Tíminn - 14.01.1992, Blaðsíða 1
Tímiim
Þriðjudagur
14. janúar 1992
8. tbl. 76. árg.
VERÐ f LAUSASÖLU
KR. 110.-
Atvinnuleysi jókst gífurlega í desember og hefur ekki verið meira frá því skráning atvinnuleysisdaga hófst árið 1975:
Yfir 30 maims misstu
vinnuna á dag í des.
Atvinnulausum á landinu fjölgaöi um 1.000 í desember eða um
rúmlega 30 manns á dag að jafnaði. í lok mánaðaríns voru um
4.300 manns á atvinnuleysisskrá. Þetta jafngildir því að 2,4% af
áætluðum mannafla á vinnumarkaði hafí verið atvinnulaus. Þetta er
mesta atvinnuleysi í desembermánuði sem mælst hefur frá því
skráning atvinnuleysisdaga hófst áríð 1975. Á síðasta árí var at-
vinnuieysi á öllu landinu að meðaltali 1,5%. Þetta jafngildir að
1.900 manns hafi gengið atvinnulausir allt áríð.
Skráðir atvinnuleysisdagar á land-
inu öllu í desember voru rúmlega
65 þúsund og hafði þeim fjölgað
um 22 þúsund frá mánuðinum á
undan eða um næstum 50%. Þetta
er mesti fjöldi atvinnuleysisdaga
sem skráðst hefur í desembermán-
uði frá þvf skráning atvinnuleysis-
daga hófst árið 1975. Þessi fjöldi
skráðra atvinnuleysisdaga jafngild-
ir því að 3.000 manns hafi að með-
altali verið á atvinnuleysisskrá í
mánuðinum en það svarar til 2,4%
af áætluðum mannafla á vinnu-
markaði. Síðasta virka dag desem-
bermánaðar voru á atvinnuleysis-
skrá 4.300 manns sem gefur til
kynna að atvinnuleysi hafi farið
vaxandi eftir því sem leið á mánuð-
inn.
í nóvember voru skráðir atvinnu-
leysisdagar um 43.600 sem jafn-
gildir því að 2.000 manns hafi ver-
ið atvinnulausir.
Atvinnuleysi jókst í öllum lands-
hlutum nema á Vestfjörðum þar
sem atvinnulausum fækkaði úr 53
í 26. Þetta skýrist fyrst og fremst af
betra atvinnuástandi á Suðureyri.
Þar var aðeins einn atvinnulaus í
desember, en 48 í nóvember. At-
vinnulausum á Norðurlandi eystra
fjölgaði um tæplega helming, úr
345 í 623. Á Suðurlandi fjölgaði at-
vinnulausum einnig um helming,
úr 205 í 401. Atvinnuleysi jókst
einnig mikið á Austurlandi, úr 201
í 307.
í desember var atvinnuleysi á höf-
uðborgarsvæðinu 1,2%, Vestur-
landi 2,5%, Vestfjörðum 0,5%,
Norðurlandi vestra 4,2%, Norður-
landi eystra 5,2%, Austurlandi
5,2%, Suðurlandi 4,5% og Suður-
nesjum 4,9%.
Atvinnuleysi er líkt og venjulega
meira hjá konum (2,5%) en körl-
um (2,3%). Langmest er atvinnu-
leysið hjá konum á Suðurnesjum
þar sem það er 8%. Atvinnuleysi í
desember jókst hins vegar mun
meira hjá körlum en konum. At-
vinnulausum konum fjölgaði um
312, en atvinnulausum körlum
fjölgaði hins vegar um 688.
Vinnumálaskrifstofa félagsmála-
ráðuneytisins hefur birt tölur um
atvinnuleysi á síðasta ári. Á þeim
má sjá að atvinnuástand var al-
mennt gott fyrstu níu mánuði ný-
liðins árs, en versnaði hins vegar á
síðasta fjórðungi ársins. í heild
voru skráðir á árinu 1991 494 þús-
und atvinnuleysisdagar, sem jafn-
gildir því að 1900 manns hafi að
meðaltali verið á atvinnuleysisskrá
allt árið, en sem hlutfall af mann-
afla svarar það til 1,5% atvinnu-
Ieysis. Þetta er um 92 þúsund færra
heldur en árið 1990, en þá skráðust
fleiri atvinnuleysisdagar en nokkru
sinni fyrr. Mesta atvinnuleysi í
fyrra mældist á Norðurlandi vestra
(3%), en minnst á Vestfjörðum
(0,3%). -EÓ
Sjúkrahúsin úti á landi eiga að skila til-
lögum um sparnað fyrir 1. febrúar:
Reynt aö komast
hjá uppsögnum
Sjúkrahúsin á landsbyggðinni, eins
og öðrum ríkisstofnunum, hefúr ver-
ið gert að spara í rekstri um 7%.
