Tíminn - 21.11.1991, Qupperneq 6

Tíminn - 21.11.1991, Qupperneq 6
6 Tíminn Fimmtudagur 21. nóvember 1991 Tíminii MALSVARI FRJALSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin (Reykjavík Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Gíslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Skrifstofur:Lyngháls 9,110 Reykjavlk. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskríft og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1200,- , verð I lausasölu kr. 110,- og kr. 130,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Vandamál dagsins í dag Þótt sýnt hafi verið um nokkurt skeið að þjóðin stendur frammi fyrir verulegum efnahagsvanda, hefur dregist úr hófi að ríkisstjórnin gerði grein fyrir hvernig hún ætlaði að mæta vandanum og fá ráðið fram úr honum. Hikið og úrræðaleysið hefur verið einkenni á stjórnarforystu Davíðs Oddssonar og Jóns Bald- vins Hannibalssonar, þegar til þess kemur að snú- ast gegn vanda, sem krefst bráðrar úrlausnar. Ríkisstjórnin hefur loks fyrir tveimur dögum kvatt saman starfshóp til þess að fjalla um hugsan- legar aðgerðir í efnahagsmálum. Þótt annars sé óljóst hvert verkefni starfshópsins eigi að vera, vekur það athygli að hér er um hóp embættis- manna að ræða að öðru leyti en því að fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda er for- maður hans. Eins og í pottinn er búið er nauðsynlegt að starfshópur þessi ljúki störfum sem fyrst. Þar með er ekki sagt, að þess sé að vænta að hann sé í fær- um um að leggja fram óyggjandi lausnir á vanda þeim sem við er að glíma. Hugsanlegt er, að starfs- hópurinn gæti á þeim dögum sem honum er ætl- að að starfa, gert grein fyrir í hverju efnahags- vandinn er fólginn, því að mjög hefur skort á að forsætisráðherra og aðrir málsvarar ríkisstjórnar- innar hafi lagt það mál skilmerkilega fyrir. Að svo miklu leyti sem Davíð Oddsson minnist á efnahagsmál er hugur hans bundinn við ein- hverjar grillur hans sjálfs um „fortíðarvanda", sem ekki er annað en flótti frá því að takast á við að- steðjandi vanda, sem ekki á að neinu leyti uppruna sinn í „fortíðinni" í þeim skilningi sem forsætis- ráðherra vill vera láta. Sá vandi, sem ríkisstjórnin þarf að snúast gegn, er í höfuðatriðum tilfallandi vandi augnabliksins, sem taka verður tökum í samræmi við eðli sitt og leitast við að finna lausn á í sem víðtækustu samstarfi við ráðandi þjóðfé- lagsöfl innanþings og utan. Davíð Oddsson ætti að viðurkenna að fráfarandi ríkisstjórn gaf viðtakandi stjórn mikilvægt for- dæmi fyrir því hvernig efnahagsvandi hverrar tíð- ar verður best leystur. Það felst í því að stjórna efnahagsmálum á grundvelli heildarhyggju og samráðsstefnu, eins og gert var í tíð fyrra stjórnar- samstarfs og leiddi til þjóðarsáttar um þróun verð- lags- og kjaramála. Forsætisráðherra væri nær að játa það sem satt er um „fortíðararfinn", að fráfar- andi ríkisstjórn skilaði af sér þjóðarbúi í jafnvægi, ekki síst hvað varðar verðlagsþróun og verðbólg- ustig. Það er alrangt að núverandi ríkisstjórn glími við fortíðarvanda í skilningi Davíðs Oddssonar. Ríkisstjórninni ber að takast á við aðsteðjandi vandamál dagsins í dag, skilgreina þau rétt og leysa í samræmi við eðli þeirra. mwmm aABBI m LxAKKI Yftrbragð íslensfcu WB uslunnar hefur nokfcuð verið að breytast, eftír að Jón Baldvin Hannibalsson tók þar við lyklavöld- um. Ekfcier ólíklegt að þetta breytta yfirbragð hafi valdið stórum hópi manna í ráðuneytinu nokkru hug- arangri. Fonnfastír prótókolhneist- arar hafa hingað til einkum lagt haft áhyggjur af því hvort menn eigi að vera í smóíring eða fcjólfót- um í opinberum móttöfcum og hver eigi að