Tíminn - 06.03.1992, Síða 3
Föstudagur 6. mars 1992
Tíminn 3
Bygging 24 þjónustuíbúða fyrir aldraða á Selfossi:
Ármannsfell
fékk verkið
Byggingamefnd íbúða aldraðra á Selfossi hefur ákveðið fyrir sitt leyti að
ganga að tilboði Ármannsfells hf. en fyrirtækið átti lægsta tilboð í bygg-
ingu 24 þjónustuíbúða fyrir aldraða sem rísa munu á Seifossi. Bæjarstjóm
á eftir að staðfesta ráðagerð byggingaraefndarinnar.
Tíu tilboð bárust í byggingu íbúð-
anna. Það lægsta kom frá Ármanns-
felli hf. og hljóðaði upp á 176,8 millj-
ónir króna. Það næstlægsta kom frá
fyrirtækjunum Selósi og Samtaki og
var upp á 183,2 milljónir kr. Flest til-
boðin komu frá verktökum á Sel-
fossi.
Allmikil umræða hefur verið um til-
boð Ármannsfells og margir talið
eðlilegt að heimamenn fengju verkið
þar sem byggingariðnaðnum á Sel-
fossi veitti ekki af vítamínsprautu.
Þess má geta að nú er aðeins einn
byggingarmaður á atvinnuleysisskrá
á Selfossi og nokkur þensla í þessum
geira. Framkvæmdastjóri Ármanns-
fells, Ármann Öm Ármannsson, hef-
ur lýst því yfir að hann hafi helst
áhyggjur af því að fá ekki menn til
starfa við þessar framkvæmdir. Hann
segir að það sé stefna fyrirtækisins að
ráða heimamenn til þeirra.
—sbs, Selfossi
Hörður Sigurgestsson forstjóri Eimskipafélags íslands greinir fréttamönnum frá góðri afkomu félags-
ins á síðasta ári.
Aðalfundur Eimskipafélags íslands:
Þórunn Gestsdóttir afhendir Halldóri Sigurðssyni blómvönd í til
efni útnefningar hans sem Ferðafrömuður ársins 1991.
Eimskip græddi
rúmlega hálfan
milljarð í fyrra
Halldór Sigurðsson í Atlantsflug hf. útnefndur ferða-
frömuður ársins. Dómnefnd segir:
Atlantsflug hefur
lækkað fargjöldin
Halldór Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Atlantsflugs hf., er
ferðafrömuður ársins 1991, en
val þess aðila sem hlýtur nafnbót-
ina var kynnt í vikunni. Það er
tímaritið Farvís-Áfangar sem
stendur fyrir valinu í annað sinn.
í hófi þar sem þetta var kynnt
sagði Þórunn Gestsdóttir, útgef-
andi og ritstjóri Farvíss-Áfanga, að
Halldór og fyrirtæki hans hefðu
verið leiðandi á þeirri braut að
lækka flugfargjöld. Slík þróun
væri nauðsynleg í ljósi samrunans
í Evrópu. Á síðasta ári hefðu 76
þúsund farþegar flogið með vélum
Atlantsflugs víða um veröldina.
Hingað til lands hefðu komið á
vegum félagsins um sjö þúsund
farþegar og þúsundir íslendinga
hefðu farið utan með sömu vélum
— á lægri fargjöldum en áður
hefðu gilt.
í stuttu ávarpi þakkaði Halldór
Sigurðsson fyrir þann heiður sem
sér væri sýndur um leið og hann
minnti á að sá árangur sem fyrir-
tæki hans hefði náð væri honum
ekki einum að þakka heldur fjölda
góðra samverkamanna sem hefðu
langa reynslu að baki á vettvangi
flugmála. -sbs, Selfossi.
Á síðasta ári varð hagnaður af reglulegri starfsemi Eimskipafélags íslands
525 miljjónir króna, en var 295 milljónir árið áður. Á aðalfundi fyrirtækis-
ins, sem ’ áldinn var í gær, var ákveðið að greiða hluthöfum 15% arð og
gefa út jöfnunarhlutabréf sem hækkar hlutaféð um 10%. Forstjóri fyrir-
tækisins reiknar ekki með jafngóðri afkomu á þessu ári og segir að gæta
verði aðhalds í rekstri. Reiknað er með að fjárfestingar á þessu ári verði inn-
an við 500 milljónir, en þær vom tæplega 1,5 milljarður á síöasta ári.
Árið 1991 námu rekstrartekjur
Eimskips 8.026 milljónum króna,
en voru 7.306 milljónir króna árið
1990. Aukning á milli ára er því
10%, þ.e. um 2% raunaukning, þeg-
ar miðað er við hækkun byggingar-
vfsitölu ársins 1990 til meðaltals
1991, sem er 7,75%. Arðsemi eigin
fjár var 10% á síðasta ári sem eru
1% minna en á árinu 1990. Hagnað-
ur sem hlutfall af rekstrartekjum
var 4,9%, sem er eilítið meira en á
síðasta ári. Starfsmenn Eimskips í
fyrra voru 813 og fjölgaði um 81.
