Tíminn - 14.01.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 14.01.1992, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 14. janúar 1992 Tíminn 9 Brúðkaup - brúðkaup Athygli vakti hversu látlaust brúð- kaup Jane Fonda og Teds Tumer var 21. desember sl., þegar haft er í huga hversu auðug þau eru. Eigur hans em metnar á 1,4 milljarð dollara og hennar á 60 milljónir dollara. En þama var brúðurin mætt með hárgreiðslu sem hún hafði sjálf séð um og kjólinn bar hún í kvikmyndinni Rollover, sem gerð var 1981. Ekki þarf að taka það fram að hann passaði líkams- ræktarkonunni enn fúllkomlega! Brúðkaupið fór fram á 54 ára af- mælisdegi brúðarinnar, en brúð- guminn, fjölmiðlakóngurinn sem vikuritið Time valdi mann ársins 1991, er 53 ára. Brúðurin hafði engar brúðarmeyjar, en sonur hennar TVoy Hayden, 18 ára, var svaramaður hennar. Og þá var ekki íburðinum fyrir að fara þegar fyrirsætan Cindy Craw- ford og kvikmyndastjaman Ri- chard Gere stungu af til Las Vegas til að láta gefa sig saman 12. des- ember sl. Svo brátt bar brúðkaupið að, að einu hringarnir, sem gefist hafði tími til að útvega, voru úr ál- pappírl Þetta er fyrsta hjónaband beggja, Cindy, sem er 25 ára, og Richards, 42 ára. Þau eru sögð eiga von á bami með sumrinu og þess vegna von að Richard vilji fara vel með Cindy sína. Hann samþykkti við hjónavígsluna að færa henni morgunmat í rúmið næsta hálfa árið! Margmilljónerarnir Jane Fonda og Ted Turner voru gefin saman viö látlausa athöfn á búgaröi hans, Avalon I Flórida. Nú er hafin mM barátta miffi mæögnanna Melodye Condos og gamanleikkonunnar góðkunnu Martha Raye út af eignum þeírrar siðamefndu, sem metnar eru á tvær og hálfa milljón dollara. Melodye er 47áragömul eðafnnm árum eldri en nýjasti stjúpi henn- ar, hárgreiöslumeistarinn Mark Harris, og þaö er raunar hann sem Melodýe er að berjast viö. Lögftæöingar Melodye segja aö Martha þjáist af effihrSmunarsjúk- dómi og befði aldrei átt aö fá að giftast hárgreiðslumeistaranum f Las Vegas 25. sepL sl. Aö vonum er gamla konan sárog reið út af málarekstrinum. Hún segist aldrei ætla að tala við dóttur sína ffarnar, hún hafi komið sér úr jafnvægi meö því aö koma óoröi á Mark. „Hún er bara á höttunum eftir peningunum mínum, en hún skal ektó fá krónu,“ segir Martha. Og nú á að taka málið fyrir hjá dómstóH 22. janúar. Martha Raye er 75 ára og ekki ábyrg geróa sinna, segir dóttir hennar. Mart• ha er nýiega gift sjöunda eiginmanninum, hinum 42 ára hárgreíóslumeist- ara Mark Harris. Fyrirsætan Cindy Crawford og kvikmyndastjarnan Richard Gere stungu affrá glaumi heimsins og létu pússa sig saman f lítilli kapellu I Las Vegas.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.