Tíminn - 09.11.1991, Side 8

Tíminn - 09.11.1991, Side 8
8 Tíminn Laugardagur 9. nóvember 1991 Laugardagur 9. nóvember 1991 Tíminn 25 Matthías Bjarnason, alþingismaður Vestfirðinga og stjórnarformaður Byggðastofnunar: Harðlínumenn hafa of mikil völd Matthías Bjarnason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum og stjórnarformaður Byggðastofnunar, lýsti því yfir á Alþingi í vikunni að hann væri algerlega andvígur stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jafnframt lýsti hann því yfir að hann væri ekki aðili að stefnuskrá stjórnar- innar, Hvítbókinni svokölluðu. Matthías segist hafa orðið fyrir vonbrigðum með Davíð Oddsson, forsætisráðherra og segir að stefna hans í byggðamálum og fleiri málum sé ekki sú sama og hann boðaði fyrir kosningar. Matthías var fyrst spurður út í starf Byggðastofnunar. „Starf Byggðastofnunar er mjög fjöl- þætt. Byggðastofnun hefur orðið að taka á vanda hinna ýmsu fyrirtækja í útflutn- ingi. Sá vandi hefur verið mikill og hefur staðið í allmörg ár. Starfsemin hefur einnig gengið út á að reyna að styðja við nýjar greinar og við ný fýrirtæki. Sumt hefur gengið vel, en annað verr, eins og gengur. Nú í seinni tíð hefur mikið starf farið í að stuðla að sameiningu fyrir- tækja. Mjög víða er hentugra að eining- arnar séu stærri, en þó er það ekki í öll- um tilfellum rétta leiðin tii að renna traustari stoðum undir íslenskt atvinnu- lff. Það, sem hefur fyrst og fremst brugðist, eru stjórnvöld, og þar með Alþingi sem ég á sæti á. Framlög til Byggðastofnunar hafa farið hríðlækkandi. Á árunum 1974-1978 var árlegt framlag til stofn- unarinnar yfir einn milljarður króna á verðlagi dagsins í dag. í fjárlagafrum- varpinu er framlagið 200 milljónir. Þetta er skýrasta dæmið um það hvernig stjórnvöld hafa brugðist Byggðastofnun. Byggðastofnun hefur átt því láni að fagna að eiga marga góða starfsmenn sem hafa unnið gott starf. Þetta umrót sem nú er orðið, vegna ummæla forsæt- isráðherra, hefur orðið til þess að sumir starfsmenn Byggðastofnunar eru farnir að huga að öðru tryggara starfi. Áhyggj- ur starfsmanna stafa ekki eingöngu af því að það er verið að tala um að flytja stofnunina til Akureyrar, heldur ekki síður vegna þess að það er verið að tala um að gera stofnunina að ekki neinu.“ Hvað verður um Byggðastofnun ef sú reglugerð, sem forsætisráðherra er með í smíðum, nær fram að ganga? „Þessi reglugerðardrög eru ekki í sam- ræmi við þá stefnu sem Sjálfstæðisflokk- urinn hefur fylgt. Það hefur verið venja í flokkum að fela mönnum, sem þekkja til hlutanna, að vinna svona vinnu, eða a.m.k. hafa þá með í ráðum. Ég fullyrði að þessi drög hafa verið unnin af fólki, sem hefur ekki komið nálægt byggða- málum eða hefur nokkra þekkingu á þeim. Ég tel fráleitt að þau verði sam- þykkt í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Veröi þau samþykkt, verður Byggða- stofnun gagnslaus og má þess vegna flytja hana til Akureyrar eða á Hveravelli fyrir mér.“ Sjálfstæðisflokkurinn mót- aði þá byggðastefnu sem fylgt hefur verið Á Sjálfstæðisflokkurinn ekki stóran þátt í að móta og framfylgja þeirri byggða- stefnu, sem fylgt hefur verið síðustu ár? „Jú, svo sannarlega á Sjálfstæðisflokk- urinn stóran þátt í því, og vil ég þó alls ekki gera hlut annarra flokka lítinn. Hæstu framlög til byggðamála voru á þeim árum þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór með stjórnarforystu í ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar. Ég taldi Geir allt- af vera mikinn Reykvíking, enda var hann fyrrverandi borgarstjóri. Hann sýndi alveg einstakan skilning á