Tíminn - 06.03.1992, Page 8

Tíminn - 06.03.1992, Page 8
8 Tíminn Föstudagur 6. mars 1992 Hermann Guðmundsson Fæddur 15. júní 1914 Dáinn 27. íebrúar 1992 Fimmtudaginn 27. febrúar sl. lést á Borgarspítalanum í Reykjavík Her- mann Guðmundsson, fv. fram- kvæmdastjóri íþróttasambands ís- lands, á 78. aldursári. Með Hermanni er horfinn af sjónarsviðinu einn lit- ríkasti persónuleiki í forystuliði ís- lensku íþróttahreyfingarinnar um langt árabil. Þegar litið er yfir starfs- vettvang þessa dugmikla félagsmála- manns er ljóst að verkalýðshreyfing- in og íþróttahreyfingin eiga þar mest aú þakka, þótt víðar hafi hugur og hönd verið lögð að verki. Við samherjarnir í íþróttahreyfing- unni gerum okkur Ijóst hversu mik- ils virði það var að hafa hann í for- ystuliði ÍSÍ á mesta og farsælasta mótunarskeiði samtakanna. Ég hygg að á engan sé hallað, þótt það sé við- urkennt að Hermann Guðmundsson hafði mesta og besta yfirsýn yfir lög og leikreglur hreyfingarinnar, enda átti hann ásamt fleirum stóran þátt í gerð þeirrar löggjafar. Hermann var dverghagur handverksmaður og listaskrifari. Vakti það aðdáun okkar, sem með honum unnum, hvernig skjölum og öðrum skráðum heimild- um var til haga haldið á hans vinnu- stað, og hygg ég að ÍSÍ muni njóta þess um langa framtíð. Fyrstu minningar mínar um þenn- an eftirminnilega samferðamann eru af æskustöðvunum í Hafnarfirði, og kannski naut ég þess alla tíð á sam- eiginlegum starfsvettvangi að við töldum okkur samsveitunga. í ferð- um okkar á héraðsþing og aðrar sam- komur ungmenna- og íþróttafélaga var Hermann alltaf hinn trausti skipuleggjari sem allir tóku mark á. Hann var líka afburða snjall fundar- maður og ræðumaður svo af bar. Við, sem yngri vorum, gerðum okkur far um að læra af þessum góða og trausta félaga. TYaustur vegna þess að hann kom alltaf til dyranna eins og hann var klæddur og var óragur að gagnrýna það sem hann taldi betur mega fara. TYaustur vegna þess að hann bar ætíð virðingu fyrir sam- keppnisaðilum á hvaða starfsvett- vangi sem var og taldi, eins og sönn- um íþróttamanni sæmir, að öll heið- arleg samkeppni væri ekki einasta æskileg, heldur líka skemmtileg. Þess vegna naut hann hverrar stund- ar í störfum sínum fyrir íþróttahreyf- inguna og var ætíð glaður á að hitta. í mínum augum leit Hermann eins út frá því fyrsta til þess síðasta er fundum okkar bar saman. Hann bar aldurinn vel, teinréttur og snöggur í hreyfingum, snyrtimenni, sem sagt talandi ímynd hins sanna íþrótta- manns. Þessar fáu línur mínar eru ekki eftirmæli, heldur fátækleg kveðjuorð til samherja sem ég mat mikils og á margt að þakka. Heimabær okkar Hafnarfjörður hef- ur misst einn af sínum bestu sonum, mann sem setti svip á bæinn, mann sem markaði varanleg spor í félags- málasögu þjóðarinnar. Eiginkonu Hermanns, Guðrúnu Ragnheiði Erlendsdóttir, og aðstand- endum öllum og vinum sendum við Hildur innilegar samúðarkveðjur. Hafsteinn Þorvaldsson Kveðja frá ungmermafélags- hreyfíngunni Ég var mjög sleginn þegar mér voru færð þau tíðindi á fimmtudagsmorg- un að vinur minn, Hermann Guð- mundsson, hefði látist um nóttina. Ég hafði hitt Hermann fyrir örstuttu, hressan að vanda. Hermann hafði auðvitað elst að árum, var kominn á 78unda árið, en sá sem ekki vissi um aldurinn og þekkti ekki til, hefði í ágiskunum ekki farið mikið yfir 60 árin. Þannig var útlitið, krafturinn og andinn. Kynni okkar Hermanns urðu býsna löng, og efldust eftir að ég tók við for- mennsku hjá UMFÍ árið 1979. Þá var Hermann framkvæmdastjóri ÍSÍ og hélt því áfram næstu 6 árin; eftir það vann hann að ýmsum verkefnum