Tíminn - 14.01.1992, Síða 9
Þriðjudagur 14. janúar 1992
Tíminn 9
Brúðkaup - brúðkaup
Athygli vakti hversu látlaust brúð-
kaup Jane Fonda og Teds Tumer
var 21. desember sl., þegar haft er í
huga hversu auðug þau eru. Eigur
hans em metnar á 1,4 milljarð
dollara og hennar á 60 milljónir
dollara. En þama var brúðurin
mætt með hárgreiðslu sem hún
hafði sjálf séð um og kjólinn bar
hún í kvikmyndinni Rollover, sem
gerð var 1981. Ekki þarf að taka
það fram að hann passaði líkams-
ræktarkonunni enn fúllkomlega!
Brúðkaupið fór fram á 54 ára af-
mælisdegi brúðarinnar, en brúð-
guminn, fjölmiðlakóngurinn sem
vikuritið Time valdi mann ársins
1991, er 53 ára. Brúðurin hafði
engar brúðarmeyjar, en sonur
hennar TVoy Hayden, 18 ára, var
svaramaður hennar.
Og þá var ekki íburðinum fyrir að
fara þegar fyrirsætan Cindy Craw-
ford og kvikmyndastjaman Ri-
chard Gere stungu af til Las Vegas
til að láta gefa sig saman 12. des-
ember sl. Svo brátt bar brúðkaupið
að, að einu hringarnir, sem gefist
hafði tími til að útvega, voru úr ál-
pappírl
Þetta er fyrsta hjónaband beggja,
Cindy, sem er 25 ára, og Richards,
42 ára. Þau eru sögð eiga von á
bami með sumrinu og þess vegna
von að Richard vilji fara vel með
Cindy sína. Hann samþykkti við
hjónavígsluna að færa henni
morgunmat í rúmið næsta hálfa
árið!
Margmilljónerarnir Jane Fonda
og Ted Turner voru gefin saman
viö látlausa athöfn á búgaröi
hans, Avalon I Flórida.
Nú er hafin mM barátta miffi
mæögnanna Melodye Condos og
gamanleikkonunnar góðkunnu
Martha Raye út af eignum þeírrar
siðamefndu, sem metnar eru á
tvær og hálfa milljón dollara.
Melodye er 47áragömul eðafnnm
árum eldri en nýjasti stjúpi henn-
ar, hárgreiöslumeistarinn Mark
Harris, og þaö er raunar hann sem
Melodýe er að berjast viö.
Lögftæöingar Melodye segja aö
Martha þjáist af effihrSmunarsjúk-
dómi og befði aldrei átt aö fá að
giftast hárgreiðslumeistaranum f
Las Vegas 25. sepL sl.
Aö vonum er gamla konan sárog
reið út af málarekstrinum. Hún
segist aldrei ætla að tala við dóttur
sína ffarnar, hún hafi komið sér úr
jafnvægi meö því aö koma óoröi á
Mark. „Hún er bara á höttunum
eftir peningunum mínum, en hún
skal ektó fá krónu,“ segir Martha.
Og nú á að taka málið fyrir hjá
dómstóH 22. janúar.
Martha Raye er 75 ára og
ekki ábyrg geróa sinna,
segir dóttir hennar. Mart•
ha er nýiega gift sjöunda
eiginmanninum, hinum
42 ára hárgreíóslumeist-
ara Mark Harris.
Fyrirsætan Cindy Crawford og kvikmyndastjarnan Richard Gere
stungu affrá glaumi heimsins og létu pússa sig saman f lítilli kapellu
I Las Vegas.