Tíminn - 21.11.1991, Page 11
Fimmtudagur21. nóvember 1991
Tíminn 11
Íslensk>ameríska tekur viö Old Spice
íslensk-ameríska hefur nú tekið við dreifingu hér á landi á Shulton-vörum. Þar er um
að ræða snyrtivörur fyrir herra og er Old Spice vafalaust þekktasta vörumerki þeirra.
Old Spice hefur verið notað af íslenskum karlmönnum áratugum saman og ef hægt er
að tala um ,4dassískar“ snyrtivörur er Old Spice merki fyrir herra, sem kemur upp í
hugann á sama hátt og Chanel 5, þegar talað er um ilmvötn fyrir dömur. Old Spice rak-
spírinn er sá mest seldi í heiminum, og í Bretlandi eru Old Spice vörumar með 11.7%
markaðshlutdeild í herrasnyrtivörum. Það segir meira en mörg orð um gæði vörunnar.
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Félagsfundur
Dagsbrúnar
Dagsbrún heldur áríðandi félagsfund í dag, fimmtudaginn
21. nóvember 1991 kl. 16:30 í Bíóborg, Snorrabraut 37
(áður Austurbæjarbíó).
Dagskrá:
1. Félagsmál.
2. Kjaramál, skýrt frá gangi samningaviðræðna.
3. Tillaga um heimild til vinnustöðvunar.
Mjög áríðandi er að Dagsbrúnarmenn fjölmenni á fundinn.
Komið á fundinn beint af vinnustað.
Stjórn Dagsbrúnar
Starfskraftur
Tíminn óskar að ráða strax
starfskraft tímabundiö í sérverkefni
á auglýsingadeild blaðsins.
Þarf aö vera vanur.
Upplýsingar gefur auglýsingastjóri í síma 680001.
nnr •
Timinn
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNlbÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRl
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
0 9
Landsbyeeðar-
ÞJÓNUSTA
fyrirfólk, stofnanir og
fyrirtæki á landsbyggðinni.
Pöntum varahluti og vörur.
Samningsgerð, tilboð í
flutninga.
Lögfræðiþjónusta, kaup og
sala bifreiða og húsnæðis.
Okkur er ekkert óviðkomandi,
sem getur léttfölki störfin.
LANDSBYGGÐ HF
Ármúla 5-108 Reykjavík
Símar 91-677585 & 91-677586
Box 8285
Fax 91-677568 • 128 Reykjavík
Ókeypis auglýsingar
fyrir einstaklinga
POSTFAX
91-676-444
Listi yfir verst klæddu konur allra tíma kominn út:
Cher slær allt
út, hún er svo
hallærisleg
Elizabeth Taylor þarf ekki á
fatahönnuði að halda, hún ætti
að fá sér arkitekt. Marilyn Qua-
yle, eiginkona Dans Quyale
varaforseta, lítur út eins og
bókasafnsfræðingur frá fimmta
áratugnum og Imelda Marcos
er eins og ýkt leikkona sem á þá
heitustu ósk að leika Evítu. Og
ef Joan Collins þrýstir brjóst-
unum á sér enn hærra upp
verður hún komin með þrjár
hökur.
Þetta er sú einkunn sem Ri-
chard Blackwell gefur nokkr-
um frægum konum, en hann
er fyrrum fatahönnuður og
verslaði með föt. Hann var ein-
mitt að gefa út bók um
ósmekklegustu og verst
klæddu konur allra tíma.
Blackwell var ekkert að spara
lýsingarorðin og segist geta
staðið við allt sem skrifað er í
þessari bók.
„Það er ótækt að konur, sem
eru komnar yfir fimmtugt,
skuli klæða sig eins og ung-
lingsstelpur og þær, sem eiga
sand af seðlum, ættu að hafa
efni á að klæða sig smekklega,"
segir Blackwell.
Hann segist ekki starfa við
gagnrýni til að upphefja sjálfan
sig, heldur sér til skemmtunar.
Þar að auki telur hann sig vera
femínista.
Það var árið 1960 sem hann
gaf fyrst út lista með nöfnum
10 verst klæddu kvennanna.
í bókinni, sem hann var að
gefa út, fær söng- og leikkonan
Cher hæstu einkunn sem verst
klædda kona allra tíma. Henni
er lýst sem algjörum hryllingi.
Á eftir henni koma þær Rose-
anne Barr Arnold, sem flestir
kannast við úr þáttunum Rose-
anne, Elizabeth Taylor, Elísabet
Bretadrottning, Shelley Wint-
ers, DoIIy Parton, Mia Farrow,
Jayne Mansfield og Madonna,
að ógleymdri söngkonunni
írsku Sinead O’Connor.
Blackwell segir að Joan Collins
reyni hvað hún getur að líkjast
Alexis í Dynasty og hún minni
helst á teiknimyndafígúru.
Bette Midler minnir hann helst
á afgreiðslukonu í þvottahúsi.
Elísabet Bretadrottning er búin
að vera á listanum síðan 1969
og Blackwell segir að allt, sem
sé komið úr tísku, sé móðins
hjá henni. Að lokum segir
Blackwell: „Þú getur verið
fræg, rík, voldug, hæfileikarík
og frábær, en samt litið út eins
og eitthvað sem jafnvel ketti
dytti ekki í hug að draga í burtu
af ruslahaugunum." Svo mörg
voru þau orð.
Ein ástæðan fyrir því hvers
vegna Cher trónir á toppnum
yfir verst klæddu konur allra
tíma.