fyr- ir ÍSÍ. Þetta leiddi til þess að vegir okkar lágu víða saman, á ýmsum fundum, þingum og ráðstefnum. Það tókst með okkur vinátta sem aldrei bar skugga á. Við fórum ýmsar fund- arferðir saman út á land, oft tveir saman í bfl. Það var gaman að ferðast með Hermanni, hann var hafsjór af fróðleik og kunni þá Iist best að segja frá þannig að atburðir urðu líflegir og skemmtilegir. Það var rætt um íþrótta- og félagsstarfið, þar sem 30 ára reynsla sem framkvæmdastjóri ÍSÍ, auk annarra félagsstarfa höfðu fært honum meiri þekkingu á þessu sviði en nokkrum öðrum manni sem ég hef kynnst. Hermann sagði oft frá baráttu sinni í verkalýðshreyfing- unni, frá pólitískri reynslu sinni. Þar var þekkingin mikil, enda hafði hann bæði verið þingmaður ojg í forystu öflugs verkalýðsfélags. Eg minnist þess aldrei að mér hafi leiðst í ferðum með Hermanni og hlakkaði ætíð til þeirra ferða þar sem við vorum ferða- félagar. Á þingum héraðssambanda var Her- mann aufúsugestur, enda vel þekktur og kynntur meðal ungmennafélaga. Það báru allir virðingu fyrir Her- manni, hann var ólatur að mæta hvar sem hans var þörf. Hann ræddi mál- efni ÍSÍ og störfin í héruðunum af mikilli þekkingu og var óspar að grípa inní, ef honum þótti einhver mál ætla að lenda í ógöngum. Hann var mikið spurður og átti ætíð svör. Það kom fyrir að Hermann hækkaði róminn örlítið og fann að, þegar hon- um sýndist rangt að farið. En slík persóna var Hermann að aldrei fyrt- ist neinn við, heldur lögðu menn við hlustir og tóku mark á því sem sagt var. Það er stundum sagt að menn eigi ekki að vera of lengi í sama starfi eða vera of lengi í félagslegri forystu. Hermann var gott dæmi um að slíkar vangaveltur eiga ekki alltaf rétt á sér. Það dró aldrei úr áhuganum, víðsýn- inni og dugnaðinum. Það eina, sem breyttist, var að það bættist í stóran reynslusjóð. Ég er þakklátur forsjóninni fyrir að hafa fengið að kynnast Hermanni Guðmundssyni, hugsjónum hans og áhugamálum. Hann var maður sem hægt var að dá og þykja vænt um. Á þessari stundu vil ég flytja þakkir frá ungmennafélagshreyfingunni fyrir starfið og fómfysina. Það geri ég fyrir hönd þúsunda ungmennafélaga um allt land, sem kynntust Hermanni á lön^um starfsferli. Eg sendi fjölskyldunni samúðar- kveðjur frá ungmennafélögum. Megi minningin um góðan dreng verða vinum og vandamönnum styrkur við skyndilegt og ótímabært fráfall. Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ Hinsta kveðja frá Öldrunarsamtökunum Höfn Hermann Guðmundsson í Hlíf er látinn. Hafnarfjörður stendur hníp- inn í sorg sinni. Einn af bestu sonum hans hefur kvatt og haldið yfir landa- mærin miklu. Eftir stendur skarð, sem vandfyllt verður. Það kom okkur stjórnarmönnum í Öldrunarsamtökunum Höfh í opna skjöldu, þegar okkur barst sú frétt, að félagi okkar og samstarfsmaður, Her- mann Guðmundsson, hefði látist á Borgarspítalanum fimmtudaginn 27. febrúar s.l. á 78. aldursári. Bara daginn áður hafði hann verið hjá okkur að fjalla um verkefni fé- lagsins, fullur áhuga og starfsgleði, glaður og reifur að vanda. Stundum dregur óvænt ský fyrir sólu. Hermann Guðmundsson átti heitan hug og hreint hjarta. Það birtist bæði í orðum hans og gerðum. TUngutak- ið var hiklaust og eldur hugsjóna, mannúðar og manngildis logaði glatt að baki orða hans og athafna. Þannig þekktum við félagsmála- og baráttu- manninn Hermann Guðmundsson. Hafnaríjörður, íslensk verkalýðs- og íþróttahreyfing eiga honum mikið að þakka. Hafnfirðingar, eldri sem yngri, horfa á eftir Hermanni Guð- mundssyni með söknuði í þakklátum hug og með mikilli virðingu. Margir