ganga á eftír hverjum inn I móttöfcusaH og hvemig beri að raða tignarfóOd til borðs. Nú orðið er $Uk formfesta á undanhaldi og sjálfur yfirmaöur utanríkisþjón- ustu íslenska lýveldislns selur op- ínberiega utan af sér spjarimar og selur hæstbjóðanda dans við eigin- konu sína, iandsmðnnum ölium tíl Nýjasta daemiö um breytt yfir- bragð íslensku utanríkisþjónust- unnar kemur frá Bretlandi, en sér- legur fulitrúi Jóns Baldvins og fiokfcsbróðir, Stuðmaðurinn Jakob Magnússon, hefur verið ráöinn menningar- og fræðslufulltrúi við sendiráð íslands í Londoh. Jakob Magnússon var í stóru helgarviðtali í DV um helgina og eyðír þar mifclu púðri í að svara meintum ásökun- um umaðhann hafi verið ráðinn r slarfið í þakklætisskyni íýrir vel unnin störf fyrir Alþýðufiokkinn. Slíkt ætti að vera óþarfi, enda fá- ránlegt að gera meira úr pólitískri ráðningu Jakobs til utanríkisþjón- ustunnar en pólitískri ráðningu ilestra annarra sem hjá henni starfa. ■ Hins vegar Ieggur Jakob á það áherslu í viðtali þessu að hann þekki vel til islenskrar menningar. Þó er ótalið það, sem hann telur sér fyrst og fremst til tekna, en það er að hann kunní Eka tökin á marfc- aðssetningu og fjölmiðlum og því sé hann einmitt réttur maður á réttum staö. Sem dæmi um þetta nefnir Jafcob að hann hafi þegar skipulagt mikla íslandskynningu með fjölbreytilegu efni, sem fari af stað nú í lok nóvember. Eftir að hafa lesið viðtal DV við Jakob var fróðlegt að lesa i Morgun- blaðinu í gær grein um umfjöllun erlendra fiölmiðla um þessa ís- landskynningu. Samkvæmt Morg- unblaðsgreimonl seglr í nýjasta hefti mærfcaðs- og fcynningarritsins „PR Week“ frá íslandskynningu menningarfulltrúans og að „tveir íslensldr bumbuslagarar muni á hátíðinni kynna möguleika þá á fjÖIbreytílegum takttegundum og hjjómfalli, sem mannstíkanunn bjóði upp á sé hann barinn eða strokinn af listrænni andagift og innlifun." - Samfcvæmt PR Weekek/Morgunblaðiuu munu þetta vera tveir af þekktustu lista- mönnum fslendinga á þessu sviðL en athöfnin sé til þess fallin að „fsí blóðið til að ólga“. Garri verður að viðurkenna að tatí við blaðið að verið sé að opinbera þjóðlegan sið, sem farið hafí fremur hjjótt tíl þessa.“ Það mun ekfci ofsagt að fremur hljótt hafí farið um þatm þjóðkga slð að fi „blóðtð tíl að ólga“ með því að berja og strjúka mannstík- amann. Raunar hefur farið svo hljótt um þennan þjóðsið að trúlega hefur enginn utan heimilis menn- ingarfulltrúans heyrt um hann get- ið fyrr en nú, enda fær Garri ekfci betur séð en að þeir listamenn, sem bumbusláttínn iðka á myndtnni sem birtíst með umfjölluninni í PR Week, séu eiginkona menningar- fulftrúans og aupair-stúlfca þeim þó rámar hann í aö einhver maður hafi barið sér taktfast á btjóst í ís- lenskri pepsí-auglýsingu fyrir nokkrum mlsserum. Bn það sem kcmur Garra þó einna mest á óvart, og eflaust mörgum fleirum, er að samkvæmt grein Moggans uro um- fjöllun PR Weefc er hér á íerðinni listviðburður sem árætur sínar í ís- lenskri alþýðumenningu. „f sam- Hvort heldur sem menn vilja nú kannast við þessa nýju þjóðsiði eða etóá og hvort sem þeir gefe rauns- anna mynd af íslenskrí menningu eða eldd, þá er ljóst að menníngar- fulltrúinn hefur komist í blöðin í Bretíandi og vakið athygli á annars athyglisverðri ísiandskynmngu. Þegar menn velfa vegabréfum itm í 21. ðktíaa, þýðir ekld að vera „púkó“ og hið nýja yfirbragð utan- rðdsþjónustunnar er hreint ekld púkó. Þar selja menn nú hatta og þar stílla menn upp þjóðiegum sið- um og ná athygtí fjölmiðla. Garri VÍTT OG BREITT ÍíÍ .-''a'.