Tíminn - 14.01.1992, Síða 3
Þriðjudagur 14. janúar 1992
Tíminn 3
19 ára stúlka úrskurðuð í 30 daga
gæsluvarðhald og gert að sæta
geðrannsókn:
Ung kona stakk
sambýlismann
sinn til bana
Nítján ára, tveggja barna móðir í
Vestmannaeyjum hefur verið úr-
skurðuð í 30 daga gæsluvarðhald
og að sæta geðrannsókn, eftir að
hún stakk 21 árs sambýlismann
sinn til bana aðfaranótt laugardags-
ins.
Það var milli klukkan sjö og átta á
laugardagsmorgun sem lögreglan
var kvödd að húsi við Fífilsgötu í
Vestmannaeyjum og hljóðaði til-
kynning upp á að þar hefði maður
verið stunginn í hjartastað, en væri
þó með lífsmarki. Hann lést á leið á
sjúkrahús af völdum stungunnar.
Málavextir voru með þeim hætti að
stúlkan hefði ásamt þeim látna verið
úti að skemmta sér og eftir dansleik
farið á heimili sitt ásamt flórum
ungum mönnum þar sem gleðinni
hafði verið haldið áfram. Þegar leið
að morgni vildi stúlkan að fjór-
menningarnir færu. Magnaðist deila
sambýlisfólksins og endaði með því
að stúlkan stakk manninn með fyrr-
greindum afleiðingum.
Þegar lögreglan kom lá maðurinn á
stofugólfinu og var rænulítill. Fjór-
menningarnir bentu strax á að
stúlkan hefði framið verknaðinn og
gekkst hún við honum. Málið var í
höndum rannsóknarlögreglunnar í
Vestmannaeyjum og er að fullu upp-
lýst. -PS
Gert var tilboð í eiqnir Ríkisskipa í gær.
Búist er viö svari í dag:
Verður byrjaó
að hluta Ríkisskip
sundurí dag?
Búist er við að í dag verði öriög
Skipaútgerðar ríkisins ráðin. Undir-
búningsnefnd um stofnun hlutafé-
lags um rekstur strandferða lagði í
gær fram tilboð í eignir Ríkisskips og
er reiknað með að samgönguráðherra
svari tilboðinu í dag. Fastlega er búist
við að svaríð verði neikvætt Reiknað
er með að í dag eða næstu daga verði
gengið frá samningi við Samskip um
sölu á Esju, einu þriggja skipa Ríkis-
skipa. Samgönguráðherra hefur
fengið umboð frá ríkisstjóminni til
að selja eignir Ríkisskipa.
í gær lagði undirbúningsnefnd um
stofnun hlutafélags um rekstur
strandferða fram formleg tilboð í
eignir Ríkisskipa. Hjörtur Emilsson,
talsmaður undirbúningsnefndarinn-
ar, vildi í gær ekki greina efnislega frá
innihaldi tilboðsins. Hann sagðist
eiga von á að svar bærist frá sam-
gönguráðherra innan skamms tíma.
Undirbúningsnefndin hafði áður lagt
fram formlegt tilboð sem byggði á því
að gerður yrði þjónustusamningur
við ríkið um flutninga á smærri hafn-
ir. Samgönguráðherra lýsti því þá yfir,
og vísaði í fjárlög, að ríkið myndi ekki
sfyrkja strandsiglingar. í framhaldi af
því ákvað undirbúningsnefndin að
leggja fram nýtt tilboð og var það lagt
fram í gær.
í síðustu viku óskaði Samskip eftir
viðræðum við stjóm Ríkisskipa um
kaup á Esju, sem er stærsta og nýjasta
skip Ríkisskipa. Jafnframt hefur
norskt skipafélag lýst yfir áhuga á að
kaupa Öskju, en hún hefur verið á
söluskrá síðan í haust Flest bendir til
að samgönguráðherra muni ganga til
samninga við þessa aðila um sölu á
skipunum. Hann sagði í síðustu viku
að þau verðtilboð sem borist hafa í
skipin væru viðunandi.
Um helgina stóðu yfir viðræður milli
undirbúningshópsins sem vill kaupa
Ríkisskip og Samskipa um samvinnu
þessara aðila. Hjörtur sagði í gær að
ekki væri tímabært að greina frá því til
hvað niðurstöðu þessar viðræður
leiddu.
Skömmu fyrir áramót lýsti stjóm
Ríkisskipa því yfir að þriðjungi af
starfsliði fyrirtækisins yrði sagt upp
frá og með 15. janúar. Áður hafði
áhöfn Öskju verið sagt upp störfum.
