Tíminn - 26.10.1991, Síða 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hatnorhusinu v TryggvGgotu
S 28822
AUÐVITAÐ
Suöurlandsbraut 12
Öðruvísi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR•VARA-
HLUTIR.
MYND HJÁ OKKUR - BlLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
Áskriftarsími
Tímans er
686300
Tíminn
LAUGARDAGUR 26. OKT. 1991
Könnun á næringarástandi aldraðra á stofnunum á íslandi:
Um 7. hver vannærður
„Við gerðum ákveðið mat á næringarástandi aldr-
aðs fólks á stofnunum. Þar kom fram að næringar-
ástand var tiltölulega lélegt hjá 14% einstaklinga,“
sagði Kolbrún Einarsdóttir, næringarráðgjafi á
Landspítalanum.
Mat á næringarástandi segir hún
fyrst og fremst felast í mati á fitu-
forða og prótínforða líkamans.
Þetta þýðir því, lýst með almenn-
um orðum, að um 7. hver, eða
14% aldraðra á stofnunum eru of
horaðir og vöðvarýrir. Enda kom
einnig í ljós við athugun á mata-
ræði, að aldraðir á stofnunum
neyta almennt lítillar orku (þ.e.
fárra hitaeininga). Til saman-
burðar má benda á, að hlutfall
vannærðra er yfirleitt á bilinu 10-
30% í svipuðum könnunum er-
lendis.
Tíminn hafði samband við Kol-
brúnu til að leita upplýsinga um
helstu niðurstöður úr könnun á
næringarástandi aldraðra á stofn-
unum. En frá könnun þessari var
sagt á fundi sem landlæknir hélt
um þetta efni nú í vikunni. Könn-
unina sagði Kolbrún hafa náð til
127 einstaklinga sem dvöldu á
Öldrunardeild Landspítalans og
Sjúkrahúsi Egilsstaða.
„Niðurstaðan er í fáum orðum
sú, að við reynum að hvetja
starfsfólk á stofnunum til þess að
fylgjast með næringarástandi
fólks og grípa til aðgerða þegar
þörf er á,“ segir Kolbrún. Sömu-
leiðis segir hún hafa komið í ljós
vissa tilhneigingu í þá átt að Ié-
legt næringarástand væri hlut-
fallslega algengara í hópi þeirra
sem dvalist höfðu stutt á stofnun.
Þetta segir Kolbrún geta bent til
þess að orsökin fyrir lélegu nær-
ingarástandi sé að hluta til sú, að
sumt aldrað fólk sé í lélegu
ástandi heimafyrir, kannski vegna
veikinda eða lélegra aðstæðna að
öðru leyti. Af þessu má m.a.
álykta að þörf sé á svipaðri könn-
un meðal aldraðra sem búa á eig-
in heimilum.
Mat á næringarástandi felst fyrst
og fremst í því að meta fituforða
og prótínforða í líkamanum, sem
áður segir, en ekki t.d. vítamín-
skort.
„Þegar við síðan litum á neyslu
eða mataræði og bætiefnaforða
og þess háttar, kom m.a. í ljós að í
heild sinni fékk fólkið litla orku
(hitaeiningar). Orkuneysla aldr-
aðra á stofnunum reyndist t.d.
lægri heldur en hjá fólki sem býr
heima, samkvæmt því sem fram
kom í nýlegri neyslukönnun
Manneldisráðs."
Þetta telur Kolbrún að geti m.a.
stafað af því að fólk á stofnunum
hreyfi sig minna heldur en þeir
sem búa á eigin heimili. Kannski
hafi það líka vanið sig á að borða
minna og brenni þá ef til vill
einnig minna þess vegna.
Neyslu prótíns segir Kolbrún
aftur á móti alveg viðunandi. Og
þegar litið var á algengustu vít-
amín og steinefni, hafi komið í
Ijós að fólk skorti ekki kalk og B-
2 vítamín, sem mest er af í mjólk-
urmat. Það bendi til þess að
mjólk og mjólkurmatur sé vel
notaður á stofnunum. Á hinn
bóginn hafi C-vítamín og járn
reynst lágt og sömuleiðis A-vít-
amín meðal karla. - HEI
■■
SUBARU STATION 1.8DL4WD
'
r’VS' -“'T
Valkvætt fjórhjóladrif Samlæstar hurðir
Hátt og lágt drif Rafstillanlegir speglar
Vökvastýri Þriggja ára ábyrgð
VERÐ KR. 1.222.000, - staögr.
FYRIR UTAN RYÐVÖRN OG SKRÁNINGU
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
*
V