Tíminn - 25.02.1992, Page 1

Tíminn - 25.02.1992, Page 1
MBnromBi Þriðjudagur 25. febrúar 1992 39. tbl. 76. árg. VERÐí LAUSASÖLU KR. 110.- Níu mönnum var bjargað eftir að skuttogar- inn Krossanes, frá Grundarfirði sökk fyrir- varalítið á Halamiðum á sunnudag: Þriggja manna er enn saknað Þriggja skipverja er saknað eftir að Krossanes, sem er skuttogari sem gerður er út frá Grundar- firði, sökk nær fyrirvaralaust á Halamiðum á sunnudag. Níu mönnum var bjargað úr tveimur gúmmíbjörgunarbátum, en ein- um var bjargað úr sjónum. Ekki er ljóst um orsök slyssins, en það varð þegar verið var að hífa inn trollið. Skipið fór skyndilega að hallast og sendu skipverjar strax út hjálparbeiðni og fljótlega, eða um 10 mínútum síðar, hafði skipið lagst á hliðina og sokkið. Átta skipverjanna tókst að stökkva út í hálfuppblásna gúmmíbát- anna, en nokkrum þeirra gafst ekki einu sinni ráðrúm til að klæða sig í flotgallanna. Tvö skip, Guðbjörg og Sléttanes, voru að veiðum skammt frá og hífðu strax inn veiðarfærin og héldu í átt að Krossanesinu. Innan við hálftíma eftir að óhappið varð hafði Guð- björg náð mönnunum átta úr gúmmíbátunum og Sléttanesið fundið mann sem var líflítill á floti í sjónum. Verið var að snúa skip- inu í átt að öðrum gúmmíbát- anna, þegar skipverjar sáu glampa á tvo flotgalla í sjónum. Engin var í öðrum gallanna, en skipverji af Krossanesinu var í hinum. Guð- björg hélt til ísafjarðar og var komin þangað á tíunda tímanum á sunnudag, en Sléttanesið sigldi til Bolungarvíkur og var maðurinn sem náð var úr sjónum fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur, en hann var þrekaður og einnig var hann fótbrotinn. Að sögn Landhelgisgæslunnar var gerð ítarleg leit á sunnudag og tóku um 20 skip þátt í henni auk þyrlu og Fokker-vélar gæslunnar, en án árangurs. Leitað var til mið- nættis en þá versnaði veður mjög. Þá var ekkert leitað í gær vegna veðurs, en um leið og veðrinu slotar verður leit hafin að nýju. Þegar Guðbjörg kom til ísafjarð- ar á sunnudag, var höfninni lokað fyrir umferð að beiðni skipverja á Krossnesi. Þeir fóru beint á sjúkrahús í læknisskoðun og síð- an í koju. Dagurinn í gær fór í skýrslutöku hjá lögreglunni á ísa- firði, seinni partinn í gær var flog- ið með mennina til Stykkishólms þar sem sjópróf fara fram, en þó ekki fyrr en sýslumaður hefur kynnt sér málið. -PS •• Sigurvegarar í skeiði. Mynd GTK Hestamannafélagið Geysir: Fyrsta hestamót ársins á Hellu Fyrsta hestamannamót ársins var haldið um helgina á vegum hesta- mannafélagsins Geysis að Hellu á Rangárvöllum. Mótið var hið Um 5.400 erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi: Austur-Evrópubúum fjölgað hér úr 190 í 760 á þrem árum Af tæpiega 260 þúsund manns sem búsettir vora á Islandi um áramótin vora 5.395 erlendir rík- isborgarar. Þeim hafði þá fjölgað um rúmlega 12% á einu ári, eða tífalt meira en þeim sem fæddir voru hér á landi, sem aðeins íjölg- aði um 1,2% sama ár. Alls fjölgaði eriendum ríkisborgurum um 583 manns. Langmest fjölgaði fólki frá löndum Austur-Evrópu, eða um 336 manns (úr 424 í 760). Þar af eru Pólveijar hátt á 5. hundrað cftir 94% Qölgun á síð- asta ári. FóUd frá AsíuJöndum fjölgaði um fjórðung á árinu, í 505 um sfðustu áramót. Fjöldi eriendra rfldsborgara var nánast sá sami í árstok 1990 og tveim iram áður. Verulegur mun- ur var samt á hvaðan þeir voru. Fólki frá