málefn- um landsbyggðarinnar í þeirri ríkis- stjórn, sem hann veitti forystu." Lítur þú þá svo á að Sjálfstœðisflokk- urinn hafi breytt um stefnu? „Nei, það get ég ekki gert. Ég veit ekki til þess að það hafi farið fram nein stefnumörkun í Sjálfstæðisflokknum um breytta stefnu í byggðamálum. Hins vegar koma yfirlýsingar forsætisráð- herra yfir mann eins og köld vatnsgusa." Ríkisvaldið verður að hjálpa fyrirtælqunum Hvemig lýsir þú byggðastefnu ríkis- stjómarinnar? „Ég á bágt með að lýsa henni og verð bara að vísa í þessa svokölluðu Hvítbók. Miðað við yfirlýsingar forsætisráðherra, og nú síðast drög að reglugerð um Byggðastofnun sem hann hefur kynnt, fer ég að halda að þessi ríkisstjórn ætli ekkert að gera í byggðamálum. Þessar sífelldu yfirlýsingar um að fyrirtækin eigi að leysa sinn vanda sjálf eða fara bara á hausinn, eru alls ekki í takt við líf- ið og tilveruna. Ríkisvaldið raunverulega skammtar sjávarútvegsfyrirtækjunum tekjur. Ég veit ekki betur en að ríkisvaldið segi þessum fyrirtækjum hvað bátar megi veiða mikið af fiski. Ríkisvaldið ákveður skráningu gengis krónunnar. Það má því segja að tekjurnar séu skammtaðar af ríkinu. Þegar samdráttur verður, eins og verið hefur og heldur áfram enn, þá hriktir í stoðum atvinnulífs í sjávarút- vegi. Sjávarútvegurinn er burðarásinn í atvinnulífi bæjarfélaga hringinn í kring- um landið. Þess vegna segi ég að þetta gengur ekki upp. Hvernig í ósköpunum geta þessir menn leyft sér að tala þannig að stjórnvöld séu bara alveg frí og frjáls af því sem gerist í atvinnulífi lands- manna? Á sama tíma líta þessir menn til Efna- hagsbandalagsins og evrópska efnahags- svæðisins. Sumir hverjir eru þegar byrj- aðir að huga að inngöngu í EB. Hvað er að gerast í EB? Það er ekki til það banda- lag í veröldinni sem gerir eins mikið af því að styrkja sitt atvinnulíf eins EB.“ Telur þú þá að ríkisvaldið hafí. skyldur viðþessi fyrirtæki? „Ég tel það, en fyrst og fremst hefur það skyldur við byggðarlögin og fólkið í landinu. Menn tala núna um að fiski- miðin séu sameign þjóðarinnar. Þetta er ekki sameign þjóðarinnar í reynd. Hver á mestan hlut í fiskimiðunum? Það hljóta að vera fiskimennirnir og útgerð- irnar á hverjum tíma, þeir sem hafa lagt lífsstarf sitt í þessa atvinnugrein. Ég tel að sjómaður, sem hefur stundað sjóinn frá blautu barnsbeini, eigi mikið meira í fiskimiðunum heldur en einhver emb- ættismaður í Háskólanum eða Seðla- bankanum." Sjálfstæðisflokkurinn er ekki einn í ríkisstjóm. Telur þú að Alþýðufíokkur- inn eigi einhvem þátt í þeirri nýju byggðastefnu sem ríkisstjómin virðist fylgja? „Ég var ekki fluga á vegg í Viðeyjarstofu þegar þessi ríkisstjórn varð til. Ég þekki hins vegar vel til þeirra, sem eru í for- ystu Alþýðuflokksins. Það fer merkilega lítið fyrir áherslu á byggðamál hjá tveimur helstu forystumönnum hans, sem þó koma úr vestfirskri byggð. Annar þeirra lét sem hann væri óskaplega mik- ill byggðamaður meðan hann var skóla- meistari á ísafirði. En við skulum vona að Eyjólfur hressist." Þingflokkurinn ekki haföur með í ráðum Það vakti mikla athygli þegar þú lýstir þvt' yfír á þingi að þú værir algerlega óbundinn af Hvítbókinni. Var á ein- hvem hátt staðið óeðlilega að samn- ingu hennar? „Ef ríkisstjórnin ætlar að hafa þetta sem sína biblíu, þá er mér sama hvað hún gefur út. Á bak við hverja ríkisstjórn þarf hins vegar að vera þingmeirihluti. Allan þann tíma, sem ég hef verið í Sjálf- stæðisflokknum, hafa ráðherrar gætt þess að hafa mjög náið samband og sam- starf við þingmenn. Ég var ráðherra í átta ár og þurfti oft að leggja á mig vinnu við að fá