Á síðasta ári greiddi Eimskip 184
milljónir í tekju- og eignaskatt. Árið
1990 greiddi fyrirtækið hins vegar
388 milljónir í skatta. Skýringin á
þessum mismun er að á síðasta ári
keypti Eimskip skattalegt tap. Eim-
skip greiddi rúmar 57 milljónir í að-
stöðugjald á síðasta ári.
Heildarflutningar Eimskips og
dótturfélaga þess árið 1991 voru 937
þúsund tonn, en þeir voru 993 þús-
und tonn árið 1990. Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskipa, sagði
að á þessu ári væri reiknað með að
flutningar á vegum félagsins minnk-
uðu um 10%. Hann sagði að afkom-
an á síðasta ársfjórðungi síðasta árs
hefði ekki verið nægilega góð og
tæplega væri hægt að gera ráð fyrir
jafngóðri afkomu á þessu ári og á því
síðasta. Hörður sagði að dregið yrði
úr fjárfestingum á þessu ári. Fjár-
festingar á síðasta ári voru 1.433
milljónir og 1.874 á árinu 1990, en
reiknað er með að fjárfestingar á
þessu ári verði innan við 500 millj-
ónir.
Eigið fé Eimskips var í árslok 4,4
Málverk
Gallerí Borg heldur listmunaa-
uppboð í samvinnu við Listmuna-
uppboð Sigurðar Benediktssonar
hf. nk. sunnudagskvöld í Súlna-
sal Hótel Sögu. Uppbjóður verður
Haraldur Blöndal.
Boðin verða upp um 90 verk sem
flest eru eftir þekktustu listamenn
þjóðarinnar. Af þeim yngri má
nefna Kristján Davíðsson, Hring
Jóhannesson, Hafstein Austmann,
Jóhannes Geir og Jón Reykdal. Af
hinum eldri má nefna Þorvald
Skúlason, Nínu Tryggvadóttur,
Jón Engilberts, Louisu Matthías-
dóttur, Valtý Pétursson, Mugg,
Snorra Arinbjamar, Kristínu
Jónsdóttur, Svavar Guðnason,
Þórarin B. Þorláksson og Gunn-
laug Blöndal. Uppboðsverkin
verða til sýnis í Gallerí Borg við
Austurvöll kl 14-^ 18 í dag, morg-
un og sunnudag.
og listmunir meistaranna
Módei með spegil eftir Gunnlaug Blöndal verður m.a. boðin upp á sunnudagskvöld. Myndin er máluð
í París 1930.
milljarðar og hafði hækkað um 360
milljónir milli ára. Eignir fyrirtæk-
isins í árslok voru röskir 10 milljarð-
ar og hækkuðu um 1,4 milljarða
milli ára. Að jafnaði er gerð könnun
á söluverði eigna fyrirtækisins við
hver áramót. Um síðustu áramót
reyndist munur á bókfærðu verði og
markaðsverði vera rúmlega 1,4
milljarðar. Skipin reyndust vera 877
milljónum verðmætari en bókfært
verð segir til um og hlutabréf 576
milljónum verðmætari.
Að sögn Harðar Sigurgestssonar er
vaxtarbroddur Eimskipa í dag flutn-
ingastarfsemi erlendis. Á síðasta ári
voru tekjur fyrirtækisins af þessum
flutningum 1.106 milljónir króna og
nemur sú upphæð um 14% af
rekstrartekjum fýrirtækisins. Þessi
flutningsþjónusta fer fram á vegum
dótturfélaga og skrifstofa Eimskips
erlendis. Á árinu voru starfsmenn
Eimskips og dótturfélaga þess er-
lendis að jafnaði 129, þar af 15 ís-
lendingar. Árið áður voru starfs-
menn félagsins erlendis að jafnaði
49. Eimskip rekur nú sjö eigin skrif-
stofur erlendis. Hörður sagði að
Eimskip vilji halda áfram að byggja
upp þessa starfsemi erlendis hægt
og bítandi. Þrátt fyrir að vel gangi að
byggja þetta upp muni fyrirtækið
ekki fara út í neina ævintýra-
mennsku á þessu sviði.
í byrjun síðasta árs var gengið frá
kaupum Eimskipa á umboðs- og
flutningaþjónustufyrirtækinu MGH
Ltd. Það fyrirtæki er með skrifstofur
í Immigham, Hull, Felixstowe og Li-
verpool og auk þess í Riga í Lettlandi
þar sem það annast flutningsmiðlun
og umboðsafgreiðslu fyrir skipafé-
lög. Þá hefur verið lögð áherslu á að
byggja upp starfsemi félagsins á Ný-
fundnalandi og Færeyjum.
Hörður sagði að Eimskip stefni að
því að víkka starfssvið sitt á næstu
árum þar sem takmarkaðir vaxtar-
möguleikar eru á íslandi í þeirri
flutningastarfsemi sem hér er
stunduð. Hann sagði að það væri
óráðið á hvaða sviðum það yrði.
Eimskip hefur það að markmiði að
koma á altækri gæðastjómun í
rekstri félagsins. Talsvert hefur verið
gert í þessu á síðustu misserum og
hafa verið stofnaðir vinnuhópar inn-
an félagsins til að takast á við ýmis
verkefni sem lúta að auknum gæð-
um. -EÓ