Stjómendur sjúkrahúsanna ætla að
reyna að komast hjá því að segja upp
starfsfólki, en beita almennum að-
haldsaðgerðum og takmarka yfir-
vinnu. Sjúkrahúsin eiga að skila inn
upplýsingum um spamað tíl heil-
brigðisráðuneytisins fyrir næstu
mánaðamóL
Eftir að fjárlög voru samþykkt sendi
heilbrigðisráðuneytið bréf til sjúkra-
stofnana þar sem tilkynnt er um
ákvarðanir Alþingis um 6,7% niður-
skurð á rekstri. í bréfinu er tekið skýrt
fram að engar líkur séu á að þessi nið-
urskurður verði tekinn til baka eða fá-
ist bættur eftir árið.
Jón Sigurbjömsson, framkvæmda-
stjóri Sjúkrahúss Sigiufjarðar, sagði
að reynt yrði að gæta ýtrasta spamað-
ar á öllum sviðum rekstrar. Hann
sagði að minni sjúkrahús stæðu að því
leyti verr að vígi en stærri sjúkrastofn-
anir að fæst þeirra gætu lokað deild-
um. ,d>etta verður vægast sagt mjög
þungt Við töldum okkur vera búna að
spara eins og við gátum áður en þessi
niðurskurður kom til,“ sagði Jón.
Jón sagði að stjómendur sjúkrahúss-
ins myndu reyna eins og frekast væri
unnt að komast hjá því að segja upp
starfsfólki. Hann sagði að sjúkrahúsið
væri það þröngt mannað að með upp-
sögnum væri beinlínis verið að skerða
þjónustuna.
Samkvæmt fjárlögum á sjúkrahús
Siglufjarðar að skera niður útgjöld
um 7 milljónir. Jón sagði að það ylli
sjúkrahúsinu erfiðleikum hve þessar
niðurskurðartillögur koma seint fram
og eftir að búið er að gera fjárhags-
áætlun fyrir sjúkrahúsið. Hann sagði
að nokkum tíma tæki að koma í fram-
kvæmd þeim spamaðarhugmyndum
og skipulagsbreytingum sem fyrir-
hugaðarværu.
Sigurður Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Sjúkrahúss Akraness, sagði að
verið væri að vinna að hugmyndum
um spamað í sjúkrahúsinu. Hann
sagðist eiga von á að reynt yrði að
draga saman í sambandi við gæslu-
vaktir, yfirvinnu og hugsanlega yrði
einni deild lokað í sumar. Sigurður
sagðist ekki eiga von á að fólki yrði
sagt upp störfum, en hins vegar
myndi spamaðurinn koma beint við
suma starfsmenn í minni yfirvinnu
og skipulagsbreytingum.
FVrirhugað er að halda fundi með
starfsfólki sjúkrahússins í þessari
viku þar sem spamaðartillögumar
verða kynntar. Sjúkrahús Akraness
þarf að spara um 20 milljónir króna.
-EÓ
Mengunarvarnir Reykjavíkurhafnar eflast:
Ný færanleg hreinsunarstöð
Reykjavíkurhöfn hefur fest kaup á
færanlegri hreinsunarstöð, sem á að
gera höfnina hæfari til aðgerða þeg-
ar mengunaróhöpp verða. Hreins-
unarstöðin er búin fullkomnum
búnaði til hreinsunar á olíu og er
honum komið fyrir í átta fermetra
vagni á hjólum. Hreinsunarstöðin
er algerlega sjálfstæð eining og get-
ur starfað án utanaðkomandi að-
stoðar, en þarf þó að komast í vatn
eða sjó. Þá hefur Reykjavíkurhöfn
tekið upp samstarf við Slökkvilið
Reykjavíkur um slökkvi- og meng-
unarvamaæfingar á eða f nánd við
hafnarsvæðið og hafa þegar verið
haldnar tvær æfingar á síðasta ári.
26 sinnum þurftu Mengunarvamir
Reykjavfkurhafnar að hafa afskipti
af óhöppum á hafnarsvæðinu og
vom flest þeirra vegna dælingar vél-
stjóra um borð í skipum á milli
tanka og vegna leka frá tönkum.
-PS
CIMCTICn má niD 4C
tllMo 1 Atti mU' MILLJÓNUM 1 IIIK lo UKARI
Einstæð móðir var ein með fimm króna rfkari. Vinningshafinn, sem tölur réttar í lottóinu um helgina er þrítugur Siglfirðingur, keypti og varð þar með 16 milljónum míðann í Reykjavík, en vinningur- inn á væntanlega eftir að koma sér vel, þar sem vinningshafinn leigir íbúð í Reykjavík. -PS
Reykjavík:
Eldur í Skoda
Eldur kom upp í Skodabifreið þar
sem henni var ekið austur Sæbraut
aðfaranótt mánudags. Ökumaður-
inn varð skyndilega var við eld í aft-
ursæti bifreiðarinnar og réð hann
ekki við eldinn. Slökkviliðið í
Reykjavík var kvatt á staðinn, en því
tókst ekki að bjarga bílnum sem er
talinn ónýtur. -PS