Hugsanlegt er talið að uppsagnimar
verði umfangsmeiri ef gengið verður
frá sölu á Esju á morgun eða næstu
daga. -EÓ
Norrænt Lionsþing á Loftleiðum um næstu helgi:
SJONVERND ER
HEIMSMARKMIÐ
17.-19. jan. nk. munu um 300 nor-
rænir Lionsfélagar frá öllum Norður-
löndunum sitja þing sem haldið
verður að Hótel Loftleiðum. Slík
þing sem þetta eru haldin áríega
þríðju helgina í janúar og skiptast
löndin á að halda þau.
í tengslum við þingið verða haldnar
þrjár námsstefnur um málefni hreyf-
ingarinnar. Á laugardag verður síðan
sérstök ráðstefna um sjónvemd, sem
er heimsverkefni hreyfingarinnar.
Fmmmælandi verður Einar Stefáns-
son, prófessor í augnlækningum við
Landakotsspítala.
í erindi sínu fjallar Einar um helstu
orsakir blindu. í tengslum viö ráð-
stefnuna verður sérstök sýning á
sjóntækjum í Sjónstöð íslands og
augnlækningadeild Landakotsspítala.
Mismunur veginnur tíöni sjálfsvíga ungmenna og tulloröinna eftir kynjum
O Rimnaáknastofnun uppcldU- og nvnnnmiU 1991
Sjálfsvígum virðist fjölga en ekki fækka í kjölfar opinberrar umræðu:
Fjölgun sjálfsvíga
ungra karla og
miðaldra kvenna
„Erlendar rannsóknir benda því miður til að almenn umræða eða
fræðsla dragi ekki úr sjálfsvígum. Svo virðist sem sjálfsvígum
geti jafnvel fjölgað í kjölfar opinberrar umræðu og að forvamar-
starf geti haft þveröfug áhrif við það sem til er ætlast,“ segir m.a.
í grein um sjálfsvíg í ritinu Ný menntamál. Kemur m.a. í ijós að
í heildina vom sjálfsvíg lítið algengari á síðasta áratug en á þeim
sjöunda. Þær breytingar hafa hins vegar orðið að meira en þre-
fÖldun varð á tíðni sjálfsvíga meðal 15-19 ára pilta og 50-59 ára
kvenna. Afar sjaldgæft er að ungar stúlkur stytti sér aldur, eða
aðeins 1 á móti hveijum 20 piltum.
Höfundar greinarinnar eru starfs-
menn Rannsóknarstofnunar upp-
eldis- og menntamála, þau: Þór-
oddur Bjarnason, Þórólfur Þór-
lindsson og Guðríður Sigurðar-
dóttir. Tölulegar upplýsingar og
samanburð segja þau byggjast á
opinberri skráningu Hagstofu ís-
lands.
Greinarhöfundar segja ísland
enga undantekningu frá þeirri
reglu að skráð sjálfsvíg séu sjald-
gæfust meðal barna og kvenna.
Nær óþekkt sé að börn undir 15
ára aldri fyrirfari sér og sjálfsvíg
meðal kvenna séu margfalt færri
en meðal karla í flestum aldurs-
hópum.
Sjálfsvígum ekki
fjölgað en...
Áratuginn 1961-1970 voru 220
sjálfsvíg skráð á íslandi, en áratug-
inn 1981-1990 voru þau 324, eða
47% fleiri. Þegar tekið hefur verið
tillit til fjölgunar landsmanna á
sama tímabili kemur í ljós að hlut-
fallsleg fjölgun sjálfsvíga var nær
engin í heildina tekið.
Mjög mikil breyting kemur hins
vegar í ljós meðal einstakra aldurs-
hópa. Á 7. áratugnum voru sjálfs-
víg mjög fátíð meðal ungs fólks. Til
dæmis voru þau þá hlutfallslega
um 5 sinnum algengari meðal
karla yfir 25 ára aldri (34 á hverja
100.000) heldur en 15-19 ára pilta
(7 á hverja 100.000).
Á 9. áratugnum var þessi mikli
munur nánast horfinn, því tíðni
sjálfsvíga hafði þá meira en þre-
faldast í hópi ungu piltanna, en
þeim aftur á móti fækkað mikið í
hópi þeirra eldri (sérstaklega með-
al karla milli þrítugs og hálffimm-
tugs). Á síðasta áratug voru sjálfs-
víg orðin hlutfallslega flest í hópi
20-24 ára karla, um 33 á hverja
100.000 á þeim aldri. Þetta hlutfall
hafði þá meira en tvöfaldast á
tveim áratugum.
„Svo virðist sem piltar séu ekki
Iengur í minni hættu en aðrir karl-
ar,“ segja greinarhöfundar. Orsakir
þessa segja þeir ekki fullljósar. „En
kunna að einhverju leyti að stafa af
þeim breytingum sem orðið hafa á
þjóðfélagsgerðinni og stöðu ungs
fólks á síðustu áratugum."
