis öðru nær. Í lok september var vöruskiptajöfriuður landsmanna einungis 480 milljónir yfir núllinu, borið saman við 6.160 milljónir í plús á sama tímabili í fyrra. Útflutningur sjávarafurða var um 56,2 milljarðar á fyrstu níu mánuðum ársins, sem var tæpiega 3% aukning milli ára. Mikill samdráttur varð hins vegar á ölium öðrum útfiutningi, t.d. 8% minna af áli, 36% minna af kísil- jámi og 15% minna af öðmm vömm. _____________________- HEI Töfraflautan í Logalandi íslenska óperan sýnir Töfra- flautu Mozarts í Logalandi í Borgarfirði sunnudaginn 27. október kl. 20:00. Sýningin er gjöf til Tónlistarfélags Borgar- fjarðar á 25 ára afmæli þess. -aá.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.