þingmenn á mitt band þegar ég vildi ná fram málum sem ég hafði áhuga á. Ég tel að við samningu þessarar bókar hefði átt að gæta þess að styrkja betur samband þingflokks og ríkisstjórnar. Það var ekki gert. Það var komið með skapnaðinn og hann lagður fyrir þing- menn. Margir gerðu athugasemdir, en sáralítið tillit var tekið til þeirra. Ég lít einfaldlega á þetta sem heimavinnu ákveðinna ráðherra. Það er margt fallegt í þessari hvítu bók. Það er fleira bjart yf- ir henni heldur en liturinn á kápu henn- ar. Höfuðatriðið er hvernig þetta verður efnt.“ Andvígur yfírlýsingum ráð- herra um kjaramál Gerirþú athugasemdir við fíeiri efnisat- riði í bókinni en byggðamál? „Já, ég geri athugasemdir við mörg efn- isatriði. Ég er t.d. ekki sammála þessum yfirlýsingum, sem búið er að gefa í kjara- málum. Ég get vel verið sammála ríkis- stjórninni í því að ekki sé hægt að hækka launin, eins og aðstæðum er háttað í efnahagsmálum þjóðarinnar. En það er alveg útilokað að segja í framhaldi af því að það eigi að svipta fólk réttindum, sem það hefur haft áratugum saman. Það getur heldur ekki gengið að ríkisvaldið, sveitarfélögin og ýmsir aðrir séu alltaf að hækka umfram það sem fólkið fær í hækkuðu kaupi. Ég tel einnig að æðsta stjórnvald í þessu landi hafi ekki sýnt neina fyrir- mynd í fjármálum. Ráðherrar í fyrri stjórn gerðu mikið af því að ferðast til útlanda og ýmsir gagnrýndu það. En það hefur svo sannarlega ekki dregið úr þeim ferðalögum með nýjum ráðherr- um. Stór hluti Alþingis, alþingismenn og ráðherrar, hefur verið á ferðalögum heimsálfanna á milli í allt haust. Ráð- herrar hefðu nú líka mátt bíða með bíla- kaup, nú þegar verið er að skera niður og krefjast þess af almenningi að hann herði sultarólina. Ég sé ekki að ráðu- neytin gangi á undan með góðu for- dæmi. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu aukast útgjöld ráðuneytanna mjög mik- ið. Sumir aðilar virðast vaða í pening- um, a.m.k. er ekki reynt að stemma stigu við útgjöldum Seðlabankans svo dæmi sé tekið." Davíð talaði ekki svona um byggðamál fyrir kosningar Nú tala menn, í fullri alvöru að því er manni virðist, um að leggja afbyggð á sumum svæðum. Hver er framtíð byggðar á Vestfjörðum? „Það er til fólk sem þannig hugsar. Það er yfirleitt fólk sem leggur ekki niður fyrir sér hlutina. Á Vestfjörðum hefur verið byggð og mannlíf jafn lengi og þetta land hefur verið byggt. Vestfirðir liggja við einhver gjöfulustu þorskveiði- mið landsins. Stjórnvöld hafa með stjórnvaldsaðgerðum skert afkomu- möguleika þessa fólks, sem liflr svo til eingöngu á fiskveiðum og fiskvinnslu. Þjónustuhlutverkið er þar í lágmarki, öf- ugt við það sem er á höfuðborgarsvæð- inu. Það eru takmörk fyrir því hvað þjón- ustan getur tekið við miklu. Atvinnuhorfur eru ískyggilegar núna. Ég kenni rfkisstjórninni ekki um það. Sumt af því er óviðráðanlegur hlutur sem við sjálfstæðismenn sáum fyrir, löngu fyrir kosningar. Þá sögðu aðrir að bjart væri framundan og lugu viljandi að þjóð- inni. Þá sögðum við: „Treystið okkur, við skulum gera okkar besta til að laga at- vinnuástandið." Við boðuðum ekki sam- drátt í félagslegu tilliti. Það boðaði eng- inn okkar að við myndum vinna gegn byggðamálum, eins og sumir harðlínu- menn gera í dag. Það er ákveðinn harð- línuflokkur innan Sjálfstæðisflokksins sem hefur náð alltof miklum völdum. En Tímamynd Árni Bjarna harðlínumenn í heiminum hafa verið á hröðu undanhaldi. Harðlínumenn verða að skilja að í lýðfrjálsu þingræðislandi, eins og íslandi, kemur að kosningum og ég hef enga trú á því að harðlínumenn eigi fylgi meðal landsmanna." Vantreysti Davíð Telur þá að sjálfstæðismenn séu að svíkja það sem þeir sögðu í kosningabar- áttunni? „Ég tel mig ekki vera í þeim hópi. Marg- ir þingmenn Sjálfstæðisflokksins óttast hve harkalega er talað um byggða- og at- vinnumál í þessu landi.