Tíminn - 07.12.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 7. desember 1991
Tíminn 3
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi segir um yfirdrátt Reykjavíkurborgar:
Eykst um milljarð
á fimm mánuðum
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi segir í samtali við Tímann, að
Qárhagsstaða Reykjavíkurborgar sé áhyggjuefni, en fjármálin voru
til umræðu í borgarstjóm í fyrrakvöld. Hún kveðst hafa látið bóka
eftirfarandi á borgarstjómarfundinum: „í júnímánuði síðastliðn-
um, þegar ársreikningar Borgarsjóðs Reykjavíkur og stofnana hans
fyrir árið 1990 vom til umræðu, benti ég á versnandi stöðu Borgar-
sjóðs með bókun.
Eins og venjulega var eina svarið
frá meirihlutanum, að bókunin væri
á misskilningi byggð. Borgarfulltrú-
ar Sjálfstæðisflokksins töldu að upp-
gjörssamkomulag við ríkið hækkaði
veltifjárhlutfallið og hefði það því
sjaldan verið hagstæðara en þá.
Nú hefur komið í ljós að skulda-
bréf frá ríkinu var selt á afföllum og
fengust fyrir það krónur 772 millj-
ónir. Þessir peningar komu inn á
hlaupareikning 46 í Landsbankan-
um í júlímánuði og var staðan á
reikningnum þá 890 milljónir í yfir-
drætti. En á aðeins 5 mánuðum vex
skuldin á yfirdrættinum um rúman
milljarð.
Að mínu mati sýna þessi svör sjálf-
stæðismanna ótrúlega vanþekkingu
á fjárhagsstöðu borgarinnar."
Sigrún kveður fjárhagsstöðu borg-
arinnar vera alvarlegt mál. „Það var
náttúrlega sagt, þegar ég byrjaði á
þessu máli, að allt væri byggt á mis-
skilningi og staðan myndi batna
mikið þegar skuldabréfið kæmi inn.
Þrátt fyrir að hægt var að lækka
skuldastöðuna um 772 milljónir vex
skuldin á 5 mánuðum um milljarð;
tölurnar tala sínu máli. Og miðað
við að borgin hefur verið með tekju-
afgang, þá er alls ekki um tekjuaf-
gang að ræða lengur hjá Reykjavík-
urborg og það eru talsverð um-
skipti," segir Sigrún.
-js
Fljótsdalslína:
Skútustaðahrepps
bárust 410 athugasemdir frá ein-
staklingum, 17 frá félögum og 5
frá sveitarstjómum, samtals 432,
um fyrirhugaða lagningu Fijóts-
dalslínu, sem verið hefur umdeiid
frá f sumar, Ekki er víst að þar
mcð sé allt talið. Aðrar sveitar-
stjómir, sem í hlut eiga, hafa
Nsst á dagskrá er að viðkom-
andi svcitarstjómir, sjö talsins,
fara yflr athugasemdiraar bver f
senda svo álit sitt til Skipulags-
stjóraar ríkisins. Ekki hefurverið
ákveðið að samráð vcrði milli
hugasemdir. Liklegast verður þó
að tefja að Skútustaðahreppur
athugasemdiraar allar, enda Inn-
an marka hans sem mestur
ágreiningur er um leið línunnar.
að miU.
Skipulagsstjóm semur síðan
sitt álit. Ef það er á annan veg en
álit sveitarstjórna fer mátið í
hendur umhverfisráðherra og það
er hans að skera úr um ágreining-
Mjólkurdagsnefnd:
Slagorða-
og mynda-
samkeppni
Mjólkurdagsnefnd hefur ákveðið að
efna til samkeppni um myndskreyt-
ingu mjólkurumbúða meðal grunn-
skólanema. Samkeppnin er haldin í
samráði við menntamálaráðuneytið
og heilbrigðisráðuneytið.
Samskonar samkeppni fór fram ár-
ið 1986 og þótti hún takast mjög vel,
en þá var keppt um myndskreytingu
á umbúðir skólamjólkur. Keppnin
núna er tvíþætt. Annars vegar er um
að ræða teiknisamkeppni, sem er
bundin við einstaklinga og hins veg-
ar slagorðakeppni, þar sem allir
nemendur hverrar bekkjardeildar
finna í sameiningu snjöll slagorð
sem verða prentuð á umbúðir.
Tilgangur keppninnar er aö virkja
hugmyndaflug og sköpunargleði
nemenda við verkefni, sem snertir
útlit og skilaboð á umbúðir sem þeir
handfjatla á hverjum degi, og jafn-
framt að vekja nemendur og for-
ráðamenn þeirra til umhugsunar
um nauðsyn þess að neyta næring-
arríkrar fæðu. Sextíu nemendur fá
verðlaun og getur hver þátttakandi
valið milli úttektar í sportvöruversl-
un fyrir 10 þúsund eða vikudvalar á
sveitaheimili þar sem tækifæri gefst
til að kynnast búskapnum. Þá fá níu
bekkir 25 þúsund króna verðlaun
fyrir slagorð og þrír skólar fá mynd-
bandsupptökuvél fyrir góðan árang-
ur. Skilafrestur á teikningum og
slagorðum er til 25. janúar 1992.
KÍ á Akureyri:
Launahækkun!
Á fundi um kjaramál kennara innan
KÍ, sem haldinn var á Akureyri, var
þess krafist að félagsmenn KÍ fái
nú þegar sömu launahækkanir og
aðrir opinberir starfsmenn hafa
fengið á síðasta samningstímabili.
Fundurinn fordæmir hugmyndir
samninganefnda ríkisins um skerð-
ingu á félagslegum réttindum kenn-
ara. Hann styður allshugar kröfur
KÍ, settar fram af fulltrúaráði. Finn-
ist ekki samningsvilji hjá ríkinu,
hvetur fundurinn til þess af fullri al-
vöru að gripið verði til verkfalls. -aá.
Uppskriftakort fylgja
hverri pakkningu
Matargerd
er list og undirstaðan
er úrvals hráefni
_ flHL