„Veikara kynið er
sterkara þó...“
Þær breytingar koma þó alls ekki
fram á sama hátt meðal ungra
stúlkna. Segja greinarhöfundar
það umhugsunarvert að sjálfsvíg
meðal stúlkna skuli jafnsjaldgæf
og fyrr þótt tíðni sjálfsvíga marg-
faldist meðal pilta. Með einni und-
antekningu virðist raunar gegna
allt öðru máli um sjálfsvíg meðal
kvenna heldur en karla, bæði hvað
varðar tíðni og þróun síðustu ára-
tugina. Sjálfsvígstíðni er afar lág
meðal ungra kvenna (aðeins um 1
til 3 af hverjum 100.000 undir 25
ára aldri) og hefur lfka síður en svo
aukist undanfarna áratugi. Svipað
hefur líka átt við um konur allt
fram að 50 ára aldri. Á 9. áratugn-
um bregður hins vegar svo við að
tíðni sjálfsvíga margfaldast meðal
kvenna á milli fímmtugs og sex-
tugs. í þessum aldurshópi fór hlut-
fallið í 25 af 100.000. Tíðni sjálfs-
víga í þessum aldurshópi var þá
orðin fjórfalt til fimmfalt algengari
heldur en meðal kvenna á aldrin-
um 25-50 ára. Það er aðeins í hópi
50- 64 ára kvenna sem sjálfsvígs-
tíðni verður nokkuð svipuð og
meðal karla. En bæði meðal þeirra
sem yngri eru og þeirra eldri er
margfaldur munur milli kynjanna.
Sjálfsvígsbylgjur síð-
ustu áratuga
Flestir kannast sjálfsagt við að
heyra öðru hverju fullyrðingar um
að sjálfsvíg hafi aldrei verið fleiri
en nú. Er því forvitnilegt að sjá
samanburð greinarhöfunda á tíðni
sjálfsvíga ár hvert síðustu þrjá ára-
tugina. Litið er á 15-24 ára hópinn
sérstaklega og alla þá sem eldri eru
hins vegar.
Þar koma í ljós afar reglulegar
sveiflur í tíðni sjálfsvíga á 3-4 ára
fresti þessa þrjá áratugi. Eina und-
antekningin frá því er sú að ekki
varð af bylgju sem búast hefði mátt
við 1976, samkvæmt mynstrinu.
Greinarhöfundar telja sérstaklega
athyglisvert að sjálfsvígstíðni með-
al unga fólksins skuli fylgja ná-
kvæmlega sama mynstri og meðal
hinna eldri. Með aðeins einni und-
antekningu (1966) hafa sjálfsvígs-
bylgjur meðal 25 ára og eldri verið
í kringum 20-25 sjálfsvíg á hverja
100.000 á toppárunum og síðan
um helmingi lægri tölur í lægðun-
um.
Sjálfsvígum meðal ungmenna
hefur, sem fyrr segir, fjölgað mjög
á síðustu árum. En sú fjölgun
kemur fram í bylgjum sem eiga sér
stað á sama tíma og meðal þeirra
eldri. „Ekki virðist því ástæða til að
líta á sjálfsvígstíðni meðal yngra
og eldra fólks sem óháð fyrirbæri,“
segja greinarhöfundar.
Tíðni sjálfsvíga meðal 15-24 ára
var um 26 á hverja 100.000 árið
1990, sem var nánast sama hlut-
fall og „toppárið" 1984. En þetta
var meira en tvöfalt hærra hlutfall
heldur en toppárin 1961 og 1967.
Greinarhöfundar segja niður-
stöður þessarar könnunar benda
til þess að um alvarlegt vandamál
sé að ræða þó að engan veginn sé
hægt að tala um faraldur. Niður-
stöðurnar gefi einnig til kynna að
tíðni sjálfsvíga fylgi ekki einföldu
mynstri og nauðsynlegt sé að
rannsaka þau mun betur.
Þá vísa þeir til þess að margar er-
lendar rannsóknir bendi því mið-
ur til að almenn umræða eða
fræðsla dragi ekki úr sjálfsvígum.
Svo virðist sem sjálfsvígum geti
jafnvel fjölgað í kjölfar opinberrar
umræðu og að forvarnarstarf geti
haft þveröfug áhrif við það sem til
er ætlast. „Aðgát skal höfð í nær-
veru sálar" og full ástæða er að
hvetja þá sem vilja láta sig málið
varða til að stuðla að lágværari og
markvissari umræðu um sjálfs-
víg,“ eru lokaorð greinarinnar.
- HEI