“ Það hefur vakið athygli hve hart þú gagnrýnir Davíð Oddsson forsætisráð- herra, og það mátti jafnvel skilja um- mæli, sem þú lést falla um byggðamál á Alþingi, að reynsluleysi hans í landsmál- um valdi honum erfíðleikum. Vantreyst- irþú honum íþví hlutverki sem hann er í í dag? „Það geri ég, eftir það sem á undan er gengið. Ég gerði það ekki áður. Mér fannst Davíð koma vel fram fyrir kosn- ingar. Hann talaði skynsamlega um sjáv- arútvegsmál. Hann talaði vinsamlega um byggðamál. Það kann að vera að hann sé nú kominn í slæman félagsskap. Það er oft þannig að slæmur félagsskapur getur spillt hinum bestu mönnum. Þegar um greinda menn er að ræða, ná þeir sér oft- ast nær upp úr honum aftur.“ Sjálfstæðisflokkurinn á áfram að vera víðsýnn um- bótaflokkur Heldur þú að það geti verið að það hafí orðið einhverjar breytingar á Sjálfstæð- isfíokknum samhliða kynslóðaskiptum í forystu hans? „Kynslóðaskipti eiga sér auðvitað alltaf stað. Menn koma og fara. Menn aðlagast því sem verið hefur, en jafnframt eru menn alltaf að endurskoða stefnu og við- horf. Ég hef trú á því að meginþorri af stuðningsfólki Sjálfstæðisflokksins vilji gera breytingar á ýmsu. Ég vil gera marg- ar breytingar á mörgu í okkar þjóðfélagi. Ég er að ýmsu leyti róttækari núna en ég var þegar ég var yngri. En ég vil ekki gera neinar breytingar á grundvallarstefnu Sjálfstæðisflokksins. Hann á áfram að vera víðsýnn umbótaflokkur, þar sem ein- staklingsfrelsið er haft í hávegum, en ekki á þann veg að einhverjir forréttinda- hópar eigi að fá að lifa og starfa á kostnað hinna. Dugnaður einstaklingsins, fram- sýni, atorka og skyldurækni á að vera í heiðri höfð. Þessum grundvallarsjónar- miðum má flokkurinn aldrei breyta." Forsætisráðherra tókst að særa mig Styður þú ríkisstjómina? „Ég styð hana til góðra verka. Hins veg- ar hef ég í lífi mfnu og starfi reynt eftir fremsta megni að vera hreinskilinn og heiðarlegur. Núverandi forsætisráðherra tókst ágætlega að særa mig daginn fyrir sjötugsafmælið mitt. Hann talaði um sukk í Byggðastofnun. Ég hef ekki fengið að heyra slík ummæli frá pólitískum and- stæðingum mínum. Nú hefur hann end- urtekið þetta á Alþingi. Þetta hefur ekki fært mig nær honum. Ég hef átt ágæt samtöl við forsætisráð- herra um hlutina og hann tekið þeim vel. Svo er bara er snúist algerlega öndvert gegn því sem sagt er. Ég tel mig ekkert einangraðan í þessu máli. Það er fjöldi fólks, ekki síst úr Sjálfstæðisflokknum, sem hefur sagt við mig: „Það er gott að það sé tekin upp andstaða við þessa stefnu. Við skiljum ekki stefnu stjórnar- innar í byggðamálum. Þetta er ekki sú stefna sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur fylgt. Hjól atvinnulífsins eru víða að stöðvast og stjórnvöld gera ekki neitt.“ Ef þessi barátta mín á að kosta mig einhverja einangrun í Sjálfstæðisflokknum, þá mun ég taka því. Eg hef hins vegar ekki orðið var við að ég sé einangraður. Það eru t.d. margir sammála mér í þingflokknum.“ Þú ert búinn að sitja á þingi í nærri 30 ár og verið ráðherra í átta ár. Finnst þér ekki miður að enda stjómmálaferil þinn á þann hátt að berjast gegn forystu þíns eigin fíokks? „Vitaskuld fínnst mér það miður. En ég myndi aldrei fyrirgefa sjálfúm mér, ef ég snérist ekki til varnar. Það var ekki ég sem hóf árás.“ Egill Ólafsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.