Tíminn - 26.10.1991, Síða 6

Tíminn - 26.10.1991, Síða 6
6 Tíminn Laugardagur 26. október 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin (Reykjavík Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjórar: Indriöi G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fróttastjórar: Birgir Guömundsson Stefán Ásgrímsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gíslason Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavlk. Sími: 686300. Auglýsingasfmi: 680001. Kvöldsfmar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi h.f. Mánaðaráskrift kr. 1200,-, verö I lausasölu kr. 110,- og kr. 130,- um helgar. Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Vandi borgarstjóra Hinn nýi borgarstjóri í Reykjavík, Markús Öm An- tonsson, tekur á sig mörg óþægindi eftir ráðsmennsku forvera síns. Nú er að vísu nauðsynlegt að átta sig á því að þótt Davíð Oddsson hafi ekki sýnt ráðdeild í meðferð fjár, verður eigi að síður að kalla til ábyrgðar allan íhalds- meirihlutann þegar framkvæmdir á vegum Reykjavík- urborgar eru teknar til gagnrýninnar umræðu og fjár- málastjórnin könnuð ofan í kjölinn. Það eru sem betur fer verulegar líkur til þess að nýr borgarstjóri hafi áhrif á að snúið verði við blaði í fjár- málastjóm Reykjavíkur, þó ekki væri nema af því að stórbyggingaframkvæmdir á síðustu árum binda hendur hans. Nýr borgarstjóri hefur litla möguleika til þess að taka upp sjálfstæða minnisvarðastefnu í nafni sjálfs sín sem eftiröpun af því sem einkenndi forvera hans. Auk þess er engin ástæða til að ætla hinum nýja borgarstjóra neitt slíkt, síst eftir það að hann hefur stöðvað verstu foreyðsluframkvæmdirnar, að svo miklu leyti sem þess er kostur. Þótt Markús Örn hafi ekki haft nein stóryrði um þessar gerðir sínar, veita borgarbúar þeim athygli. Fleiri og fleiri Reykvíkingar gera sér ljóst að fjárausturinn í ráðhúsið við Tjörnina og samkomuhúsið á Öskjuhlíð hefur verið afhjúpaður. í því máli hefur borgarstjóri af virðingarverðri lagni tekið mið af gagnrýni minnihlutans í borgarstjórn. Hann hefur ekki reynt að forherða sig gagnvart að- finnslum minnihlutans, m.a. í skjóli massífs meiri- hluta, heldur virðist hann hlusta á rökstuddar ábend- ingar borgarfulltrúa almennt um það sem betur mætti fara. Þessa viðleitni þyrfti hinn nýi borgarstjóri að rækja enn frekar, því að það er reykvískri pólitík ekki hollt, eins og á stendur um hlutföllin í flokkaskipun- inni í borginni áratug eftir áratug, að meirihlutinn hangi tillitslaust á „rétti“ sínum til hins ýtrasta, ekki aðeins í stjórnkerfi og toppstöðum, heldur einnig að því er tekur til frumkvæðis í borgarstjórn, samráða og tillögugerðar, að ekki sé minnst á nauðsyn þess að ráðamenn hlusti á gagnrýnisraddir. Gagnrýni Sigrúnar Þótt það sé rétt sem borgarstjóri segir að Reykjavík- urborg sé ríkt sveitarfélag og það því fremur sem það er borið saman við ýmis önnur sveitarfélög, hlýtur ábending Sigrúnar Magnúsdóttur um versnandi lausa- fjárstöðu borgarinnar og vaxandi yfirdrátt á hlaupa- reikningi að vekja athygli. Þessi fjárhagsstaða skýrist ekki eingöngu af því að borgarsjóðstekjur skili sér ekki sem skyldi um þessar mundir. Slæm lausafjárstaða og yfirdráttur á banka- reikningi Ieiðir í ljós að samhengi er milli kostnaðar af stórbyggingum og erfiðleika í fjármálum borgarinnar. Afleiðingar minnisvarðastefnu Davíðs Oddssonar eru farnar að koma fram í rekstri borgarinnar frá degi til dags. „Tímabundið", segir Markús Örn. En hver er kominn til að segja að slæm lausafjárstaða sé ekki orð- in að viðvarandi vandamáli? TLI ORÐIÐ „fortíðar- vandi“ sé til f nokkru öðru tungumáli en íslensku sem svo munntamt pólitískt japlyrði, að íslenskir stjórnmálamenn eru sífellt að leita til liðins tíma til varnar sínu