Norðurlöndunum og Ameríku hafði þá fækkað talsvert, en fólki frá Austur-Evrópu og As- fu og fleirí fjariægum löndum fjölgaö sem því nam. Og sú þróun hcfur haldið áfram, þar sem nær öll fjölgunin mílli 1990 og 1991 er frá þessum svæðum, sem fyrr segir. Lítum á nokkur ábcrandi dæmi um mikla fólksfjölgun á sfðustu þrem áram: t Pófland Sovétríkln Tékkóslóvakía Tæland Filippseyjar Víetnam Kína Suður-Afríka 1988 Fjöldi: 93 5 8 45 67 16 16 36 1991 FjÖldii 482 43 56 130 133 86 54 77 Fjöldi rfldsborgara þessara sjö landa hefur því næstum því iórfaldast á aðeins þrem árum. sama tímabiii hefur DÖnum og Svíum fækkað á annað hundrað manns. Ríkisborgur- um annarra landa Vestur- Evr- ópu hefur einnig fækkað í kringum 10%, mest þó fólki frá írlandi, Bretlandi og Frakk- iandi. Fólki (konum) frá Nýja- Sjálandi hefur líka fækkað töíu- vert sfðustu þrjú árin, en Nýsjá- lendingar vora hér 87 um síð- ustu áramót. Filippseyjar og Tæland hafa sérstððu að þvf leyti hvað konur era í stóram meirihiuta, eða 219 á mótí 44 körlum. Rúmlega 130 þessara kvenna hafa komið á sl. þrem áram. HEl Fjölgun 286 1.061 fyrsta af þrem vetrarmótum hestamannafélagsins Geysis. í töltkeppni sigraði Hlekkur Fjólu Runólfsdóttur. Knapi var Sigríður Theódóra Kristinsdóttir sem einnig var kjörin var hesta- íþróttamaður Rangárþings. Annar varð Dagur Sigurlínar Óskarsdótt- ur. Knapi; Þormar Andrésson. Þriðji varð Sokkur Jakobs Hansen. Knapi Marjolyn Tiepen. í skeiði sigraði Harpa. Eigandi og knapi var Bjarni Davíðsson. í öðru sæti var Einir og í því þriðja Rjúk- andi. f keppni unglinga sigraði Kristín Þórðardóttir á Kolskegg. í öðru sæti varð Birkir Jónsson á Tvisti og í þriðja sæti varð Erlendur Ing- varsson á Stjarna. —sá Vinnustaðafundir hjá fyrirtækjum borgarinnar: Framsóknarmömum bannað að funda Borgaryfirvöld hafa neitað þingmönnum og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins um að halda vinnustaðafundi hjá Hita- veitu og Rafmagnsveitu Reykja- víkur. Gunnar Kristinsson hita- veitustjóri staðfesti í samtali við Tímann í gær að ósk um slíka fundi hafi verið synjað eft- ir að samráð hafi verið haft við borgarstjóra um málið. Að sögn Gunnars Kristinssonar er það nýmæli að stjórnmálaflokkar haldi vinnustaðafundi milli kosn- inga en hins vegar hafi flokkarnir iðulega vinnustaðafundi hjá fyrir- tækjum borgarinnar í kosningabar- áttunni. Gunnar segir að ekki hafi verið gerð athugasemd við slík fundahöld íyrir kosningar og því megi vissulega segja að það sé nýtt að synja flokki um leyfi til vinnu- staðafundar. Það sé hins vegar líka nýtt að halda vinnustaðafundi á þessum tíma. Þingmenn Framsóknarflokksins hafa verið með fundaherferð um landið að undanförnu og haldið marga fundi í hverju kjördæmi. í Reykjavík var hins vegar haldinn einn stór fundur sem fylgt var eftir með vinnustaðafundum vítt og breitt um borgina. Auk einkafýrir- tækja hafa þingmenn og borgarfull- trúi fundað á ýmsum ríkisstofnun- um sem staðsettar eru í borginni og að sögn Finns Ingólfssonar þing- manns hefur mönnum verið vel tekið. Þá hafa þingmenn framsókn- armanna heimsótt fjölmargar stofnanir sveitarfélaga á ferðum sínum um landið og hvergi verið meinað um vinnustaðafundi. Ekki náðist í borgarstjóra í gær til að fá frekari skýringar á fundabanni framsóknarmanna hjá fyrirtækjum borgarinnar.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.