íV 1.. -1 1 Þeir launþegar, sem ekki starfa hjá opinberum stofnunum og fyrir- taekjum, eiga 140-160 þúsund milljónir króna í lífeyrissjóðum. Fólk er skyldað með lögum til að greiða í sjóðina af launum sínum og allir atvinnuvegir sömuleiðis, nema auðvitað þeir ríkisreknu og fjármálaveldin sem mestan part eru líka ríkisrekin. En þá er ríkissjóður ábyrgur fyrir greiðslum, eins og sannaðist svo áþreifanlega þegar 11 bankastjórafjölskyldur, sem sigldu ríkisreknum Útvegsbanka í harða- strand, fengu 280 milljónir úr sjóði alira Iandsmanna sér til fram- færslu. Það hét að staðið hafi verið við skuldbindingar vegna lífeyris- sjóðs bankastjóranna. Þar sem launafólkið er skuld- bundið samkvæmt lögum að borga í lífeyrissjóði stéttarfélaganna, virð- ist löggjafinn og framkvæmdavald- ið halda að hið opinbera megi ráðskast með sjóðina að vild og þurfa ekkert samráð að hafa við eig- inlega eigendur fjárins þegar þeir sólunda því út og suður. En vonum seinna virðast samtök launafólks vera að byrja að átta sig á hvemig sjóðir þeirra em leiknir og hve gagnslitiir þeir em eigendun- um, sem borga hverja krónu í þá af launum sínum. (Hér er sleppt blekkingarleiknum um 4% og 6% og kemur umræðuefninu enda ekk- ert við.) Sambandsstjómarfundur ASÍ mótmælti í vikunni harðlega hversu langt stjómvöld ganga í að nota bætur úr lífeyrissjóðum stétt- arfélaganna til niðurgreiðslu bóta almannatrygginga með skerðingu tekjutryggingar þeirra sem fá smá- ræði af Iífeyrisspamaði sínum á eft- irlaunaaldrinum. Þeir, sem ekki em skyldaðir til að borga tíundina, geta lagt hana í ávöxtun og fengið margfaldar tekjur af sínu framlagi í fyllingu tímans, allt tvisvar sinnum skattfrítt og tekjutryggingu að auki. Fáránleikinn í öllu þessu kerfisleysi er ömurlegastur fyrir þá sök að þeir, sem lægst hafa launin, fá tiltölulega langminnsta lífeyrinn af sínum sparnaði að starfsdegi loknum. En gráðugt ríkið hirðir peningana og útdeilir þeim með neikvæðum og niðurgreiddum vöxtum og hafa verkalýðsrekendur fram til þessa talið það mjög til hagsbóta fyrir þá efnaminni, og er sá aulamarxismi fúrðufastur í kolli furðumargra enn þann dag í dag. Fyrir nokkmm vikum var tekið undir orð verkalýðsleiðtoga í svona pistli, þar sem hann hélt því fram að verkalýðshreyfingin stæði á brauðfótum. Þar var m.a. lífeyris- sjóðafárið gert að umtalsefni og sagt sitthvað ljótt um hvernig kau- plágir launþegar eru leiknir, og hvaða þátt lánlausir lífeyrissjóða- rekendur eiga í þeirri fjárpynd sem þama á sér stað. Því var kastað fram að ástæðan væri ekki síst sú að valdagírugir að- ilar blanda sífellt saman rekstri verkalýðsfélaga og stjómmála- flokka og mgla jöfnum höndum með landssjóð, almannatrygginga- framlög og einkasjóði launþega, sem em meiri að vöxtum en aðrir sjóðir samanlagt. En varðhundar valdsins sjá um að mgla sjóðaeig- endur í ríminu og ráðskast með eignir þeirra á mörgum vígstöðv- um. Bjöm Snæbjömsson, verkalýðs- leiðtogi á Akureyri, tók þetta óstinnt upp og sagði OÓ ástunda skítkast í garð verkafólks og Iýsti sérstakri fyrirlitningu á vinnandi stéttum og samtökum þeirra. Kæri Bjöm! OÓ þykist aldrei hafa sýnt verkafólki og hagsmunum þess óvild eða fyrirlitningu í skrif- um, enda veitir láglaunafólki ekki af að standa saman nú sem fyrr. En margir forkólfar launþega hafa staðið sig verr en illa í hagsmuna- gæslunni, og þeim er meira en vel- komið að taka til sín allt það skít- kast sem að þeim er stefnt og á þeim tollir. Og nú er sambandsstjómarfund- ur ASÍ farinn að kvarta yfir ná- kvæmlega sömu meðferðinni á líf- eyrissjóðum láglaunafólksins og OÓ gerði og verða fundarmenn vonandi ekki sakaðir um að sýna verkafólki sérstaka óvild með þvf tiltæki. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.