eigin stefnuleysi? Það er eins og þeir telji það sér til framdráttar að vera ævinlega með sannar eða lognar ávirð- ingar fortíðarinnar á vörunum. Þessir menn virðast ekki átta sig á að stjórnmál á hverri tíð eru fyrst og fremst glíma við vanda líðandi stundar, en ekki vanda fortíðar í þeim mæli sem margir vilja vera láta. Lýðræðis- leg stjórnmál hafa með réttu verið kölluð „list hins mögu- lega“ og hljóta alltaf að fjalla um samtímann með sýn til framtíðar. Þótt skilningur á samhengi sögunnar sé auðvitað nauðsynlegt menntunaratriði, er útlegging á gerðum fortíðar oftar en ekki byggð á pólitískri rangtúlkun. Tálið um fortíðarvanda hefur verið Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra einkar tungutamt frá því að hann kom til valda. Að svo miklu leyti sem hann hefur varpað orði á þjóð sína í sam- felldri ræðu um ástand og horf- ur í efnahags- og atvinnumál- um er „fortíðin" honum efst í huga. Ræðumennska hans hef- ur í þeim tilfellum falist í því að sanna það fyrir landsmönnum að fráfarandi ríkisstjórn hafi skilað af sér vondu búi, sem síð- an hefur orðið tilefni endurtek- inna útlegginga af „fortíðar- vandanum" sem á að gera nýrri ríkisstjórn svo erfitt fyrir. Þráhyggja um _________fortíðina___________ Þessi þráhyggja um fortíðar- vandann kom glögglega í ljós á nýafstöðnum fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins. Þar var miklu rúmi eytt í að gagnrýna fyrri ríkisstjórn fyrir efnahags- stefnu hennar meðan hún sat við völd og deila á „viðskilnað" hennar, þegar hún lét af störf- um. En flest, sem þar var sagt, var bergmál af stefnuræðu for- sætisráðherra á Alþingi fyrir tveimur vikum. Sú ræða vakti athygli fyrir það hve löngum tíma ráðherrann eyddi í að út- mála „fortíðarvandann" sem hann tæki við, þótt honum tæk- ist ekki eins vel upp að sann- færa áheyrendur um að lýsing hans á þessum vanda ætti við rök að styðjast. Enda er sannleikurinn sá, að núverandi ríkisstjórn tók al- mennt við góðu búi úr hendi hinnar fráfarandi. Þar með er ekki sagt að ný stjórn hafi ekki tekið við ýmsum vanda, sem fremur má telja viðvarandi verkefni hverrar ríkisstjórnar að fást við en að hann verði leystur einu sinni fyrir allt. Það er fyrst og fremst þess háttar vandi sem ríkisstjórnin hefur við að giíma. Þar má nefna rík- isfjármálin, sem viðurkenna ber að er langvinnt vandamál, sem síðustu ríkisstjórn tókst ekki að leysa svo að hægt sé að tala um viðunandi hvað þá endanlega lausn. Hins vegar er það ekki rétt með farið að þessi vandi ríkisbúskaparins hafi orðið í tíð fráfarandi ríkisstjórnar. Fráfarandi ríkisstjórn átti við „fortíðarvanda" að stríða í því efni. Sá fortíðarvandi verður ra- kinn til þess tíma þegar mest gætti stefnu Sjálfstæðisflokks- ins í málefnum ríkisbúskapar á árunum 1983-1987. Þjóðinni hefur ekki tekist að vinna sig út úr þeirri hallarekstrarstefnu, sem tekin var upp á þessum ár- um að kröfu og frumkvæði Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæð- ismenn sáu til þess að uppgang- ur þessa tímabils fór framhjá ríkissjóði. í stað þess að nota uppsveifluna þá til þess að afla ríkissjóði tekna ásamt nauðsyn- legu aðhaldi í útgjöldum, völdu sjálfstæðismenn þá leið að reka ríkissjóð með halla, sem síðan varð viðvarandi vandi og því meiri sem samdráttartími hófst með árinu 1987 og stendur enn að því er tekur til undirstöðu- greinar þjóðarbúskaparins, sjávarútvegsins. Þegar forysta Sjálfstæðisflokksins talar um fortíðarvanda, hittir hún sjálfa sig fyrir. Endurreisnarstj órn 1988-1991 En að slepptum þessum við- varandi vanda ríkisfjármálanna — sem ekki skal gert lítið úr — eru það hrein öfugmæli að nú- verandi ríkisstjórn hafi tekið við erfiðu þjóðarbúi úr hendi frá- farandi stjórnar. Þvert á móti tókst fráfarandi