munu verða til þess að minnast Hermanns Guðmundssonar og rekja æviferil hans, fjölþætt störf og mannkosti. Hér verður ekki um slíka minningargrein að ræða. Að- eins hinsta kveðja og þökk frá Öldr- unarsamtökunum Höfn í Hafnar- firði. Við þökkum honum ágætan hlut hans í bemskuskrefum félagsins í viðleitninni að búa öldruðum góða framtíð í upprísandi húsnæði félags- ins á Sólvangssvæðinu. Þar sem ann- ars staðar reyndist Hermann röskur og ráðhollur, áhugasamur og úr- ræðagóður, — félagi sem seint gleymist. Við kveðjum Hermann Guðmunds- son með mikilli virðingu og þökk. Minningin um góðan dreng Iifir og lýsir fram á veginn. Við geymum hana með sjálfum okkur. Og í hvert sinn sem við minnumst Hermanns Guðmundssonar, orða hans og verka, verðum við betri menn en áður. Slíkra manna er gott að minnast. Ekkju hans, Guðrúnu Ragnheiði Er- lendsdóttur, svo og ástvinum hans og vandamönnum öðrum, sendum við innilegar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Hafnar, Hörður Zóphaníasson, Haukur Helgason, Kristján Guðmundsson, Skarphéðinn Guðmundsson og Þorbjörg Samúelsdóttir 110 110 Kópavogur Skrifstofan að Digranesvegi 12 veröur framvegis opin á laugardögum kl. 10.00- 12.00. Lítiö inn og fáiö ykkur kaffisopa og spjalliö saman. Framsóknarfélögin i Kópavogl. Hafnarfjörður Skrífstofa Framsóknarfélaganna aö Hverfisgötu 25, er opin alla þriðjudaga frá kl. 17.00-19.00. Lítið inn í kafíi og spjall. Framsóknarfélögin i Hafnarfirðl. Selfoss — Nærsveitir Félagsvist Fjögurra kvölda keppni veröurspiluð að Eyrarvegi 15 þriöjudagskvöldin 3., 10. og 17. mars, kl. 20.30. Kvöldverðlaun — Heildarverölaun. Nú gefst vel á góu. Allir velkomnir, yngri sem eldri. Framsóknarfélag Selfoss Rangæingar — Félagsmálanámskeið Framsóknarfélag Rangæinga efnir til félagsmálanámskeiös á Hvolsvelli, laugardag- inn 7. mars kl. 10-18, ef næg þátttaka fæst. Kennd verða undirstööuatriði fundarskapa og ræðumennsku. Leiöbeinandi veröur Isólfur Gylfi Pálmason. Upplýsingar og skráning hjá Guömundi Svavarssyni, s. 78777 og 78230. Allir vel- komnir. Framsóknarfélag Rangæinga Kópavogur — Aðalfundur Laugardaginn 14. mars n.k. kl. 14.30 veröur settur og haldinn aðalfundur Framness hf. i húsi félagsins að Digranesvegi 12. Dagskrá samkvæmt 16. grein félagslaga. Stjómin. Akurnesingar Bæjarmálafundur veröur haldinn I Framsóknarhúsinu laugardaginn 7. mars kl. 10.30. Bæjarmélaráð. Ræðunámskeið fyrir byrjendur Landssamband framsóknarkvenna býður upp á ræðunámskeið fyrir byrjendur á mánudögum og miövikudögum aö Hafnarstræti 20 I Reykjavlk. Hámarksfjöldi 10 þátttakendur. Námskeiðiö hefst miðvikudaginn 11. mars kl. 20, stendur til kl. 22.30 og veröur alls 4-5 kvöld. Kennd veröa undirstöðuatriöi í ræðumennsku. Kennari veröur Katrin Yngvadóttir. Innritun ferfram á skrifstofu Framsóknarflokksins aö Hafnarstræti 20, sími 624480. Þátttökugjald kr. 3000. Framkvæmdastjóm L.F.K. UMFERÐAR RÁÐ Höfum flutt skrifstofu okkar að Borgartúni 33. Nýr sími: 622000. Nýtt póstnúmer: 150 Reykjavík. Umferðarráð Hveragerði Tíminn hf. óskar eftir umboðsmanni í Hveragerði. Upplýsingar í síma 686300. Tíminn hf. LEKUR : ER HEDDIÐ BLOKKIN? : SPRUNCIÐ? Viðgerðir á öllum heddum og blokkum. Plönum hedd og blokkir — rennum ventla. Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða. Viðhald og viðgerðir á iðnaöarvélum — járnsmíði. Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin—Sími 84110 Prjónasala Sala á prjónafatnaði verður í Sóknarsalnum, Skipholti 50 A, laugardaginn 7. mars n.k. kl. 10- 17. Vélprjónakonur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.