ríkisstjórn að ráða vel fram úr rekstrarvanda atvinnuveganna á árabilinu 1988-1991. Ríkisstjórn sú, sem Steingrímur Hermannsson myndaði haustið 1988 (og styrkt var ári síðar með öflugri þingstuðningi), vann að endur- reisn útflutningsframleiðslunn- ar með athyglisverðum árangri. Vissulega kostaði þessi endur- reisn nokkra fjármagns flutn- inga í efnahagskerfinu, sem auðvelt er að brennimerkja sem millifærslukerfi, með tilheyr- andi lántökum og myndun sér- stakra sjóða til þess að standa undir endurreisn útflutnings- fyrirtækja, koma í veg fyrir að gjaldþrotaleið nýkapítalista ylli ringulreið í grundvallarat- vinnuvegi þjóðarinnar, setti fyr- irtæki á hausinn hringinn í kringum landið, gæfi hræ- gömmum kapítalsins tækifæri til þess að eignast góssið fyrir smánarverð og stokka fram- Ieiðslukerfið upp að sinni vild. Endurreisnaraðgerðir ríkis- stjórnar Steingríms Hermanns- sonar komu í veg fyrir þá þróun. Millifærslukerfi það, sem við var stuðst í þessu efni, var að- eins til bráðabirgða. Það er ekki lengur til og stóð aðeins sinn af- markaða tíma. Um árangur þeirra aðgerða í þágu útflutningsframleiðslunn- ar, sem ráðuneyti undir forystu Steingríms Hermannssonar beittust fyrir, eru að því leyti til skiptar skoðanir, að talsmenn hins óhefta kapítalisma finna endurreisnaraðgerðunum það til foráttu, að íyrirtækin, sem þeirra nutu, hafi orðið að stofna til skulda, sem þau fái ekki risið undir og séu því engu betur sett en áður. Forsenda þjóðar- __________sáttar____________ Þessi fullyrðing er haldlítil. í heild skoðað hafði útflutnings- framleiðslan þann hag af að- gerðunum sem til var ætlast. Þær sköpuðu sjávarútvegi nýjan rekstrargrundvöll, komu í veg fyrir þá rekstrarstöðvun sem við blasti, það atvinnuleysi sem gein við verkafólki í slíku ástandi. Þessi batnandi rekstr- arhagur kom þegar í ljós árið 1989 og tryggði gott atvinnu- ástand hjá fólki í sjávarútvegi. Það fékk aukna trú á að besta leiðin til þess að tryggja at- vinnuöryggið væri sú að sam- stilla með heildarstefnu þróun kjaramála og efnahagsþróun al- mennt. Þar með voru sköpuð skilyrði fyrir þeirri þjóðarsátt sem kjarasamningarnir í febrú- ar 1990 byggðust á. Það var sameiginlegur skilningur aðila vinnumarkaðarins og ríkis- stjórnarinnar að bætt rekstrar- afkoma fyrirtækja og aukinn kaupmáttur væri undir því komið að draga úr verðbólgu og tryggja kyrrð á vinnumarkaði til langs tíma. Þjóðarsáttar- samningarnir ráku smiðshögg- ið á endurreisnaraðgerðir ríkis- valdsins og voru óaðskiljanleg- ur þáttur þeirra. Allt stuðlaði þetta að því að núverandi ríkis- stjórn naut góðra verka og við- skilnaðar fráfarandi ríkisstjórn- ar. f hverju var þessi góði við- skilnaður ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar þá fólg- inn? Hann fólst fyrst og fremst í því að náðst hafði efnahagslegur stöðugleiki sem kom fram í lít- illi verðbólgu og stöðugu gengi. Þegar síðasta kjörtímabili lauk hafði verðbólga undanfarinna tólf mánaða aðeins mælst 4,6% og horfur á að verðbólgan fram- undan yrði ekki yfir 6% á heilu ári. Meðalverðbólga 1984-1989 var 20-30% á ári og raunar miklu meiri, ef lengra er litið. Enginn vafi er á því að þessa hagstæðu verðlagsþróun mátti þakka viðhorfsbreytingum í gerð kjarasamninga. Hér kom fram hugarfarsbreyting gagn- vart skaðsemi óhagstæðrar verðlagsþróunar, skilningur á því að óðaverðbólga er öllum skaðleg, að hún er efnahagslegt átumein í víðtækum skilningi og rýrir afkomu launþega. Hvað verðlagsþróunina varðar verður aldrei lögð of mikil áhersla á að benda á hlut laun- þegahreyfingarinnar í því sem ávannst í því efni, né heldur mikilsvert framlag atvinnurek- enda og annarra áhrifaafla um þróun efnahags- og fjármála.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.